Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 40

Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á / ÁLFABAKKA THE INVASION kl. 8D - 10:20D B.i.16.ára DIGITAL THE INVASION kl. 5:30 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ HEARTBREAK KID kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 B.i.16.ára STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára NO RESERVATIONS kl. 8 LEYFÐ CHUCK AND LARRY kl. 10:20 B.i.12.ára ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABA VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Nicole KIDMAN DaNiel CRAIG SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA TOPPMYN DIN Á ÍSLANDI Í DAG Það er misjafnt hvernig fólkvinnur úr ástarsorg. Sumirhafa unun af því að eyði- leggja eigur hins aðilans, þess sem olli þeim sorginni, en aðrir leggjast í eymd og volæði með snýtuklúta og gamlar ljósmyndir til að snúa hnífnum aðeins í sárinu. Hjá sum- um vekur sorgin upp hið listræna eðli og er henni fundin útrás í ljóðagerð, með því að draga máln- ingu á striga eða móta úr leir. Allt er þetta gott og örugglega gagn- legt en nú hefur hefndinni og sorg- arúrvinnslunni verið fundin ný leið í Zagreb. Þar hefur verið opnað Safn brostinna sambanda eða Mu- seum of Broken Relationships.    Pláss í verslunarhúsnæði fráþriðja áratug síðustu aldar hefur verið gert að móttöku- miðstöð fyrir minjagripi frá sam- bandsslitum. Almenningi hefur verið boðið að koma með hluti eftir að slitnar upp úr sambandi, hjóna- bandi eða smá gamni, hluti sem minna þá á hinn aðilann. Að sögn aðstandenda safnsins hafa viðbrögðin verið mikil. „Ástarsorg ýtir oft undir sterka þörf fyrir að skapa, “ segir Olinka Vistica, listamaður frá Zagreb, sem fékk hugmyndina að safninu eftir að hún hætti með listamanninum Drazen Grubisic, sem vinnur reyndar með henni að safninu. „Þessi tilfinningalega reynsla gerir sköpun mögulega, sumir sem hafa aldrei skrifað neitt áður snúa sér jafnvel að skriftum,“ sagði hún dagblaðinu Der Tagesspiegel.    Á safninu má nú finna um 120hluti og meðal þeirra er öxi sem var notuð af konu til að brjóta niður húsgögn fyrrverandi kær- ustu, auk húsgagnanna nið- urhöggnu. Einnig má þar finna trú- lofunarhringi, ástarbréf, brúðarkjóla, gallstein, Vespu, bangsa, faxtæki og par af hjóla- skautum. Einn merkilegasti hluturinn er þó tréfótur frá uppgjafahermanni í Balkanstríðinu sem varð ástfang- inn af hjúkrunarkonu á herspít- alanum sem hann dvaldi á. „Þessi gervilimur hefur átt lengra líf en ástarsambandið, hann er gerður úr betri efniviði,“ skrifaði sá sem gaf tréfótinn á miða með honum. Susanne Schickl, 36 ára, sem gaf brúðarkjól sem hún klæddist við brúðkaup sitt árið 1994, segir við The Guardian: „Mér finnst gott að geta gefið eitthvað í burtu sem vekur upp sársaukafullar minn- ingar hjá mér.“ Velta má fyrir sér af hverju hún var ekki fyrir löngu búin að henda eða gefa brúðarkjólinn í hjálpræð- isherinn þar sem hann olli henni slíkum sársauka. En kannski var það huggunin, sem fólst í að vita af því að kjóllinn yrði öðrum víti til varnaðar á safninu, sem fékk hana loksins til að losa sig við hann.    Hver hlutur sem kemur inn áSafn brostinna sambanda verður að hafa persónulega lýs- ingu, skrifaða af eigandanum, sem fjallar um hvaða gildi hann hafði í sambandinu, hvenær sambandið sem tengist hlutnum hófst og hve- nær því lauk og hvernig persónan hefur unnið úr sorginni. Safn brostinna sambanda er nú í tímabundnu húsnæði en það er í skoðun að finna endanlegt húsnæði undir það svo það verði að alvöru- safni. Að sögn eigendanna geta þeir tekið á móti hlutum frá fólki í ástarsorg allstaðar að úr heiminum ef stærra og varanlegt húsnæði fæst. Þá er bara um að gera fyrir Íslendinga að fara að gramsa í gömlum kistum og kössum og losa sig loksins við þessa hluti sem vekja aðeins upp kvalir við hverja meðhöndlun og senda þá í pósti til Króatíu. Safn brostinna sambanda AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir »Einnig má þar finnatrúlofunarhringi, ást- arbréf, brúðarkjóla, gallstein, Vespu, bangsa, faxtæki og par af hjólaskautum. Reuters Sundur Jennifer Aniston á líklega muni frá hjónaskilnaði sínum og Brad Pitt sem hún gæti sent á safnið í Króatíu. ingveldur@mbl.is www.brokenships.com ÞÆR þrjár stuttmyndir sem tilnefndar voru til Eddunnar í flokknum „besta stuttmyndin“ verða sýndar í Regnboganum í kvöld og á fimmtudags- kvöldið. Myndirnar eru Bræðrabylta, Skröltormar og Anna. Bræðrabylta er í leikstjórn Gríms Hákonarsonar og fjallar um tvo samkynhneigða glímumenn. Þeir eru bændur í afskekktri sveit sem eiga í ástarsam- bandi og fá útrás fyrir ástina gegnum glímuna. Skröltormar er í leikstjórn Hafsteins G. Sigurðs- sonar og segir frá Antoni, miðaldra bílasala, sem lætur gamlan draum rætast og kaupir sér kúreka- stígvél. Sú ákvörðun reynist hins vegar af- drifaríkari en nokkurn hefði getað grunað. Anna er í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur. Anna ætlar að bjóða nágrannanum Adam í kaffi en upp- götvar sér til mikillar skelfingar að hún á engan sykur. Sýningarnar í kvöld og á fimmtudagskvöld hefj- ast báðar kl. 18 og er aðgangur ókeypis. Anna, Byltan og Skröltormarnir Flottur Rúnar Júlíusson í hlutverki sínu í Skröltormum eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson. JUSTIN Timberlake olli ástr- ölskum aðdáendum sínum miklum vonbrigðum á dögunum þegar hann hélt tvenna tónleika í borg- inni Brisbane. Fjölmargir þeirra höfðu safnast saman fyrir utan veitingastað einn í borginni þar sem Timberlake sat að snæðingi en í stað þess að ganga út um að- aldyrnar og veita þeim eiginhand- aráritanir, líkt og hann hafði lofað á leiðinni inn á staðinn, læddist hann út um bakdyrnar óséður og skildi aðdáendurna eftir með sárt ennið. Til að bæta gráu ofan á svart mun Timbarlake ekki hafa séð sér skylt að skilja eftir þjórfé á veit- ingastaðnum, þrátt fyrir að hafa fengið mál- tíðina ókeypis. Fjölmiðlar í Brisbane urðu svo fúlir á móti eftir að Timber- lake móðgaði ljósmyndara Courier Mail sem sat fyrir söngvaranum en sá sagði við Timberlake að sonur sinn yrði einkar glaður með pabba sinn ef hann sæi hann núna. Því á Timberlake að hafa svarað: „Ég á erfitt með að trúa því að þér sé leyft að fjölga þér.“ Þegar söngv- arinn var svo spurður hvernig honum líkaði Brisbane á Timber- lake að hafa muldrað eitthvað og gengið svo niðurlútur í burtu. Því- lík díva! Timberlake snuðar aðdá- endur sína Justin Timberlake

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.