Morgunblaðið - 17.10.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 23
íður mér
,“ sagði
að ég
ngt, aldr-
agði að
u hefðu
um flokki
m Sjálf-
rna sagði
efði
öllum
um borg-
smuni.
di vernda
rkuveitu
rður að
var
ástæðan fyrir því að Björn Ingi
Hrafnsson sleit meirihluta-
samstarfinu.“ Björn Ingi sagðist
gera sér grein fyrir að ekki ríkti
mikil ánægja með ákvörðun sína en
það væri mikill misskilningur að
hann hefði sett fram einhverja af-
arkosti í málinu. Í sex daga hefði
hann lagt skilaboð fyrir borg-
arstjóra til að ræða stöðuna en ekki
fengið svar. Þegar hann hefði loks
fengið fund um málið hefði honum
lokið án niðurstöðu. Eftir ætti að
fara yfir margt í málinu, m.a.
hvernig það hefði verið keyrt áfram
á öllum stigum málsins af Sjálf-
stæðisflokknum.
Jórunn Frímannsdóttir sagðist
ekki hefðu haldið að Björn Ingi
hlypi undan merkjum við fyrsta
ágreining en ef til vill hefði hann
ekki þolað sáttina hjá borg-
arfulltrúum sjálfstæðismanna. „Ég
vona, borgarfulltrúi Björn Ingi
Hrafnsson, að þú gerir þér grein
fyrir því og gerir það strax að við
sjáum ekki nokkurn skapaðan hlut
eftir þér.“ Hún hélt áfram og sagði
að það sem hefði gerst væri það að
Björn Ingi Hrafnsson, Óskar
Bergsson og Alfreð Þorsteinsson
hefðu hoppað í faðm minnihlutans
sem hefði tekið á móti þeim opnum
örmum því eins og Svandís
Svavarsdóttir hefði sagt þá gæfi
hún allt fyrir að vera í meirihluta.
„En hvar er málefnasamning-
urinn?“
Gísli Marteinn Baldursson sagð-
ist aldrei hafa reynt nýkjörinn
borgarstjóra að öðru en heilindum
en ekki væru allir eins innréttaðir.
Hann sagði að Björn Ingi hefði ekki
haft tíma til að sinna ýmsum mála-
flokkum vegna þess að REI hefði
tekið tíma hans. Yfirlýsing Bjarna
Ármannssonar, Hauks Leóssonar
og Hjörleifs Kvaran hefði ekki ver-
ið tæmandi. Sér hefði skilist að
sömu helgi og handsalað var að
ganga til samninga við GGE hefði
Björn Ingi verið í Lundúnum að
ræða það við fjárfesta. „Stundum
hvarflar að manni að menn vilji
ekki láta öll kurl koma til grafar.
Vissi borgarfulltrúi Björn Ingi
Hrafnsson ekki að með því að sam-
þykkja samrunann var hann að láta
fjölda milljarða – milljarða – renna
til manna sem hafa stýrt Fram-
sóknarflokknum undanfarin ár?“
„Verði ykkur að góðu“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
tók undir orð Hönnu Birnu um að-
draganda málsins og gagnrýndi
hvernig staðið hefði verið að mál-
inu. „Mér finnst að þeir sem sam-
þykktu þennan samruna og þeir
sem stóðu að honum hafi brugðist
trausti okkar borgarbúa allra.“
Þorbjörg Helga vandaði Birni
Inga Hrafnssyni heldur ekki kveðj-
urnar og bað nýjan meirihluta að
láta sér verða að góðu að hafa feng-
ið hann til liðs við sig.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hóf
mál sitt á að segja að hann ætti eft-
ir að sakna þess að starfa á mennta-
sviði borgarinnar en hann saknaði
þess einnig að borgarfulltrúar
meirihlutans greindu frá stefnu
sinni í menntamálum, sem og öðr-
um málum. „Það er ástæða til þess
að þessir borgarfulltrúar segi
hvernig þeir ætla að starfa. Ég
nefni mál eins og gjaldfrjálsan leik-
skóla, gjaldfrjálsan grunnskóla.
