Morgunblaðið - 27.11.2007, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 1,33% og var
6.841 stig við lokun markaða. Bréf
Føroya Banka hækkuðu um 4,50%,
Icelandair um 3,46% og Eimskip um
2,79%. Bréf 365 lækkuðu um 1,63%
og FL Group um 0,95%.
Íslenska krónan styrktist um
0,37% í gær, en velta á milli-
bankamarkaði nam 33,1 milljarði
króna.
Gengi Bandaríkjadollars var
62,93 krónur við lokun markaða,
evru 93,52 krónur og gengi breska
pundsins 130,20 krónur.
Hlutabréf hækka á ný
● EVRÓPSKI flugvélaframleiðandinn
Airbus hefur skrifað undir samning
um sölu á 160 farþegaþotum til Kína
og er samningurinn metinn á 14,8
milljarða dala, 931 milljarð króna.
Um er að ræða 110 A320-þotur og
50 A330-þotur, samkvæmt upplýs-
ingum frá yfirmönnum Airbus sem
eru staddir í Peking, höfuðborg Kína,
ásamt forseta Frakklands, Nicolas
Sarkozy. Forsetinn er í opinberri
heimsókn þar í landi, m.a. í því skyni
að koma á nýjum viðskipta-
samböndum milli landanna.
Bæði Airbus og samkeppnisfyr-
irtæki þess, Boeing, segja að Kína
verði annar stærsti flugmarkaður
heims á eftir Bandaríkjunum, en tal-
ið er að kínversk flugfélög eigi eftir
að kaupa 1.900-2.600 þotur á
næstu tveimur áratugum.
Sarkozy selur
Kínverjum flugvélar
FLUGLEIÐIN milli Íslands og
Bretlands hefur ekki reynst ábata-
söm hjá British Airways (BA) og því
hefur félagið tilkynnt að það muni
hætta áætlunarflugi hingað til lands í
lok mars á næsta ári. Miðað er við 28.
mars en þann dag lýkur flugi sam-
kvæmt vetraráætlun félagsins milli
Lundúna og Keflavíkur.
Í tilkynningu er haft eftir Peter
Rasmussen, viðskiptastjóra flug-
félagsins fyrir Skandinavíu og Ísland,
að þetta hafi verið erfið ákvörðun.
British Airways hófu þetta flug til Ís-
lands í lok mars árið 2006. Peter segir
að því miður hafi flugleiðin ekki
reynst nægilega ábatasöm. Félagið
starfi í afar hörðum en viðkvæmum
samkeppnisheimi og verði að tryggja
að allar flugleiðir standi undir sér.
Samkeppnisaðilar hér heima voru
fljótir að bregðast við. Iceland Ex-
press mun í febrúar nk. fjölga ferðum
til Lundúna um tvær á viku og verða
ferðirnar þá ellefu vikulega og í sam-
tali við Morgunblaðið sagði Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Ice-
landair, fyrirtækið gera ráð fyrir að
auka framboð á flugi til og frá London
í kjölfar þessara tíðinda.
BA hætta Íslandsflugi
Búið British Airways hætta að
fljúga til Íslands í mars.
Hefur ekki reynst ábatasamt Iceland Express tilkynnir
fjölgun ferða og Icelandair gerir ráð fyrir auknu framboði
ekki með neina skuldbindingar í
gegnum lánalínur vegna eigna sinna
á sérvörðum skuldbréfum.
Tekið er fram í tilkynningu Kaup-
þings að bankinn eigi engin ótrygg
veðlán í Bandaríkjunum né skulda-
bréfavafninga sem innihalda slík lán
en eins og fram hefur komið veitti
hann við kaupin á NIBC lán til J.C.
Flowers vegna eignar hollenska
bankans á slíkum lánum sem selj-
andinn tók yfir. Það lán hefur verið
minnkað um 100 milljónir Banda-
ríkjadala en nafnvirði undirliggjandi
eigna, þ.e. trygginga fyrir láninu, er
óbreytt.
Í kjölfar ofangreindra breytinga
og óhagstæðrar þróunar á lánamörk-
uðum heimsins að undanförnu er
samkvæmt tilkynningu Kaupþings
gert ráð fyrir 85 milljóna evra, jafn-
gildi um 7,9 milljarða króna, gjald-
færslu á fjórða ársfjórðungi. Um er
að ræða einsskiptiskostnað sem ekki
mun hafa áhrif á afkomu félagsins á
næstu fjórðungum á eftir.
Lausafjárstaðan góð
Vegna óvissunnar um hvernig
fjármögnunin á kaupunum á NIBC
stæði hafa eflaust einhverjir haft
áhyggjur af lausafjárstöðu Kaup-
þings en samkvæmt tilkynningu
bankans er hún afar góð. Miðað við
núverandi skuldbindingar hefur
bankinn handbært fé til að halda úti
rekstrinum í 420 daga og er þá tekið
tillit til áðurnefndrar peninga-
greiðslu til NIBC. Þegar lausafé
Kaupþings og NIBC er lagt saman
nægir það til að halda rekstri bank-
anna úti í 600 daga.
