Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 41
Þrátt fyrir að Iceland Airwaves hýsi
nærfellt allar starfandi hljómsveitir
landsins – eða svo virðist vera a.m.k. –
eru stundum „augljósar“ gloppur og það
af hinum og þessum ástæður. Stundum
eru sveitirnar uppteknar erlendis eða
bara við eitthvað annað en svo hafa „per-
sónulegri“ ástæður legið að baki. Marga
furðaði til dæmis að hljómsveitin Kimono
lét ekki sjá sig í fyrra en hún er inni í ár.
Þá er Trabant ekki á meðal þeirra sem
koma fram á hátíðinni í ár. Sveitir og listamenn sem léku í fyrra, en skrópa
í ár, eru meðal annars Orgelkvartettinn Apparat, Jóhann Jóhannsson, Ske
og Eberg.
Og er svo ekki orðið tímabært að gulldrengirnir í Sigur Rós fari að láta
sjá sig á þessari stærstu tónlistarhátíð ársins?
Hvaða hljómsveitir skrópa í ár?
Heljarinnar hiphop-veisla fer fram á Gauki á Stöng í kvöld. Hiphop-ið
hefur frá upphafi skipað sérstakan sess á Iceland Airwaves og þó framboð
þessarar tónlistarstefnu á hátíðinni hafi verið með ýmsu móti verður árið í
ár að teljast með þeim betri. Sérstaklega eru menn spenntir fyrir Sesari A,
hinum ungu krökkum í Audio Improvement, Poetrix sem kemur fram
ásamt góðum gestum og svo er vonandi einhvers að vænta af Rottweiler.
Hiphop! Hiphop! Hiphop!
Tvær bandarískar hljómsveitir
troða upp á fyrsta Airwaves-
kvöldinu og báðar verða að teljast
fremur áhugaverðar. Annars vegar
er um að ræða stúlknasveitina Smo-
osh frá Seattle sem kemur fram á
Nasa og hins vegar Solid Gold frá
Minnesota sem stígur á svið á Org-
an. Smoosh leikur m.a. á klukkna-
spil og melódíku en búast má við að
Solid Gold verði í heldur meiri
stuðgír enda ekki á hverjum degi
sem tónlist hljómsveitar er líkt við
kynlíf.
Hljómar eins og
… kynlíf
„Ég heyrði einhvern tala um að
<3 Svanhvít! væri skemmtileg á
sviði, mér skilst að þetta séu
menntaskólakrakkar. Svo sagði
Kiddi félagi minn, sem oft er
kenndur er við Hjálma, að þau í
Klassart væru sniðugir krakkar.
Svo hef ég aldrei séð Lights On The
Highway, en hins vegar heyrt mjög
gott um þá. Loks væri skemmtilegt
að sjá XXX Rottweiler, það er nú
bara nett „flashback“-stemning.“
– Kári Sturluson, umboðsmaður
Ampop, Lay Low, Mínuss, Benny
Crespo’s Gang og Hjálma.
Á hvaða tón-
leika ætlar þú?
Meðal þeirra fjölmörgu fjölmiðla
sem ætla gera Airwaves-hátíðinni
og listamönnunum sem þar koma
fram skil eru sjónvarpsstöðvarnar
CNN og MTV, dagblöðin Guardian
og Times, útvarpsstöðvarnar BBC,
XFM í London og DR1 í Danmörku
og tímaritin Rolling Stone, Play-
boy, URB, Elle, Vouge, XLR8R,
Kerrang!, Clash, VICE og NME, svo
einhver séu nefnd, auk virtra tón-
listarvefrita eins og Pitchfork og
Drowned in Sound og fjölda starfs-
manna MySpace. Alls er búist við
yfir 500 fjölmiðla- og blaðamönnum
á hátíðina í ár.
Yfir 500 fjölmiðla-
menn mættir
John Pugh, söngvari og áslátt-
arleikari í danspönk-hljómsveitinni
!!! hefur tilkynnt að hann sé hættur
í sveitinni og ætli að einbeita sér að
gerð tónlistar með hljómsveitinni
Free Blood. !!! leikur á Airwaves-
hátíðinni á laugardagskvöldið
næstkomandi.
Íslenskir hátíðargestir þurfa þó
ekki að kvíða söngvaraleysi, Pugh
hefur ekki komið fram með sveit-
inni um nokkurra mánaða skeið en
söngkonan Shannon Funchness
hefur komið fram í hans stað.
Söngvari !!! bú-
inn að fá nóg!
THE KINGDOM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
THE BRAVE ONE kl. 5:40D - 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
STARDUST kl. 5:30D B.i. 10 ára DIGITAL
NO RESERVATIONS kl. 10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA,
OG AKUREYRI
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
eee
„...hin besta
skemmtun.“
A.S.
eeee
-J.I.S., FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
Frá gaurnum sem færði okkur
The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
- Dóri DNA, DV- J.I.S., FILM.IS
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND MEÐ
CATHERINE ZETA JONES OG AARON ECKHART.
