Morgunblaðið - 30.10.2007, Page 23

Morgunblaðið - 30.10.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 23 ice og Danice, yrðu reknir sem eitt kerfi. Steinn Logi sagði að við- ræður stæðu nú yfir við orkufyr- irtækin um aðkomu þeirra að Far- ice. Þeim er ekki lokið. Hann sagði það enn vera á trúnaðarstigi hver hlutdeild orkufyrirtækjanna verð- ur í fjármögnun nýja sæstrengsins. Farice fór fyrir ESA Bjarni Þorvarðarson nefndi einnig að ríkið hefði ákveðið að flytja öll viðskipti RH Nets til Far- ice en Reiknistofa Háskólans hefði mest verið með sinn flutning um Cantat-3-strenginn. Steinn Logi segir þetta hafa legið í loftinu frá því að Farice var stofnað. RH Net hafi óskað eftir miklu meiri flutn- ingsgetu en núverandi flutnings- aðili geti annað. Því sé engin önnur lausn fyrir þá en að fara yfir til Farice. Steinn Logi taldi ekki ráðlegt svara á þessu stigi ásökunum um að málsmeðferð um lagningu nýs sæstrengs bryti í bága við EES- samninginn. Hann minnti þó á að á sínum tíma þegar Farice var stofnað hefði verið farið yfir allt það mál með ESA (Eftirlitsstofnun EFTA) og fengnar sérstakar heimildir sem starfað væri eftir. Allt frá upp- hafi Farice hefði verið gert ráð fyr- ir starfrækslu tveggja fjarskipta- strengja. gði að ollara ningu lyrði gn- ún egar um. reng- m net- ð þá lu þeir ng- þörfum sem su. Ef ng- teinn rðun með ce, um ands któber n rða nt frá um 400 rku- ita á að eð því ta í E- e- Far- eng Hibernia til Írlands Íslandi til Danmerkur við- þyngst ()"    # meginlandsins með kapal.“ Þá sagði Vilhjálmur að Hib- ernia hyggist styðjast við tækni sem er í eigu kínversks fyr- irtækis og er nýjung að nota hana í neðansjávarstrengjum. „Það er enginn kapall kominn í hafið með þeirri tækni og við töldum það áhættuþátt,“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði það einn- ig hafa verið mjög stórt atriði að geta samið við Farice sem mun eiga tvo strengi og getur tryggt skiptingu á milli þeirra fari ann- ar í sundur. Vilhjálmur sagði að Danice væri dýrari lausn en Hibernia- strengurinn. Bæði væri Danice- strengurinn lengri og einnig vandaðri, að mati Vilhjálms. „Við erum tilbúnir að borga hærra verð fyrir Danice en kapal til Ír- lands – teljum Danice sölulegri og erum tilbúnir að greiða fyrir það.“ í Evr- dam. að eð lmur. áreið- að- suma yrir í u stjóri aðinu í ýmis ldu yndi að landi. ætt o og ð en eir til n Hibernia Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Jawed Ludin er ekki nema tæplega hálf-fertugur að aldri en hefur nú þegar gegntýmsum mikilvægum trúnaðarstörfumfyrir afgönsku þjóðina. Hann hefur frá því í vor verið sendiherra Afganistans gagnvart Norðurlöndunum en Ludin var áður náinn sam- verkamaður Hamids Karzai, forseta Afganistans, var fyrst talsmaður forsetans og síðan skrif- stofustjóri þar til í vor. Ludin var hér á landi í síðustu viku í því skyni að afhenda trúnaðarbréf sitt sem sendiherra. Hann hefur aðsetur í Ósló og segist hafa nóg að gera, Norðmenn hafi geysimikinn áhuga á mál- efnum Afganistans og sýni hann í verki með þró- unarframlögum sínum til landsins. „Noregur gef- ur mest allra þjóða af þróunarfé til Afganistans sé miðað við höfðatölu. Við erum afar þakklát fyr- ir þá aðstoð,“ segir hann. Ludin er fæddur 1973 og ólst upp í Kabúl. Sov- étmenn réðust inn í Afganistan 1980 en níu árum síðar hrökkluðust þeir frá landinu, höfðu