Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E FT I R DAG A
www.jpv.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FYRSTU hugmyndir að samkomu-
lagi milli Reykjavík Energy Invest
og Orkuveitu Reykjavíkur um að-
gang fyrrnefnda félagsins að verk-
efnum hins síðarnefnda litu dagsins
ljós á stjórnarfundi REI 23. ágúst
sl. Þá kom þáverandi stjórnarfor-
maður REI og verkefnishópur skip-
aður starfsmönnum OR fram með
hugmynd að uppsegjanlegum samn-
ingi til nokkurra ára.
„Við lögðum fram ákveðnar hug-
myndir sem áttu að verða grund-
völlur að umræðum um þessi mál,
en það var aldrei í minni stjórnartíð
lagður fram neinn samningur,“ seg-
ir Björn Ársæll Pétursson, fyrrver-
andi stjórnarformaður REI, en á
fundinum ásamt honum voru m.a.
þeir Björn Ingi Hrafnsson og
Haukur Leósson. Björn Ársæll seg-
ir að rætt hafi verið um fimm til tíu
ára samning, og ennfremur að hægt
væri að segja honum upp með tólf
mánaða fyrirvara.
Það er þó lykilatriði að hafa í
huga að á þessum tíma var Reykja-
vík Energy Invest að fullu í eigu
Orkuveitunnar og segir Björn að
um hafi verið að ræða samning á
milli OR og dótturfélags þess. Aldr-
ei hafi komið upp í umræðum að úr
yrði samningur til tuttugu ára við
annað fyrirtæki, óuppsegjanlegur,
sem síðar varð úr.
Áhersla á undirbúningsvinnu
Fundurinn var sá síðasti sem
Björn Ársæll sat sem stjórnarfor-
maður REI en hinn 11. september
var Bjarni Ármannsson kjörinn
stjórnarformaður. Níu dögum síðar
funduðu fulltrúar REI með fulltrú-
um Geysir Green
Energy.
Björn Ársæll
segir að ekki hafi
verið rætt um
GGE sérstaklega
sem hugsanlegan
fjárfesti í REI á
meðan hann sat í
stjórn REI, og á
stjórnarfundinum
23. ágúst lagði
hann raunar formlega til að ekki
yrði rætt við fjárfesta fyrr en í
fyrsta lagi í desember nk. Sú tillaga
var felld. „Í raun var það ekki bein
tillaga um að fá inn fjárfesta heldur
að í fyrsta lagi yrði farið að ræða
við áhugasama fjárfesta, kynna
verkefnið, í desember enda margir
lýst áhuga sínum á félaginu. Mér
þótti ekki ástæða til að fara í slíkar
viðræður strax, enda eru verkefni
Orkuveitunnar langtímaverkefni og
snúast um ár fremur en daga. Með
tillögu minni var ég að leggja
áherslu á að klára undirbúnings-
vinnu þeirra verkefna sem voru á
borði Orkuveitunnar og auka þann-
ig raunverulegt verðmæti REI,“
segir Björn Ársæll og nefnir þar
t.d. samninga við stjórnvöld í
Indónesíu.
Spurður um minnisblað frá 22.
ágúst, sem Björn Ársæll gerði
ásamt fjórum öðrum og sem lagt
var fyrir stjórnarfundinn daginn
eftir – en þar er m.a. engin upp-
sagnarákvæði að finna – segir hann
að öll umræða um þá hluti hafi farið
fram á fundinum. Hann leggur
áherslu á að á þessu minnisblaði
hafi verið farið yfir á hvaða sviðum
OR og REI gætu starfað saman en
sú umræða hafi verið á algeru frum-
stigi á þessum tímapunkti.
Vildi bíða með viðræður við
fjárfesta um aðkomu að REI
Björn Ársæll Pétursson, fyrrverandi stjórnarformaður Reykjavík Energy Invest,
segir aðeins hafa verið rætt um uppsegjanlegan samning við Orkuveitu Reykjavíkur
Björn Ársæll
Pétursson
KVEIKT var á 175 kertum fyrir utan Hafnarborg í
Hafnarfirði í gærkvöldi til að minna á að árlega grein-
ast 175 konur með brjóstakrabbamein hér á landi. Að
meðaltali látast 35 konur árlega úr þessum sjúkdómi.
Hafnarborg var böðuð bleiku ljósi en þar var í gær
haldið málþing um brjóstakrabbamein.
Ljós fyrir konur með krabbamein
Morgunblaðið/Ómar
HANNES
Smárason, stjórn-
arformaður
Geysir Green
Energy, segist
vænta þess að
staðið verði við
gerða skriflega
samninga milli
Geysis og Reykja-
vík Energy Invest
og að fljótlega
verði hægt að einbeita sér að sókn-
arfærum sameinaðs félags.
