Morgunblaðið - 17.10.2007, Side 36
Vel til í að spjalla
við blaðamann-
inn með harða hreim-
inn … 40
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SENA hefur selt Stúdíó Sýrland. Kaupendur eru
Sveinn Kjartansson og Þórir Jóhannsson.
Við kaupin eignast fyrirtæki Þóris og Sveins
alla starfsemi Senu sem snýr að hljóðverum og
tengdum rekstri, en hljóðverin eru Stúdíó Sýrland
í Skúlatúni, Sýrland Hljóðsetning í Vatnagörðum
og Sýrland Hafnarfirði sem betur er þekkt undir
nafninu Hljóðriti.
„Reksturinn breytist ekkert við kaup okkar,
fyrir utan það að Sýrlandi í Skúlatúni verður lokað
í desember og starfsemin þar færð í Vatnagarða,
svo við verðum með tvær starfsstöðvar í stað
þriggja. Við ætlum okkur að vera áfram stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar í landinu hvort sem litið
er á tónlist eða hljóðsetningu,“ segir Þórir Jó-
hannsson sem verður framkvæmdastjóri Sýr-
lands. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri
Reykjavík Records.
Sveinn er hljóðupptökumaður og hefur starfað
við upptökur í yfir tuttugu ár. Hann kennir nú
hljóðupptöku við Listaháskóla Íslands, en hans
sérsvið er klassísk tónlist.
„Arnþór Örlygsson, betur þekktur sem Addi
800, verður með okkur sem yfirmaður hljóðvera
Sýrlands. Sveinn og Addi hafa unnið nokkuð sam-
an í gegnum tíðina og báðir komið að upptökum á
fjöldanum öllum af plötum en Addi er einn helsti
upptökumaður landsins í popptónlist,“ segir Þórir.
Stofnað af Stuðmönnum
Nýir eigendur Sýrlands sérhæfa sig í því að
þjónusta alla og ætla ekki sjálfir að fara út í út-
gáfu.
„Markmið fyrirtækisins er að bjóða fram-
úrskarandi aðstöðu til hvers konar hljóðvinnslu
hvort sem um er að ræða hefðbundna tónlistar-
upptöku eða hljóðsetningu fyrir sjónvarp, kvik-
myndir og annað sem lýtur að hljóði. Stúdíó Sýr-
land er stærsta fyrirtæki landsins á þessu sviði
hvort sem litið er til tónlistar eða hljóðsetningar
og hefur á að skipa öflugu starfsfólki með langa
reynslu að baki,“ segir Þórir, en hjá Sýrlandi
starfa um fimmtán manns auk þess sem félagið er
með samninga við á annan tug leikara sem koma
að talsetningu.
„Fyrirtækið annast meðal annars upptökur á
tónlist, hljóðblöndun, masteringar, talsetningar
fyrir sjónvarpsefni og kvikmyndir, framleiðslu á
geisladiskum/DVD og grafíska hönnun. Auk þess
rekur Sýrland sérhannaðan upptökubíl sem not-
aður er við upptökur á tónlist og öðru efni víðs
vegar um landið.“
Stúdíó Sýrland var upphaflega stofnað af Stuð-
mönnum á níunda áratugnum en það hefur verið
rekið undir merkjum Senu síðustu misseri.
Margar af vinsælustu hljómsveitum landsins
hafa tekið upp í Sýrlandi, þar má telja Sigur Rós,
Sykurmolana og bresku hljómsveitina Blur, sem
tók upp efni á tvær plötur þegar hún taldist til Ís-
landsvina á sínum tíma.
Stúdíó Sýrland selt
Morgunblaðið/Ómar
Sýrlendingar Eigendurnir Þórir Jóhannsson og Sveinn Kjartansson með Arnþór Örlygsson upptökustjóra á milli sín og Stuðmenn og Blur til hliðar.
margar tilraunir í hljóðverinu til
þess að ná því góðu. Ástæðan er
auðvitað sú að ansi margir heyra
hann segja „Reykjavík“, og því
eins gott að orðið hljómi vel.
