Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Banaslys í umferðinni
Banaslys varð á Krýsuvíkurvegi í
gær þegar bifhjólamaður rann út af
veginum við Bláfjallaafleggjara og
lenti úti í úfnu hrauni. Þetta er tí-
unda banaslysið í umferðinni á þessu
ári en þar af hafa þrír bifhjólamenn
látist. »Forsíða
Kunnugt um samning?
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borg-
arstjóra var gerð grein fyrir einka-
réttarsamningnum milli Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) og Reykjavík
Energy Invest (REI), ef marka má
yfirlýsingu þeirra Bjarna Ármanns-
sonar, Hauks Leóssonar og Hjör-
leifs Kvaran í gær. Vilhjálmur ber
þetta hins vegar til baka, segist ekki
minnast þess að hafa séð minn-
isblaðið þar sem fram kom að OR
myndi beina öllum verkefnum er-
lendis til REI. »Forsíða
Borgarstjóraskipti í dag
Borgarstjóraskipti verða í dag en
þá tekur nýr meirihluti við í Reykja-
vík, eftir að upp úr meirihluta-
samstarfi Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks slitnaði. Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar,
verður borgarstjóri. »2
Hirsi Ali til Danmerkur?
Til greina kemur af hálfu danskra
stjórnvalda að bjóða rithöfundinum
Ayaan Hirsi Ali hæli og vernd í Dan-
mörku. »14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Almannahagsmunir
borgarstjóra
Forystugreinar: Gjörninginn verður
að ógilda | Sala áfengis
Ljósvakinn: Kostuleg hvílubrögð
UMRÆÐAN»
Daglegt brauð í réttu jafnvægi
Beiðni til Ómars Ragnarssonar
Störf hjúkrunarfræðinga
Fíkniefnasmygl og hryðjuverk
3 2 2 2
243
24
2 2 5
%6#&
, #) %
7
$ $##1#" ,
323
23
2 2 2 2
2
244
+8
/ &
3 24
324
2 2
2 2 23
23
9:;;<=>
&?@=;>A7&BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA&8#8=EA<
A:=&8#8=EA<
&FA&8#8=EA<
&0>&&A1#G=<A8>
H<B<A&8?#H@A
&9=
@0=<
7@A7>&0)&>?<;<
Heitast 6 °C | Kaldast -1 °C
Norðvestan 10-15
m/s norðaustanlands,
annars mun hægari.
Dálítil él austanlands
en annars léttskýjað. » 10
En nýjasta plata
Radiohead, In Rain-
bows, þykir gagn-
rýnanda blaðsins
engu að síður ansi
góð. »39
TÓNLIST»
Breytir ekki
lífi manns
TÓNLIST»
Raggi Kjartans spangól-
ar í New York. »41
Afríka er fjölmenn,
fjölbreytt og marg-
brotin heimsálfa, en
Vesturlandabúaar
sjá oft aðeins eymd-
ina. »40
AF LISTUM»
Leirkofar
og trumbur?
TÓNLIST»
Jó Jó og Springsteen
saman að spila. »36
TÓNLIST»
Gjöfult samstarf gyðings
og araba. »36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Laxerolía í samlokum …
2. Pitt: Timburmenn og uppeldi …
3. Jóakim spillir áætlunum Viktoríu
4. Umfangmikil leit … Madeleine
ATVINNUMENN í knattspyrnu
hafa í gegnum tíðina fengið há laun
fyrir vinnu sína og á undanförnum
árum hafa tekjur þeirra bestu aukist
gríðarlega. Íslenskir knattspyrnu-
menn sem stunda vinnu í Noregi eru
margir hverjir með svipuð laun og
ráðherrar á Íslandi. Samt sem áður
eru árslaun íslensku knattspyrnu-
mannanna aðeins brot af því sem
tekjuhæstu knattspyrnumenn heims
fá. Til samanburðar má nefna að
Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður
íslenska landsliðsins og norska liðs-
ins Brann, fær næstum því helmingi
minna í árslaun en enski landsliðs-
maðurinn John Terry hjá Chelsea
fær á einni viku.
Upplýsingar um laun leikmanna í
norsku knattspyrnunni eru aðgengi-
legar á netinu og er Árni Gautur
Arason, markvörður íslenska lands-
liðsins, sá tekjuhæsti Íslending-
anna. | Íþróttir
Árni er sá
tekjuhæsti
Árni Gautur Arason
LJÓÐABÓKIN
Vafi kemur út í
þessari viku,
raunar á afmæl-
isdag höfund-
arins Jökuls
Mána Kjart-
anssonar, sem þá
verður 10 ára.
