Morgunblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÓRARINN Jónsson, listnemi í
Toronto, gæti átt von á allt að
fjögurra ára fangelsi ef hann
verður fundinn sekur um óspektir
og að raska allsherjarreglu eftir
að hafa komið fyrir poka sem á
var letrað „Þetta er ekki
sprengja“ á listasafni í borginni á
miðvikudag. Uppátækið var hluti
af verkefni hans á námskeiði um
vídeólist, en olli talsverðu upp-
námi í miðborg Toronto. Lög-
regla og sprengjuleitarsveitir
voru kallaðar til og aflýsa þurfti
fjáröflunarsamkomu góðgerðar-
samtaka um kvöldið. Þórarinn
gaf sig fram við lögreglu í fyrra-
dag og var hnepptur í gæslu-
varðhald. Honum voru birtar
ákærur í gær og síðan sleppt
gegn tryggingu.
Ekki náðist í Þórarin í gær, en
samkvæmt því sem kanadíska
dagblaðið Toronto Star hefur eft-
ir lögfræðingi hans hlaut Þórar-
inn góðan aðbúnað í fangelsinu
um nóttina. Frelsi Þórarins er
ýmsum skilyrðum háð, hann má
ekki koma inn á lóð listasafnsins,
ekki meðhöndla sprengiefni og
hann verður að sækja sér faglega
ráðgjöf. Blaðið hefur jafnframt
eftir rannsóknarlögreglumann-
inum Leslie Dunkley að brot Þór-
arins geti varðað allt að fjögurra
ára fangelsi. „Þetta er mjög al-
varlegt afbrot,“ sagði Dunkley.
„Við tökum þau mjög alvarlega
og viljum alls ekki ýta undir
þau.“
Sjónvarpsstöðin CTV segir há-
skólann sem Þórarinn stundar
nám við, Ontario College of Art
and Design, hafa fordæmt gjörðir
hans og vikið honum úr námi
tímabundið. Að auki hafi tveimur
kennurum verið vísað frá störfum
á meðan atvikið er rannsakað.
Getur bú-
ist við 4 ára
fangelsi
Ákærur Teiknari á vegum CTV fylgdist með í réttarsalnum þegar Þórarni voru birtar ákærur í gær.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
bréflega minnt stjórn Ríkisútvarps-
ins ohf. á ákvæði upplýsingalaga um
að bregðast fljótt við fyrirspurnum
um gögn sem falla undir lögin. Til-
efnið eru svör útvarpsstjóra og
stjórnarformanns RÚV í fjölmiðlum
um að þeir myndu ekki hvað út-
varpsstjóri hefði í laun.
Upphaf málsins var að blaðamað-
ur Vísis.is óskaði í haust eftir upp-
lýsingum um laun Páls Magnússon-
ar útvarpsstjóra. Í frétt Vísis kom
fram að Páll hefði borið við minn-
isleysi um eigin laun og að Ómar
Benediktsson, formaður stjórnar
RÚV, hefði sagt að hann myndi
ekki „hvað útvarpsstjóri [hefði] í
laun en þau [yrðu] gefin upp á
næsta aðalfundi Ríkisútvarpsins“.
Jafnframt var haft eftir honum að
ástæðulaust væri að halda launun-
um leyndum.
Af þessu tilefni ritaði umboðs-
maður Alþingis bréf til stjórnar
RÚV hinn 18. september og óskaði
eftir staðfestingu um að ummælin
væru rétt eftir höfð og að RÚV lýsti
afstöðu sinni til tiltekinna ákvæða
upplýsingalaga sem fjalla um launa-
kjör.
Vildu meiri frest en fengu ekki
Fyrra svarbréf RÚV barst 1.
október en í því voru ekki svör við
spurningum umboðsmanns heldur
var óskað eftir svarfresti til 18.
október. Ástæðan var sú að stjórn-
arfundur RÚV yrði ekki haldinn
fyrr en 15. október og að nauðsyn-
legt væri að ræða bréf hans á
stjórnarfundinum.
Þetta sætti umboðsmaður sig
ekki við og 9. október sendi hann
annað bréf og sagðist ekki sjá hvers
vegna stjórn RÚV þyrfti viðbótar-
frest. Hann minnti jafnframt á
ákvæði upplýsingalaga um að ávallt
ætti að afgreiða erindi um aðgang
að gögnum hjá stjórnvöldum fljótt
og án ástæðulausra tafa. Hann tók
sérstaklega fram að þeir aðilar sem
á annað borð lytu ákvæðum upplýs-
ingalaga, eins og RÚV gerir, hög-
uðu afhendingu þeirra gagna á
grundvelli laganna án þess að í
reynd væri verið að búa þær upp-
lýsingar í einhvern þann búning
sem ekki þjónaði markmiðum um
aðgang almennings að upplýsing-
um.
