Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Halloween kl. 8 - 10:25 B.i. 16 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Shoot’em Up kl. 10:20 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Good Luck Chuck kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
The Kingdom kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Halloween kl. 6 B.i. 16 ára
SuperBad kl. 6 B.i. 12 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Sími 551 9000
4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Alexandra Enskur texti kl. 10:15 B.i. 14 ára
Halloween kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Veðramót kl. 5:40 - 8 B.i. 14 ára
eeee
- R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
SÍ
ÐU
ST
U
SÝ
N.
Verð aðeins300 kr.
DÓMSDAGUR
DJÖFULSINS!
FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR
EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS!
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
eee
Dóri DNA - DV
SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA
eeee
- S.V., MBL
eeee
- R.H., FBL
eee
T.V. Kvikmyndir.is
eee
- J.I.S., Film.is
eee
- T.S.K., Blaðið
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
Ver
ð aðeins
600 kr.
HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM
ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA?
Frá gaurnum sem færði okkur The
40 Year Old Virgin og Knocked Up
Bölvun eða blessun ?
Sofðu einu sinni hjá Chuck og næsti
maður sem þú hittir er ást lífs þíns.
Brjálæðislega fyndin mynd!! ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
3 MEISTARAVERK FRUMSÝND
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
eeee
- Anna Sveinbjarnardóttir,
Morgunblaðiðð
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson,
Morgunblaðið
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
- T.S.K., Blaðið - H.J., MBL
- LIB, Topp5.is
KVIKMYND EFTIR ALEXANDR SOKUROV
SÚLNASALUR Hótel Sögu hefur
sjarma sem staðist hefur tímans
tönn og því alltaf gaman að eiga þar
huggulega kvöldstund í mat og
drykk og njóta góðrar skemmtunar
á eftir með söng og hljóðfæraslætti.
Þótt nokkuð sé nú um liðið frá því
Ragnar Bjarnason hætti með hljóm-
sveit sína á Sögu svífur andi hans
þar enn yfir vötnum, enda segja gár-
ungarnir að hann hafi fljótlega sjálf-
ur orðið ein af súlunum í salnum.
Mikið til í því og þeim mun ánægju-
legra að eiga þess nú kost að sjá
gömlu „goðsögnina“ stíga þar á svið
á ný.
Söngskemmtunin „Söngsaga“,
sem nú er boðið upp á í Súlnasaln-
um, er að mörgu leyti vel heppnuð
og bráðskemmtileg. Þetta er svona
ekta söngskemmtun af „gamla skól-
anum“, með hefðbundinni innkomu
skemmtikrafta og léttri kynningu,
sem Hemmi Gunn annast af sinni al-
kunnu snilld. Lagavalið er líka sótt
til hinna ýmsu tímaskeiða tónlistar-
sögunnar, lög sem flestir þekkja og
er víða komið við. Hefur vel tekist til
með lagaval og flytjendur eru góð
blanda af ungum sem öldnum. Auk
Ragga Bjarna koma fram Guðrún
Gunnarsdóttir og Bjarni Arason og
til að yngja enn frekar upp eru þær
Hara-systur frá Hveragerði mættar
til leiks og virðast þær falla inn í
hópinn eins og flís við rass.
Bjarni Arason gaf tóninn með
syrpu af lögum úr smiðju Tom Jones
og þá strax fór um mann nettur fiðr-
ingur því Bjarni er ekki einasta frá-
bær söngvari heldur einnig góður
sviðsmaður með sterka útgeislun.
Ég fékk sterklega á tilfinninguna að
gestir í salnum hefðu engu verið
bættari þótt Tom hefði sjálfur sung-
ið þarna á sviðinu. Svo er Bjarni líka
hörkugóður trompetleikari og átti
skemmtilegar innkomur sem slíkur
út alla tónleikana. Guðrún Gunnars
hefur einnig fyrir löngu sungið sig
inn í hjörtu þjóðarinnar og veldur
engum vonbrigðum í þessari sýn-
ingu. Hara-systur komu skemmti-
lega á óvart, en ég verð að játa að
þetta er í fyrsta skipti sem ég sé þær
„lifandi“ á sviði og þær virðast hafa
til að bera allt sem þarf í svona sýn-
ingu, ágætar söngraddir og örugga
sviðsframkomu þótt ungar séu að
árum og óreyndar. Um Ragga sjálf-
an þarf auðvitað ekki að fjölyrða.
