Morgunblaðið - 30.10.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● FL GROUP hefur gert tilboð í allt
útistandandi hlutafé Trygginga-
miðstöðvarinnar en fyrir á félagið
97,92% hlutafjár TM.
Í tilkynningu til kauphallar OMX
segir að um sé að ræða valfrjálst
tilboð en FL Group hefur enn ekki
fengið heimild Fjármálaeftirlits til
þess að fara með meira en 50% at-
kvæðisrétt í TM og fái það ekki
slíka heimild er félagið skuldbundið
til þess að selja hlut sinn í TM til
þriðja aðila.
Yfirtökutilboð í TM
=6> =6>
!
67
67
:
:
=6> 2?>
!
67
67
:
:
@
AB
'
C
!
!
67
67
:
:
D @(>
!
!
67
67
:
:
=6>3)1
=6>4
! ! 87
67
:
:
"# $%&
'$%& (')*+',# - .
5
*6
(
7
7
7
7 7
7
7
7
7
7
7
7
7
7 7
7
7
7
7
7
7
7
7 7
!"
"
# "
$"
%#"
$%"
&'"
$$"
"
"
"
$ "
$$"
"
$(#"
"
"
$&"
"
$!"
'!!"
"
#%&"
F'
G
'
D
#
'
2
G
,.+& /.&,/
-,&++,&+/-
,, &,+&+,
,,1&1/&)+1
,++&&,
))&)1-&,)
- &),+&/
&-)&-/.&)
+,&)11&1/+
),+&1--&.--
,/1&)/ &
,&),&/ .
))+& -
1&/+& 1
/-&
)&+)&.,
,.&-,1&1
)/ & . &-)
)-& ))&
))*)
/1*.
,*/1
*11
.*-
*,
*+1
))) *
*)
)+*1
/*,1
),*1
*-
/* .
)-1*
//1*
)*,
).*
1*.1
))*
*1
)1*
, ,1*
))*),
//*
,*+
*.
.*+
*/
1*
)))*
*
)+*)
/*
) *
*,
/* +
)-)1*
.*
)*,/
,*
1*-,
),*
)1*1
+*
, -*
/*.1
8'
G
+
)
,-
)
,
))
+
))+
+
,
-
)
+
)
)
))
+
+
@
& +&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
+&)&.
/&)&.
+&)&.
+&)&.
/&)&.
+&)&.
/&)&.
+&)&.
+&)&.
/&)&.
+&)&.
))&)&.
+&)&.
/&)&.
&-&.
+&)&.
)-&)&.
1&)&.
/
7((
(
I
G!&
?
8I
G!&
EJ
!&
7I
G!&
I
!&
F&E$G
'
;K
'
I
G!&
2
G9
!&
7
'
'!&
$ ?
&&!&
D$!&
L !&
8
"/
-
9
,/1!&
(K
!&
(
KM
$M0
E?
I
G!&
N
?
;K
'KI
G!&
6
!&
O!!&
MP=
D
$8!&
Q 8!&
4 '
-
:
R ( $ $R
&
F?I
'!&
F
$G
!&
ÞETTA HELST ...
● FASTLEGA var búist við því að
Stan O’Neal, forstjóri bandaríska
fjárfestingarbankans Merrill Lynch,
myndi segja starfi sínu lausu í gær,
eða að honum yrði sagt upp.
Samkvæmt frétt Wall Street Journ-
al samþykkti stjórn bankans um
helgina að láta O’Neal fara en eins
og greint var frá í Morgunblaðinu á
laugardag hafði O’Neal aflað sér
óvinsælda með því að leggja það til
við stjórnendur Wachovia að bank-
arnir færu í eina sæng. Þá þótti upp-
gjör Merrill Lynch ekki gott og var
staða O’Neal því orðin tæp fyrir.
Búist við
afsögn O’Neal
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista kaup-
hallar OMX á Íslandi stóð í 8.163,45
stigum við lokun markaðar í gær og
lækkaði hún um 0,47% frá síðasta
viðskiptadegi. Mest hækkuðu bréf
Atlantic Petroleum, um 4,31%, en
mest lækkun varð á bréfum Ice-
landair, þau lækkuðu um 6,02% í
kjölfar tilkynningar þess efnis að af-
koma þriðja ársfjórðungs yrði undir
væntingum. Bréf Spron halda áfram
að hækka, hækkun gærdagsins
nam 2,99%.
