Morgunblaðið - 01.12.2007, Page 5
Í dag, 1. desember, verður Háskólatorg afhent Háskóla Íslands. ÍAV ásamt arkitektastofunum
Hornsteinum arkitektum og TIS teiknistofu urðu hlut skarp astir í lokaðri samkeppni verktaka
og hönnuða um Háskólatorg sem fram fór sumarið 2005. Framkvæmdir hófust í apríl 2006.
Háskólatorg er samheiti tveggja bygginga ásamt tengibyggingu sem hlotið hafa nöfnin
Háskólatorg, Gimli og Tröð. Heildar flatarmál bygginganna er um 10.000 fermetrar.
Verklok síðari áfanga verða í lok febrúar n.k.
Háskólatorg verður vinnustaður á þriðja hundrað starfsmanna deilda og þjónustu stofnana
og verða þar rúmlega 1.500 stúdentar við nám og störf.
Háskólatorg leysir úr brýnni þörf Háskólans fyrir vinnuaðstöðu starfsmanna og n emenda.
Í báðum byggingunum er gert ráð fyrir les- og vinnuaðstöðu fyrir á fjórða hundrað stúdenta í
grunn- og framhaldsnámi úr öllum deildum skólans. Allt innra fyrirkomulag í nýbyggingunum
einkennist af miklum sveigjanleika til að þjóna óskum á hverjum tíma um tengsl og samþættingu,
eða þegar starfsemi breytist.
Til hamingju með Háskólatorg
Íslenskir aðalverktakar óska nemendum
og starfsfólki Háskóla Íslands til hamingju
með áfangann.
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
www.iav.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A