Morgunblaðið - 27.11.2007, Side 25

Morgunblaðið - 27.11.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 25 MARKMIÐ félagsins var í upp- hafi að hvetja landsmenn til að ferðast um og kynna sér landið; byggja upp aðstöðu fyrir ferða- menn í óbyggðum og standa fyrir útgáfu og fræðslu. Markmið félagsins í dag eru enn þau sömu. Ferða- og fjallmennska nýt- ur mikilla vinsælda í dag og gegnir FÍ þar mikilvægu hlutverki sem brautryðjandi og áhugamannafélag sem stendur öllum opið; byggir upp að- stöðu og veitir þjón- ustu sem allir ferða- menn hafa aðgang að. Með starfi sínu og markmiði sinnir FÍ umhverfismálum og nátt- úruvernd á margvíslegan hátt. Fé- lagið hefur sinnt gróðurrækt og landgræðslu meðal annars í Þórs- mörk og Heiðmörk og á fleiri stöð- um þar sem félagið rekur skála. Árbækur FÍ um afmörkuð svæði á landinu hafa komið út í óslitinni röð í 80 ár og eru ein vandaðasta Íslandslýsing sem völ er á. Auk þess stendur FÍ fyrir útgáfu á fræðsluritum og landakortum. Fjölmargir félagsmenn starfa fyrir félagið í ritnefnd og útgáfunefnd. Ferðaáætlun FÍ kemur út í árs- byrjun hvert ár og er boðið upp á fjölda sumarleyfisferða, helg- arferða, dagsferða, jeppaferða og skíðaferða. Frá upphafi hefur fé- lagið staðið fyrir yfir 2000 ferðum með þátttöku yfir 200 þúsund manns. Innan félagsins eru starf- andi um 30 fararstjórar sem starfa sem áhugamenn í sjálfboðavinnu. Í ferðanefnd félagsins eru fé- lagsmenn sem skipuleggja ferðir hvers árs. Innan FÍ eru 10 deildir sem starfa í anda félagsins, bjóða upp á ferðir, byggja upp skála og göngu- leiðir og sinna útgáfustarfi. FÍ og deildir þess reka 40 skála í óbyggðum landsins, bæði stóra fjallaskála sem og minni göngu- skála, og má þar nefna Land- mannalaugar, Þórsmörk, Nýjadal, Norðurfjörð, Dreka í Drekagili, Sigurðarskála í Kverkfjöllum, Brúnavík og Breiðavík, Karlsstaði í Vöðlavík, Múlaskála í Lóns- öræfum sem og Hvítárnesskála, elsta fjallaskála landsins. Fjöl- margir félagsmenn koma að rekstri skál- anna með sjálfboða- vinnu í vinnuferðum. Hver skáli hefur sinn fóstra sem hefur um- sjón með sínum skála. Í Ferðafélagi Ís- lands eru nú tæplega 8000 þúsund manns. Á undanförnum tveimur árum hafa um 2000 nýir félagsmenn geng- ið í félagið, flestir á aldrinum 20-40 ára. Markmiðið er að fjölga félagsmönnum verulega á næstu misserum. Í tilefni afmælisins mun stjórn félagsins samþykkja sérstaka há- tíðarsamþykkt þar sem ungt fólk er sérstaklega boðið velkomið í fé- lagið og að auki mun FÍ nú bjóða grunnskólum landsins upp á sam- starf um fræðslu vegna fjalla- mennsku. Í framhaldi af þessari hátíðarsamþykkt munu 45 nem- endur í 10. bekk Smáraskóla ganga í Ferðafélagið. Vegna þessa samstarfs FÍ og Smáraskóla fá all- ir þessir nemendur flíspeysu frá FÍ, gps-tæki og talstöð, auk fjalla- námskeiðs og hjólaferðar að Fjallabaki í sumar. Gönguferðir, fjallamennska og útivera er allt í senn skemmtileg, heilbrigð hreyfing og endurnær- andi bæði fyrir líkama og sál. Í Ferðafélagi Íslands er hópur fólks sem hefur mikla reynslu af fjalla- mennsku og er tilbúið að miðla af reynslu sinni til nýrra félaga. Það eru allir velkomnir í FÍ og hægt er að ganga í félagið á heimasíðunni www.fi.is. Ferðafélag Íslands 80 ára Páll Guðmundsson skrifar í tilefni 80 ára afmælis Ferðafélags Íslands Páll Guðmundsson » Gönguferðir, fjalla-mennska og útivera er allt í senn skemmti- leg, heilbrigð hreyfing og endurnærandi bæði fyrir líkama og sál. Höfundur er framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ekki er furða þótt ýmsar stað- reyndir REI-málsins séu óljósar í hugum fólks. Í gær birtist til dæmis frétt í Fréttablaðinu þar sem í fyrirsögn kemur fram að ég hefði ekki viljað útrás í október en í fréttinni sjálfri er þeirri full- yrðingu síðan ekki fundinn stað- ur. Á sunnudaginn var umfjöllun á Stöð tvö þar sem endurspilað var myndbrot úr fréttum frá 5. októ- ber sl. og því haldið fram að í orð- um mínum gæti misræmis í mál- efnum REI. Tilefni „fréttarinnar“ eru eftirfarandi orð mín: „Ég er ekki hlynntur því almennt að Orkuveitan sé að standa í sam- keppnisrekstri. Það er ekki við hæfi. Þetta er opinbert fyrirtæki í eigu sveitarfélaga.