Morgunblaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
» Í almennri deild hjá lögreglunni á Suð-urnesjum eru nú 44 lögreglumenn, þar
af eru 11 lögreglunemar.
» Þeir setjast aftur á skólabekk um ára-mót og enginn nemi kemur í þeirra stað
fyrr en í vor.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ELLEFU lögreglunemar sem hafa starfað hjá
lögreglunni á Suðurnesjum síðustu mánuði fara
aftur í Lögregluskólann um áramót. Þar sem eng-
inn lögreglunemi kemur í þeirra stað fyrr en í
fyrsta lagi í maí verður lögreglan á Suðurnesjum
verulega undirmönnuð þangað til.
„Það kemur mjög illa við okkur að missa ellefu
nema um áramótin. Og það bætist við að við erum í
sömu stöðu og önnur embætti að því leyti að okkur
vantar tilfinnanlega menntaða lögreglumenn,“
sagði Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á
Suðurnesjum.
Ástandið verður erfitt fram í maí þegar næst
verður útskrifað úr Lögregluskólanum en Jóhann
vonast til að þá komi nýútskrifaðir lögreglumenn
til starfa hjá embættinu auk fimm lögreglunema.
Jóhann sagði að verið væri að fara yfir hvernig
brugðist yrði við en m.a. mætti gera ráð fyrir að
allir yfirmenn sem fram að þessu hefðu ekki geng-
ið vaktir, yrðu að taka vaktir um helgar, þ.m.t.
hann sjálfur og aðstoðarlögreglustjórinn. Jafn-
framt yrði embættið að reyna að fá afleysinga-
menn til starfa og auka tímabundið samstarf
deilda, þ.á m. samstarf tollgæslu og lögreglu.
Vantar 15 um áramót
Hjá lögreglunni á Suðurnesjum starfa nú 73
lögreglumenn og þegar nemarnir eru taldir með
eru þeir alls 84. Þrátt fyrir liðsinni nemanna er
embættið þó ekki fullmannað lögreglumönnum ef
miðað er við þann fjölda sem var við störf þegar
embættin á Suðurnesjum voru sameinuð. Fjóra
lögreglumenn vantar til embættisins, við núver-
andi aðstæður, en þegar nemarnir fara í skólann
um áramót mun embættið vanta 15 lögreglumenn.
Lögreglunemarnir starfa allir í almennri deild.
Aðspurður sagði Jóhann að á vakt hjá almennri
deild ættu að vera 12 lögreglumenn en vegna
manneklunnar hefðu 7-9 verið á hverri vakt.
Mannekla hjá lögreglunni
á Suðurnesjum um áramót
Morgunblaðið/Júlíus
Ellefu lögreglunemar aftur á skólabekk og enginn í staðinn fyrr en í vor
UM 20 þúsund ökumenn fá nú í október afhenta sér-
útbúna lyklakippu að gjöf til áminningar um hvað þeir
ættu að hafa í huga við aksturinn. Þannig eru ökumenn
minntir á að aka varlega, brosa í umferðinni, sýna
ábyrgð, tillitssemi og þolinmæði. Það eru Soroptimista-
systur, í samstarfi við Vátryggingafélag Íslands, sem
vilja með þessu hvetja til bættrar umferðarmenningar
hérlendis.
„Við færum allt of miklar fórnir í umferðinni,“ segir
Laufey B. Hannesdóttir, hjá Soroptimistasambands Ís-
lands, og vísar þar bæði til dauðsfalla af völdum slysa
sem og örkumls sem af getur hlotist. Aðspurð segir hún
hugmyndina að lyklakippunni, sem jafnframt er ætlað
að vera nokkurs konar heillagripur, hafa kviknað í
fyrrahaust í kjölfar mikillar slysahrinu.
„Við Soroptimistar teljum að með því að dreifa lykla-
kippunni persónulega til fólks náist betri árangur í því
að bæta umferðarmenninguna,“ segir Laufey. Bendir
hún á að alls eru um 500 Soroptimistasystur á landinu,
en hver og ein þeirra mun ræða við um 40 ökumenn.
