Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 23
OR Orkuveita Reykjavíkur REI Reykjavik Energy Invest  GGE Geysir Green Energy HS Hitaveita Suðurnesja  GÞÞ Guðlaugur Þ. Þórðarson  HL Haukur Leósson  BÁ Bjarni Ármannsson  HBK Hjörleifur B. Kvaran HSm Hannes Smárason  GÞ Guðmundur Þóroddsson  JDJ Jón Diðrik Jónsson  BÁP Björn Ársæll Pétursson  JÁJ Jón Ásgeir Jóhannesson Skammstafanir MORGUNBLAÐINU hefur borist greinargerð frá Bjarna Ármannssyni, stjórn- arformanni REI, Hauki Leóssyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, og Hjörleifi Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur: 25. janúar 2007 – Úr fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur: Lögð fram svohljóðandi tillaga stjórnarformanns (GÞÞ). Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir að eignarhluti Orkuveitu Reykjavíkur í Enex hf. verði settur í sérstakt hlutafélag, eignarhaldsfélag, sem Orkuveita Reykja- víkur eigi ásamt Landsvirkjun, Nýsköpunarsjóði og Íslenskum orkurannsóknum. Forstjóra verði falið að undirrita stofnsamþykktir og önnur skjöl vegna þessarar ráðstöfunar. Tillögunni fylgir greinargerð. Tillagan samþykkt. Ennfremur samþykkt að fela forstjóra og framkvæmdastjóra lögfræðisviðs að vinna tillögu um hvernig Orkuveita Reykjavíkur standi að útrásarverkefnum í fram- tíðinni og leggja fyrir næsta stjórnarfund. Stjórnin ítrekar áður fram komin sjónarmið um frekari kaup í Enex hf. ef í boði verður. 7. mars 2007 – Úr fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur: Lögð fram svohljóðandi tillaga forstjóra (GÞ) og aðstoðarforstjóra (HBK): Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir að stofna hlutafélag utan um útrásar- starfsemi OR. Félagið hafi sérstakan fjárhag og stjórn. Til félagsins verði lagt hlutafé OR í Enex hf. og Enex Kína ehf. og önnur þau verkefni sem OR stendur að á erlendri grund. Til félagsins leggi OR auk þess hlutafé, allt að 2 milljörðum króna sem notað verði til þátttöku í félögum og verkefnum með öðrum aðilum sem stunda útflutning á íslenskri tækniþekkingu og fjárfestingar í vistvænum orkutækifærum á erlendri grund. Greinargerð fylgir tillögunni. Samþykkt. Greinargerðin með tillögunni er svohljóðandi: Á stjórnarfundi 25. janúar sl. var forstjóra og framkvæmdastjóra lögfræðisviðs fal- ið að vinna tillögu að því hvernig Orkuveita Reykjavíkur standi að útrásarverkefnum í framtíðinni og leggja fyrir næsta stjórnarfund. Orkuveita Reykjavíkur hefur verið í fararbroddi við að skapa íslenskri tækni og þekkingu á jarðhita og vistvænum orkumálum viðurkenningu erlendis. Orkuveitan er það íslenskra orkufyrirtækja sem best er þekkt erlendis og er því talið mik- ilvægt að hún komi að útrás íslenskrar jarðhitaþekkingar og mikil ásókn er í að hafa OR meðal eigenda útrásarfyrirtækja. OR er um 25% eigandi að Enex og á þriðjung í Enex-Kína. Þá er OR einnig þátttakandi í nokkrum verkefnum sem ver- ið er að skoða erlendis. Hlutafé verður greitt inn til félagsins á næstu misserum eftir því sem starfsemin og verkefni þróast. Rétt þykir þar sem starfsemi þessi verður sífellt umfangsmeiri að hafa hana í sérstöku hlutafélagi þar sem ábyrgð er takmörkuð og eigendur OR því ekki í ábyrgð fyrir félagið. Þá er hugsanlegt að taka samstarfsaðila beint inn í félagið. Mikill áhugi er meðal íslenskra aðila á fjárfestingum í vistvænni orku erlendis t.d. Geysir Green Energy hf., Atorka hf. og Enex hf. Tvö fyrst nefndu félögin hafa óskað eftir samstarfi við OR um útrás. 