Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 11
ALÞINGI
GRÍMSEYJARFERJUMÁLIÐ hefur
verið dæmalaust klúður frá upphafi
til enda og ekki eru öll kurl komin
til grafar enn. Þetta kom fram í
máli Birkis J. Jónssonar, þing-
manns Framsóknarflokksins, en
hann var málshefjandi í utan-
dagskrárumræðum um fjárheim-
ildir til endurnýjunar Grímseyj-
arferju á Alþingi í gær. Birkir sagði
Alþingi og ríkisstjórn hafa verið
leynd mikilvægum upplýsingum um
málið. Fjármálaráðuneytið, sam-
gönguráðuneytið og Vegagerðin
hefðu síðan gert með sér sam-
komulag um að ef vantaði fjármagn
upp á myndi fjármálaráðuneytið
heimila yfirdrátt.
„Staðreyndin er þessi: Ríkis-
stjórnin heimilaði kaup og end-
urbætur á Grímseyjarferjunni upp
á 150 milljónir króna. Nú er ljóst að
kostnaðurinn verður að minnsta
kosti 500 milljónir króna: Rúmlega
300% hækkun. Allt byggt á sam-
komulagi sem ekki var gert op-
inbert. Allt byggt á samkomulagi
sem fulltrúi fjármálaráðherra átti
aðild að,“ sagði Birkir Jón og sagði
sjálft fjármálaráðuneytið hafa farið
á svig við fjárreiðulög. „Er það
virkilega svo, hæstvirtur forseti, að
það ætli enginn að viðurkenna
ábyrgð sína í þessu máli?“
Læra af reynslunni
Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra viðurkenndi að mörg at-
riði hefðu farið úrskeiðis en sagði
um leið að reynt hefði verið að
leysa úr þeim í meginatriðum. „Við
eigum að reyna að læra af reynsl-
unni og þeim mistökum sem gerð
hafa verið og horfa fram á veginn
varðandi það hvernig við tökum á
þessum málum,“ sagði Árni en var
jafnframt undrandi á því að Birkir
Jón skyldi vera málshefjandi þar
sem hann hefði verið formaður
fjárlaganefndar á þessum tíma og
vel getað látið uppi efasemdir sínar
þá.
Núverandi fjárlaganefnd hefur
skilað skýrslu um greinargerð Rík-
isendurskoðunar en minnihluti
nefndarinnar vildi fresta fullnaðar-
afgreiðslu skýrslunnar, m.a. til að
nefndin gæti tekið afstöðu til
ágreinings sem hafi komið upp milli
fjármálaráðuneytisins og ráðherra
í ríkisstjórninni annars vegar og
Ríkisendurskoðunar hins vegar um
heimild fjármálaráðherra til að
ávísa á greiðslur úr ríkissjóði vegna
kostnaðar við ferjuna. Meirihlutinn
var ekki á sömu skoðun.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
nefndarmaður meirihlutans, sagði
á Alþingi í gær að það virtist sem
umræðan væri sett fram í þeim eina
tilgangi að fá fram skylmingar.
„Mér finnst það ekki þjóna neinum
tilgangi að ásaka einhverja ein-
staklinga fram og aftur,“ sagði
Steinunn Valdís og vildi að mistök-
in væru notuð til að læra af þeim.
Dæmalaust klúður
frá upphafi til enda
Morgunblaðið/Golli
Þá og nú Fyrr- og núverandi samgönguráðherra hlýddu á umræðurnar.
Birkir Jón segir Alþingi hafa verið leynt mikilvægum upplýsingum
ÓSAMSTAÐA er milli stjórnar-
flokkanna um hvernig eigi að af-
greiða vatnalög frá Alþingi, sagði
Valgerður Sverrisdóttir, þingmað-
ur Framsóknar, í umræðum um
störf þingsins í gær.
Iðnaðarráðherra hefur lagt fram
frumvarp um að fresta gildistöku
vatnalaga um eitt ár en Vinstri
græn vilja hins vegar ganga lengra
og fella þau alveg brott. Ögmundur
Jónasson og Valgerður vöktu bæði
máls á því í gær að Samfylkingin
hefði áður verið á þeirri skoðun.
„Ég segi bara að það kemur mér á
óvart að Sjálfstæðisflokkurinn skuli
hafa haft tögg í sér til að standast
það að verða við ósk Samfylking-
arinnar sem er sú að þessi lög verði
látin brott falla,“ sagði Valgerður
en Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra varð til svars: „Ég
hélt eitt augnablik að hæstvirtur
þingmaður Valgerður Sverrisdóttir
ætlaði að koma upp og þakka mér
fyrir að hafa mokað út úr flórnum
sem hún skildi eftir ómokaðan,“
sagði Össur og vísaði til þess að
hann væri að efna loforð sem Val-
gerður hefði gefið fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar á sínum tíma.