Hvernig er líka með þær tillögur
sem lagðar hafa verið fram í
menntaráði um kjör kennara? […]
Svandís Svavarsdóttir hefur deilt
um það hér. En ég man ekki eftir
fundi eins og þessum þar sem hún
segir ekki eitt einasta orð. Þetta
eru ákaflega mikil tíðindi.“ Júlíus
beindi einnig spjótunum að Birni
Inga og taldi hann hafa litla innsýn
í rekstur Orkveitu Reykjavíkur.
„Hann hefði átt að sinna betur
skyldum sínum. Hann hefði líka átt
að sækja betur fundi ÍTR. En nei,
hann hafði meiri ánægju af því að
fara til Kína – það er skemmtilegra
en að sinna hinum daglega rekstri.
Hann hefði átt að koma fram af
heilindum en ekki óheilindum.“
Kjartan Magnússon sagði að
spillingarfnykur væri af atburðarás
síðustu daga. „Og tengist hann m.a.
borgarfulltrúanum Birni Inga
Hrafnssyni og kosningastjóra hans
í prófkjöri og alþingiskosningum.“
Margt væri óljóst varðandi REI og
OR og þar sem þessi atriði hefðu
leitt til stjórnarskipta þá skipti það
miklu máli sem nýr meirihluti
myndi segja um þau mál. Fyrrver-
andi minnihluti hefði talað fyrir því
að málefni OR kæmust í einhvern
farveg. „Þess vegna hlýtur að vera
nauðsynlegt að það myndist ekki
eitthvert þagnarbandalag hér og í
slíku bandalagi tökum við borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
ekki þátt.“
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
teinn
on
Kjartan
Magnússon
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
Björn Ingi
Hrafnsson
og
ri
í
nn
tt
r-
Þ.
m
g í
r-
ni.
m-
í
n-
f.“
r-
rf-
en
ð-
að
að
ð-
ru
ið
ða
af
sammála. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætl-
uðu að vinna faglega og ákveðið, og halda fram sín-
um stefnumálum.
Fráfarandi borgarstjóri sagði að mjög mörg
verkefni á vegum borgarinnar væru framundan í
Reykjavík. Eitt af stórum kosningamálum sjálf-
stæðismanna hefði verið að hefja byggingu þjón-
ustuíbúða á flug og fyrir nokkrum dögum hefði
hann tekið fyrstu skóflustungu að byggingu 112 ör-
yggis- og þjónustuíbúða í Spönginni. Innan skamms
hæfist uppbygging á 210 öryggis- og þjónustuíbúð-
um ásamt þjónustu- og menningarmiðstöð í Spöng-
inni í Grafarvogi. Um 100 íbúðir og félagsmiðstöð
yrðu byggðar á Sléttuvegi í samstarfi við Hrafnistu.
Til viðbótar hefðu samtökum eldri borgara verið út-
hlutað um 70 lóðum og stúdentar myndu fá lóð undir
íbúðir. Mikið hefði því áunnist en finna þyrfti betri
og fleiri búsetuúrræði fyrir eldri borgara. Eins væri
mikilvægt að fjölga félagslegum leiguíbúðum, því
allt of margir einstaklingar væru nánast á götunni.
Lýst eftir málefnagrunni
Vilhjámur sagði að hyggja þyrfti að ýmsum öðr-
um málum og ekki væri nógu gott að ekki lægi fyrir
málefnagrunnur nýs meirihluta. Ekki nægði að
segja Reykvíkingum það að borginni stjórnuðu fé-
lagshyggjuflokkar sem ætluðu að skoða þessi mál
og setja þau í starfshópa. Svara þyrfti því hvort
stefna í mjög stórum málum hafi alls ekki verið til.