11. júní 2007 – Reykjavik Energy Invest ehf. formlega stofnað. Eftirtaldir voru kjörnir í stjórn: Björn Ársæll Pétursson, formaður Haukur Leósson Björn Ingi Hrafnsson 23. ágúst 2007 – Úr fundargerð stjórnar REI: Lagðar fram hugmyndir að samkomulagi um fyrirkomulag formlegs sam- komulags Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest. Samþykkt að gera drög að samningi Orkuveitu Reykjavíkur á framlögðum nótum þó með „First right of refusal“ í stað einkaréttar REI á hugverkum og þjónustu OR. Samþykkt að aðstoðarforstjóri Orkuveitunnar kanni og tryggi réttarstöðu vöru- merkja, Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjavík Energy og Reykjavík Energy Invest. Formaður (BÁP) biðst lausnar frá stjórnarsetu. Boðaður verður hlutahafa- fundur vegna þess 30. eða 31. ágúst. Fundarmenn færðu fráfarandi formanni þakkir fyrir gott starf í þágu Reykjavík Energy Invest. 11. september 2007 Hluthafafundur í REI. Bjarni Ármannsson kjörinn í stjórn REI. 11. september 2007 – Stjórnarfundur í REI. Bjarni Ármannsson kjörinn formað- ur stjórnar REI. Úr fundargerð stjórnar: Samþykkt að bjóða OR að auka hlut sinn í félaginu um kr. 2.600.000.000 á genginu 1,0, sem greitt verði fyrir 1. febrúar 2008. Fallist OR á það er forstjóra REI falið að ganga frá hlutafjárhækkuninni. Lagt var fram samkomulag milli OR og Bjarna Ármannssonar dags. 11. sept- ember 2007 og hluthafasamningur milli Sjávarsýnar ehf. og OR. Stjórn REI sam- þykkir að beita heimild sinni til hækkunar hlutafjár í félaginu um kr. 391.244.870- til að mæta skuldbindingum þeim sem fram koma í framangreindum gögnum. Bjarni vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Bjarni keypti á genginu 1,278. 17. september 2007 – Úr fundargerð stjórnar REI Ákveðið að reyna að fá Jón Diðrik Jónsson sem ráðgjafa til félagsins um málefni er lúta að stefnumótun, skipulagi o.fl. Stjórnarformanni heimilað að ganga frá samningi við hann. JDJ verði heimilt að kaupa hluti í REI f að kaupverði 30 mkr. á sama gengi og stjórnarformaður keypti hlutabréf á fyrr í mánuðinum. Jafnframt var samþykkt að auka hlutafé félagsins til að mæta þessu. 20. september 2007 – Haldinn fundur stjórnar og forstjóra REI (HL, BIH, BÁ, GÞ) með fulltrúum Geysir Green Energy og FL-Group (HSm og JÁJ). Ákveðið var í framhaldi af fundinum að láta á það reyna hvort sameina eigi fyrirtækin. 22. september 2007 – Stjórnarformaður REI (BÁ) á fund með stjórnarformanni GGE (HSm) og lagður grunnur að þáttum er varðað geti sameiningu félaganna, verðmætamati hvors um sig og hlutafjáraukningu. Stjórnarformaður REI semur minnisblað í framhaldi af fundinum. Úr minnisblaði BÁ: 23. september 2007 – Stjórnarformaður REI (BÁ) og stjórnarformaður OR (HL) afhenda og kynna minnisblaðið fyrir borgarstjóra á löngum fundi á heimili hans. Borgarstjóri lýsir sig samþykkan áformum um sameiningu REI og GGE á þeim forsendum sem í minnisblaðinu greinir. 24. september 2007 – Stjórnarformaður REI, stjórnarformaður OR og stjórn- arformaður GGE handsala samkomulag um sameiningu REI og GGE. 25. september 2007 – Stjórnarformaður OR (HL) afhendir forstjóra OR (HBK) minnisblað BÁ og felur honum að undirbúa sameininguna og öll þau gögn sem leggja þarf fyrir stjórn og eigendur OR. 1. október 2007 – Samþykkt á fundi stjórnar REI að selja félagi í eigu starfs- manna OR og 17 tilgreindum starfsmönnum OR og REI nýtt hlutafé í félaginu. 