Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 39 Sími 530 1919 www.haskolabio.is Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Stærsta kvikmyndahús landsins Good Luck Chuck kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára The Kingdom kl. 5:40 - 8 - 10:20 Heima - Sigurrós kl. 6 - 8 - 10 Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Sagan sem mátti ekki segja. eeee - B.B., PANAMA.IS eeee - E.E., DV eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ “TOP 10 CONCEPT FILMS EVER” - OBSERVER eeeee “HEIMA ER BEST” - MBL eeeee - FBL eeeee - BLAÐIÐ eeeee “MEÐ GÆSAHÚÐ AF HRIFNINGU” - DV eeeee - Q eeee - EMPIRE GEGGJUÐ GRÍNMYND Miðasala á www.laugarasbio.is HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA? FRÁ FRAMLEIÐANDANUM MICHAEL MANN OG LEIKSTJÓRANUM PETER BERG eeee “MARGNÞRUNGIN SPENNUMYND MEÐ ÞRUMUENDI„ EMPIRE Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15-POWER B.i. 16 ára -bara lúxus Sími 553 2075 FRÁ FRAMLEIÐANDANUM MICHAEL MANN OG LEIKSTJÓRANUM PETER BERG eeee “MARGNÞRUNGIN SPENNUMYND MEÐ ÞRUMUENDI„ EMPIRE HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA? Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 B.i. 12 áraSýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára Bölvun eða blessun ? Sofðu einu sinni hjá Chuck og næsti maður sem þú hittir er ást lífs þíns. Brjálæðislega fyndin mynd!! 10:15 eeeee - L.I.B, TOPP5.IS NÝJUSTU kvikmyndirnar voru með þeim mest sóttu um nýliðna helgi. Good Luck Chuck situr nú í fyrsta sæti bíólistans. Í henni segir frá Charlie Logan sem er mjög vinsæll hjá einhleypum konum, enda er hann haldinn þeim töfrum að með því að sofa hjá honum einu sinni verður næsti maður sem þær hitta stóra ást- in í lífi þeirra. En svo kemur að því að Charlie hittir draumastúlkuna sína og reynir allt til að koma í veg fyrir að hún hitti þann eina sanna með því að rjúfa álögin sem á honum hvíla. Stardust var mest sótta myndin fyrir viku og situr nú í öðru sæti, eins og komið hefur fram er þetta æv- intýramynd sem var tekin upp að stórum hluta á Íslandi. Önnur ný mynd, The Kingdom, sit- ur svo í þriðja sæti. Þar er fjallað um sérsveit sem hefur það verkefni að finna sökudólgana á bak við blóðuga árás á bandaríska borgara í Mið- Austurlöndum. Eins vel og það hljómar fékk The Kingdom aðeins eina stjörnu hjá kvikmyndagagnrýn- anda Morgunblaðsins í gær sem þótti handritið heldur veikt. Unglingagamanmyndin Superbad, sem inniheldur mikinn neðanbelt- ishúmor, er í fjóða sæti og The Brave One situr í því fimmta. Það er eð- alleikkonan Jodie Foster sem fer með aðalhlutverkið í The Brave One sem fjallar um útvarpskonu sem tek- ur lögin í eigin hendur þegar unnusti hennar deyr. Myndin fær tvær stjörnur hjá Önnu Sveinbjarn- ardóttur kvikmyndagagnrýnanda sem segir hana dæmisögu, eða nú- tíma ævintýri, ekki sagða með hefð- bundinni frásögn. Astrópía er enn vel sótt af löndum sínum og er nú í sjöunda sæti bíólist- ans, áttundu viku sína í sýningu. Bíólistinn Good Luck Chuck fór beint á toppinn        * C.  (                      !" #!$%!&! '(( )!!* ,- . /0 )1   !2   34  $ 5 ((!             Chuck Charlie Logan er haldin álögum en þegar hann hittir draumadísina reynir hann að brjótast undan álögunum til að krækja í hana. RADIOHEAD stendur frammi fyr- ir því lúxusvandamáli að fólk ætlast meira og minna til þess að líf þess breytist við hverja plötu sem hún gefur út. Ástæðan fyrir þessu er plata sem kom út fyrir tíu árum, OK Computer, ein lofaðasta rokk- plata sem út hef- ur komið. Eins og langt dreginn eiturlyfjaneytandi er fólk enn að vonast eftir því að endurupplifa áhrifin af þeirri plötu, en eins og sönnum listamönnum sæmir hafa meðlimir Radiohead markmiðsbundið forðast endurtekn- ingar. Sú viðleitni hefur þó ekki alltaf borið ávöxt. Kid A, platan sem kom út á eftir þessu nafntog- aða meistaraverki, stendur þó sem ein hugrakkasta plata sem rokk- sveit hefur gefið út – og toppar í raun OK Computer (kvartanir sendist á netfangið mitt). En Am- nesiac og Hail to the Thief eru þunnar, sérstaklega sú síðarnefnda sem reyndist misheppnuð tilraun til að brúa bilið á milli poppsins á OK Computer og tilraunastarfseminnar á Kid A. In Rainbows kom út síðasta mið- vikudag sem niðurhal – og er því ekki til í efnislegu formi. Radiohead sýndu með þessu að enn er hún brautryðjandi og hefur útgáfuhátt- urinn – en Radiohead gaf plötuna sjálf út – vakið talsvert umtal. En að sjálfri tónlistinni. Maður veit strax um hvaða hljómsveit er að ræða en samt kveður við nýjan tón. Áreynsluleysi er lausnaorðið, lögin liggja þægilega úti í vinstri kantinum, öll saman hæfilega súr um leið og þeim er stýrt af þægi- legri framvindu. Fallegar melódíur gera vart við sig en eru naumt skammtaðar, um leið og hlutirnir verða of heimilislegir eru þeir brotnir upp. Hér hefur náðst jafn- vægi sem maður var hræddur um að væri glatað og það er styrkjandi reisn yfir plötunni. Ekki vottur af tilgerð í gangi en um leið er aldrei gefinn listrænn þumlungur eftir. Líf mitt er ekki breytt. En það er ögn betra. Radiohead er enn með þetta og ég býð því spenntur eftir næstu plötu – og spennan er enn meiri en hún var fyrir þennan vel lánaða grip. Regnbogabörnin TÓNLIST Geisladiskur  Radiohead – In Rainbows Útvarpshausar Breyta þeir lífi þínu? Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.