Morgunblaðið - 17.10.2007, Page 22

Morgunblaðið - 17.10.2007, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VALDASKIPTI Í BORGARSTJÓRN Meirihluti sjálfstæðismanna ogframsóknarmanna, sem létaf völdum í borgarstjórn Reykjavíkur í gær, sundraðist vegna ágreinings um málefni Orkuveitunn- ar. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokksins komst að þeirri niðurstöðu að sú blöndun opinbers rekstrar og einkarekstrar, sem fyrir dyrum stóð og fyrir dyrum stendur með samein- ingu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green, væri ekki í þágu hags- muna Reykvíkinga og íbúa annarra sveitarfélaga. Borgarfulltrúa Framsóknarflokks- ins var svo mikið í mun að tryggja þessa blöndu að hann rauf samstarfið til þess að reyna að tryggja áframhald þessa samstarfs á vettvangi Orkuveit- unnar. Vinstri grænir virtust eiga málefna- lega samstöðu með borgarstjórnar- flokki sjálfstæðismanna en gengu engu að síður til samstarfs um mynd- un vinstri meirihluta í borgarstjórn. Myndun þess vinstri meirihluta hefur nú tryggt óbreytt ástand á vett- vangi Orkuveitunnar, alla vega um skeið. Áfram verður unnið að samein- ingu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green og áreiðanlega á svo miklum hraða að erfitt verður að snúa við. Það hefði verið hægt, ef borgar- fulltrúar Vinstri grænna og Frjáls- lyndra og óháðra hefðu greitt atkvæði með tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins á borgarstjórnarfundi í gær, sem í raun var tillaga um stuðn- ing við sjónarmið Svandísar Svavars- dóttur. Þeirri tillögu var vísað til borgarráðs sem þýðir að þeim bolta var sparkað út af vellinum. Nú tekur við langt ferli hjá vinstri meirihlutanum að skoða málefni Orkuveitunnar sem ólíklegt er að skili öðru en óbreyttu ástandi. Í fréttaskýringu, sem Egill Ólafs- son, blaðamaður Morgunblaðsins skrifaði hér í blaðið í gær, kemur fram að í samþykktum Orkuveitunnar segi að stjórnarfundi í Orkuveitunni skuli boða með sjö daga fyrirvara og til- greina skuli fundarefnið. Þetta ákvæði í samþykktum Orkuveitunnar var ekki virt þegar stjórnarfundur var boðaður hinn 3. október sl. Svandís Svavarsdóttir hefur nú höfðað mál til þess að fá fundinn dæmdan ólöglegan. Augljóst er að Svandís hefur rétt fyrir sér og á þessari stundu er mesta von um að stöðva það afsal á eignum borg- arbúa, sem hér er í gangi bundin við málshöfðun Svandísar. Verði fundur- inn dæmdur ólöglegur er ljóst að gerðir hans eru einskis virði. Í fréttaskýringu Egils Ólafssonar kemur einnig fram að aðrar sam- þykktir Reykjavíkurborgar hafa verið þverbrotnar. Sennilega þurfa ein- hverjir borgarar að taka höndum saman um málshöfðun til þess að stöðva þetta mál. Kjörnum fulltrúum er ekki treystandi til þess. FÁTÆKLEG MÁLEFNASKRÁ Sennilega hefur nýr meirihlutialdrei í sögu Reykjavíkur tekið við völdum með jafn fátæklega mál- efnaskrá og sá vinstri meirihluti, sem tók við í gær. Og sennilega hefur nýr borgar- stjóri í Reykjavík aldrei notað jafn mörg orð til að segja jafn lítið og Dagur B. Eggertsson hefur gert síð- ustu daga. Hinn nýi meirihluti hefur eitt mál á stefnuskrá sinni, þ.e. óbreytt ástand í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir margra fjölmiðla til þess að fá bæði hinn nýja borgarstjóra og samstarfs- menn hans til þess að gera grein fyrir stefnumálum meirihlutans fást engin svör. Og það eru að sjálfsögðu engin svör að vísa til þess, að þau komi þeg- ar fjárhagsáætlun borgarinnar verð- ur lögð fram. Þetta er ókurteisi við borgarbúa, svo ekki sé sterkar til orða tekið, að gefa þeim ekki á nokkurn hátt til kynna hvað vaki fyrir vinstri meiri- hlutanum annað en að tryggja óbreytt ástand í málefnum Orkuveit- unnar. Í þessari afstöðu felst auðvitað ákveðin fyrirlitning á kjósendum, því fólki, sem kaus núverandi borgar- stjórn. Vinstri stjórnin í Reykjavík er að segja, að kjósendum komi ná- kvæmlega ekkert