Svar barst loks frá lögmanni
RÚV dagsett hinn 18. október og
kom þar eftirfarandi m.a. fram:
„Hinn 16. október sl. upplýsti
stjórnarformaður umbj. míns, Ómar
Benediktsson, að mánaðarleg laun
útvarpsstjóra væru kr. 1.500.000,-
og sú fjárhæð samanstæði af laun-
um, bifreiðahlunnindum og þóknun-
um fyrir fréttalestur.“
Vegna þessara viðbragða taldi
umboðsmaður rétt að víkja að
tveimur atriðum. Annars vegar
ítrekaði hann nauðsyn þess að RÚV
brygðist svo fljótt sem verða má við
fyrirspurnum. Hins vegar vek hann
sérstaklega að því að upplýsinga-
réttur næði ekki til heildargreiðslna
heldur til fastra launa og launa-
kjara. Þá vakti hann einnig athygli
á því að í svari menntamálaráð-
herra á Alþingi 7. nóvember sagði
hún að laun útvarpsstjóra væru
1.530.000 krónur, 30.000 krónum
hærri en kom fram í svarinu til um-
boðsmanns.
Voru einn mánuð að svara fyrirspurn umboðsmanns Alþingis
Ríkisútvarpið minnt
á upplýsingalögin
ÞEGAR íslenski þjóðsöngurinn er
sunginn á íþróttakappleikjum og
við hátíðleg tækifæri bresta raddir
allra nema færasta söngfólks á
efstu tónunum. Til þess að ráða
bót á þessu vandamáli gefur for-
sætisráðuneytið út í dag nýja út-
gáfu þjóðsöngsins sem Jón Krist-
inn Cortez hefur útbúið, þar sem
raddsvið söngsins hefur verið
lækkað frá Es-dúr í C-dúr. Þar
með liggur hann á tónbili sem
flestir ráða við.
Útgáfuna ber upp á fimmtíu ára
afmæli fyrsta heftis ráðuneytisins
með upprunalegum útsetningum
tónskáldsins Sveinbjörns Svein-
björnssonar við texta Matthíasar
Jochumssonar.
Þjóðsöngurinn kemur nú út í
þremur heftum með mismunandi
útsetningum fyrir blandaða kóra,
karlakóra og kvenna- og skóla-
kóra. Allir kórar landsins, allir
skólar og kirkjur fá heftið sent, en
þar verður líka að finna upphaf-
legu útsetninguna auk upplýsinga
um höfunda söngsins og sögu
hans. Allar útsetningarnar er hægt
að nálgast á vef forsætisráðuneyt-
isins, www.forsaetisraduneyti.is.
Þjóðsöngur
fyrir alla
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur samþykkt kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu að framlengja
gæsluvarðahald yfir karlmanni á
þrítugsaldri, Tomasi Malakauskas,
til 7. desember nk.
Manninum er gert að sæta varð-
haldi vegna brots á útlendinga-
lögum og lögum um ávana- og fíkni-
efni. Maðurinn var stöðvaður í
Hafnarfirði um miðja síðustu viku
ásamt öðrum karlmanni á svipuðum
aldri og fundust í fórum þeirra um
100 grömm af amfetamíni.
Við nánari skoðun á skilríkjum
mannanna kom í ljós að annar
þeirra er í endurkomubanni vegna
dóms sem hann hlaut á árinu 2004 í
tengslum við svonefnt líkfundar-
mál. Í því máli játaði maðurinn að
hafa flutt 220 grömm af amfetamíni
til landsins.
Unnið er að gerð ákæru á hendur
manninum.
Sætir áfram-
haldandi gæslu
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur úrskurðað karlmann á þrítugs-
aldri í þriggja vikna gæsluvarðahald
vegna gruns um aðild hans að inn-
brotum í Árnes- og Rangárvalla-
sýslum. Lögreglan á Selfossi vinnur
að rannsókn málanna.
Maðurinn var handtekinn að
morgni 29. nóvember og fljótlega var
hægt að mynda tengsl við fjölda inn-
brota frá deginum áður í Árnes- og
Rangárvallasýslum. Talið er að fleiri
aðilar tengist málinu og er þeirra
leitað. Í tengslum við rannsóknina er
lýst eftir hvítri sendibifreið, Renault
Master, TV-Z28. Þeir sem veitt geta
upplýsingar um bifreiðina eru beðnir
að láta lögregluna á Selfossi vita.
Í varðhald fyrir innbrot
Láttu þér líða vel með vörunum frá Villimey.
Gefðu gjöf sem gleður og græðir.
Engin rotvarnar-, litar eða ilmefni.
VILLIMEY- JURTA GALDUR
Helstu heilsuvöruverslanir og Lyfja um land allt.
VILLIMEY - Sími 892 8273 - www.villimey.is - villimey@villimey.is
M
b
l.
93
62
41
!"
"#
$
%$
&
!"
'#$()%*
!"
&
!"
&&
!"
&&
!"
♦♦♦