SÝND Í ÁLFABAKKA,
OG KRINGLUNNI
STÆRSTA MYND
ÁRSINS Á ÍSLANDI
eeee
- jis, film.is
eeee
- A.S, MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
STARDUST kl. 8 - 10:20 B.i. 10 ára
/ KEFLAVÍK
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
STARDUST kl. 8 B.i. 10 ára
HAIRSPRAY kl. 10:20 LEYFÐ
3:10 TO YUMA kl. 10:20 B.i. 16 ára
CHUCK AND LARRY kl. 10:20 B.i. 12 ára
HAIRSPRAY kl. 8 LEYFÐ
BRATZ kl. 8 LEYFÐ
/ SELFOSSI
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að vera skipuð mönn-
um á aldursbilinu 17-18 ára hafa
meðlimir Soundspell þegar landað
sinni fyrstu plötu, An Ode To The
Umbrella. Tónlistin er reyndar
þessleg að maður trúir því trauðla
að „unglingar“ standi á bak við
hana, en það þurfti ekkert minna
en upptökustjóra frá Bandaríkj-
unum, sem hefur unnið með sveit-
um á borð við King Crimson og
svartþungarokkssveitinni Ulver, til
að koma tónlistinni á plast. Platan
kom út í byrjun haustsins og hefur
fengið góða dóma í fjölmiðlum.
Mannabreytingar
Alexander Briem söngvari segir
að Soundspell hafi verið til allt frá
grunnskólaárum meðlima, en mikl-
ar mannabreytingar hafi þó átt sér
stað. „Við erum eðlilega afskaplega
ánægðir með að negla plötusamn-
ing svona snemma,“ segir Alexand-
er en auk hans skipa sveitina þeir
Áskell Harðarson (bassi), Bernharð
Þórsson (trommur), Jón Gunnar
Ólafsson (gítarar) og Sigurður Ás-
geir Árnason (píanó og hljóð-
gervlar).
„Það var hinn upptökustjórinn,
Albert Ásvaldsson, sem heyrði
„demó“ með okkur og gerði samn-
ing við okkur,“ útskýrir Alexander.
„Platan kemur út á merki hans,
Tuddi. Hann leyfði svo bandaríska
upptökustjóranum, Ronan Chris
Murphy, að heyra líka og hann var
svona rosalega hrifinn.“
Bara Airwaves
En hvað er svo framundan? „Já,
eiginlega bara Airwaves,“ segir Al-
exander og hlær við. „Við erum
svona að velta ýmsu fyrir okkur en
erum óvissir um svo margt. Við er-
um svo ungir og þetta er allt að ger-
ast mjög hratt – en vel.“
Álög hinna ungu
Hin bráðefnilega Soundspell kemur fram á Airwaves
Hljómseiður Hljómsveitin Soundspell stígur á svið kl. 22.30 í kvöld.
www.myspace.com/spellthesound
www.icelandairwaves.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞÓ að hljómsveitin ætti kannski
frekar að heita „Elsku Svanhvít“,
þar sem táknin á undan eiga að
merkja hjarta, tákn sem gjarnan
eru notuð í netsamtölum, hefur hún
aldrei verið kölluð annað en „Minna
en þrír Svanhvít“. Þannig var hún
kynnt á síðustu Músíktilraunum og
heitið festist eftir það en á Tilraun-
unum hafnaði sveitin í öðru sæti,
mitt á milli tveggja öfgarokks-
sveita.
Metnaður og flipp
Daði Helgason, gítarleikari sveit-
arinnar, segir að sveitin hafi verið
sett sérstaklega á stofn fyrir Mús-
íktilraunir en hópurinn stundar all-
ur nám við Menntaskólann í
Reykjavík. Flippið var í hávegum
haft en þó vandað til verka í alla
staði, eins og Daði útskýrir.
„Við höfum mikinn metnað í því
sem við erum að gera. En eftir Mús-
íktilraunir var ákveðið að halda
áfram þar sem þetta var svo rosa-
lega skemmtilegt. Við höfum spilað
hér og hvar síðan og erum að taka
upp. Nýtt efni fer inn á „svæðið“
(myspace) okkar bráðlega.“ Fjórir
meðlimir sjá að mestu um að semja
en svo er hinum einstaka „Svan-
hvítar“-anda bætt við á æfingum.
Hlutverkin í hópnum eru marg-
vísleg, þannig spilar einn meðlimur
á ryksugu, sér um að hreinsa and-
rúmsloftið og halda þannig uppi
góðum anda. „Það má segja að fjór-
menningarnir búi til kökubotninn
og svo er í sameiningu smurt kremi
ofan á – og það jafnvel toppað með
kirsuberjum.
Við lítum meira á okkur sem fjöl-
listahóp,“ segir Daði að lokum. „Og
værum vel til í að beita okkur ann-
ars staðar en í tónlist. En það væri
gaman að koma plötu út og fara í
tónleikaferðalag. Hópurinn er svo
þéttur og skemmtilegur að það
væri grátlegt að beita sér ekki fyrir
einhverju slíku.“ Daði og félagar
verða á Grand Rokki í kvöld en
leika svo aftur á Barnum á föstu-
daginn kl. 18.
Elsku hjartans Svanhvít
Fjöllistahópurinn <3 Svanhvít! ætlar sér stóra hluti í kvöld
Fjöllistahópur Hljómsveitin <3 Svanhvít! á Lækjartorgi.
www.myspace.com/minna-
en3svanhvit www.icelandairwa-
ves.is