Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 6

Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GYLFI Kristjánsson, blaðamaður, lést á heimili sínu á Akureyri í fyrrinótt, 59 ára að aldri. Gylfi var fæddur í Reykjavík 18. ágúst 1948, sonur hjónanna Kristjáns Gíslasonar og Elsu Sólrúnar Stef- ánsdóttur, sem bæði eru látin. Eftirlifandi eiginkona Gylfa er Birna Blöndal. Þau gengu í hjónaband 1969 og eignuðust þrjú börn, Ólaf, Kristján og Berglindi. Fyrir átti Gylfi soninn Garðar Árna. Gylfi nam á sínum tíma gullsmíði hjá Jens en hóf samhliða því að skrifa um körfuknattleik fyrir Morg- unblaðið. Hann lék þá íþrótt með ÍR og varð m.a. Íslandsmeistari með fé- laginu, Gylfi sat síðar í stjórn Körfu- knattleikssambands Íslands og var fyrsti framkvæmdastjóri þess, vet- urinn 1973–74. Hann lagði einnig stund á þjálfun og stýrði liði Þórs á Akur- eyri um tíma. Þegar Gylfi fór að skrifa um körfuknatt- leik fyrir Morgunblaðið hófst langur ferill hans í blaðamennsku. Hann starfaði síðar á Vísi og fjölskyldan fluttist til Akureyrar 1981 þegar Gylfi réðst til starfa á Degi. Hann var frétta- stjóri þar á bæ þegar Dagur var gerður að dagblaði 1985, og starf- aði síðar hjá DV. Eftir að hann lét af störfum þar skrifaði Gylfi í ýmis blöð og tímarit. Gylfi var landsþekktur veiðimaður og kunnur fyrir fluguhnýtingar. Hann hannaði margar flugur sem þekktar eru á meðal silungsveiði- manna. Gylfi starfaði mikið fyrir Golf- klúbb Akureyrar og var mótsstjóri á Landsmótum sem klúbburinn hélt. Andlát Gylfi Kristjánsson INGIBJÖRG Sæunn Jóhannsdóttir ljós- móðir á Blesastöðum á Skeiðum lést á heimili sínu að kvöldi 28. októ- ber sl., 89 ára að aldri. Ingibjörg fæddist í Háakoti í Fljótum í Skagafirði 1. júní 1918. Hún var fimmta í röð tólf barna hjónanna Sigríðar Jónsdóttur og Jóhanns Benedikts- sonar. Ingibjörg giftist Hermanni Guðmunds- syni, bónda á Blesastöðum, árið 1941 og stofnuðu þau nýbýlið Blesastaði 2. Þau eignuðust fimm börn. Árið 1945 lauk Ingibjörg prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands og var skipuð ljósmóðir í Skeiðahreppsum- dæmi sama ár. Hún sinnti einnig ljósmóðurstörfum í nágrannasveit- um. Þau hjón tóku börn og unglinga í fóstur til lengri og skemmri tíma. Her- mann lést árið 1980. Ingibjörg hélt áfram búskap til ársins 1984, en þá seldi hún jörðina að undanskilinni land- spildu þar sem hún reisti Dvalarheimili aldraðra með vistrými fyrir fimmtán einstak- linga. Ingibjörg hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Árið 1984 var hún sæmd riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu. Búnaðarsamband Suðurlands gerði hana að heiðursfélaga árið 1985. Hún var tilnefnd af Bændasam- tökum Íslands árið 1997 til verðlauna sem Alþjóðasamtök bænda veita konum í dreifbýli fyrir framúrskar- andi starf að málefnum samfélagsins og var hún meðal 33 kvenna í loka- tilnefningu alþjóðasamtakanna. Andlát Ingibjörg Sæunn Jóhannsdóttir Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is 2007 árgangur þorsks virðist slakur og svipaður síðustu þremur árgöngum samkvæmt fyrstu niðurstöðum um fjölda þorskseiða. Teikn eru hins vegar á lofti um að 2007 árgangurinn af ýsu sé talsvert yfir meðaltali á grunnslóð. Þetta kemur fram í niðurstöðum stofnmælingar Hafrann- sóknastofnunar á rækju á miðunum á Vestfjörðum og á fjörðum og flóum norðanlands. Samkvæmt könnuninni var minna af eins árs þorski og eldri á öllum svæðum en verið hefur síðustu vetur, en mik- ið af ýsu eins árs og eldri. 