Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Svandís: Ég Tarzan. VEÐUR Svandís Svavarsdóttir, borgar-fulltrúi Vinstri grænna, tók fyrstu skref sín á leið út í kviksyndi Orkuveitunnar á borgarstjórnar- fundi í gær, þegar hún hafði ekki kjark til þess að standa við eigin sannfæringu og skoðanir heldur lét strákana í Samfylkingunni og Fram- sóknarflokknum ráða ferðinni.     Orkuveitan ogmálefni hennar eru orðin að kviksyndi, sem hefur nú þegar gleypt æru nokk- urra einstaklinga.     Og nokkuð fyr-irsjáanlegt er að fleiri eiga eftir að fara þá leið.     Það verður fróðlegt að fylgjastmeð því, þegar Svandís fer að útskýra fyrir flokkssystkinum sínum hvers vegna hún tekur ábyrgð á kaupréttarsamningum tveggja ein- staklinga í forystu REI langt um- fram aðra.     Það verður líka fróðlegt að fylgj-ast með því, þegar Svandís fer að útskýra fyrir flokkssystkinum sínum hvers vegna hún stoppaði ekki strax afsal á eignum borgarbúa með einkaréttarsamningi til 20 ára.     Það verður líka fróðlegt að fylgj-ast með því, þegar Svandís fer að útskýra fyrir flokkssystkinum sínum hversu miklir hagsmunir séu í húfi af því að búið sé að lofa átt- földun á eignum REI á tveimur ár- um!     Svandís er þessa dagana að eyði-leggja pólitískan feril sinn en hún getur enn bjargað honum með því að gera ráðstafanir til að frysta málið allt á meðan skoðun hennar fer fram. En sennilega ræður hún ekki við strákana – eða hvað? STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Á leið í kviksyndið SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                    12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (      ! "    #$        #$ % #$    % $  :  *$;<                        !  "    *! $$ ; *! &  '      $  ( =2 =! =2 =! =2 &$' #)* #+ ,-%)#.   >!-         /      #           $%     =7  #           $%     =   #       &   & &       '      $%     (  &) /0))  11  #)  2  % * #+ 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B  3 3 3        4         4    4 4  3 3 3 3 3 34 3 3 3 3 3 3 3            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sóley Tómasdóttir | 16. október Bjálkar og flísar Mikið er þetta skrýtin yfirlýsing frá Lands- sambandi kvenna í Frjálslynda flokknum (sem er helst til um- fangsmikið nafn að mínu mati fyrir lítinn hluta af smáum flokki). Margrét Sverrisdóttir er ekkert síður rétt- kjörin í borgarstjórn en félagi henn- ar Ólafur F. Magnússon. Raunar skilst mér að aðeins einn maður af framboðslista Frjálslyndra og óháðra vorið 2006 sé eftir… Meira: soley.blog.is María Anna P. Kristjánsdóttir | 16. okt. Ballið byrjað aftur Þá er byrjað að þrefa eina ferðina enn um hvort selja eigi léttvín og bjór í matvöruversl- unum. Ég segi nei. Þessir nýju og ungu þingmenn virðast leggja ofuráherslu á þetta máefni. Er ekki hægt að ræða eitthvað sem skiptir meira máli? Vín yfir höfuð er vel sett þar sem það er, í sérstökum verslunum, þar sem aðgát er höfð hver kaupir hinar guðlegu veigar. Íslendingar hafa þann háttinn á… Meira: mariaannakristjansdottir.blog.is Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 15. okt. Umhyggja og samábyrgð Á fimmtudaginn kem- ur kl. 14 hefst árlegt tveggja daga málþing Kennaraháskóla Ís- lands þar sem fjallað verður um samskipti, umhyggju og sam- ábyrgð í skólum. Málþingið hefst með stuttum ávörpum … það mun ekki kosta neitt að sækja þingið hvort heldur sóttir eru stakir fyr- irlestrar, málstofur eða þingið allt. Meira: ingolfurasgeirjohann- esson.blog.is Freyr Hólm Ketilsson | 16. október Margur verður af aurum api … Já, það er erfitt að halda öðru fram en íbúðaverð á