“ Þar lýkur til- vitnuninni í fréttatímanum sl. sunnudag. Hins vegar hélt fréttin 5. október þannig áfram með orð- um fréttamanns: „Í tilviki Reykjavik Energy Invest segir Júlíus að mikil þekking sé innan Orkuveitunnar.“ Orðrétt sagði ég síðan: „Það má færa fyrir því rök að það sé til hagsbóta fyrir Orku- veituna og þá Reykvíkinga alla að færa þau verðmæti í verð.“ Hvers vegna kýs fréttamaður að sleppa því sem skýrir orð mín og sýnir samhengið? REI var einfaldlega stofnað sem hlutafélag með tak- markaðri ábyrgð til þess að ann- ast verkefni á erlendri grundu og þar með að tryggja að Orkuveitan geti einbeitt sér að kjarnastarf- semi í þágu almennings. Í þessum orðum felst því ekkert ósamræmi. Fréttastofu Stöðvar tvö er stýrt af fyrrverandi upplýsinga- fulltrúa formanns Framsóknar- flokksins. Honum ætti að vera í mun að standa vörð um sjálfstæði stöðvarinnar og styrkja trúverð- ugleika hennar. Júlíus Vífill Ingvarsson Fréttir eða spuni Höfundur er borgarfulltrúi. Upp með Vestfirði! Pantanir: 456-8181- jons@snerpa.is Vestfirska forlagið Kolaskipið kemur til Djúpavíkur "Þegar leið á sumarið kom m/s Oddur VE 353 úr Vest- mannaeyjum með kolafarm frá Portúgal. Oddur sem 12. maí 1949 hafði verið skráður eign Örvarodds á Flateyri var þarna kominn í eigu Helga Benediktssonar og Guðmundar Oddssonar. Skipið var furubyggt flutn- ingaskip, 245 tonn að stærð og þar með stærsta timburskip Íslendinga. Gufukatlar Djúpavíkurverk- smiðjunnar voru kolakyntir og þurftu sinn skammt þegar mikið var brætt. Allt verksmiðjuliðið var því sett í uppskipunina og ugglaust nokkrir Árnesingar að auki. Þegar á löndun leið fór að bera á miklum gleðibrag á mönnum við verkið. Við nánari skoðun kom í ljós, að svo virtist sem kolin væru blaut af púrtvíni. Hafði þetta þau áhrif á mannskapinn að hann varð glaðari í bragði en vænta mátti við þessi óhreinlegu störf. Karlarnir í lestinni hlógu og höfðu uppi grín og glens og þeir sem á spilunum voru léku við hvurn sinn fingur." Verð: 3,980,-kr. Fæst í bókaverslunum um land allt Loksins á íslensku! Sjónvarpsmyndin Skólasöngleikurinn - High School Musical - hefur slegið í gegn um allan heim og nú geta íslenskir aðdáendur loks lesið um ævintýri Troys, Gabriellu og hinna krakkanna í East High skólanum. Galdrastelpur í vanda Grænir töfrar er fjórða bókin í bókaflokknum eftir Lene Kaaberbøl um Galdrastelpurnar. Þessi bók fjallar um Cornelíu og dularfullar aðstæður sem hún lendir í. Er hún búin að missa tökin á sambandi sínu við jörðina? Hvaða hræðslulega rödd berg- málar í höfði hennar? Þrettán nýjar jólasögur! Spennandi textabók um galdrastelpur! Jack Sparrow og félagar enn á ferð! Byggð á sjón- varpsmyndinni vinsælu! Syrpa í innbundinni hátíðarútgáfu! Nýjar, spennandi og bráðfyndnar myndasögur sem koma öllum í gott jólaskap. Vinir okkar í Andabæ undirbúa jólin af kappi og lenda í ýmsum óvæntum og skemmti- legum ævintýrum. Ævintýrið heldur áfram Á hjara veraldar segir frá nýjustu ævintýrum sjóræningja Karíbahafsins. Óborganleg saga þar sem sjóræningjar, skrímsli, hetjur og óþokkar leika lausum hala og spenna, grín og gaman skapar kostulega atburðarás!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.