2003 árgangur ýsu var sér- staklega áberandi inni á öllum fjörðum líkt og undanfarin fjögur ár en þorskurinn virðist ekki jafn staðbundinn. Horft til haustrallsins „Við leggjum ekki út frá þessum niðurstöðum. Þær fela kannski í sér smá vísbendingu en við bíðum fyrst og fremst eftir niðurstöðum úr haustrallinu núna,“ segir Jóhann Sig- urjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Að hans sögn lýkur haustrallinu á næstu dögum eða viku og búast má við að fyrstu niðurstöður þess verði birtar um miðbik nóv- ember. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssam- bands útvegsmanna, tekur undir með Jóhanni. Málin skýr- ist ekki fyrr en niðurstöður haustrallsins og marsrallsins liggi fyrir. „Þetta er auðvitað bara ein vísbending en ef það reynist fótur fyrir henni eru það mikil vonbrigði. Við von- umst að sjálfsögðu til þess að árgangurinn í ár verði góður, enda gekk mikill fiskur til hrygningar í vor.“ Þorskárgangurinn virðist vera slakur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Slakur árgangur? Beðið er niðurstaðna úr haustralli. Alvarlegt ef satt reynist, að mati framkvæmdastjóra LÍÚ VETUR konungur hefur nú endurheimt ríki sitt á landinu og var nóg að gera á dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hér er það starfsmaður N1 sem tekur til hendinni; á veggnum veifar Michelin- karlinn þéttvaxni og glaðbeitti frá Frakklandi væntanlegum við- skiptavinum sínum. Morgunblaðið/Ómar Sumardekkin kvödd Morgunninn byrjaði næstum því með slagsmálum VEFVARP mbl.is SAMTÖK atvinnulífsins hafa lokið gerð viðræðuáætlana við flest lands- sambönd og einstök félög innan Al- þýðusambands Íslands vegna kom- andi kjaraviðræðna. Gert er ráð fyrir að unnið verði að gagnaöflun á næstu vikum og viðræður um kjaraliði fari fram í nóvember. Eru samningsað- ilar sammála um það markmið að reyna að ljúka gerð kjarasamninga í desember. Verkalýðsfélög eru þessa daga önnum kafin við undirbúning kröfugerðar. Í dag ganga forystu- menn Starfsgreinasambandsins á fund SA og kynna meginmarkmið samninganefnda í samningunum. Forsvarsmenn verkalýðsfélaga hafa lýst áhuga á að ekki verði samið til lengri tíma en til tveggja ára. SA hafa tekið í sama streng. „Við höfum ekki áhuga á að gera samninga með opnunarákvæðum og talið að tveggja ára samningar gætu verið sniðnir með þeim hætti að þeir gætu haldið eins og þeir eru undirritaðir,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SA. Kynna SA markmiðin FULLORÐINN karlmaður beið bana í bílslysi við Ærlæk, skammt norðan við Egilsstaði á fimmta tím- anum í gær. Maðurinn, sem var einn á ferð, virðist hafa misst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðing- um að hún hafnaði utan vegar, vinstra megin miðað við aksturs- stefnu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var sá látni eldri maður en að öðru leyti tjáir lögreglan á Egilsstöðum sig ekki um málið að svo komnu. Þar með hafa 12 látist í umferð- inni það sem af er ári, en til sam- anburðar má nefna að á sama tíma í fyrra höfðu 23 beðið bana á vegum landsins. Banaslys norðan við Egilsstaði                                    EINN af þeim ökumönnum sem lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu stöðv- aði um helgina framvísaði ökuskír- teini sem rann út fyrir 15 árum. Hann var þó í betri málum en þeir ellefu ökumenn sem lögreglan gerði að hætta akstri en þeir höfðu ýmist þegar verið sviptir ökuleyfi eða aldr- ei öðlast ökuréttindi. Tveir þeirra reyndu að villa á sér heimildir og annar gaf upp nafn bróður síns en lögreglan sá við þessum lygum. Skírteinið rann út 1992

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.