„Það er mikið af spennandi verk-
efnum framundan og sameinað félag
hefur mikinn slagkraft í alþjóðlegri
samkeppni. Við höfum staðið faglega
að undirbúningi málsins og það hefur
stuðning allra hluthafa Geysis.“
Staðið
verði við
samninga
Stóðum faglega að
undirbúningi málsins
Hannes
Smárason
ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra sækir Indónesíu heim í
næstu viku. Stefnt er að því að
ráðherrann komi við á Filippseyj-
um á heimleiðinni. Báðar heim-
sóknirnar tengjast orkumálum.
Iðnaðarráðherra heldur utan
næstkomandi laugardag og verður
í Indónesíu frá mánudegi til mið-
vikudags. Þetta er vinnuheimsókn,
samkvæmt upplýsingum iðnaðar-
ráðuneytisins, sem farin er í kjöl-
far heimsóknar orkuráðherra
Indónesíu hingað til lands fyrr á
árinu.
Með ráðherra verður skrifstofu-
stjóri orkumála í iðnaðarráðuneyt-
inu. Þeir verða samferða forystu-
mönnum Reykjavík Energy Invest
(REI) sem eru að ganga frá samn-
ingi í Manila og
verður ráðherra
viðstaddur und-
irritunina.
Stefnt er að
því að Össur fari
til Manila á Fil-
ippseyjum að
lokinni heim-
sókninni til
Indónesíu til að
kynna sér orku-
mál og ræða við
ráðamenn í orkugeiranum.
Reykjavík Energy Invest (REI) er
meðal bjóðenda í verkefni þar.
Verði af ferðinni til Filippseyja fer
ráðherra beint þaðan á þing Norð-
urlandaráðs sem hefst í Ósló
þriðjudaginn 30. þessa mánaðar.
Iðnaðarráðherra
fer til Indónesíu
Össur
Skarphéðinsson
Heimsóknin er í tengslum við orkumál
MAÐURINN sem lést í bifhjólaslysi
á Krýsuvíkurvegi í fyrradag hét
Magnús Jónsson, til heimilis í Jökla-
seli 1 í Reykjavík. Hann var fæddur
21. apríl 1975 og lætur eftir sig
sambýliskonu.
Lést í
bifhjólaslysi
♦♦♦
RÚSSNESKAR flugvélar komu inn
í íslenska flughelgi í fyrrinótt og
voru innan hennar í um fimmtán
mínútur áður en þær fóru út úr
henni aftur.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins létu bresk yfirvöld ís-
lensk stjórnvöld vita af ferðum
rússnesku vélanna og komu þær
inn í flughelgina suðaustur af land-
inu um tveimur tímum síðar og
voru eins og fyrr segir innan henn-
ar í um 15 mínútur.
Rússneskar
vélar hér
MEÐLIMUR í björgunarsveitinni
Kili á Kjalarnesi féll útbyrðis við
æfingar í Hofsvík á Kjalarnesi
skömmu fyrir klukkan níu í gær-
kvöldi. Honum var bjargað
skömmu síðar.
Atburðir voru með þeim hætti að
maðurinn var um borð í slöngubát
og misstu félagar hans sjónar á
honum í myrkrinu. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var kölluð á staðinn en
hún var skammt fyrir utan Akranes
við æfingar. Maðurinn var vel bú-
inn í flotgalla og bjargaði sér upp á
sker og hringdi síðan einfaldlega í
félaga sína úr gsm-síma sínum og
mun eftirleikur björgunarinnar
hafa verið leikur einn.
Þyrlan fann manninn um það
leyti sem félagar hans komu að
honum á skerinu. Að sögn Land-
helgisgæslunnar og Lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins var maðurinn
vel gallaður og sakaði hann ekki.
Féll útbyrðis
við æfingar
LÖGREGLAN handtók í gær mann
í tengslum við rannsóknina á stór-
felldu smygli fíkniefna með skútu til
Fáskrúðsfjarðar og var maðurinn
úrskurðaður að kröfu lögreglu í
gæsluvarðhald í vikutíma frá degin-
um í gær eða til 23. október næst-
komandi.
Fíkniefnamálið er í rannsókn hjá
lögreglu og miðar rannsókninni vel,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, en óvíst er hvenær henni
lýkur. Fimm aðrir aðilar sitja í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
málsins.
Hefur áður komið við
sögu lögreglu
Maðurinn er á þrítugsaldri og er
búsettur á höfuðborgarsvæðinu.
Hann hefur komið við sögu lögreglu
áður vegna minniháttar fíkniefna-
mála og var úrskurðaður í gæslu-
varðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur
að kröfu lögreglu vegna tengsla
sinna við málið.
Fíkniefnin fundust í skútunni í Fá-
skrúðsfjarðarhöfn 20. september
síðastliðinn. Lögregla hafði þá fylgst
með skútunni um talsverðan tíma og
verið með málið í rannsókn lengi.
Mjög mikið magn fíkniefna fannst
um borð í skútunni.
Í gæslu-
varðhaldi
vegna skútu-
smyglsins