Mest viðskipti í gær voru með bréf
Kaupþings, 2,8 milljarðar, en heild-
arviðskipti voru 13,1 milljarður, þar
af 5,5 milljarðar með hlutabréf.
Icelandair féll mikið
Eftir Bergljótu Leifsdóttur Mensuali í Róm
AÐALFUNDUR Ítalsk-íslenska við-
skiptaráðsins var haldinn á Grand
Hotel de la Minerve í Róm 26. októ-
ber sl. Var aðalfundurinn lokavið-
burður dagskrár sem hófst með
kynningarfundi um fjárfestingar á
Íslandi og Fjárfestingarstofa Ís-
lands og sendiráð Íslands í Róm
stóðu sameiginlega að. Til stendur
að á næstu mánuðum verði slíkir
fundir haldnir í samvinnu við ræð-
ismenn Íslands í helstu borgum
Ítalíu og viðkomandi verslunarráð.
Að fundinum loknum var Ísland
kynnt sem ferðamannaland undir
yfirskriftinni „Icelandic re-genera-
tion.“ Að þeirri kynningu stóðu Ice-
landair, Island Tours, Ferðamála-
ráð Íslands og Bláa Lónið en á
kynningunni mátti sjá fólk frá
ferðaskrifstofum á Ítalíu og blaða-
menn frá fagblöðum í ferðaiðnaðin-
um á Ítalíu auk valinna gesta.
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið og
Landsbankinn buðu síðan til stór-
glæsilegs hádegisverðarfundar sem
100 manns úr stjórnmála-, við-
skipta- og menntageirunum á Ítalíu
og Íslandi sátu. Aðalræðumenn á
hádegisverðarfundinum voru Geir
H. Haarde forsætisráðherra og
Emma Bonino, utanríkisviðskipta-
ráðherra Ítalíu, en auk þeirra
ávörpuðu þeir Halldór Jón Krist-
jánsson, bankastjóri Landsbankans,
og Guðjón Rúnarsson, formaður
viðskiptaráðsins og framkvæmda-
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja,
fundarmenn. Meginviðfangsefni
fundarins voru samskipti ríkjanna á
sviði banka- og fjármála, samstarfs-
möguleikar á sviði endurnýjanlegr-
ar orku, almenn viðskipti og ferða-
mennska.
Geir H. Haarde ávarpaði fund-
argesti á ágætri ítölsku og óskaði
hann eftir að Emma Bonino myndi
endurgjalda það með ávarpi á ís-
lensku í ræðu sinni. Gerði hún það
en Halldór Jón Kristjánsson aðstoð-
aði hana með íslenskuna. Í ræðu
sinni sagði Bonino að fyrstu kynni
hennar af Íslandi hefðu verið þegar
hún fór á 8. áratugnum með lest frá
Ítalíu til Lúxemborgar og þaðan
með flugi Icelandair til New York
með millilendingu í Keflavík. Einnig
minntist hún á vinskap sinn við for-
seta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson,
á 8. áratugnum.
Viðskipti Íslands og Ítalíu standa
á gömlum merg en fyrsti viðskipta-
samningur ríkjanna var gerður
1935. Samdi Sveinn Björnsson um
hann fyrir hönd Íslands.
Stór Íslandskynning
haldin í Rómaborg
Róm Geir H. Haarde forsætisráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir, eig-
inkona hans, sóttu hádegisverðarfundinn sem haldinn var í Róm.
VIÐSKIPTARÁÐ Íslands fagnar
áformum Björgvins G. Sigurðssonar
viðskiptaráðherra um afnám vöru- og
stimpilgjalda þar sem þau séu mik-
ilvægur liður í að einfalda hagkerfið
og auka skilvirkni þess. Jafnframt
leggst ráðið gegn hugmyndum ráð-
herra um beitingu lagasetningar gegn
gjaldtöku fjármála- og innheimtufyr-
irtækja og segir í fréttatilkynningu
frá ráðinu að „hið opinbera ætti frekar
að beina kröftum sínum í átt að auknu
samstarfi við hagsmunaaðila á þessu
sviði“.