Ósamstaða
um vatnalög?
Sigurður Kári Kristjánsson 16. október
En Alfreð?
Síðustu daga hefur hinn
nýi meirihluti verið að
skipta með sér verkum
og útdeila verkefnum til
flokksmanna í þeim
fjórum stjórnmála-
flokkum sem að honum standa.
Bleik er illa brugðið ef Alfreð Þor-
steinssyni verður ekki tryggður ein-
hver feitur biti af þeirri köku sem nú
er verið að skipta.
Meira: sigurdurkari.blog.is
Kolbrún Halldórsdóttir 15. október
Ekki sammála
Við dómsmálaráðherra
erum ósammála um
veigamikil atriði er lúta
að vernd kvenna gegn
ofbeldi og þær aðferðir
sem tiltækar eru og
hægt er að beita í bar-
áttunni við slíkt ofbeldi.
[…] ríkisstjórn Íslands hefur skuld-
bundið sig […] til að innleiða að-
gerðaáætlun gegn mansali […]
Meira: althingi.is/kolbrunh/
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ENGAR heimildir eru í lögum fyrir
samkomulagi milli íslenska ríkisins
og Landsvirkjunar um yfirtöku
Landsvirkjunar á vatnsréttindum í
neðri hluta Þjórsár. Þetta segir
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, en samkomulagið var
undirritað í maí sl. VG hefur óskað
eftir því að Ríkisendurskoðun at-
hugi hvort það standist lög og Álf-
heiður útilokar annars ekki að fara
með málið fyrir dóm. „Þetta er
dulbúið eignarnám og ég tel að
þetta sé ekki minna athugunarvert
en t.a.m. kemur fram í athuga-
semdum umboðsmanns Alþingis
varðandi afsal á eigum Orkuveitu
Reykjavíkur. Þetta er almannaeign
og hún er afhent með þessu sam-
komulagi,“ segir Álfheiður og
áréttar að það sé skýrt í stjórn-
arskrá og fjárreiðulögum að ekki sé
hægt að afhenda, gefa, selja eða
láta af hendi eigur ríkisins eða nein
verðmæti sem ríkið á án sérstakra
lagaheimilda. „Og heimildir fyrir
þessu eru hvergi til.“
Álfheiður segir Landsvirkjun nú
eiga 93% vatnsréttinda í neðri
hluta Þjórsár og vanti því aðeins
7% upp á. Það setji landeigendur á
svæðinu í afleita samningsstöðu.
„Þegar ríkið hafði þessi vatnsrétt-
indi í hendi sér hefði Landsvirkjun
þurft að sýna fram á samstarf við
heimamenn um virkjunina og aðra
landeigendur til þess að fá þessi
93%. En það var ekkert svoleiðis.
Landsvirkjun fékk þetta bara í for-
gjöf,“ segir Álfheiður og óttast að
þessi ójafna staða geti verið notuð
sem röksemd fyrir eignarnámi á
þeim vatnsréttindum sem upp á
vantar.
„Það kom skýrt fram í umræðum
á Alþingi í febrúar að það væri úti-
lokað að beita eignarnámi í sam-
keppnisumhverfi. En þarna er eig-
inlega verið að fara bakdyramegin í
eignarnám,“ segir Álfheiður og
bætir við að þótt í samningum
standi að yfirtakan sé aðeins tíma-
bundin sjái hún ekki heimild fyrir
því í lögum heldur.
Háð virkjanaleyfi
Álfheiður vakti máls á þessu á
þingfundi sl. fimmtudag og segist
engin svör hafa fengið frá Árna M.
Mathiesen fjármálaráðherra, en
hann var einn þriggja ráðherra sem
undirrituðu samkomulagið.
Árni segir hins vegar að sam-
komulagið hafi verið nauðsynlegt á
þessum tíma því annars hefðu
samningaviðræður getað siglt í
strand. Sveitarfélögin hafi sett sem
skilyrði fyrir því að þau gætu
breytt skipulagi að samið yrði við
alla bændur á svæðinu. Það hafi
reynst erfitt fyrir Landsvirkjun að
ganga til samninga þar sem fyr-
irtækið hafi ekki haft ráðstöfunar-
heimild yfir vatnsréttindunum.