Kaupþing sendir
jákvæð skilaboð
Óvissu um kaupin á NIBC og lánakreppuna eytt
Morgunblaðið/Sverrir
Jákvætt Kaupþing kætti í gær íslenska hlutabréfamarkaðinn með tilkynn-
ingu sem eyðir þeirri óvissu sem ríkt hefur um stöðu bankans.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
MARKAÐURINN tók einkar vel í
þau skilaboð sem bárust frá Kaup-
þingi í gær þess efnis að fjármögnun
á kaupunum á hollenska bankanum
NIBC væri frágengin. Gengi hluta-
bréfa Kaupþings hækkaði um 2,44%
í kauphöll OMX á Íslandi og um
3,06% í kauphöll OMX í Stokkhólmi
auk þess sem tryggingaálag á
skuldabréf bankans lækkaði um 72
punkta í 285 punkta eftir að hafa náð
hæstu hæðum undir lok síðustu viku.
Jafnframt hafði tilkynning Kaup-
þings almennt afar jákvæð áhrif á
hlutabréfamarkaðinn hér á landi í
gær (sjá kauphallarfrétt hér á síð-
unni) og bankinn er fráleitt sá eini
sem í kjölfar tilkynningarinnar nýtur
betri kjara á lánsfjármörkuðum.
Þannig lækkaði skuldatryggingaálag
Landsbankans um 8 punkta og Glitn-
is um 38 punkta. Ennfremur lækkaði
álag á skuldabréf ríkisins um 6
punkta.
Af þessari þróun er ljóst að mark-
aðurinn, sem nánast hrundi í síðustu
viku, hefur fengið þær jákvæðu frétt-
ir sem hann þyrsti í. Jafnframt hefur
þróunin á alþjóðamörkuðum verið já-
kvæð síðustu daga sem eflaust hefur
smitað inn á íslenska markaðinn.
Óvissunni eytt
Miklar vangaveltur hafa verið
uppi á undanförnum vikum um stöðu
Kaupþings og hefur tvennt þá verið
efst á baugi, annars vegar hvort
bankanum tækist að fjármagna kaup
sín á NIBC og hins vegar hver áhrif-
in af hrollinum á lánsfjármörkuðum
heimsins yrðu af afkomu Kaupþings.
Þessir óvissuþættir leiddu til þess að
gengi hlutabréfa bankans hefur
lækkað mikið að undanförnu og
skuldatryggingaálagið færst með
ógnarhraða upp á við en nú er óviss-
unni eytt sem verður að teljast afar
jákvætt.
Greint var frá því í Morgunblaðinu
sl. miðvikudag að gengið hefði verið
frá sölutryggingu á nýju hlutafé í
Kaupþingi og samkvæmt tilkynn-
ingu bankans frá því í gær eru það
J.C. Flowers og Exista sem sölu-
tryggja allt að 210 milljón nýja hluti;
sölutrygging felur í raun í sér að ná-
ist ekki að selja hlutina skuldbindi
sölutryggjendur sig til þess að kaupa
þá. Þar af renna 140 milljónir beint
til J.C. Flowers, sem er seljandi
NIBC, og verður afgangurinn seldur
í forgangsréttarútboði þegar gengið
hefur verið frá kaupunum á hol-
lenska bankanum sem búist er við að
verði í janúar nk. Enn er beðið eftir
samþykki íslenskra og hollenskra
fjármálayfirvalda enda eru kaupin
gerð með fyrirvara um þau sam-
þykki.
Endurskipulagning
Annað atriði sem valdið hefur
markaðnum óvissu er spurningin um
hversu berskjaldað Kaupþing er
gagnvart kreppunni á lánsfjármörk-
uðum heimsins. Í tilkynningu bank-
ans kemur fram að gerðar hafi verið
ráðstafanir til þess að minnka stöðu
hans í eignatryggðum skuldabréfum
um 1,15 milljarða evra – jafngildi um
107 milljarða króna – og er reiknað
með að því verði lokið um miðjan des-
ember.
Þá áformar bankinn að loka 1,3
milljarða lausafjárláni sem veitt hef-
ur verið til fjárfestinga í sérvörðum
skuldabréfum og verður í kjölfarið
Í HNOTSKURN
» Að kaupunum á NIBCloknum verður J.C. Flow-
ers næststærsti hluthafi Kaup-
þings með 15,9% hlut.
» Samkvæmt VegvísiLandsbankans fær J.C.
Flowers 30 milljón hluti í
Kaupþingi á genginu 70,085
sænskar krónur á hlut.
» Gengi Kaupþings í kaup-höllinni í Stokkhólmi í gær
var 92,5 krónur á hlut.