aldrei náð að brjóta mótspyrnu mújahedína svokallaðra á bak aftur. Hinar ólíku sveitir Afgana snerust hins vegar hver gegn annarri eftir brotthvarf Sovétmanna og borgarastríð braust út. Kabúl varð einn helsti vettvangur þeirra átaka og borg- in var nánast lögð í rúst í bardögum snemma á síðasta áratug. Ludin segist hafa verið byrjaður í háskólanum í Kabúl en hann hafi orðið að hætta námi – raunar hafi háskólanum verið lokað – og flýja land eftir að Kabúl breyttist í vígvöll. Fyrst fór fjölskyldan til Pakistans en Ludin flutti síðar til Bretlands, fékk þar stöðu flóttamanns, og lauk með tím- anum meistaragráðu í félagsfræði frá University of London. Ludin kveðst hafa verið virkur í stjórnmálum Afganistans þó að hann væri í útlegð. Þegar talib- anastjórnin féll, haustið 2001, tók hann þátt í und- irbúningi Bonn-ráðstefnunnar svokölluðu, þar sem menn réðu ráðum sínum um hvað skyldi taka við í Afganistan. Þar komst hann í kynni við framtíðarforystumenn í afgönskum stjórnmálum. Það var svo í upphafi árs 2003 sem honum var boðið að verða talsmaður Karzai forseta. „Það var alveg ótrúleg lífsreynsla að fá tækifæri til að sjá með eigin augum nýtt upphaf í Afganistan og standa í miðpunktinum, ef svo má að orði kom- ast,“ segir hann nú um þennan tíma. Íslendingar gætu hjálpað á sviði æðri menntunar Ludin var í doktorsnámi í London þegar kallið kom frá Karzai. Hann er spurður að því hvort ekki sé mikill skortur á menntuðu fólki í Afgan- istan, hvort það hafi ekki allt sogast í burtu þegar átök stóðu sem hæst, eins og gerist svo gjarnan við slíkar aðstæður. Hann svarar þessu játandi, segir að þörfin á uppbyggingu í skólamálum í Afganistan sé mikil. Byggja þurfi menntakerfið upp frá grunni. „Þeg- ar ég sneri aftur 2002 sá ég með eigin augum hversu mikil þörfin var á menntuðu fólki, bæði bókmenntuðu og iðnmenntuðu. Það var hægt að leysa önnur vandamál en ef þú hefur engu kunn- áttufólki á að skipa verðurðu einfaldlega að bíða eftir því að það komi fram á sjónarsviðið.“ Menntamálin eru því forgangsverkefni stjórn- valda í Kabúl en það mun taka tíma að umbylta hlutunum. „Það tekur heila kynslóð því að þú þarft að byrja á því að efla grunnskólanám og síð- an líka efri menntastig,“ segir hann. Í tíð talibana sótti á bilinu hálf til ein milljón barna skóla. Nú er fjöldinn hins vegar rúmar sex milljónir, að sögn Ludins. Alger bylting hafi því orðið, m.a. að því leytinu til að stúlkur séu um 35- 40% allra skólabarna en í tíð talibana gátu stúlk- ur ekki farið í skóla. Æðri menntun er hins vegar vandamál, að sögn Ludins. Hann kveðst hafa bent embætt- ismönnum í utanríkisráðuneytinu hér heima á að þar gætu Íslendingar lagt hönd á plóg. „Við stöndum frammi fyrir brýnum úrlausnarefnum. Háskólinn í Kabúl er sá langstærsti í Afganistan og þótti á sínum tíma mjög góður, þangað kom fólk frá öllum nágrannaríkjunum til náms. Núna er háskólinn í Kabúl hins vegar í þeirri stöðu – sem er sjálfsagt einsdæmi að því er varðar æðri menntastofnanir af sömu stærðargráðu – að þar eru engar tölvur nettengdar, ekkert samband við Netið. Það eru um 20.000 námsmenn við háskólann en Karzai upphaflega. Ludin segir að á þessu hafi orðið breyting. Karzai geti nú rekið héraðsstjóra og skipað. Hann hafi einnig yfir her að ráða, ekki stórum, aðeins 35.000 manna her, en þó stærsta löglega hervaldinu í landinu, og lögreglan