Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SAGAN um Gosa er töluvert flókn- ari en flest barnaævintýri. Á rúm- lega hundrað síðum tekst höfund- inum Carlo Collodi að skapa margs konar fantasíuheima en á sama tíma vitnar hann stöðugt í veruleika ítalska samfélagsins á seinni árum nítjándu aldar. Gosi er til dæmis ekki einungis verk um brúðustrák sem verður mennskur heldur hefur það einnig ýmislegt að segja um lík- amlega þjáningu, arðrán og fátækt. Sagan býður upp á margar senur sem innihalda tilvalið efni í leiksýn- ingu, söngleik eða kvikmynd en sumar tilraunir í þessum miðlum hafa farið verr en búast mætti við. Sem dæmi má nefna tvær kvik- myndir um Gosa, annars vegar eftir Steven Barron (1996) og hins vegar eftir Roberto Benigni (2002). Báðar þessar myndir voru almennt for- dæmdar og þeim slátrað af gagnrýn- endum og langt frá því að vera vin- sælar hjá áhorfendum. Það er kaldhæðnislegt að mynd Benignis var mjög trú sögu Collodis og inni- hélt mörg atriði sem áhorfendur töldu ekki vera við hæfi í barna- ævintýri! Karl Ágúst Úlfsson fer ekki þessa leið heldur stígur hann of vandlega í kringum hlutina. Margt sem er framandi, hættulegt eða ógnvekj- andi í sögunni verður annaðhvort meinlaust eða fyndið í þessari sýn- ingu. Öðru hvoru, eins og í einni senu í skóginum þar sem Dísin þyk- ist vera gamall karl eða í atriðum í Allsnægtalandi, nær verkið að fara út fyrir þennan ramma en slíkt ger- ist afar sjaldan. Hins vegar ber að hrósa Karli Ágústi virkilega fyrir ljóðrænar lýsingar á tilfinningum Gosa þegar hann tjáir okkur hvernig það er að vera sorgmæddur, svang- ur og kvalinn. Leikurinn var yfirleitt góður og réttu leikararnir valdir í hlutverkin en mér fannst nokkrir þeirra standa upp úr. Á meðal þeirra voru Aðal- björg Þóra Árnadóttir (Lóra), Hall- dór Gylfason (Skolli), Kristjana Skúladóttir (Dísin) og Víðir Guð- mundsson (Gosi). Það sama má segja um krakkana í þessari sýningu sem léku, sungu og dönsuðu af mikl- um krafti. Sumir búningarnir voru frábærir. Aðrir virtust vera hann- aðir aðallega til að undirstrika ákveðna liti, eins og rauðan og svart- an, en ekki sérstaklega til að lýsa leikpersónunum. Aðalstjarna sýn- ingarinnar er þó leikmyndin sem hönnuð er af Vytaulas Narbutas. Hún er bæði frumleg og síbreytileg og þegar verkið sjálft hélt ekki at- hygli áhorfandans bætti leikmyndin það heldur betur upp. Lögin ollu mér þó nokkrum von- brigðum og það kom mér á óvart þar sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson samdi tónlistina og Karl Ágúst Úlfs- son sá um textana. Því miður fannst mér of mörg þeirra einkennast af einföldum endurtekningum. „Hvar ertu, Gosi“ er gott dæmi þar sem textinn er óþarflega væminn og mel- ódían minnir helst á bandarísku vögguvísuna „Rockabye Baby“. Auðvitað skaðaði það ekki að fá stóra rödd Jóhanns Sigurðarsonar til að syngja það en samt hefði ég haldið að pabbi Gosa ætti frekar að vera lítill og brotthættur. Það má segja það sama um Magnús Jónson og lagið um Allsnægtaland þar sem áhorfendur voru greinilega upptekn- ari af leikaranum en laginu. Sýningin byrjar hægt, ef til vill of hægt, en nær sér á strik innan skamms. Að mínu mati var hún þó sterkust eftir hlé og eftirminnileg- asta senan var sú sem gerist á hafs- botni. Þar sjáum við hafmeyju, alls konar dansandi fiska og ótrúlega flottan hval og það er einmitt þar sem Gosi sannar sig með því að bjarga lífi pabba síns og Tuma engi- sprettu. Það er óhætt að segja að Selma Björnsdóttir hafi líka sannað sig með þessari sýningu. Það er ekki þar með sagt að allt gangi upp hjá henni en hún er allavega ekki hrædd við að hugsa stórt. Hinn íslenski Gosi lifnar við Gosi „[Það] ber að hrósa Karli Ágústi virkilega fyrir ljóðrænar lýsingar á tilfinningum Gosa þegar hann tjáir okk- ur hvernig það er að vera sorgmæddur, svangur og kvalinn,“ segir Martin Regal í umsögn sinni. Martin Regal LEIKLIST Borgarleikhúsið Handrit: Karl Ágúst Úlfsson. Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson. Leikstjórn: Selma Björnsdóttir. Leikmynd: Vytautas Narbutas. Búningar: María Ólafsdóttir. Hljóð: Magnús H. Við- arsson. Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarn- ardóttir. Dans: Birna og Guðfinna Björns- dætur. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Leikarar: Gosi: Víðir Guðmundsson. Jakob: Jóhann Sigurðarson. Tumi: Sverrir Þór Sverrirsson (Sveppi). Kráareigandinn: Davíð Guðbrandsson. Skolli: Halldór Gylfason. Lóra: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir. Stórólfur: Pétur Ein- arsson. Dísin: Kristjana Skúladóttir. Skipstjórinn: Magnús Jónsson. Gauja: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir. Dansarar og fimleikafólk. Gosi Morgunblaðið/Kristinn KRAFTUR er sem kunnugt er ekki einhlítur kostur. Væri svo teldist vetnissprengjan mesta afrek manns- andans. Bjarni Thor Kristinsson gæti hæglega verið kraftmesti núlif- andi óperubassasöngvari landsins ef marka má upphaf fjölsóttra tónleika hans og Gerrits Schuil í Garðabæ. Langt var reyndar frá því er ég hafði heyrt hann síðast, og því kannski skiljanleg fyrstu viðbrögðin þessa laugardagssíðdegis: Almátt- ugur! Þurfa nú aumingja hlusthimn- ur manns að blakta allt til enda sem tjöld fyrir opnum glugga í norð- anroki! En sem betur fór gerðust örlögin ekki svo grimm. Eftir fyrstu tvö af sex stuttum sönglögum Beethovens við ljóð Gellerts fór nefnilega að bóla á það fjölbreyttri túlkun að kom manni nánast í opna skjöldu. Sjaldan þessu vant mátti nú heyra hjá langsjóuðum óperusöngvara – með drjúga Wagner-reynslu í þokkabót – óvænt breiðan styrk- og litbrigða- skala sem annars hefur verið einka- vígi sérhæfðra ljóðasöngvara. Lát- um vera að inntónunin virtist framan af ofurlítið stirðbusaleg og raddbeitingin heldur vanstudd á veikustu brjósttónum, líkt og eftir nýafstaðið frí frá störfum. En það lagaðist mikið þegar á leið, og texta- túlkunin (annað vanrækt svið stór- salasöngvara) bar einkenni óvenju- mikillar innlifunar, a.m.k. hjá þeirri stöðluðu síbeljandi sem hefur verið regla hjá mörgum óperusöngvurum á ljóðapalli. Þrátt fyrir inngreypta aðalímynd bassasöngvara á nótum jörmuntignar, hyldýp- isharms eða tröllaukinnar heiftar gáfust til kærkom- innar viðbótar einnig fjöl- mörg dæmi um blíðu, ang- urværð og jafnvel kímni, í góðu samræmi við söngtext- ana og útleggingu tónskáld- anna á þeim, jafnvel þótt dag- skrárvalið væri í heild í frekar þyngra kanti. Erfitt er að draga sumt fram yfir annað í stuttu ágripi, en þó mætti nefna nærri sinfóníska Beethoven- lagið Busslied, fyrstu tvö lög- in í Vier ernste Gesänge Brahms, Fühlt meine Seele úr 3 Michelangelo-söngvum Wolfs og sópandi epísku dramatíkina í 3 af 4 lögum hins vanmetna Carls Loewes, með Die Uhr sem kankvíst andstæð bros- hvörf. Enda var pípt og klappað í samræmi við sannkallaða dúndrandi frammistöðu. Burtséð frá ögn ósamtaka meðleik í Busslied lék Gerrit að vanda eins og honum væri fyrirmunað að leika undir sínum háa standarði. Og hafi um leið þökk fyrir ófeðruðu fróð- leikskorn sín í tónleikaskrá, er bættu í ýmsar þekkingareyður hlustandans. Dúndrandi frammistaða TÓNLIST Kirkjuhvoll  Ljóðasönglög eftir Beethoven, Brahms, Wolf og C. Loewe. Bjarni Thor Krist- insson bassi, Gerrit Schuil píanó. Laug- ardaginn 13.10. kl. 12.15. Einsöngstónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Almáttugur! Bjarni