Árni bendir á að samkomulagið
sé háð því að iðnaðarráðherra veiti
virkjanaleyfi. Landsvirkjun hafi
þegar fengið rannsóknarleyfi og
þess vegna mestar líkur á að hún
fái líka virkjanaleyfi. „Ef hann
ákveður að veita ekki virkjanaleyfi
þá er samningurinn fallinn um
sjálfan sig.“
Árni segir að iðnaðarráðherra
eigi líka að semja um endurgjald
fyrir afnot á vatnsréttindunum og
samningurinn sé því í raun óklárað-
ur. „Svo verður að gæta að því líka
að Landsvirkjun er 100% í eigu rík-
isins,“ segir Árni og bætir við að
þetta sé því einhvers konar flutn-
ingur milli skyldra aðila. „Það væri
hægt að túlka þetta þannig að ríkið
myndi selja Landsvirkjun réttindin
en það er ekki afráðið. Ef ríkið ætl-
ar að gera það þyrfti það að koma
til kasta Alþingis því það má ekki
selja verðmæti án þess að Alþingi
samþykki það,“ útskýrir Árni en
bætir við að ef samkomulagið endi
með því að Landvirkjun greiði leigu
fyrir afnot af réttindunum þá þurfi
ekki að bera það undir Alþingi.
Afsal eða ókláraður samningur?
Í HNOTSKURN
» Samkomulag milli ríkisinsog Landsvirkjunar um yf-
irtöku vatnsréttinda í neðri
hluta Þjórsár var gert 9. maí
sl.
» Þar segir að Landsvirkjunyfirtaki tímabundið nýt-
ingarrétt vatnsréttinda í neðri
hluta Þjórsár sem eru í eigu
ríkisins.
» Þáverandi landbúnaðar-ráðherra, fjármálaráð-
herra og iðnaðarráðherra
undirrituðu samkomulagið
fyrir hönd ríkisins.
Þingmaður Vinstri grænna segir samkomulag ríkisins við Landsvirkjun um yfirtöku vatnsréttinda
vera dulbúið eignarnám Fjármálaráðherra segir um n.k. ókláraðan samning að ræða
Álfheiður
Ingadóttir
Árni M.
Mathiesen
Meira áfengi!
Áfengi er ennþá mál málanna á Al-
þingi og þótt frumvarp um bjór og
léttvín í búðir hafi verið rætt í tæp-
ar þrjár klukkustundir í gær er
fyrstu umræðu enn ólokið. Fjórir
þingmenn voru á mælendaskrá
þegar þingfundi lauk.
Að lokinni fyrstu umræðu fer málið
inn til allsherjarnefndar og það má
ætla að það geti tekið sinn tíma í
meðförum hennar. Fjórir nefnd-
armenn af níu eru meðal flutnings-
manna en það eru Birgir Ármanns-
son, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ólöf
Nordal og Sigurður Kári Krist-
jánsson. Þrír nefndarmenn hafa
hins vegar talað gegn frumvarpinu,
þ.e. Jón Magnússon, Karl V. Matt-
híasson og Siv Friðleifsdóttir. Ætla
má að Atli Gíslason fylgi flokks-
félögum sínum í Vinstri grænum að
máli og þá er aðeins spurning um
afstöðu níunda nefndarmannsins,
Ellerts B. Schram, til frumvarpsins.
Bannað að auglýsa
Annað áfengis-
mál er komið inn
á borð þing-
manna því Ög-
mundur Jón-
asson og fimm
þingmenn úr öll-
um flokkum
nema Sjálfstæð-
isflokki hafa
lagt fram frum-
varp um breyt-
ingu á áfengislögum sem er ætlað
að koma í veg fyrir að framleið-
endur og dreifingaraðilar áfengis
sveigi framhjá auglýsingabanni
með því að nota líkar umbúðir og
nöfn á óáfenga drykki. Þetta er í
þriðja sinn sem frumvarpið er lagt
fram.
Heilsársvegur
yfir Kjöl?
Þingmenn úr öllum flokkum nema
VG hafa lagt fram þingsályktun-
artillögu þess efnis að þjóðhagsleg
hagkvæmni þess að leggja heils-
ársveg yfir Kjöl verði könnuð. Einn-
ig er lagt til að gerð verði for-
könnun á umhverfisáhrifum sem og
samfélagsleg áhrif framkvæmdar-
innar.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 13.30 í dag
og átta fyrirspurnir til ráðherra eru
á dagskrá. M.a. verður spurt um
fangelsismál, verklagsreglur við
töku þvagsýna og strandsiglingar.
Ögmundur
Jónasson
ÞETTA HELST ...
ÞINGMENN BLOGGA