sé líka að taka á sig mynd. Karzai fari einnig fyrir rík- isstjórn núna sem hann sjálfur skipaði. „Karzai forseti er sterkur persónuleiki og hann drífur fólk með sér,“ segir Ludin. „Hann helgar sig starfi sínu algerlega, helgar sig ættjörð sinni. Hann tekur sér til dæmis aldrei frí, heldur vinnur sjö daga í viku, oftast langt fram á kvöld. Við sögðum við hann, að hann yrði að taka sér frí endrum og eins, hlaða batteríin. En hann spurði alltaf á móti: hefur Afganistan efni á því að þjóð- höfðinginn fari í frí? Þetta þýðir hins vegar að það var útilokað að vinna með honum og vera latur. Það er að hluta til skýringin á því að ég fór fyrr á þessu ári og til- kynnti honum að ég vildi hætta. Hann spurði mig hvort að hann ætti þá bara að hætta líka en ég svaraði því til, að hann væri kjörinn forseti lands- ins og hefði því ekkert val. Það hefði ég hins veg- ar.“ Ekki hætta á bakslagi Fjölmörg dæmi eru um að saklausir borgarar hafi fallið í hernaðaraðgerðum NATO og Banda- ríkjahers sem beinst hafa gegn liðsmönnum talib- anahreyfingarinnar. Slík tilvik vekja vitaskuld sterk viðbrögð meðal fólks. Ludin segist ekki gera lítið úr þessu. Koma verði í veg fyrir slík til- vik. „En ég get sagt þér að jafnvel í þeim tilfellum þar sem fólk kom á fund forsetans og kvartaði undan sprengingum NATO svaraði það forset- anum neitandi er hann spurði hvort það vildi að NATO færi frá Afganistan. Það sagði nei því að menn vita vel hvað myndi gerast ef NATO færi, að vera erlendra hermanna í landinu er jákvæð þrátt fyrir allt. En við verðum vitaskuld að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar falli í hernaðar- aðgerðum NATO.“ Hann fullyrðir að þrátt fyrir að átök séu tíð á tilteknum svæðum, einkum í Helmand-héraði og Kandahar, sé fólk þar farið að sjá raunveruleg merki um uppbyggingu, um árangur. Ýmis ljón séu vissulega í veginum. Afar mikilvægt sé til að mynda að taka eiturlyfjaframleiðsluna í Afganist- an föstum tökum, enda efli hún hryðjuverkaöflin – en sem kunnugt er er gríðarlega mikið magn heróíns framleitt í Afganistan. „Ástæða þess að ekki hefur tekist að bregðast við eiturlyfjaframleiðslu í héruðum eins og Helm- and er sú að menn hafa ekki haft völdin að fullu í sínum höndum á slíkum svæðum. Þar kemur til að það vantar lögreglu. Í þeim efnum gæti um- heimurinn gert meira, hjálpað meira, aðstoðað við þjálfun lögreglusveita. Erlendar hersveitir geta ekki verið í landinu um alla eilífð. Þar að auki er ljóst að erlendar hersveitir heyja bardaga en hörfa svo. Það þarf að búa til vel þjálfað, vel launað lögreglulið sem getur haft stjórn á að- stæðum í nánasta umhverfi sínu,“ segir Ludin. „Það er mjög miður að alþjóðlegir fjölmiðlar horfa nánast eingöngu á stöðuna í suðurhluta Afganistans og á neikvæðar fréttir,“ segir afg- anski sendiherrann síðan. „Staðreyndin er sú, og ég var í Kabúl nýlega, að þar má sjá mikinn mun. Vissulega hafa verið gerðar þar árásir nýlega en þú sérð samt merki um að menn fjárfesta þar í uppbyggingu, hús rísa og pólitískar framfarir eiga sér stað. Það svífur allt annar andi yfir vötn- um í Kabúl í dag.“ þá skortir tæki og tól, bækur og önnur náms- gögn. Það á við um aðra háskóla í landinu líka. Á hverju ári sækja 30-50.000 ungmenni um há- skólavist en það verður að neita mörgum um inn- göngu vegna aðstöðuleysis og það elur á óánægju meðal fólks því að þetta þýðir að tækifærin eru fá.