Hann kemur mönnum alltaf í gott
skap og átti greinilega hug og hjörtu
viðstaddra. Það var vissulega ljúft
að hlusta á Ragga syngja nokkur af
sínum þekktustu lögum, svo sem
„Komdu í kvöld“, „Heyr mitt ljúf-
asta lag“ og „Vorkvöld í Reykjavík“,
svo nokkur séu nefnd og samsöngur
Ragga og Bjarna í laginu „New
York, New York“ var hreint út sagt
frábær. Af öðrum hápunktum
kvöldsins má einnig nefna flutning
Guðrúnar Gunnars á laginu „Heyr
mína bæn“, sem sungið var í minn-
ingu Ellýjar Vilhjálms, sem söng
ásamt Ragnari með hljómsveit Svav-
ars Gests í Súlnasalnum á upphafs-
árunum. Hara-systur voru líka sann-
færandi í flutningi sínum á
ABBA-lögunum, og áttu víðar
skemmtilega innkomu. Skemmt-
uninni lauk svo með viðeigandi
glensi er Hemmi Gunn söng víð-
fræga útgáfu sína á laginu „Fallerí-
fallera“.
Skylt er að geta góðrar frammi-
stöðu hljómsveitarinnar Saga Klass,
ásamt aðstoðarmönnum, undir
stjórn tónlistarstjórans Þrastar Þor-
björnssonar gítarleikara, en hann
hefur þarna greinilega unnið mjög
gott verk. Söngskemmtunin „Söngs-
aga“ fer þægilega í gegnum sögu
„melódískrar“ dægurtónlistar frá
þeim tíma þegar Ragnar byrjaði á
Sögu og til Evróvisionlaga nú-
tímans. Er þar fáa hnökra að finna
enda valinn maður í hverju rúmi.
Skemmtileg Söngsaga á Sögu
Sveinn Guðjónsson
TÓNLIST
Söngskemmtun
Söngvarar: Bjarni Arason, Guðrún
Gunnarsdóttir, Ragnar Bjarnason og
Hara-systur, ásamt hljómsveitinni Saga
Klass og aðstoðar-hljóðfæraleikurum.
Súlnasalur – Hótel Saga Morgunblaðið/Eggert
Sögulegt „Söngsaga“ fer þægilega í gegnum sögu „melódískrar“ dægurtónlistar frá þeim tíma þegar Ragnar
byrjaði á Sögu og til Evróvisionlaga nútímans,“ segir m.a. í dómi Sveins Guðjónssonar.
ARCTIC Mon-
keys-söngvarinn
Alex Turner op-
inberaði sam-
band sitt við
sjónvarpskynn-
inn Alexu Chung
á Q verðlaunaaf-
hendingunni síð-
astliðinn mánu-
dag.
Turner og
Chung hafa verið að hittast síðan í
júlí en ekki mætt saman op-
inberlega fyrr en nú.
Í staðinn fyrir að fara með hljóm-
sveitarfélögum sínum að borða á
Nobu fór Turner með Chung á Met
Bar eftir athöfnina. „Þeir gátu ekki
sannfært Alex um að koma með sér,
hann vildi vera með Alexu,“ sagði
einn vinur bandsins.
Seinna um kvöldið hittu Turner
og Chung þó hina meðlimi Arctic
Monkeys á barnum Bugalow 8.
Parið hittist fyrst á tónlistarhátíð
í Skotlandi. Þá hló Chung að orð-
rómi þess efnis að hún og Turner
væru að hittast því hún var í sam-
bandi með Ian Watkins.
Alex Turner
á kærustu
Reuters
Alexa Chung