Morgunblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 24
Sterkur Pútín ávarpar þjóðina.
Reuters
Í HNOTSKURN
» Garrí Kasparov, einn leið-toga stjórnarandstöð-
unnar, spáði í gær „stór-
felldum kosningasvikum“ og
sagði að einræði vofði yfir
Rússlandi.
Moskvu. AFP. | Þau líta á sig sem
frjálslynda lýðræðissinna og eru
hlynnt markaðshagkerfi en ætla að
kjósa hefðbundna andstæðinga sína í
stjórnmálunum: rússneska komm-
únistaflokkinn.
Margir frjálslyndir kjósendur
segjast ætla að kjósa kommúnista-
flokkinn vegna þess að skoðana-
kannanir benda til þess að hann
verði eini stjórnarandstöðuflokkur-
inn í Dúmunni, neðri deild rússneska
þingsins, eftir kosningarnar í Rúss-
landi um helgina.
Útlit er fyrir að frjálslyndu stjórn-
arandstöðuflokkarnir Jabloko og
Bandalag hægriaflanna hverfi af
þinginu og fái aðeins um 2% fylgi
hvor. Til að eiga rétt á þingsætum
þurfa þeir að fá a.m.k. 7% at-
kvæðanna.
„Kýs með lokuð augu“
Skoðanakannanir benda til þess
að um 62-67% ætli að kjósa Samein-
að Rússland, flokk Pútíns, og komm-
únistum er spáð 12-14% fylgi. Aðeins
tveir aðrir flokkar eru taldir eiga
möguleika á þingsætum og þeir
styðja báðir Pútín forseta. Annar
þeirra, Frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn, er undir forystu þjóðernissinn-
ans Vladímírs Zhírínovskís en hinn
flokkurinn nefnist Réttlátt Rússland
og var stofnaður í fyrra samkvæmt
forskrift ráðamanna í Kreml.
„Ég ætla að kjósa kommúnista í
mótmælaskyni,“ sagði 24 ára
Moskvubúi sem hefur stutt Banda-
lag hægriaflanna. „Það er eina leiðin
til að greiða atkvæði gegn flokki Pút-
íns.“ „Ef ég kýs lýðræðissinnana fer
atkvæði mitt í súginn,“ sagði þrítug
húsmóðir sem studdi lýðræðissinna í
baráttunni við kommúnista á síðasta
áratug en ætlar nú að kjósa komm-
únistaflokkinn.
28 ára arkitekt kvaðst ætla að
kjósa kommúnista með „óbragð í
munni og lokuð augu“. „Ég ákvað að
kjósa Gennadí Zjúganov [leiðtoga
kommúnistaflokksins] fyrir nokkr-
um mánuðum. Ég hef hætt að horfa
á sjónvarpið og lesa blöðin til að forð-
ast kommúnistana ekki síður en
menn Pútíns. Ég bíð bara eftir því að
þetta taki enda.“
Einir í stjórnarandstöðu
Margir frjálslyndir lýðræðissinnar í Rússlandi ætla að kjósa kommúnistaflokkinn
vegna þess að hann verður eini stjórnarandstöðuflokkurinn í Dúmunni
24 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞÚSUNDIR
manna gengu
fylktu liði í gegn-
um miðborg
Khartoum í Súd-
an í gær í mót-
mælaskyni við
þann væga dóm
sem fólkið telur
að bresk kennslu-
kona, Gillian Gib-
bons, hafi fengið en Gibbons var á
fimmtudag dæmd í fimmtán daga
fangelsi fyrir að hafa heimilað sú-
dönskum nemendum sínum að kalla
leikfangabangsa Múhameð.
Vildu mótmælendur, sem gengu
að forsetahöllinni í Khartoum, og
voru sumir vopnaðir hnífum og bar-
eflum, að Gibbons yrði tekin af lífi
fyrir að hafa móðgað íslam.
Telja dóminn
of vægan
Gillian Gibbons
NÝJAR myndir af sextán gíslum
sem skæruliðar í Kólumbíu hafa
haldið frá 2003 fundust í fórum
þriggja manna sem handteknir
voru í Bogota. Þ.á m. er stjórn-
málakonan Ingrid Betancourt og
þrír Bandaríkjamenn.
Reuters
Fangar á lífi
Bangkok. AP. | Þegar Bhumibol Adu-
lyadej, konungur Taílands, var út-
skrifaður af sjúkrahúsi fyrr í mán-
uðinum var hann klæddur bleikum
jakka. Svo mikla aðdáun vakti fatn-
aður konungs að bleikar skyrtur
komust undireins í tísku og hafa
ítrekað myndast biðraðir fyrir fram-
an verslanir sem bjóða þær til sölu.
Bhumibol hefur síðan þá íklæðst
ýmsum öðrum litríkum fatnaði og
tekst honum í hvert sinn að vekja
hrifningu landa sinna með smekkvísi
sinni. Í stuttu máli sagt: Bhumibol,
sem verður áttræður á miðvikudag,
er farinn að hafa mótandi áhrif á
tískuna!