2. október 2007 – Haldinn kynningarfundur fyrir meirihluta borgarstjórnar og fulltrúum Akraness og Borgarbyggðar um samruna REI og GGE. (GÞ, HL og HBK kynntu) 3. október 2007 – Kynningarfundur með fulltrúum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur í stjórn OR um samruna REI og GGE. (GÞ, HL og HBK kynntu) 3. október 2007 – Kynningarfundur fyrir meirihluta borgarstjórnar. (GÞ og HL kynntu) 3. október 2007 – Samþykkt á fundi stjórnar REI að breyta fyrri ákvörðun varð- andi hlutafjárkaup tilgreindra starfsmanna eftir samráð og samþykki hlutaðeig- andi. Tekin ný ákvörðun um sölu nýs hlutafjár til 11 starfsmanna OR og REI. 3. október 2007 – Fundur stjórnar og eigenda Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir fjórar tillögur varðandi samruna REI og GGE. (Sjá meðfylgjandi fundargerð) Ábendingar: Liður 2 er í samræmi við samþykkt stjórnar REI frá 11. september 2007. Liður 3 er í samræmi við samkomulag sem getið er um á minnisblaði BÁ, Skref í samruna, tl. 2, og kynnt var borgarstjóra 23. september. Liður 4 er í samræmi við sama minnisblað, Skref í samruna tl. 6. Liður 5 er í samræmi við aðalefni sama minnisblaðs. 6. október 2007 – Á fundi í stjórn REI er gerir BÁ grein fyrir ósk borgarstjóra um að fallið verði frá sölu nýs hlutafjár til tilgreindra starfsmanna OR og REI. Til- laga flutt þar að lútandi og samþykkt. Reykjavík, 15. október 2007 Bjarni Ármannsson, Haukur Leósson Hjörleifur B. Kvaran Atburðarás í aðdraganda sameiningar REI og GGE MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 23 að borgarstjóri kynnti ekki fyr- sínum borgarstjórnarflokki fyr- sameiningu REI og Geysir Green. ar þurfa að geta ið sig undir fundi þykktum Orkuveitunnar segir að uli stjórnarfund með sjö daga fyr- g tilgreina skuli fundarefnið. Sams- kvæði um fyrirvara á fundum er finna í stjórnsýslureglum. Á sam- borgarinnar um fundarsköp er eint að borgarstjórnarfundi skuli svar í mánuði, annan hvern þriðju- garráðsfundi skuli halda einu sinni fimmtudögum. Tekið er fram að sé að taka til meðferðar í borg- ál sem ekki er á dagskrá, „en skylt ð fresta afgreiðslu þess til næsta f þess verður óskað.“ ákvæði um fyrirvara á boðun ru hugsuð til að menn hafi tíma til búa sig og geti fengið gögn í tíma,“ rfræðingur í stjórnsýslurétti sem blaðið ræddi við í gær. Þetta um 7 daga fyrirvara á fundarboði virt þegar stjórn Orkuveitunnar um sameiningu REI og GGE, en jóri, sem var lögfræðingur, úr- fundinn engu að síður löglegan. a er tekist á í dómsmáli sem Svan- arsdóttir borgarfulltrúi hefur höfð- fá fundinn dæmdan ólöglegan. andinn hefur ekki þrengt umboð stjórn- armanns þá hefur hann tiltölulega mikið frelsi. Það er umbjóðandans að ganga þannig frá málum að hann hafi taumhald á fulltrúa sínum.“ Gunnar Helgi segir augljóst að það hafi orð- ið trúnaðarbrestur á milli fulltrúa í stjórn tunnar og borgarfulltrúa Sjálf- okksins. Fulltrúarnir hafi ekki kjörna fulltrúa nægilega vel um ri um að vera, kannski vegna þess afi ekki hirt um að kynna sér það a vel sjálfir. „Það virðist vera að dur fyrirtækisins [Orkuveitunnar] upplýst hina pólitísku fulltrúa nægjandi hætti um mikilvægi þess ð var að ákveða, a.m.k. halda hinir ulltrúar því fram. Almennt er gríð- mikilvægt að starfsfólk í stjórnsýslu um mikilvægum upplýsingum að ólitísku fulltrúum, og veki athygli þeim. Ég myndi segja að það væri tarfsskyldum þeirra,“ segir Gunn- ri fundi? Morgunblaðið/Brynjar Gauti umboði eigenda OR til að taka orgarstjóri gat afgreitt málið án a elgi n Ár 2007, miðvikudaginn 3. október kl. 15.30 var hald- inn eigendafundur og 72. fundur í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hér verður einungis vísað til þeirra liða sem getið er í greinargerð: „Tillaga um kaup á hlutafé í Reykjavík Energy In- vest borin upp fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Samþykkt með 5 atkvæðum, einn sat hjá með bókun fulltrúa Vinstri grænna um samruna REI og GGE sem áður hefur komið fram. Tillagan borin upp fyrir eigendur. Samþykkt af tveimur eigendum, einn sat hjá (Borgarbyggð). Lagt er til að Orkuveita Reykjavíkur samþykki að hlutir félagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf. að bók- færðu verði kr. 8.674.611 verði lagðir inn sem hlutafé í Reykjavík Energy Invest hf. á genginu 2,7 og fái hlutafé í Reykjavík Energy Invest að nafnverði kr. 3.209.276 sem undanfari samruna Reykjavík Energy Invest hf. og Geysir Green Energy. Með tillögunni fylgir sérfræðiskýrsla, sbr. 37 gr. og 5.