Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 19
Það er mikil gróska í leiklist meðal
ungs fólks í Reykjanesbæ um þessar
mundir. Leikfélag Keflavíkur frum-
sýndi síðastliðinn föstudag barna- og
fjölskylduleikritið Allt í plati undir
stjórn Þrastar Guðbjartssonar, sem
jafnframt er höfundur. Í verkinu fær
unga fólkið í leikfélaginu að njóta sín
og túlka ýmsar þekktar ævintýra-
persónur úr norrænum barnabók-
menntum. Leikfélagið á 40 ára af-
mæli á þessu ári og 10 ár eru síðan
Frumleikhúsið var tekið í notkun.
Þá stjórna þrír kennarar í Myllu-
bakkaskóla uppsetningu á jólasöng-
leik sem nú er í æfingu innan veggja
skólans. Þetta eru þær Freydís
Kneif Kolbeinsdóttir, Gunnheiður
Kjartansdóttir og Íris Dröfn Hall-
dórsdóttir sem ekki eru nýgræðing-
ar á þessu sviði. Verkið spinna þær
sjálfar í kringum 12 jólalög og sögu-
sviðið er heimili fjögurra barna móð-
ur á Þorláksmessu. Þátttakendur
eru grunnskólabörn í Reykjanesbæ,
sem komust inn eftir áheyrnar-
prufur og verður verkið frumsýnt
24. nóvember nk. í Myllubakkaskóla.
Hins mikla hraða sem einkennir
samfélagið í dag verður víða vart.
Því komst ég að þegar ég eignaðist
mitt þriðja barn á dögunum. Hér áð-
ur fyrr komu konur jafnvel erlendis
frá til þess að slaka á í rólegheitun-
um og þægindunum sem fæðingar-
deild Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja er þekkt fyrir. Rólegheitin og
þægindin eru enn til staðar og
starfsstúlkurnar englar í manns-
mynd en sængurkonurnar staldra
stutt við, fæða og halda svo heim,
jafnvel í flug út á land daginn eftir
fæðinguna.
Í þessari sömu dvöl komst ég líka
að því að fæðingardeildina vantar
sárlega rafmagnsrúm. Það myndi
létta keisarakonum dvölina, gera
þær meira sjálfbjarga í sængurleg-
unni og létta sársaukann eftir erfiða
skurðaðgerð. Kaupfélag Suðurnesja
afhenti á dögunum Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja 30 milljónir
króna til kaupa og reksturs sneið-
myndatækis og þessi myndarlega
gjöf er dæmi um nauðsyn samfélags-
legrar ábyrgðar. Rafmagnsrúm til
fæðingardeildarinnar væri því verð-
ugt verkefni fyrir einhvern auð-
manninn í bænum, fyrirtækið eða fé-
lagasamtökin.
Háskólasamfélagið á Vallarheiði tel-
ur nú um 700 íbúa og á bara eftir að
vaxa. Margir af þeim sem fluttust
þangað áttu og eiga eignir í öðrum
hverfum Reykjanesbæjar sem þeir
kusu að selja eða leigja á meðan á
námi þeirra stendur og leigja á hag-
stæðu verði á gamla varnarsvæðinu.
Stór hluti svæðisins er þó enn
ónýttur og því heldur eyðilegt um að
litast. Þjónusta við nýju íbúana fær-
ist þó smám saman í aukana og ný-
lega var opnuð Samkaupsverslun í
húsnæði sem áður hýsti Mini Mart,
einskonar klukkubúð varnarliðs-
manna. Opnun íþróttahússins og
sundlaugarinnar er í býgerð og eiga
sjálfsagt margir eftir að vilja berja
þau mannvirki augum.
Ég hitti gamlan Keflvíking á dög-
unum sem hafði orð á því að hann
myndi ekki hvort hann hefði komið í
laugina í raun og veru eða eingöngu
verið búinn að hugsa svona mikið um
hana vegna ljómans sem hvíldi yfir
henni á ungdómsárunum. Mér var
einu sinni boðið í laugina af amerísk-
um nágrönnum þegar ég var 8 ára
og það hvílir enginn ljómi yfir þeirri
ferð. Mér lá við drukknun í djúpri
grunnu lauginni.
Rauði krossinn á Suðurnesjum opn-
aði nýverið nytjamarkað í húsakynn-
um félagsins við Smiðjuvelli. Komp-
an er líkt og Góði hirðirinn,
markaður með notaðan húsbúnað og
nytjavörur og er nafnið skemmtileg
vísun í kompur heimilanna, þar sem
oft leynast hlutir sem enginn á heim-
ilinu hefur not né þörf fyrir lengur.
Hlutirnir geta hins vegar gengið í
endurnýjun lífdaga í Kompunni og
það eina sem þarf að gera er að
koma hlutunum í þar til gerðan gám
sem stendur við sorpeyðingarstöð-
ina Kölku í Helguvík. Markaðurinn
verður fyrst um sinn opinn á föstu-
dögum kl. 13-18.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Kompan Gamlir munir ganga í endurnýjun lífdaga í Kompunni.
REYKJANESBÆR
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Á síðasta haustdegi yrkir PéturStefánsson:
Þó kveðji haust og kólni ört,
og komi slyddufjandi,
er framtíð vorra barna björt
í besta heimsins landi.
Pétur kallar sig
„veðurvísnahöfund“ og yrkir – um
veðrið – á fyrsta vetrardegi:
Út um glugga enn ég lít,
ásýnd fyrstu vetrartíðar;
Eru Bláfjöll orðin hvít,
og Esjan niður í miðjar hlíðar.
Og svo yrkir hann:
Hér er lokið haustsins önn,
hefst nú annar slagur;
heilsar okkur frír við fönn
fyrsti vetrardagur.
Á öðrum degi vetrar bætir Pétur
við:
Þó úti skíni engin sól,
– er það gömul saga,
kominn er ég enn á ról,
eins og flesta daga.
Hér er föl og hrím um allt,
– hálka á mörgum vegi.
Úti er stillt og aðeins kalt
á öðrum vetrardegi.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af hausti
og vetri
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Erlendur Eiríksson málarameistari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Lyktarlaus
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
M
A
L
3
97
08
1
0.
2
0
0
7
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari,
Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri,
Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig.
Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík • Fóðurblandan, Selfossi, Hvolsvelli og Egilsstöðum.