Margir Taílendingar apa reyndar
vísvitandi eftir klæðnaði konungsins
í því skyni að heiðra hann á afmæl-
inu. Bhumibol hefur setið lengur á
valdastóli en nokkur annar þjóðhöfð-
ingi og er dýrkaður og dáður meðal
landa sinna. Hann hefur ætíð lagt sig
eftir því að hjálpa nauðstöddu fólki
og í augum sumra er hann fyrir vikið
nánast í guða tölu. Hann hefur þó
engin formleg pólitísk völd en hefur
haft umtalsverð áhrif á langri ævi og
er álitinn siðferðilegur áttaviti þjóð-
arinnar. „Okkur grunaði aldrei að
bleiku skyrturnar yrðu svo vinsæl-
ar,“ segir talsmaður fyrirtækisins
sem framleiðir bleiku skyrturnar í
tilefni afmælisins. „Þjóðin er að lýsa
tilfinningum sínum til konungsins,“
segir talsmaður konungsins.
Æði fyrir bleikum skyrtum
80 ára afmæli kon-
ungsins fagnað með
óvenjulegum hætti
AP
Biðraðir Taílendingar hafa sýnt
aðdáun sína á konunginum í verki.
Bleikur Bhumibol í jakkanum góða.
FIMMTÍU og sjö týndu lífi þegar flugvél tyrkneska lág-
gjaldaflugfélagsins Atlasjet fórst í suðvesturhluta
Tyrklands í gærmorgun. Flugvélin var af gerðinni
MacDonnell Douglas 83 og rifnaði búkur hennar í
tvennt er hún hrapaði í fjöllum nálægt þorpinu Cuk-
uroren. Flugvélin hafði lagt upp frá Istanbúl 35 mín-
útum áður og var flugmaðurinn búinn að óska eftir
lendingarleyfi í borginni Isparta þegar samband við
hana rofnaði skyndilega. 50 farþegar voru um borð og
sjö í áhöfn. Flugvélin virðist hafa villst af leið en ekki er
vitað hvað gerðist, veður var gott og ekki er vitað til að
neitt hafi verið að vélinni. Sérfræðingar hafa nú verið
sendir á staðinn til að grandskoða flugrita vélarinnar
svo hægt sé að skera úr um hvað olli slysinu.
AP
Flugriti vélarinnar fundinn
Fimmtíu og sjö fórust í flugslysi í Suðvestur-Tyrklandi
JAVIER Solana, æðsti embættis-
maður Evrópusambandsins í utan-
ríkismálum, kvaðst í gær hafa orðið
fyrir vonbrigðum með viðræður sín-
ar við íranskan sendimann um kjarn-
orkuáætlun stjórnvalda í Íran. Sol-
ana undirbýr nú skýrslu um málið
fyrir Sameinuðu þjóðirnar.
Saeed Jalili, aðalsamningamaður
Írana í deilunni, ræddi við Solana í
fimm klukkustundir í London í gær
og sagði að viðræðurnar hefðu verið
„jákvæðar“.
Búist er nú við að Bandaríkja-
menn og stuðningsmenn þeirra beiti
sér fyrir því að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna herði refsiaðgerðirnar
gegn Íran. Saeed Jalili sagði að refsi-
aðgerðirnar yrðu ekki til þess að Ír-
anar féllust á þá kröfu öryggisráðs-
ins að þeir hættu auðgun úrans.
Íranar segjast aðeins ætla að hag-
nýta kjarnorkuna í friðsamlegum til-
gangi, þ.e. til að framleiða rafmagn,
en stjórnvöld í Bandaríkjunum og
fleiri löndum telja að þeir hyggist
nota úranið í kjarnavopn.
Vonsvik-
inn eftir
viðræður
Fundur Solana og
Írana árangurslaus
Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170
Innrettingar
Þi´n vero¨ld
X
E
IN
N
IX
0
7
10
0
25
MAÐUR vopnaður því sem talið var
vera sprengja réðst inn á kosninga-
stöð öldungadeildarþingmannsins
Hillary Clinton, en hún er talin sig-
urstranglegust í forvali demókrata
vegna forsetakosninganna á næsta
ári, í Rochester í New Hampshire í
gær. Clinton var ekki á staðnum
þegar atburðurinn átti sér stað, var
stödd á kosningafundi í Virginíu-ríki.
Maðurinn sleppti seinna tveimur
gísla sinna. Hann kom um síðir út úr
byggingunni með hendur á lofti og
var handtekinn af lögreglu.
Maðurinn hafði krafist þess að fá
að tala við Hillary Clinton. Árásar-
maðurinn er sagður vera kunnur í
Rochester fyrir að vera ekki í and-
legu jafnvægi.
Gíslataka
hjá Clinton