Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 9 SVISSNESKA fyrirtækið Amitel átti lægsta tilboð í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á landinu, en tilboð voru opnuð í gær. Alls bárust þrjú tilboð og voru þau öll undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs, sem var 732 milljónir króna. Farið verður yfir tilboðin næstu daga og er gert ráð fyrir að gengið verði frá samningum um framkvæmdir fyrir lok mánaðarins. Amitel bauð 469 milljónir króna í verkið miðað við tólf mánaða verk- tíma, OG fjarskipti 487 milljónir króna miðað við 22 mánaða verk- tíma og Síminn 655 milljónir króna miðað við tólf mánaða verktíma. Ríkiskaup önnuðust framkvæmd útboðsins fyrir fjarskiptasjóð, en fyrirtækin voru valin í lokuðu út- boði að undangengnu forvali sem auglýst var á öllu evrópska efna- hagssvæðinu í mars í vor. Útboðs- gögn voru afhent í júlí og fyrirtæk- in lögðu inn tilboð sín í byrjun þessa mánaðar. Þessi áfangi farsímaþjónustu sem boðinn var út nú snýst um að koma upp og reka farsímaþjónustu á völdum svæðum þar sem ekki hef- ur verið farsímasamband til þessa. Þessi svæði eru einkum á Vest- fjörðum og Norðausturlandi, en einnig víða á Snæfellsnesi, Aust- fjörðum og Suðurstrandarvegi. Síminn átti lægsta tilboðið í fyrri áfanga GSM-farsímaþjónustunnar, en það náði til hringvegarins, fimm fjallvega og nokkurra ferðamanna- svæða. Það verk er langt komið. Sviss- neskir lægstir                                   HÁSKÓLATORG, Gimli og Tröð eru nöfnin sem valin voru á þrjár nýbyggingar Háskóla Íslands, en niðurstaðan var tilkynnt í gær. Háskólatorg I kemur til með að hýsa m.a. þjónustustofnanir við nemendur, bóksölu, veitingasölu og stóra fyrirlestrasali. Há- skólatorg II mun að mestu hýsa skrifstofur deilda, vinnurými kennara og nemenda og rann- sóknastofnanir, og loks bygging- arhluta sem tengir saman Há- skólatorg I og II. Öllum starfsmönnum og nemendum Há- skóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands, auk starfsmanna Fé- lagsstofnunar stúdenta, bauðst að taka þátt í nafnasamkeppninni. Alls bárust yfir 3.000 svör og meira en 1.600 mismunandi til- lögur að heitum. Háskólatorg I fékk nafnið Há- skólatorg, en alls lögðu 15 þátt- takendur það nafn til og var Gunnar Páll Baldvinsson dreginn úr þeim hópi. Háskólatorg II fékk nafnið Gimli, sem minnir á tengsl við Vestur-Íslendinga sem stofn- uðu Háskólasjóð Eimskips, og var Ásdís Magnúsdóttir dregin úr hópi þeirra þriggja sem lögðu það nafn til. Tengingin milli hins nýja Há- skólatorgs og Gimli mun bera heitið Tröð. Var það uppástunga 10 þátttakenda en Óskar Ein- arsson hlaut vinninginn. Morgunblaðið/Kristinn Vinningstillögur Gunnar Páll Baldvinsson, Ásdís Magnúsdóttir og Óskar Einarsson fengu verðlaun fyrir tillögu að nöfnum á nýbyggingum HÍ. Háskólatorg, Gimli og Tröð VEGNA viðtals við Björn Grét- ar Sigurðsson, sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnudag, þar sem hann lýsti raunum sín- um meðan hann bíður eftir nauðsynlegri liðskiptaaðgerð, vill Björn árétta að hann tekur hin sterku verkjalyf aðeins á kvöldin til að ná að dempa verkina sem hann býr við svo hann geti sofnað. Í viðtalinu kom fram að Björn tekur annars vegar tramól og hins vegar somadril, en lyfin geta skert athygli og dregið úr aksturshæfni. Þess má geta að verkunartími beggja lyfja er um 4-6 klst. samkvæmt vef Lyfju, www.lyfja.is. Björn vill af fenginni ástæðu árétta að hann geri sér fulla grein fyrir áhrifum lyfjanna og tekur fram að hann hafi aldrei keyrt undir áhrifum þeirra. Árétting vegna viðtals Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Svartar síðbuxur margar gerðir Jólamyndatökur Pantið tímanlega MYND Bæjarhraun 26, Hafnarfirði s. 565 4207 • www.ljosmynd.is Mjódd, sími 557 5900 JENSEN DAGAR Mikið úrval af fatnaði frá JENSEN. 15% afsláttur af öllum vörum frá JENSEN vikuna 15.-20. Verið velkomnar m bl 9 22 53 5 FRÁBÆRAR 100% DÚNÚLPUR MEÐ HETTU FRÁ FUCHS & SCHMITT Laugavegi 63 • S: 551 4422 Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Skráning og nánari upplýsingar veita: Hermann Ottósson, forstöðumaður ráðgjafar- og fræðslusviðs, hermann@utflutningsrad.is og Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnisstjóri, inga@utflutningsrad.is. Útflutningsráð Íslands býður ferðaþjónustufyrirtækjum á Vesturlandi í verkefnið HH2 - frá hugmynd til markaðar, sem er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH). Markmi› HH2 verkefnisins er a› auka marka›svitund þátttakenda me› þjálfun í árangursríkum vinnubrög›um hva› var›ar vöruþróun, frágang vöru á marka›, marka›ssetningu og sölu. Tilgangur verkefnisins er: Fyrsti vinnufundur verður haldinn á Hótel Glym 23.-24. október 2007 en gert er ráð fyrir að þátttakendur gisti á hótelinu á meðan vinnufundi stendur. Skráningu í verkefnið lýkur 18. október 2007. Þátttökugjald er 37.000 kr. • Að vinna áfram með þróun hugmynda og vörur sem hafa orðið til við samstarf fyrirtækjanna. • Ráðgjafar leiða vöru- og þjónustuhópa, en hlutverk hópanna verður að fullmóta vörur frá svæðinu og fyrirtækjum. • Handleiðsla á markað: Þær vörur sem koma frá nýsköpunar- og vöruþróunarfundum verða síðan tengd fáum, ákveðnum áherslu- svæðum erlendis. Unnið verður að tengslamyndun og markaðs- setningu "djúpt" í markaðinn og horft til uppbyggingar á markaði og tengsla til langs tíma. • Sýningaþátttaka: Áhersla lögð á afmarkaðar ferðasýningar á þeim markaðssvæðum sem valin hafa verið. HH2 frá hugmynd til markaðar framhaldsverkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi P IP A R • S ÍA • 7 19 25 Ungmennastarf Rauði krossinn í Kópavogi auglýsir eftir sjálfboða- liðum í vinnu með börnum og ungmennum. Markmið verkefnisins er að auðvelda ungum inn- flytjendum 9–12 ára aðlögun að íslensku samfélagi og skapa vettvang fyrir 13–16 ára íslensk og erlend ung- menni í Rauða kross starfi. Sjálfboðaliðar þurfa að vera 17 ára og eldri, hafa áhuga á vinnu með börnum og ungmennum og sækja grunnnámskeið um starf og hugsjónir Rauða krossins. Nánari upplýsingar í síma 554 6626 og á raudikrossinn.is styrkir þetta verkefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.