“ Meiri skilningur hjá stjórnvöldum í Pakistan Ludin er spurður um framgang stríðsins gegn talibönum sem stjórnvöld í Kabúl, með aðstoð NATO og bandarískra hersveita, heyja nú um stundir. Margir telja NATO eiga í mestu vand- ræðum í Afganistan en Ludin kveðst hins vegar meta stöðuna þannig að góður árangur hafi náðst. Ýmislegt bendi til að mönnum sé að takast að snúa taflinu sér í hag. „Við háðum nokkrar lyk- ilorrustur í fyrra við talibana og þær skiptu sköp- um. Við höfðum vissulega áhyggjur af því þegar NATO tók við af Bandaríkjamönnum, í héruðum eins og Helmand og Kandahar, að ekki yrði stað- ið eins vel að málum en það hefur reynst óþarfi. Í öðru lagi, og þetta skiptir miklu máli, sjáum við nú að stjórnvöld í Pakistan hafa loksins gripið til aðgerða gegn hryðjuverkaöflum sín megin. Okkur tókst loksins að sýna vinum okkar þar og á alþjóðavettvangi fram á að hryðjuverkaógnin á ekki rætur sínar í Afganistan, heldur annars staðar; að við myndum ekki ráða niðurlögum hryðjuverkahópa án samstarfs umheimsins við Pakistan. Að það þyrfti að ráðast gegn rótunum sjálfum.“ Segir Ludin að skilningur á því að ræturnar séu í Pakistan skipti öllu og hann segir að Pakist- anar verði að horfa inn á við ef takast eigi að ráða niðurlögum hryðjuverka. Umheimurinn verði að halda áfram þrýstingi á stjórnvöld þar. Gríðarleg ólga hefur raunar verið í Pakistan undanfarin misseri. Ludin segir að Karzai forseti hafi ítrekað varað Pervez Musharraf, forseta Pakistans, við því að gera sér dælt við öfgamenn- ina sem þar séu áhrifamiklir. Þeir virði nefnilega slíka vináttu einskis og bíði einfaldlega færis til að gera honum skráveifu og svíkja hann, þjóni það hagsmunum þeirra. „Í dag sjáum við einmitt þetta gerast,“ segir Ludin. Jafn margir hafi fallið í hryðjuverkaárásum í Pakistan og í Afganistan síðasta hálfa árið en hið jákvæða sé þó að hin borgaralega forysta sé byrjuð að gera sig gild- andi á ný. Til að mynda skipti miklu máli að Ben- azir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi ákveðið að snúa heim úr útlegðinni og taka að beita sér í stjórnmálum Pakistans. Staðreyndin sé sú að langflestir Pakistanar eru friðsamt fólk. Vandinn sé aftur sá að öfgamenn hafi mikil ítök og þeir séu í samkrulli við öfl innan hersins. Mesta áskorunin núna, að mati Ludins, er að lama starfsemi trúarskólanna í Pakistan, „því að þær eru eins og verksmiðjur fyrir framleiðslu hryðjuverkamanna. Og þeir berast ekki bara til Afganistans, þeir láta til sín taka í Evrópu líka. Við verðum að loka þessum verksmiðjum.“ Karzai helgar sig verkefninu Ludin fer fögrum orðum um Karzai forseta. Karzai var lengi vel uppnefndur „borgarstjóri í Kabúl“ með vísan til þess að hann hafi lítil áhrif haft utan höfuðborgarinnar, þó að hann ætti að heita þjóðhöfðingi landsins. Til þess voru hinir ýmsu héraðshöfðingjar of sterkir í heimabyggð sinni, réðu aukinheldur yfir her manna, ólíkt Ógnin á ekki rætur sínar í Afganistan  Sendiherra Afganistans á Íslandi segir að vel miði í heimalandi hans en of snemmt sé að fagna sigri  Telur Íslendinga geta lagt hönd á plóg við uppbyggingu í skólamálum á sviði æðri menntunar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sendiherrann Jawed Ludin: „Karzai forseti er sterkur persónuleiki og hann drífur fólk með sér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.