Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 12

Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR     &   & ' ( $     &   & ' ( $      &   & ' ( $      &   & ' ( $   )*+ ,,*+ -+* )* ).*. -* *, * ,/*) *, )*/ -/*)             ,/ ,  , , - /      &0   )- )/ )  ) ) - / )- )/ )  ) ) - /   )/ )  ) ) - /                    1 1  ,1 , 1  )1 ) 1   !"! !"!!"! !"!!"! !"!  !"! !"!!"! !"!!"! !"! 2  3 4  5   % 6  7#  % 6  7#   % 6  7#   ., ,+ )-. ,)) )+ ),) ++ ++  +     !"#$ ( ')/)*+   $8   $9 $ '  +& % & 6    ,1 &0 %  * )) &0 &* - &0  &    $!  &    ! '( $ ( '*. $  9 $ '  +& & 4   *)   )/ &0      ' 9 9 '  &  !"! !"!!"! !"!!"! !"!  #  #    #   $ # SAMKVÆMT skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir Náttúru- verndarsamtök Íslands og Interna- tional Fund for Animal Welfare (IFAW), gerð í fyrri hluta október, segjast 66,3% aðspurðra sammála þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinns- sonar sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út kvóta til hvalveiða fyrr en markaðsaðstæður fyrir hvalkjöt hafa batnað. 22,6% aðspurðra lýstu sig ósammála ákvörðun sjávarút- vegsráðherra og 11,1% tóku ekki af- stöðu. Spurt var: Nýlega lýsti sjávarút- vegsráðherra því yfir opinberlega að nýir kvótar til hvalveiða yrðu ekki gefnir út fyrr en aðstæður á markaði hefðu batnað. Ertu sam- mála eða ósammála þessari ákvörð- un sjávarútvegsráðherra? „Niður- stöður Capacent Gallup eru til marks um að mikill meirihluti al- mennings telur að markaður fyrir hvalkjöt sé ekki fyrir hendi og því tilgangslaust að halda áfram hval- veiðum. Sú staðreynd að einungis 7 hrefn- ur af 30 voru veiddar í atvinnuskyni talar sínu máli. Veiðarnar borga sig ekki. Hvalaskoðun er margfalt hag- kvæmari fyrir þjóðarbúið en hval- veiðar eru. Í ár fóru yfir 100 þúsund ferðamenn í hvalaskoðun og ætla má að tekjurnar hafi numið 1,5 milljörðum króna,“ segir í frétt frá Náttúruverndarsamtökunum. Slembiúrtak könnunarinnar úr þjóðskrá var 1.298 manns á aldr- inum 16 til 75 ára. 278 neituðu að svara, ekki náðist í 218 og voru svar- endur því 802. Svarhlutfall var því 61,8%. Allt kjöt selt Nú liggur ljóst fyrir að atvinnu- veiðum á hrefnu er lokið árið 2007 samkvæmt frétt á heimasíðu hrefnuveiðimanna. „Félag hrefnu- veiðimanna fékk framlengingu á kvóta til atvinnuveiða til 1. nóvem- ber nk. og á eftir af honum 23 dýr. Veður hefur ekki boðið upp á veiðar síðustu daga og nú þurfa bátar hrefnuveiðimanna að fara að snúa sér að öðrum verkefnum. Tímabilið hefur gengið mjög vel og sala á hrefnukjöti ekki verið meiri síðan hrefnuveiðar hófust hér aftur árið 2003. Allt það kjöt sem kom af þeim 45 dýrum sem veidd voru 2007 er selt og kemur því ekki til með að vera í verslunum aftur fyrr en næsta vor þegar atvinnuveiðar hefj- ast að nýju,“ segir á heimasíðunni. Meirihluti landsmanna er andvígur hvalveiðum )     %%&'#%' (% )"*("# + ),%-".%/%012#%%' "3(%(%,""%/% %#%*( /%% (%)%  %,%2( (%  )%%3  )%-  ) "4% )"*("# ), +, !!-:   !!-: : .(  /   !!- : +, !!-!: 3   " '  $ 8   '   ; ( < ÚR VERINU FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÞAR TIL ljóst verður hvaða veg- ir verða þjóðvegir frá og með 1. jan- úar á næsta ári er Vegagerðin ekki í aðstöðu til að semja um breytingar né hugsanlega kostnaðarþátttöku vegna framkvæmda á áðurnefndum vegaköflum,“ segir í niðurlagi svar- bréfs Vegagerðarinnar til Sigurðar Magnússonar, bæjarstjóra Álfta- ness, í kjölfar óska hans um samráð vegna uppbyggingar í bæjarfélag- inu, s.s. tengingar nýrra vega við Álftanesbraut. Í framhaldinu vakti Sigurður máls á fyrirhuguðum breytingum á vegakerfinu, s.s. á fundi stjórnar Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), og kom umfang þeirra flestum stjórnarmönnum á óvart. Ný vegalög taka gildi um næstu áramót, en í þeim er m.a. kveðið á flokkun vega. Í greinargerð um lögin segir svo um 9. grein: „Hér er kveðið á um að vegir í þéttbýli sem sam- kvæmt gildandi lögum nefnast al- mennir vegir og eru í umsjá sveitar- félaga skuli kallast sveitarfélagsvegir. Sveitarfé- lagsvegir eru allir vegir innan þétt- býlis, aðrir en gegnumliggjandi stofnvegir. Auk þess munu nokkrir vegir í þéttbýli, sem eru stofn- eða tengivegir samkvæmt gildandi lög- um, teljast til sveitarfélagsvega, verði frumvarp þetta að lögum.