við hvernig borg- arfulltrúar meirihlutans hyggist beita valdi sínu. Hefur nokkurn tíma verið mynduð ríkisstjórn á Íslandi, sem hefur ekki lagt fram ákveðna stefnuyfirlýsingu? Hefur nokkurn tíma verið myndað- ur meirihluti í sveitarstjórn á Íslandi, sem hefur ekki gert umbjóðendum sínum grein fyrir hvað viðkomandi meirihluti hygðist fyrir? Er það ekki rétt skilið, að flokkur hins nýja borgarstjóra sé flokkurinn, sem hefur boðað svonefnda sam- ræðupólitík? Á hún ekki að felast í samræðum við kjósendur? Hvar eru samræður Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra? Þær sýnast byggjast á eintali hans um ekki neitt. Þessi framkoma við kjósendur í lýðræðisríki er fáheyrð. Þetta er ekki vandamál fyrir borg- arfulltrúa Framsóknarflokksins. Hann er að gæta hagsmuna svo fárra. En ætla mætti að bæði Samfylking og Vinstri grænir teldu það nokkru skipta að upplýsa kjósendur um hvað þeir ætli að taka sér fyrir hendur. Nú á dögum er lögð mikil áherzla á, að allur almenningur hafi undir hönd- um sömu upplýsingar og stjórnmála- mennirnir þannig að borgararnir geti mótað sér afstöðu til mála. Hið opna og upplýsta lýðræði, sem stundað er hér á Íslandi og í nálægum löndum, byggist á slíkri upplýsinga- miðlun. Hinn nýi meirihluti í borgarstjórn er í raun að segja við kjósendur: ykk- ur kemur ekki við hvað við gerum. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BORGARFULLTRÚAR Sjálf- stæðisflokksins vönduðu Birni Inga Hrafnssyni, borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins, ekki kveðjurnar á fundi borgarstjórnar í gær. Hanna Birna Kristjánsdóttir reið á vaðið, óskaði nýjum meirihluta til hamingju og sagðist vona borg- arbúa vegna að honum fylgdi vel- gengni þótt upphafið væri hvorki trúverðugt né byggt á miklum heil- indum. Í máli borgarfulltrúans kom fram að pólitísk verkefni hefðu skaðast og persónuleg samskipti yrðu aldrei söm. Nýr meirihluti hæfi störf án málefnaskrár eða málefnayfirlýsingar. Það hefðu þótt mikil tíðindi hefði það gerst við myndun síðasta meirihluta. Björn Ingi vissi betur Hanna Birna sagði að meirihlut- inn hefði aðeins verið búinn til um málefni Orkuveitunnar. Hún end- urtók það sem hún hafði sagt áður að allir stjórnarmenn í OR hefðu gert það sem þeir áttu ekki að gera og brugðist. Stjórn OR hefði tekið illa ígrundaða og illa kynnta ákvörðun. Björn Ingi Hrafnsson hefði leyft sér að segja að slit frá- farandi meirihluta hefðu verið vegna klofnings í borgarstjórn- arflokki sjálfstæðismanna. Hann vissi miklu betur enda snerist málið alls ekki um meintan ágreining sjálfstæðismanna. Það væri aldrei til heilla að segja ekki rétt frá og því ætlaði hún að fara yfir gang mála, sem hún og gerði. Borgarfulltrúinn sagði eðlilegt að menn tækjust á í eigin flokki og fylgdu sannfæringu sinni. Farið hefði verið yfir OR-málið og það leyst með oddvita flokksins, Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, sem hefði beðist velvirðingar. „Þurfi ég að víkja úr meirihluta fyrir það eitt að fylgja sannfæringu minni í þessu máli, og fyrir það eitt að tryggja það að sannleikurinn komi í ljós og fyrir það eitt að ganga þá vegferð sem okkur ber að gera sem pólitískt kjörnir fulltrúar fólksins hér í borginni þá lí bara ljómandi vel með það, Hanna Birna, „vegna þess veit að ég breytti í engu ran ei.