„Mér finnst þetta gott framtak,“ segir Guðrún Soffía
Ólafsdóttir, sem í gær fékk afhenta fyrstu lyklakippu
átaksins Ökum varlega. Að sögn Guðrúnar hefðu allir
ökumenn gott af því að hafa þau jákvæðu atriði sem
getið er um á lyklakippunni í huga við akstur.
Hvetur til bættrar umferðarmenningar
Morgunblaðið/Golli
Gjöf Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Ásgerður Kjartansdóttir, forseti Soroptimista-
sambands Íslands, Guðrún Soffía Ólafsdóttir og Laufey B. Hannesdóttir, félagi í Soroptimistasambandi Íslands.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
NEYTENDASAMTÖKIN hafa sín-
ar efasemdir um tilgang netfyrirtæk-
isins eCom Trainers, sem býður Ís-
lendingum til ókeypis málsverða á
Radisson SAS hóteli dagana 22. og
23. október nk. Í boðsbréfum fyr-
irtækisins sem allnokkrir Íslendingar
hafa fengið að undanförnu er lofað
kennslu í því að græða peninga á net-
inu. Boðið er upp á ókeypis hádeg-
ismat og kvöldmat báða dagana, en
tekið er fram að ekki fái fleiri en 100
manns að koma á hvern fund.
Kristján Daníelsson, hótelstjóri á
Radisson, segir að fundirnir hafi ver-
ið bókaðir í gegnum þriðja aðila,
hvataferðaskrifstofu, og hafi hótelið
þegar fengið fyrirframgreiðslu vegna
viðskiptanna. Kristján segist hafa
efast um fyrirætlanir fyrirtækisins í
ljósi þess að önnur fyrirtæki hafa
fengið gesti til að borga fyrir aðgang
að slíkum fræðslufundum. En að
þessu sinni sé hinsvegar sá munur á
að ekki standi til að rukka gesti, að
sögn Kristjáns. Hann telur þó líkleg-
ast að fyrirtækið muni reyna að selja
fólki eitthvað, en þá verði hver gestur
fyrir sig að taka sína ákvörðun í þeim
efnum. Í augum hótelsins sé fyr-
irtækið eins og hver annar við-
skiptaaðili.
Fengu endurgreitt
Í frétt á ástralska fréttavefnum
brisbanetimes.com.au er greint frá
því í mars sl. að fyrirtækið, þá nefnt
iMergent, hafi þurft að greiða
óánægðum viðskipavinum sínum 679
þúsund dali árið 2005 og horfið af
sjónarsviðinu um hríð. Fyrirtækið
hafi sætt alþjóðlegum rannsóknum
og lögsóknum, en sé hinsvegar enn að
selja sömu afurðina undir nýju nafni,
eComTrainers. Hafi yfirvöld í Ástr-
alíu varað við fyrirtækinu og gylliboð-
um um að hagnast á skömmum tíma.
IMergent er sagt vera staðsett í
Bandaríkjunum og standa á bak við
eComTraines. Sagt er frá því að fyr-
irtækið boði fyrst fólk á 90 mínútna
fundi og fylgi þeim eftir með allt að 10
klst. málstofum þar sem ýtt er á fólk
um að gera sölusamninga og sé van-
inn að greiða þurfi 2.500 til 5.000 dali
fyrir viðskiptatækifæri en þetta fé
skili sér sjaldnast aftur. Í fyllingu
tímans átti fólk sig á ýmsum auka-
kostnaði vegna þjálfunar og stuðn-
ings á sviði tæknimála. Þessi kostn-
aður sé vanalega um 4 þúsund dalir
og hafa rannsóknir Áströlsku sam-
keppnis- og neytendanefndarinnar
(ACCC) leitt í ljós að sjaldan var á
þennan umrædda stuðning treyst-
andi. Tekið er fram að ACCC hefur
ekki tjáð sig um núverandi starfsemi
iMergent eða hvort eComTrainers
sæti rannsókn.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, hefur sent
fyrirspurnir um fyrirtækið út í heim.
„Ég hef enga trú á því að menn séu
að koma hingað til lands í sjálfboða-
vinnu og gefa mat,“ bendir hann á.
„Fyrirtækið hlýtur að ætla að hala
inn fé með einhverjum hætti.“
Efasemdir eru í garð netfyrirtækis sem boðar fólk í mat á Sögu í næstu viku og hyggst kenna hvern-
ig á að græða fé á netinu Neytendasamtökin ákveða að senda fyrirspurnir um fyrirtækið út í heim
Hádegisverðurinn í raun frír?