GREINING Glitnis spáir því að vísi-
tala neysluverðs hækki um 0,4% í
næstu mælingu Hagstofunnar í des-
ember. Gangi sú spá eftir fer árs-
verðbólgan úr 5,2% í 5,6%, sem er
ríflega þremur prósentustigum yfir
markmiði Seðlabankans. Glitnis-
menn segja hækkanir á eldsneyti,
húsnæði og matvöru helst hafa áhrif
á þessa verðþróun. Verðbólguhorfur
til skamms tíma hafi versnað. Þó er
gert ráð fyrir að fljótlega fari brodd-
urinn úr hækkunum á húsnæðis-
markaði og að framundan sé tímabil
sem muni einkennast af hófsamari
verðhækkun á húsnæði.
Glitnir spáir
0,4% hækkun
VAXANDI ótti fjárfesta um að nið-
ursveifla sé framundan í banda-
rísku efnahagslífi endurspeglast
meðal annars í fallandi hlutabréfa-
og skuldabréfaverði vestanhafs.
Seðlabanki landsins og hagfræð-
ingar láta hins vegar engan bilbug
á sér finna og fullyrða að hægt sé
að sigla hagkerfinu milli skers og
báru og koma því síðan á rétta leið
á ný.
Ekki hefur þeim þó tekist að
sannfæra fjárfesta um þetta, og enn
síður fjölmiðla. Rétt fyrir lokun
markaða vestanhafs í gærkvöldi
tóku helstu hlutabréfavísitölurnar,
Dow Jones-iðnaðarvísitalan og Nas-
daq, bratta dýfu þegar mikill sölu-
þrýstingur á hlutabréf myndaðist.
Ástæðuna má sem svo oft áður á
undanförnum vikum rekja til
áhyggna fjárfesta af heilbrigði fjár-
málageirans vestanhafs en í gær
bárust meðal annars fréttir af því
að Citigroup, stærsti banki heims,
hygðist segja upp meira 45 þúsund
starfsmönnum. Þá bárust einnig
fréttir af því að HSBC, stærsti
banki Evrópu, hefði ákveðið að
færa tvo fjárfestingarsjóði sem
bankinn rekur, í eigin bækur til
þess að afstýra því að eignir þeirra
yrðu seldar á útsölu en samanlagt
verðmæti sjóðanna er um 35 millj-
arðar dala.
Söluþrýst-
ingur felldi
markaði
Reuters
! ""#
!"#$ !
%%!!"$
##%
#!!% !
%"$"
%%
! %
$ "%!$
"!$!%
%
"%$
$%#
%$
%%##!
"#!%#%
!%!
! "
#
&%
&%
%&#
&#
%&%
"&#
&!
! !&
"#&
&%
&!
!#&$
&%
&
$!&
!&
&!
&
&%
!&
"&
&!$
" &
&"
#&
%&!
&$
%&
"#&
#&
!&
"#&
&
&"%
!$&%
&%"
&"
! %&
!!&
&
&
&
!#&
"&#
&
%#&
"&
&
'()
!
!
##
!
$
%
#
"
%
$
*
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
! #
#
#
$#
#
#
#
+
, -.
/
), -.
01-.
'2, -.
,
-.
.03
.45 67 , -.
8
-.
2
5 -.
3 /9'(9. -.
:3-.
;-.
!
"-.
+.7-.
+ 7< 3<='
0
/
', -.
'> :/
67 7, -.
?-.
@A-(-.
<BC@
: 3) -.
D ) -.
"#
$ %
&
E :+3 3E
/, -.
3( -.
C?F'
C?F(
G
G
C?F)
*/F
G
G
* HI @
G
G
' 0
*+F
G
G
C?F+
C?F"%
G
G
♦♦♦
● STJÓRN breska íbúðalánabank-
ans Northern Rock tilkynnti í gær að
hún mælti með tilboði auðkýfingsins
Richard Branson í bankann. North-
ern Rock lenti í miklum hremmingum
í sumar þegar viðskiptavinir hans
fylltust úttektarfári svo heimsathygli
vakti.
Breska ríkið ábyrgðist öll innlán
bankans en gengi hlutabréfa hans
hríðféll og nokkrir aðilar gerðu í hann
tilboð í kjölfarið. Meðal þeirra er J.C.
Flowers sem seldi Kaupþingi hol-
lenska bankann NIBC.
Stjórnin mælir með
tilboði Branson
● STJÓRN námarisans Rio Tinto
býst nú til varnar gegn yfirtökutilboði
keppinautarins BHP Billiton. Sam-
kvæmt Financial Times hefur stjórn-
in lofað fjárfestum að fleiri eignir
verði seldar og arðgreiðslur auknar.
Tom Albanese, forstjóri Rio Tinto,
hefur að sögn FT sagt fjárfestum að í
kjölfar yfirtöku félagsins á Alcan sé
möguleiki á að selja eignir fyrir á
bilinu 15-30 milljarða dala en áður
var talið að hægt væri að selja um
10 milljarða dala virði af eignum. Í
kjölfarið myndi arður ársins 2007
aukast um 30%.
Búist til varnar