Thór Kristinsson Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson BALTNESKIR hljómlistarmenn hafa til skamms tíma verið heldur sjaldheyrðir hér á landi, þrátt fyrir aukinn áhuga Norðurlanda á þess- um heimshluta hin síðari ár. Sl. föstudag brá þó til undantekningar, jafnvel þótt tilefnið virtist á huldu; a.m.k. kom það hvergi fram af tón- leikaskrá, heimasíðu Salarins né heldur gagnasafni Mbl. Fyrstu 4 sönglögin, og síðan eitt píanóverk, gætu eftir höfund- anöfnum að dæma verið af lettn- eskum eða litheygskum meiði. Síðan komu sönglög og dúettar eftir Alfvén, Grieg, Sibelius og letzkt tví- söngsþjóðlag í útsetningu („Latvian folk song decoration“) Jazeps Vitols. Seinni hlutinn samanstóð af oftast vel kunnum óperuaríum og -dúett- um eftir ofangreinda höfunda. Flytjendur voru allir af yngri kyn- slóð en samt efnilegir. Leikur pían- istans var undantekningarlaust hinn liprasti og mótun hans gegnmús- íkölsk, þó að einleiksbravúrustykki hans eftir Rihards Dubra gæfi í hæsta lagi tilefni til tæknisýninga án mikillar dýptar. Sömuleiðis var söngur Kristine Gailite tvímælalaust á háu plani miðað ungan aldur, því þótt raddbeitingin gæti á stöku stað verkað eilítið hvöss, var inntónunin nærri lýtalaus og flúrtæknin það þjál að vísaði beint á hlutverk Næt- urdrottningar í Töfraflautunni – hreint burtséð frá oft sláandi sterkri innlifun. Tenórinn, Martins Zilberts, virtist hins vegar hlutfallslega skemmst á veg kominn. Röddin var oft miður fókuseruð og hol, að maður segi ekki beinlínis loðin, en gæti þó átt sitthvað eftir með aukinni reynslu. Ungir og efni- legir Lettar TÓNLIST Salurinn  Norræn og baltnesk sönglög ásamt óperuaríum og dúettum eftir Mozart, Verdi og Donizetti. Kristine Gailite sópran, Viesturs Jansons tenór og Martins Zilberts píanó. Föstudaginn 12. október kl. 20. Einsöngstónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Góð Kristine Gailite MIÐVIKUDAGINN 10. október síðastliðinn gafst gestum Salarins hið fágæta tækifæri að fá að hlýða á einleikstónleika kúbverska gít- armeistarans Manuel Barrueco, en hann hefur um árabil verið við- urkenndur sem einn besti gít- arleikari okkar tíma. Barrueco hóf tónleikana með sónötu í g moll eftir J. S. Bach. Flutningur hans var sérlega listrænn og syngjandi og framan af einkenndist hann af stóískri yfirvegun og skýrri túlkun laglína. Þriðja hlutann Siciliana lék hann nokkuð hraðar en venjan er, en útkoman var samt ljúf eins og tónsmíðin sjálf. Í lokahlutanum Presto var tilkomumikið að sjá og heyra hvernig hendur Barrueco geystust fumlaust um gítarinn á ógnarhraða, en hraðinn virtist aukast jafnt og þétt gegnum kafl- ann svo undir lokin var næstum eins og um áhættuatriði væri að ræða og skil milli hendinga tók að vanta í dýnamíkina. Næst á efnis- skránni var Tango-Études eftir A. Piazzolla sem Barrueco flutti á sérlega innblásinn hátt, rytmískan og skýran, svo unun var á að hlýða. Dagskráin eftir hlé hófst á tveimur verkum eftir J. Turina, Fandanguillo, op. 36 og Sevillana, op. 29 þar sem Barrueco þræddi sig í gegnum ólíkar áferðir hljóma og rytma á meistaralegan hátt. Síðast á efnisskránni voru hinar yndislegu svítur Suite Española op. 47, eftir I. Albéniz, sem heita hver eftir sinni borginni á Spáni. Svíturnar voru sannkölluð upp- lifun í hjartnæmum flutningi Barrueco, hugljúft ferðalag um Spán, tvímælalaust hápunktur tón- leikanna. Ekki einleikið TÓNLIST Manuel Barrueco í Salnum Einleikstónleikar með gítarleikaranum Manuel Barrueco. Á efnisskránni voru verk eftir J. S. Bach, A. Piazzolla, J.Turina og I. Albéniz.  Ólöf Helga Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.