Netvinna Skýrast mun brátt hvaða
undirtektir eCom Trainers fá.
SKINNEY Þinganes á Hornafirði
hefur sagt upp sjö manna áhöfn á
skipi sínu Skinney og hefur því
verið lagt. Auk þess hefur áhöfnum
Þóris og Erlings verið sagt upp en
þau skip eru bæði á veiðum. Gunn-
ar Ásgeirsson, stjórnarformaður
og útgerðarstjóri fyrirtækisins,
vildi ekki tjá sig um uppsagnirnar.
Eðlileg hagræðing
í kjölfar niðurskurðar
Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
á Hornafirði, segist ekki hafa feng-
ið neinar upplýsingar frá fyrirtæk-
inu vegna uppsagnanna. Hann seg-
ist gera ráð fyrir að ástæðan sé
þriðjungsniðurskurður á þorsk-
kvótanum. Þorskurinn sé stór hluti
af veiðum og vinnslu fyrirtækisins
svo auðvitað hafi menn búizt við
þessu. Það sé ekkert eðlilegra en
að menn reyni að hagræða í kjölfar
svona mikils niðurskurðar. Hann
segir að atvinnuástand á staðnum
sé gott og að einhverjir sjómann-
anna séu þegar búnir að fá vinnu
aftur. Uppsagnarfrestur sjómann-
anna er frá einum mánuði upp í
sex.
Skinney Þinganes er með tvö
skip í smíðum á Taívan og verða
þau komin í gagnið hér heima þeg-
ar líður á næsta ár.
Sjómönnum
sagt upp hjá
á Hornafirði
NÚ eru alls 45 lögreglunemar í
starfsþjálfun. Af þeim eru 34 hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
en ellefu á Suðurnesjum.
Þeir sem eru í starfsþjálfun snúa
aftur í skólann um áramótin og um
leið hefst starfsþjálfun hjá þeim
nemum sem nú sitja á skólabekk, en
þeir eru öllu færri eða 36 talsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Lög-
regluskólanum verða 33 þeirra í
starfsþjálfun á höfuðborgarsvæð-
inu frá því í janúar og til aprílloka.
Frá því í maí og út ágúst verða
fimm á Suðurnesjum en 22 á höf-
uðborgarsvæðinu. Hinir dreifast á
önnur embætti.
Alls útskrifast 81 lögreglumaður
á næsta ári, 45 næsta vor og 36 í
desember og hafa þeir aldrei verið
fleiri. Hingað til hafa í mesta lagi 46
lögreglumenn útskrifast á einu ári.
Fjölgun nemenda í Lögregluskól-
anum er í samræmi við ákvörðun
dómsmálaráðherra frá því í fyrra.
Metútskrift
– en ekki
fyrr en í vor
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur staðfest að Skífan, sem nú
heitir Árdegi ehf., hafi brotið sam-
keppnislög og að álögð stjórnvalds-
sekt upp á 65 milljónir króna sé í
samræmi við alvöru brotsins.
Frá þessu er skýrt á heimasíðu
Samkeppniseftirlitsins, en forsaga
málsins er sú að Samkeppniseftirlit-
ið fann Skífuna seka um að hafa mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína um
mitt síðasta ár og sektaði fyrirtækið
um 65 milljónir króna. Það skaut
málinu til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála sem staðfesti ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins og nú hefur
Héraðsdómur gert það líka.
Málið snýst um það að Skífan
gerði ólögmæta samninga við Hag-
kaup um sölu hljómdiska og tölvu-
leikja á árunum 2003 og 2004 sem
fólu í sér einkakaup og samkeppn-
ishamlandi afslætti. Um var að ræða
ítrekuð brot Skífunnar á samkeppn-
islögum, en fjallað var um fyrra lög-
brot Skífunnar í ákvörðun sam-
keppnisráðs frá árinu 2001 og í
hæstaréttardómi frá árinu 2004.
Brot það sem Skífan er nú dæmd
fyrir er umfangsmeira en fyrra brot.
Skífan
braut sam-
keppnislög
Héraðsdómur stað-
festir 65 milljóna sekt