Fráfarandi borgarstjóri spurði hvaða áform væru
uppi í skipulags- og lóðamálum og hvað ætti að gera
við Vatnsmýrina. Frjálslyndi flokkurinn hefði lofað
kjósendum því fyrir kosningar að flugvöllurinn yrði
áfram í Reykjavík og nú væri þessi flokkur kominn í
samstarf við VG og Samfylkinguna sem hefðu lofað
því að flugvöllurinn færi sem fyrst. Sjálfstæðismenn
hefðu sagt að flugvöllurinn yrði ekki fluttur til
Keflavíkur.
Vilhjálmur sagði að eitt stærsta kosningamál
Frjálslynda flokksins hefði verið að byggja mislæg
gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar. Fráfarandi meirihluti hefði verið sama
sinnis en þetta hefði ekki verið stefna VG og Sam-
fylkingar. Hann kallaði eftir stefnu meirihlutans í
samgöngumálum í borginni, ekki síst í þessu máli.
Hann hvatti meirihlutannn til að sinna Sundabraut
og reyna að hraða þeirri framkvæmd því undirbún-
ingsvinna tæki um tvö ár og byggingarvinna þrjú til
fjögur ár. Auðvelt ætti að vera að taka á málinu því
nýr borgarstjóri væri í Samfylkingunni sem og sam-
gönguráðherra og formaður samgöngunefndar Al-
þingis. Fróðlegt væri að heyra hvort borgarstjóri
væri sáttur við að málinu yrði frestað og hvernig
hann ætlaði að beita sér í því að fá aukið fé til vega-
gerðar í Reykjavík.
Mannekla á leikskólum og frístundaheimilum
hefur mikið verið rædd í borgarstjórn. Vilhjálmur
sagði að sjálfstæðismenn hefðu verið gagnrýndir
fyrir ástandið en hafa bæri í huga að ástandið væri
ekki nýtt. Talað hefði verið um að það þyrfti að
hækka launin og nú væri gott að fá að heyra hvað
ætti að gera til að fjölga starfsfólki í umönnunar-
stéttum.
Vilhjálmur sagði að fráfarandi meirihluti hefði
tekið mjög skarplega á fjármálastjórn borgarinnar
og gert það af festu og ábyrgð. Hallinn hefði verið
sjö milljarðar 2006 en á líðandi ári væri gert ráð fyr-
ir fjögurra milljarða halla og reyndar stefndi í tölu-
vert minni halla. Mikilvægt væri að reka ábyrga
fjármálastjórn. Reynt hefði verið að gera vel við
kennara og leikskólakennara en borgað væri eftir
töxtum og í mikilli þenslu væri ekki hægt að keppa
við yfirboð fyrirtækja.
Sjálfstæðismenn boðuðu 25% lækkun fasteigna-
skatts á kjörtímabilinu, 10% á þessu ári og síðan 5%
á ári. Vilhjálmur spurði hvort staðið yrði við þetta
og jafnvel gert betur.
„Hvar á að finna fjármagn í öll þessi verkefni?“
spurði Vilhjálmur og vísaði einkum í gjaldfrjálsan
leikskóla sem nýr meirihluti hefði talað um. Ef svar-
ið yrði að draga ætti úr framkvæmdum væri ljóst að
einkum væri verið að byggja skóla og íþróttahús.
Ekki væri hægt að hækka útsvarið, því það væri í
toppi.
Að lokum minntist Vilhjálmur á orkumálin. Hann
sagðist vera samþykkur því að málinu yrði komið í
ákveðinn farveg. Viðhorfin til þess væru mjög ólík
en taka þyrfti það upp frá nýju. Hann hefði heyrt í
fréttum haft eftir lögmanni Svandísar Svavarsdótt-
ur að hugsanlega yrði kærumál hennar dregið til
baka. Mjög gott væri að fá að heyra hvernig nýr
meirihluti ætlaði að nálgast málið, en sjálfstæðis-
menn tækju undir bókun Svandísar á eigendafundi
Orkuveitunnar 3. október sl. og hann lauk máli sínu
með því að leggja fram tillögu þess efnis.