Ráðið hvetur ráðherra til þess að
skoða vandlega kosti þess að draga úr
vægi sjálfskuldarábyrgða, „enda ekki
á allra færi að veita annars konar
tryggingar fyrir lántökum sínum“. Þá
segir í fréttatilkynningu þess að
áform um afnám uppgreiðslugjalda
geti ekki snúið að öðrum en Íbúða-
lánasjóði þar eð enginn grundvöllur sé
fyrir því að banna viðskiptabönkum
og sparisjóðum að innheima gjöld af
þessu tagi. „Afnám þeirra myndi auka
vaxtaáhættu bankanna og skekkja
enn frekar stöðuna á íbúðarlánamark-
aði, sem mæti þyrfti með öðrum að-
gerðum,“ segir í tilkynningu VÍ.
Eins og áður segir fagnar ráðið þó
áformum um afnám vöru- og stimp-
ilgjalda og segir þau mikilvægt skref
til þess að gera hagkerfið einfaldara
og skilvirkara. Afnám þessara gjalda
muni „án efa stuðla að lægra vöru-
verði og auknu gegnsæi í skattkerf-
inu, til hagsbóta fyrir neytendur og
fyrirtæki“.
Viðskiptaráð hvatti til þess að þetta
skref yrði stigið í skýrslu sinni „90 til-
lögur að bættri samkeppnishæfni Ís-
lands“, sem út kom í september síð-
astliðnum, og segir það lengi hafa
verið baráttumál ráðsins.
„Viðskiptaráð vonar að áform þessi
séu einungis forsmekkurinn að því
sem koma skal, en bæði fjármálaráð-
herra og viðskiptaráðherra hafa lýst
því yfir að stefna eigi að afnámi flestra
viðskiptahindrana,“ segir í tilkynning-
unni.
Blendin viðbrögð
CREDITINFO Group, móðurfélag
Lánstrausts og Fjölmiðlavaktarinn-
ar, hefur fest kaup á 51% hlut í
pólska viðskiptaupplýsingafyrirtæk-
inu Credifact. Jafnframt hefur félag-
ið gert samning um að kaupa 34%
hlut til viðbótar snemma á næsta ári.
Í fréttatilkynningu frá CIG kemur
fram að Credifact sé eitt helsta við-
skiptaupplýsingafyrirtæki Póllands
og að hjá félaginu starfi 25 manns, í
Varsjá, auk 25 verktaka um gjörvallt
Pólland.
Reynir Grétarsson, framkvæmda-
stjóri Creditinfo Group, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að Credifact
bjóði upp á mikla möguleika. Félagið
selji aðeins eina vöru, greiðslusögu
fyrirtækja, og því sé einfalt að bæta
vöruúrval þess með þeim vörum sem
Creditinfo Group selur.
Pólland er einn fjölmennasti
markaður Evrópu og því felast mikil
tækifæri þar, enda segist Reynir
lengi hafa leitað að tækifæri til þess
að komast inn á þann markað. „Ég
var í fundaferð í Póllandi þegar mér
var bent á þetta fyrirtæki og kom að
máli við eigendur þess. Þeir sögðu
mér að búið væri að selja fyrirtækið
og að ganga ætti frá samningum
þremur vikum seinna. Ég ákvað því
að láta slag standa og bjóða í það,“
segir Reynir en að hans sögn er
Credifact metið á 1,1 milljón evra.
Kaupir pólskt félag
Reynir Grétarsson
Glæsileg og vel skipulögð 100,3
fm íbúð á 5. hæð ásamt bílskýli
á frábærum útsýnisstað. Íbúðin
skiptist í 2 svefnherbergi,
stofu/borðstofu, eldhús, þvotta-
hús, baðherbergi og hol. Stórar svalir til vesturs og innangengt er í bíl-
skýlið. Í kjallara er sér geymsla. Verð 26,9 millj. 7076.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Kórsalir - útsýnisíbúð m/bílskýli
M
bl
9
92
64