Reykja- víkursvæðinu og sér- staklega í miðborginni sé orðið skuggalega hátt. Hins vegar er þetta ekki úr korti miðað við nágrannalönd okkar, t.d. Köben og London. Myndi jafnvel teljast ódýrt á þann mælikvarða. En hvernig á ungt fólk, sem ekki á milljónatugi á bók eða auð for- eldra sinna til að ganga í, að geta fjárfest í íbúð í dag? Hvernig stendur á því að á Ís- landi eru ekki eins öflug fasteigna- félög á leigumarkaði og í Svíþjóð sem dæmi, þar er skynsamlegt verð á leigu og ef eitthvað bilar þá er gert við það. Þetta vantar á Íslandi. Búseti/ Búmenn eru vísar að þessu en þar þarf fólk að greiða út 10-30% af íbúðaverði og fær eingöngu það til baka ef það fer úr íbúðinni, sama hvað raunverð hefur hækkað mikið. Á Íslandi vantar okkur góðan leigumarkað sem almenningur ræð- ur við. Það er að verða leitun að þeim einstaklingi sem ekki hefur á einn eða annan hátt tekið þátt í einhvers konar braski með fasteignir á höf- uðborgarsvæðinu á síðustu 10 ár- um. Ég sem dæmi hafði fínt út úr því að selja raðhús hér og flytja til Ak- ureyrar fyrir nokkrum árum. Meira: freyrholm.blog.is BLOG.IS Íslenski dansflokkurinn | 16. október Frítt fyrir börn um helgina! Mikið var gaman að sýna á Akureyri um helgina. Það var nán- ast fullur salur hjá Leikfélagi Akureyrar og afskaplega góðar viðtökur – klappað bæði innan verka og að þeim lokn- um! :) Það er nokkuð ljóst að við reynum að koma aftur til Akureyrar sem fyrst! Nú um helgina er svo Fjöl- skyldusýning Íd… Meira: id.blog.is SIÐANEFND Blaðamannafélags Íslands telur Morgunblaðið ekki hafa gerst brotleg við siðareglur blaðamanna í umfjöllun sinni um leikinn „RapeLay“ og félagið Istorr- ent sem rekur vefinn torrent.is. Um var að ræða frétt sem birtist á baksíðu Morgunblaðsins 24. maí 2007 undir fyrirsögninni „Nauðgun- arþjálfun á Netinu“ en í undirfyrir- sögn sagði: „Á íslensku vefsvæði er hægt að nálgast tölvuleik sem hefur það að markmiði að þjálfa þátttak- endur í nauðgunum. Kærandi, Svavar Kjarval, taldi m.a. að Morgunblaðið hefði ekki gert almennilega tilraun til þess að hafa samband við fulltrúa Istorrent áður en fréttin var birt og jafnframt að látið hefði verið í veðri vaka að stjórnendur vefsvæðisins hefðu gert leikinn aðgengilegan á vefsvæðinu að eigin frumkvæði. Í úrskurði sínum tekur siðanefnd- in undir það sjónarmið Morgun- blaðsins að fyrirliggjandi staðreynd- ir hafi verið nægar til að birta fréttina þótt ekki hafi tekist að ná í forsvarsmenn vefjarins torrent.is. Þá fái siðanefnd ekki séð að umfjöll- un blaðsins hafi verið með þeim hætti að reynt hafi verið að sverta orðspor Istorrents. Síðan segir í úr- skurði siðanefndar Blaðamanna- félagsins: „Hvergi er sagt að for- svarsmenn vefjarins annist sjálfir dreifingu leiksins heldur einungis að hægt sé að nálgast leikinn í gegnum vefsvæðið. Að auki er tekið fram að vefsvæðið sé rekið af áhugamanna- félagi um skráardeilingu. Siðanefnd telur að að ósekju hefði mátt koma fram í greininni hvað felst í skráar- deilingu en Morgunblaðið reifaði það hins vegar ítarlega í grein um torrent-dreifingu sem birtist nokkr- um dögum síðar.“ Ekki brot á siðareglum BÍ Umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn „RapeLay“ þótti ekki aðfinnsluverð Í HNOTSKURN »Morgunblaðið telst ekki hafabrotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands, skv. úrskurði siðanefndar. »Kært var vegna fréttar umleikinn „RapeLay“ en fram kom þar að hægt væri að nálgast „RapeLay“ – tölvuleik sem hefur það að markmiði að þjálfa þátt- takendur í nauðgunum – á ís- lenska vefsvæðinu torrent.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.