Rödd Jóns Ögmundar hljómar á
BBC nokkrum sinnum á dag, en
samt sem áður segist hann ekki
hafa fengið mikil viðbrögð. „Það
veit svo sem enginn sem hlustar á
þetta að þetta er ég. En það er
ágætt að vara fólk við,“ segir hann
og hlær. „Og heimurinn verður
víst að búa við þessa rödd mína um
nokkurt skeið.“
ameríski framburður á þessu,“
segir hann. „Ég lifi auðvitað í
þeirri von að fyrst hafi verið talað
við Hilmi Snæ, Þórunni Lár-
usdóttur, Arnar Jónsson og fleiri
góða leikara, þótt ég hafi verið
valinn. Hingað til hef ég nú ekki
talið mína rödd neitt sérstaklega
góða, ég þekki hana ekki einu
sinni þegar ég hlusta á hana í út-
varpinu, frekar en ýmsir aðrir.“
Þótt Jón Ögmundur hafi aldrei
unnið í útvarpi hefur rödd hans þó
hljómað á öldum ljósvakans, enda
skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu. Aðspurður segir hann að
þótt hann hafi aðeins þurft að
segja eitt orð hafi þurft nokkuð
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VINUR minn, sem hefur unnið
nokkuð fyrir BBC, bað mig að
segja eitt orð, orðið Reykjavík,“
segir Jón Ögmundur Þormóðsson,
sem ef til vill mætti kalla rödd Ís-
lands á erlendum vettvangi.
Ástæðan er sú að áður en fréttir
eru sagðar á útvarpsstöðinni BBC
World Service eru nöfn höf-
uðborga víðs vegar um heiminn
talin upp, og segir Jón Ögmundur
nafn Reykjavíkur. „Þeir velja alltaf
einhvern innfæddan til þess að
segja þetta til þess að það sé ekki
alltaf þessi venjulegi breski eða
Rödd Íslands á BBC
Morgunblaðið/RAX
Víðförull Það er ljóst að fólk um allan heim heyrir rödd Jóns Ögmundar.
Jón Ögmundur segir „Reykjavík“ nokkrum sinnum á dag
„Ísland í eld-
línunni“ er fyr-
irsögn alllangrar
greinar sem birt-
ist í danska
blaðinu Berl-
ingske Tidende í
gær.
Í greininni er
fjallað í grófum
dráttum um kvikmyndamenn-
inguna á Íslandi í tenglum við Al-
þjóðlega kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, sem lauk nýverið.
Greinin byrjar reyndar á klisj-
unni um óvenjulegu eyjuna úti í
miðju Atlantshafi þar sem aðeins
búa um 300.000 manns, komnir af
víkingum. Land sem nú upplifir
efnahagslegan og menningarlegan
blómatíma, sem hefur ýtt undir
skapandi kvikmyndaiðnað. Auk
þess sem rætt er lítillega við Hrönn
Marinósdóttur, framkvæmdastjóra
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, er
Hrafn Gunnlaugsson nefndur og
sagt frá því að
frá honum sé að
koma ný kvik-
mynd.
Danski blaða-
maðurinn hefur
samt mestan
áhuga á Holly-
wood-kvikmynd-
um sem teknar
eru upp á Íslandi.
Samkvæmt nýrri samþykkt sem
gildir frá árinu í ár til 2011 geta
þeir sem velja að taka upp á Íslandi
fengið 14% af tökukostnaði end-
urgreidd, segir í greininni. Hug-
myndin með því er að laða erlenda
kvikmyndagerðarmenn til landsins.
Baltasar Kormákur er spurður út í
þá ráðstöfun og er hann ekki hrif-
inn. „Ég skil ekki af hverju við ætt-
um að gefa náttúru okkar auðveld-
lega til annarra. Með þessu hætta
okkar eigin myndir að skera sig úr.
Hvers vegna ættu allar mögulegar
miðjumoðsmyndir að hafa það sem
okkar eigin myndir lifa af? Þetta er
kostnaðarsöm ákvörðun sem við
eigum eftir að sjá eftir,“ er haft eft-
ir Baltasar.
Baltasar á móti því að
laða að erlenda kvik-
myndagerðarmenn
BBC World Service er á FM 94,3.