“ Björn Ingi Hrafnsson sa innbyrðisdeilurnar í málinu ekki verið hjá sér eða í sínu heldur hjá borgarfulltrúum stæðisflokksins. Hanna Bir þetta ekkert nýtt heldur he Björn Ingi ákveðið að ýta ö málum til hliðar, hagsmunu arbúa, fyrir sína eigin hags „Björn Ingi Hrafnsson vild einhverja þá hagsmuni í Or Reykjavíkur, sem hann ver eiga við sjálfan sig, og það Björn Ingi í skotlínu b Hanna Birna Kristjánsdóttir Jórunn Frímannsdóttir Gísli Mart Baldursso Dagur B. Eggertsson, nýr borgarstjóri,sagði eftir kjörið að nýr meirihluti tækivið stjórn borgarinnar við mjög sérstak-ar aðstæður. Tilfinningarnar væru margslungnar og andrúmsloftið þrungið. Meirihlut- inn væri samt þakklátur fyrir tækifærið til að hrinda málefnaáherslum sínum í framkvæmd og myndi takast á við verkefnin af krafti. Efst í huga væri það sameiginlega verkefni að endurvekja traust borgarstjórnar. Orkuveitumálið sýndi hve nauðsynlegt væri að stunda fagleg og lýðræðisleg vinnubrögð með almannahagsmuni að leiðarljósi. Nýr meirihluti ætlaði að setja orkumálin í markviss- an farveg og um þverpólitískan leiðangur yrði að ræða. Aldrei mætti samt gleymast að verkefnin væru miklu fleiri. Leikskólarnir þyrftu úrræði til að bregðast við manneklu. Hlúa þyrfti að grunnskól- anum, hverfaþjónustu, öldrunarþjónustu, fé- lagslega íbúðakerfinu, samgöngunum, uppbygg- ingu miðborgarinnar, umhverfismálunum, menningunni, því sem gerði borgina þess virði að búa í. Verkefnin væru ótalmörg og nýr meirihluti hlakkaði til að takast á við þau. Vilhjálmi þakkað Borgarstjóri þakkaði fráfarandi meirihluta fyrir samstarfið á undanförnum mánuðum. Hann sagði að deilur mættu ekki yfirskyggja það að hrósa mætti fyrrverandi meirihluta fyrir margt sem hefði verið gert og ekki yrði hlaupið í pólitískar kreddur til að gera lítið úr þeim verkum. „Sérstaklega vil ég þó þakka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, fráfarandi borgarstjóra, fyrir hans störf. Þótt umræða und- anfarinna daga hafi oft verið hörð og stundum jafn- vel sorgleg má það ekki yfirskyggja að hann hefur að mörgu leyti verið góður borgarstjóri og fyrir það vil ég og við öll þakka. En þetta leiðir einmitt hug- ann að því, sem má ekki gleymast í öllum þessum ólgusjó sem nú gengur yfir, að þrátt fyrir allt er það sameiginlegt markmið okkar allra, sem sitjum hér inni, að vinna af heilindum að málefnum borgarinn- ar og gera Reykjavík nú sem endranær að fram- úrskarandi stað til að búa á, framúrskarandi stað fyrir fjölskyldur, framúrskarandi stað fyrir börn, framúrskarandi stað til að eldast, framúrskarandi stað til þess að stofna og reka fyrirtæki, því við er- um jú öll Reykvíkingar og okkur þykir vænt um borgina okkar og viljum veg hennar og borgarbúa sem mestan og bestan. Við sem hér sitjum þiggjum einmitt umboð okkar frá borgarbúum öllum o þannig borgarstjóri vil ég líka vera, borgastjór allra Reykvíkinga.“ Björn Ingi Hrafnsson þakkaði félögum sínum fráfarandi meirihluta fyrir frábært samstarf. Han sagði að það hefði að flestu leyti verið ákaflega got og borginni til heilla. Hann þakkaði fyrir góð per sónuleg kynni og þakkaði sérstaklega Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni fyrir vináttu og samstarf í gegnum tíðina. „Hans pólitíski ferill spannar aldarfjórðung pólitík okkar Reykvíkinga. Hann hefur sett þar fyr ir löngu afgerandi spor á sinn samtíma í borginn Nafn hans mun þess vegna lifa, örugglega langt um fram nöfn okkar hinna flestra sem tökum þátt þessu. Hann hefur staðið sig vel og ég vil þakka hon um sérstaklega fyrir persónulegt og gott samstarf Boðar samvinnu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgar stjóri, óskaði arftaka sínum til hamingju með star ið. Hann minnti Dag á að starfið væri erfitt e skemmtilegt. Það tæki mikinn tíma og hann ráð lagði nýjum borgarstjóra að gefa sér tíma til a hitta fólkið í borginni. Hann sagðist vænta þess a borgarfulltrúar gætu unnið vel saman að öllum góð um hagsmunamálum borgarinnar. Auðvitað vær menn ekki sammála um allt en ágætlega hefði veri unnið saman í mörgum málum og ekki væri ástæð til að hætta því. Hins vegar væru menn ekki allta Kallað eftir ste Nýkjörinn borgarstjóri í Reykja- vík, Dagur B. Eggertsson, sagði á fundi borgarstjórnar í gær að taka þyrfti á mörgum málum og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, kallaði eftir stefnu- skrá nýs meirihluta. Nýr borgarstjóri Dagur B. Eggertsson, oddviti S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.