“ Þriðjungur færður frá ríki Á aðalfundi SSH sem haldinn var 26. október sl. var lýst yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga á flokkuninni. Í ályktun sem send var út segir að Vegagerðin hafi kynnt stjórn SSH hugmyndir sínar um gerð nýrrar þjóðvegaskrár, og þar komið fram að áformað sé að færa þriðjung núverandi þjóðvega á höf- uðborgarsvæðinu til sveitarfélag- anna. „Af þessum ástæðum telur að- alfundurinn óhjákvæmilegt að fyrir gildistöku nýrra laga þurfi að ná samkomulagi um framkvæmd lag- anna milli samgönguráðuneytis og sveitarfélaganna, sérstaklega hvað varðar gerð þjóðvegaskrár og hvern- ig staðið verði að færslu þessara verkefna til sveitarfélaganna.“ Í lögunum er ekki gert ráð fyrir að neinir fjármunir færist til sveitarfé- laganna og ríkir mikil óánægja þess vegna. Er í ályktuninni óskað eftir viðræðum við samgönguráðherra. Sigurður mun sjálfur ganga á fund ráðherra næstkomandi fimmtudag vegna málefna Álftaness, en ekki er hægt að auglýsa skipulag nýs mið- bæjar á meðan óvissa ríkir um að- komu Vegagerðarinnar. Ótímabært að flytja verkefni frá ríki til sveitarfélaga Á fundi stjórnar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 27. september 2006, var endur- skoðun vegalaganna kynnt. Í bókun kemur fram að Sambandið telji alls ótímabært að færa verkefni á sviði vegamála frá ríki til sveitarfélaga enda hefðu þau mál ekki verið rædd á vettvangi sveitarfélaganna. Var fulltrúum sambandsins í vegalaga- nefnd einnig falið að koma þessum sjónarmiðum á framfæri. Í séráliti þriggja fulltrúa í nefnd um endurskoðun vegalaga segir: „Við leggjumst [...] ekki fyrir fram gegn þeirri hugmynd að færa verk- efnið yfir til sveitarfélaga en til þess að svo megi verða verður fyrst að kynna það fyrir sveitarstjórnar- mönnum og gefa þeim tíma og tæki- færi til að ræða málið. Áður en slík kynning og umræða fer fram verður fjármögnun að liggja ljós fyrir og vera betur tryggð en gert er ráð fyr- ir í frumvarpsdrögunum.“ Undir skrifuðu Halldór Halldórsson, Árni Þór Sigurðsson og Elín R. Líndal. Áhrifa þessa ákvæðis vegalaganna gætir helst á höfuðborgarsvæðinu en eins og áður segir var málið ekki tek- ið upp hjá SSH fyrr en Sigurður Magnússon bar erindið upp. Því virðist sem þessi nýja flokkun hafi farið framhjá bæjarstjórnum á höf- uðborgarsvæðinu – sem allar fengu lögin til umsagnar. Óvissa ríkir um færslu þjóðvega SÍS gerði athuga- semdir við vega- lögin í september á síðasta ári EFTIRFARANDI athugasemd vegna fréttar Morgunblaðsins um Hibernia í dag, 29. október 2007, ósk- ast birt í blaðinu: Við vinnslu forsíðufréttar í Morg- unblaðinu í gær um þau áform fyr- irtækisins Hibernia að höfða mál á hendur íslenska ríkinu vegna fyrir- hugaðrar lagningar Danice-sæ- strengsins var engin tilraun gerð til að leita viðbragða samgönguráðu- neytisins. Ráðuneytið hefur gert at- hugasemdir við fréttaritstjórn blaðs- ins vegna þessa og telur brýnt að eftirfarandi sjónarmið komi fram: Bjarni Þorvarðarson, forstjóri Hibernia, heldur því fram í umfjöllun Morgunblaðsins að ráðuneytið hafi ekki orðið við óskum um fund með ráðherra né heldur svarað spurning- um um hvaða leyfi Hibernia þurfi til að leggja sæstreng til Íslands. Bjarni Þorvarðarson hefur setið tvo fundi með ráðuneytisstjóra, skrifstofu- stjóra og aðstoðarmanni ráðherra hinn 24. október sl. Þá var honum sent skriflegt svar frá lögfræðingi ráðuneytisins við óformlegri fyrir- spurn um hvaða leyfi