-8. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög vegna hlutafjáraukningarinnar. Tillagan borin upp fyrir stjórnarfund. Samþykkt með 5 atkvæðum. Einn sat hjá (Svandís Svavarsdóttir). Tillagan borin upp fyrir eigendur. Samþykkt af tveimur eigendum, einn sat hjá (Borgarbyggð). Lagt er til að Orkuveita Reykjavíkur samþykki fyrirliggjandi samning við Reykjavík Energy Invest hf. um aðgang að tækniþjónustu o.fl. og forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur verði veitt heimild til und- irritunar hans f.h. félagsins. Samningurinn samþykktur í stjórn með 5 atkvæð- um. Einn sat hjá (Svandís Svavarsdóttir). Samningurinn borin undir eigendur.Samþykktur með tveimur atkvæðum og einni hjásetu (Borgar- byggð). Lagt er til að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samruna Reykjavík Energy Invest hf. við Geysir Green Engergy hf. skv. fyrirliggjandi samningi um breytingar á eignarhaldi REI og samruna REI við GGE, þar sem REI verður yfirtökufélag dags. í dag. Tillagan borin upp fyrir stjórnarfund. Samþykkt með 5 atkvæðum, einn sat hjá (Svandís Svavarsdótt- ir). Tillagan borin upp fyrir eigendur. Samþykkt af tveimur eigendum, einn sat hjá (Borgarbyggð). Bókanir hér ekki tíundaðar enda fram komnar.) Úr fundargerð stjórnar OR Skref í samruna 1. REI eykur hlutafé um 19 milljarða með því að OR leggur inn núverandi hlutabréf í HS á 9 milljarða og FL kaupir hlutabréf í REI fyrir 9 millj- arða í peningum og Bjarni fyrir 1 milljarð. Eftir þau viðskipti á Orkuveit- an 68,2%. Samhliða því gera aðilar með sér hluthafasamkomulag og ákveða að sameina REI og GGE í eitt félag sem heitir REI. Glitnir selur 0,8% í sameinuðu félagi. 2. REI fær kauprétt að þeim bréfum sem OR kann að eignast í HS og OR reynir að kaupa hlutabréf Hafnarfjarðar svo fljótt sem auðið er. 3. OR og FL koma sér saman um eftirfarandi þætti í hluthafasamkomulagi sem myndi gilda eftir að félögin eru sameinuð. a. Bæði félögin séu með jafnstóran hlut í hinu sameinaða félagi sem í upphafi yrði um 38%. Stefnt skal að hlutafjáraukningu sem nemur um 20 milljörðum. b. Að stefnt sé að því að félagið sé með í framleiðslu ca. 2-4 þúsund megavött eftir 2 ár. c. Félagið fari í skráningu á alþjóðlegan hlutabréfamarkað. Stefnt sé á skráningu vorið 2009. d. Í stjórn félagsins sitji 5-7 manns. (Viðmið 6). Samkomulag er um að Bjarni Ármannsson verði stjórnarformaður. e. Báðir aðilar hefðu neitunarvald á meiri háttar ákvarðanir í félaginu, s.s. stórar fjárfestingar. Beiti annar aðilinn slíku neitunarvaldi skal hinum frjálst að fara í fjárfestinguna. Hluthöfum skal heimilt að með- fjárfesta ef það þjónar hagsmunum REI. 4. Stefna félagsins er að fjárfesta í endurnýtanlegum orkugjöfum með áherslu á jarðhita. Bæði er um að ræða rafmagnsframleiðslu og hitaveitu. 5. Hluthafar komi sér saman um forstjóra félagsins. 6. Orkuveitan og REI geri samning sín á milli sem tryggi aðgang að þekk- ingu og starfsfólki OR. Jafnframt heimili notkun vörumerkisins og að Orkuveitan beini öllum verkefnum utan Íslands til REI. Samningur um slíkt sé til 20 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.