Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Vatnstjón FLEST vatnstjón í heiminum eru á Íslandi, samkvæmt skýrslum trygg- ingafélaga. Vatnstjón kosta okkur meira en brunatjón. Hver fjölskylda verður fyrir alvarlegu tjóni á 15 ára fresti að meðaltali; ef miðað er við margfræga vísitölufjölskyldu er tjón hennar 225.000 krónur. Þeir sem næst okkur komast í þessum ósköp- um eru Svíar, en þeirra tjón eru að stórum hluta vegna kaldavatnsröra í sumarbústöðum sem frostspringa. Hvers vegna er þetta svona? Leiðslur eru lagðar í einangrun útveggja. Veggirnir leka, vatn kemst í einangr- unina og þar inni eru kjöraðstæður fyrir tæringu. Tæringarhraði marg- faldast. Vatn lekur niður með inn- múruðum baðkörum þar sem „járn- maurarnir“ vinna sitt verk af miklum dugnaði í hlýjunni. Margt fleira má upp telja en látum þetta duga. Hvers vegna eru hlutirnir svona? Þegar byrjað var að leggja rör í þessu landi fyrir u.þ.b. 100 árum komu hingað ágætir pípulagningamenn frá Norð- urlöndum og Þýskalandi – þekkingin færðist yfir til Íslendinganna sem með þeim unnu og urðu margir þeirra ágætir fagmenn. Svo kom kreppa; þegar landið var hernumið vorið 1940 voru hitaveitufram- kvæmdir að byrja og þörfin fyrir pípulagningamenn (rörlagningamenn hétu þeir þá) margfaldaðist. Hand- lagnir mótoristar urðu löggiltir pípu- lagningameistarar og fengu leyfi til að kenna nemum nokkuð sem þeir alls ekki kunnu. Ný stétt varð til – ,,píparar“. Ekki skipti lengur máli hvernig farið var að, steypu var bara slett yfir draslið og svo tók rigningin við. Skólaganga pípulagnanema hefir löngum verið í lágmarki og oft snúist um það að réttlæta launagreiðslur til manna sem höfðu gert eitthvað rangt og kerfið var í vandræðum með. Hafnfirðingar hafa oft meira af vilja en mætti reynt að hafa þessa hluti í lagi. Er nú málum þannig háttað hjá þeim að þeirra litla deild er orðin yf- irfull með 80 nemendur af öllu land- inu. Þegar flest er eru 20 nemendur í 100 fermetra sal. Í nágrannalönd- unum er svona starfsemi í stofum sem eru liðlega 200 fermetrar. Ekki má gleyma því sem vel er gert. Í Keldnaholti var reist Lagna- kerfamiðstöð Íslands, liðlega 1.000 fermetra bygging sem ýmsir fram- leiðendur úti í löndum væddu með búnaði sem er með því besta sem nú þekkist í heiminum. Nú nýlega var ákveðið að flytja allt þetta suður í Nauthólsvík og setja undir Háskól- ann í Reykjavík. Á tuttugustu og fyrstu öldinni eru lagnakerfi hönnuð í tölvum og slíkt er kennt í háskólum. Fyrir nokkrum árum hringdi hús- vörður Háskólans í verknámsskóla og bauð raftæknibúnað sem rektor hafði skipað honum að fara með í Sorpu. Var rektor að gera eitthvað rangt? Nei, hann (hún) vissi að hand- verk og verkfræði eru tvær ólíkar greinar og það væri óráð að blanda þessu of mikið saman. Gestur Gunnarsson, Flókagötu 8, 105 Reykjavík. Þessar hressu stúlkur eru glaðar í bragði eftir að skóla lýkur og komnar út í góða veðrið á leiðinni heim - úti skín sólin og þá er nú óþarfi að vera klæddur í dúnúlpu. Morgunblaðið/Frikki Gengið heim úr skóla Heimsóknavinir Rauði krossinn í Hafnarfirði auglýsir eftir sjálfboða- liðum í heimsóknaþjónustu. Markmið verkefnisins er að rjúfa einsemd og félagslega einangrun fólks. Boðið er uppá hefðbundnar heimsóknir inn á einkaheimili en einnig heimsóknir á stofnanir. Sjálfboðaliðar sækja námskeið fyrir heimsóknarvini 25. október kl. 18–21 að Strandgötu 24. Í kjölfarið skuld- binda sjálfboðaliðar sig til að heimsækja gestgjafa sinn reglulega í samræmi við samkomulag þeirra á milli.. Nánari upplýsingar í síma 565 1222 og á raudikrossinn.is styrkir þetta verkefni Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GRETTIR, MÉR LÍÐUR EKKI VEL ÉG ÞARF AÐ FÁ KNÚS! EKKERT KNÚS? HVAÐ MEÐ AUMKUNARVERT AUGNARÁÐ ÉG ER LÉLEG RISAEÐLA SJÁÐU! PABBI LAGAÐI ÞYRLUHÚFUNA! HVERNIG LÍT ÉG ÚT? ÉG FINN EKKI LÝSINGARORÐIÐ ÉG ÆTLA AÐ KVEIKJA Á HENNI ÉG ER EKKI AÐ TAKAST Á LOFT... ÞETTA ER SKRÍTIÐ ÞAÐ VAR ORÐIÐ SEM ÉG VAR AÐ LEITA AÐ LÆKNIR, ÉG ER ÞUNGLYND ALLAN DAGINN OG MÉR FINNST EINS OG ÞAÐ SÉ ENGIN VON Í HEIMINUM LAUSNIN SEM ÉG ER AÐ SKRIFA UPP Á FYRIR ÞIG KEMUR TIL MEÐ AÐ LAGA VANDAMÁLIÐ UM LEIÐ OG HENNI ER BEITT LÆKNIRINN SAGÐI AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ YFIRGEFA LANDIÐ OG RÁÐAST INN Í ENGLAND ÞEGAR Í STAÐ ERTU AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞÚ HAFIR ERFT ÞENNAN FALLEGA, YFIRKEYRÐA ÍKORNA FRÁ PABBA ÞÍNUM... VEISTU HVERS VIRÐI HANN ER? ÉG ELSKA ÞENNAN ÞÁTT HUNDAR HAFA MIKLU BETRI SMEKK FYRIR ANTÍK EN FÓLK MÉR ER AÐ VERÐA ÓGLATT MAMMA, ERTU VISS UM AÐ ÞÚ ÆTLIR AÐ FLYTJA HIINGAÐ? NEI, EN ÉG ER ALVARLEGA AÐ ÍHUGA ÞAÐ VIÐ HÖFUM EKKI EYTT MIKLUM TÍMA SAMAN SÍÐUSTU ÁR ÉG VEIT... VIÐ ÞYRFTUM BÆÐI TÍMA TIL AÐ VENJAST ÞVÍ FYRSTA SEM ÉG KEM TIL MEÐ AÐ GERA ER AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ ÞIÐ SKIPTIÐ ÚT ÞESSU KLÓSETTI OG FÁIÐ YKKUR EITT SEM NOTAR EKKI VATN VIÐ ÆTTUM AÐ KOMA OKKUR LOKSINS HÖFUM VIÐ EINHVERN FYRIR OKKUR ÞETTA ER TÖLUVERT BETRA EN AÐ SVEIFLA SÉR SÆLL, DASHELL LEIK- STJÓRINN AUÐVITAÐ HEF ÉG TÍMA TIL AÐ TALA VIÐ ÞIG UM TÖKURNAR Á MORGUN ALLT Í EINU HLJÓMAR ÞAÐ EKKI SVO ILLA AÐ SVEIFLA SÉR... dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.