hann þyrfti hinn 21. ágúst sl. Svarið er svohljóðandi: „Vísa í spurningu þína um hvaða leyfis þarf að afla til að leggja megi sæstreng til landsins. Samkvæmt fyrstu skoðun á málinu þá þarf að minnsta kosti að hafa samband við eftirfarandi aðila: – Póst- og fjarskiptastofnun – til- kynna um fyrirhugaða fjarskipta- starfsemi. – Utanríkisráðuneytið – tilkynna þeim um lagningu sæstrengs og leið strengsins. – Sjávarútvegsráðuneytið – fara yfir leiðina og þá sérstaklega með það í huga hvort sæstrengurinn liggur yf- ir fiskimið. Hafa jafnframt samband við LÍÚ í því sambandi. – Tilkynna umhverfisráðuneytinu um lagningu á sæstreng og kanna hvort það þurfi einhver leyfi frá und- irstofnunum þeirra eða hvort fram- kvæmdin þurfi að fara í umhverfis- mat. – Siglingastofnun – tilkynna um fyrirhugaða leið sæstrengsins. – Sveitarstjórn á landtökustað – t.d. framkvæmdaleyfi. Eins og ég sagði þá gerist það ekki oft að lagður er sæstrengur til lands- ins þannig að þessi listi þarf ekki að síðar voru kynnt fyrir stjórnvöldum drög að samkomulagi milli Farice og Hibernia var ljóst að ýmis skilyrði þar voru stjórnvöldum óaðgengileg, m.a. ákvæði um að Farice myndi falla frá öllum áformum um lagningu sæ- strengs og skyldu til kaupa á vara- sambandi af Hibernia sem hefði verið umtalsvert dýrari kostur. Það var mat ráðuneytisins að ekki hafi verið heimilt að gera samning með þessum hætti án undangengins útboðs. Það var niðurstaðan eftir að hafa skoðað alla kosti í stöðunni að heppi- legra sé að Farice haldi sínu striki og ljúki hringtengingunni. Ljóst er að félagið verður opið fyrir nýjum fjár- festingaraðilum og að nýir aðilar munu koma að fjármögnun þess. Á fundi fulltrúa íslenskra stjórn- valda með ESA 8. október sl. var fyr- irhuguð áætlun um lagningu DA- NICE kynnt ásamt væntanlegri breytingu á eignarhaldi í félaginu. Þess ber að geta að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók á sínum tíma til sérstakrar skoðunar aðkomu ís- lenska ríkisins að Farice1 í kjölfar til- kynningar íslenskra stjórnvalda til stofnunarinnar árið 2004. Í þeirri til- kynningu komu fram áform um lagn- ingu annars strengs til þess að tryggja nægjanlegt rekstraröryggi. Niðurstaða ESA sem birtist í ákvörð- un stofnunarinnar frá 19. júlí 2006 var sú að aðkoma íslenska ríkisins að Farice samræmist EES-samningn- um. vera tæmandi. Ef þú þarft frekari upplýsingar þá endilega hafðu sam- band. Með lagningu Danice er í reynd verið að flýta eldri áformun Farice um nýjan streng. Unnið hefur verið að nauðsynlegri undirbúningsvinnu vegna lagningar á nýjum sæstreng frá Íslandi með það að meginmark- miði að tryggja öryggi milliland- atenginga við landið. Umhverfi þessara mála hefur breyst með tilkomu og áhuga net- þjónabúa á starfsemi hér á landi. Þessi starfsemi væri mikilvæg viðbót í uppbyggingu á hátækniiðnaði og ný- sköpun henni tengdri sem um leið fjölgar valkostum í orkusölu. Skýrar vísbendingar hafa komið fram um að til þess að gera þá möguleika raun- hæfa verði að horfa til tenginga beint til meginlandsins og þá til Danmerk- ur. Þá hefur verið horft til þess af hálfu stjórnvalda að mikilvægt væri m.a. með hliðsjón af bilunum á Fa- rice1-strengnum og efasemdum um rekstrarforsendur Canntat3 að nýr strengur yrði tekinn í notkun ekki síðar en í árslok 2008. Þegar Hibernia kynnti hugmyndir sínar um lagningu sæstrengs til Ís- lands fögnuðu stjórnvöld þessu fram- taki fyrirtækisins sem greinilega var vísbending um að markaðsforsendur væru að breytast og að fleiri aðilar væru tilbúnir til að hasla sér völl með lagningu sæstrengja hingað. Þegar Athugasemd frá samgönguráðuneytinu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Sæstrengur Myndin var tekin þegar Farice-1 sæstrengurinn var tekinn í land á Vestdalseyri við Seyðisfjörð árið 2003.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.