„Ég var eig-
inlega bara að
leika mér fyrst,“
segir Jökull Máni. Hann fékk síðan
þá hugmynd að gefa út bók. „Ég var
búinn að hugsa þetta í eina viku og
síðan nennti ég ekki að bíða lengur
og byrjaði að skrifa.“
Höfundurinn segir ljóðin ólík inn-
byrðis. „Eitt er um risaeðlur og ann-
að um geimverur. Ljóðin eru ekki
bara um eitthvað eitt, eins og til
dæmis um haustið.“
Jökull Máni sá sjálfur bæði um
skriftir og skreytingar „en mamma
hjálpaði mér dálítið með stafsetn-
inguna“. Spurður hvaðan hann fái
hugmyndir segir hann að hann horfi
til dæmis út um gluggann. „Þá fæ ég
kannski innblástur.“ | 36
Ljóðabók
á afmælinu
Jökull Máni
Kjartansson
NUDDARAR frá Heilsudrekanum nudduðu háls og bak
ráðstefnugesta í Listasafni Kópavogs í gær hvers á fæt-
ur öðrum. Var þessi nýstárlega tilbreytni á ráðstefnu
hér á landi vel þegin en það var Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs, sem reið á vaðið. Hann
var meðal gesta á ráðstefnu Glitnis og íslensk-
kínverska viðskiptaráðsins um hvernig komast ætti í
viðskipti við kínversk fyrirtæki. Jón var líkt og margir
viðstaddra á ferð í Kína á dögunum og nýtti sér tæki-
færið aftur að fá slakandi kínverskt nudd. | 13
Vel þegið nudd á ráðstefnu
Nýbreytni á Kínaráðstefnu í Listasafni Kópavogs
Morgunblaðið/RAX
♦♦♦
UNG kona frá Vopnafirði, sem sat
föst í bíl sínum í tvær klukkustundir
í Víðidal á Möðrudalsöræfum eftir
útafakstur, segir með ólíkindum að
enginn þriggja vegfarenda, sem
hún bað um að hringja fyrir sig í
Neyðarlínu þegar þeir kæmu í far-
símasamband, lét vita af óhappinu.
Hrund Snorradóttir missti bíl
sínn út af veginum í snjó og krapa á
fimmtudagsmorgun. Bíllinn sat
fastur í snjóskafli og Hrund gat
ekki opnað neinar dyr.
Bað um að hringt yrði í 112
Á rúmri klukkustund komu þrjár
bifreiðir að og ökumenn buðu fram
aðstoð. Hrönn bað fólkið að aka uns
farsímasamband næðist og hringja
þá í 112 og biðja um aðstoð. Fjórir
til viðbótar óku fram á hana en þá
þóttist hún örugg um að hjálp færi
að berast og bað þá ekki sér-
staklega að láta vita.
Tveimur klukkustundum eftir
óhappið komu menn frá Vopnafirði
aðvífandi, gátu opnað bifreiðina og
tóku Hrund með sér. Annar mann-
anna er í slökkviliðinu á Vopnafirði
en hann kannaðist ekki við útkall
vegna óhapps á þessum slóðum. Í
tíu mínútna fjarlægð frá slys-
staðnum náðist farsímasamband og
hringdi annar mannanna í Neyð-
arlínu, sem kannaðist ekki við að
tilkynning hefði komið um óhappið
og ekkert slíkt væri skráð í gagna-
safn. Honum var gefið samband við
skiptiborð lögreglu á landsvísu og
þar var heldur ekkert skráð um til-
kynningu vegna útafakstursins.
„Ég hef heyrt á fólki í kringum
mig að það veigrar sér við að hafa
samband nema kofinn sé hreinlega
að brenna ofan af því eða fólki sé að
blæða út. Að menn sjái þetta ekki
sem hjálparlínu sem segir þér
hvernig þú átt að bregðast við ef þú
veist það ekki sjálfur. Kannski þarf
að kynna þjónustuna betur,“ segir
Hrönn.
Ekkert farsímasamband næst á
leiðinni frá Svartfelli í Langadal og
að Biskupshálsi og þar með í Víði-
dal, þar sem Hrönn fór út af. Nýbú-
ið er þó að setja upp sendi sem hef-
ur gjörbreytt sambandinu á
Vopnafjarðarheiði og Vopnafirði.
Þórhallur Ólafsson, forstjóri
Neyðarlínunnar, segir að því miður
sé nokkuð til í að fólk telji aðstæður
þurfa að vera lífshættulegar til að
hringja, en Neyðarlínan hafi mjög
hvatt til að fólk hringdi ef það væri
í vafa og efnt hafi verið til auglýs-
ingaherferða um 112. „Það mega
allir hringja í okkur út af öllu. Það
hefur því miður kostað mannslíf
þegar fólk hefur ekki viljað hringja
og gert lítið úr hlutum sem voru í
raun mjög alvarlegir,“ segir Þór-
hallur. Neyðarlínan fær nú að jafn-
aði um 800 símtöl á sólarhring.
Veigrar fólk sér við að
hringja í Neyðarlínuna?
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Undrandi Hrund Snorradóttur var
mjög brugðið þegar hún komst að
því að ekki hafði verið kallað á hjálp.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is