Fara yfir drög að fjárhagsáætlun
Dagur B. Eggertsson sagði að nýr meirihluti
legði áherslu á að koma á starfhæfum stöðugleika,
festu og jafnvægi við stjórn borgarinnar og fyrir-
tækja hennar. Orkumálin yrðu sett í ákveðinn far-
veg. Allir flokkar í borgarstjórn ættu þar hlut að en
trúnaðarmenn meirihlutans færu með atkvæði hans
í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Málið yrði unnið
hratt og markvisst og af heilindum. Í öðru lagi sagði
hann að engar meiriháttar stjórnkerfisbreytingar
yrðu gerðar hjá borginni. Tal Vilhjálms gæfi til
kynna að mögulegt væri að ná saman um stefnu-
mörkun í mikilvægum málefnum. Fara yrði yfir
drög að fjárhagsáætlun borgarinnar áður en verk-
efnalisti yrði lagður fram, því annað væri ekki
ábyrgt.
Hann sagði það merkilegt að nánast það eina sem
sjálfstæðismenn gætu sameinast um í orkumálun-
um væri að taka undir bókun minnihlutans á stjórn-
arfundi OR. Hvort borgarstjórn gæti tekið undir
bókunina yrði skoðað og hann legði til að tillögunni
yrði vísað inn í borgarráð.
efnuskrá nýs meirihluta
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
amfylkingarinnar, var á fundi borgarstjórnar réttkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur til loka kjörtímabilsins.
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson
lagði fram eftirfarandi tillögu
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins á fundi borgarstjórnar í gær:
„Borgarstjórn samþykkir og
tekur undir bókun Svandísar
Svavarsdóttur borgarfulltrúa sem
hún lagði fram á eigendafundi í
Orkuveitu Reykjavíkur hinn 3.
október 2007 um lögmæti hans og
þá ákvörðun sem á honum var tek-
in um samning við REI um aðgang
að tækniþjónustu o fl., sem felur í
sér algeran einkarétt á þjónustu
OR til REI til 20 ára. Nauðsynlegt
er að eyða þeirri óvissu sem ríkir
um þetta mál þannig að hægt verði
að taka ákvarðanir um fram-
haldið.“
Í greinargerð kemur m.a. fram
að þegar öll gögn málsins séu
skoðuð varðandi þá dagskrá sem
fyrir eigendafundinum hafi legið,
fari ekki milli mála að verulega
hafi skort á að dagskrárefni hafi
verið kynnt sem skyldi, þannig að
fundarmönnum mætti vera nægi-
lega kunnugt um hvað hafi falist í
þeim gerningum sem bornir hafi
verið upp til samþykktar.
Þjónustusamningur hafi legið
frammi á fundinum á ensku og
vafi leiki á hvernig beri að túlka
hann m.a.hvað varði einkarétt til
handa REI um þjónustu OR.
Tillaga til
stuðnings
bókun
Í LOK umræðu í borgarstjórn um
stefnumál nýs meirihluta var sam-
þykkt dagskrártillaga borgar-
stjóra um að vísa tillögu minni-
hlutans varðandi samruna REI og
GGE til meðferðar í borgarráði á
næsta fimmtudag. Gagnrýndu
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í bókun um atkvæðagreiðsluna
að meirihlutinn hefði í umræðum
dagsins neitaði að ræða stefnumál
sín. Fjölda spurninga hafi verið
beint til borgarfulltrúa meirihlut-
ans varðandi fyrrnefndan sam-
runa en engum þeirra verið svar-
að. Það væri heigulsháttur að þora
ekki að ræða málið í borgarstjórn
og borgarbúar biðu eftir svörum.
Spurningum
ekki svarað