Morgunblaðið - 01.12.2007, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 27
MENNING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞAÐ hefur skapast hefð fyrir því í
Salnum, að á Tíbrártónleikum 1. des-
ember er eitthvert sönglagaskálda
okkar heiðrað með söng. Jón Ás-
geirsson er tónskáld dagsins í Saln-
um í dag, en á tónleikunum, sem hefj-
ast kl. 17, syngja þau Auður
Gunnarsdóttir og Bergþór Pálsson
lög Jóns, við meðleik Jónasar Ingi-
mundarsonar.
„Þau syngja sex lög úr Kilj-
anskvæðunum; fjögur íslensk þjóðlög
sem ég útsetti fyrir einsöngvara og
píanóleik, fjögur lög úr Galdra-Lofti,
Söknuð eftir Jóhann Jónsson, þrjú
lög við kvæði eftir Matthías Johann-
essen, annað við ljóð eftir Valgarð
Egilsson og loks tvö lög við texta eftir
Jónas Árnason – dægurlög. Ég
samdi þau í dentid, þegar við vorum
að spekúlera í söngleikjum. Jónas bjó
til leikþátt sem hét Skera eða ekki
skera, og var um lækni sem skar alla
upp og gleymdi tóbaksdósunum sín-
um í sjúklingunum, ekki ósvipað og
var í Rjúkandi ráði, sem hann samdi
síðar. Annað þeirra er um strák sem
vill komast á spítala til þess að geta
verið nær hjúkkunni sem hann er
orðinn skotinn í; leikur sig klikkaðan
og syngur Ofsjónarsöng. Og Bergþór
og Auður láta alveg eins og kjánar í
þessu,“ segir Jón og hlær dátt.
„Bergþór er mikill húmoristi. Í lokin
syngur hann svo bæn úr óperunni
sem ég var að klára um daginn, Mött-
ulssögu,“ segir Jón, eins og það sé
hversdagsverk að hrista heila 600
síðna óperu fram úr erminni.
Jón slær hvergi slöku við þótt
kominn sé nær áttræðu, og það er
ekki bara ný ópera í tónsmíðaverk-
stæði; ný sönglög líta dagsins ljós
jafnt og annars konar verk. Ég er
líka að gera hluti sem ég ætla ekki að
segja frá strax,“ segir Jón sposkur,
„… það er eitt og annað,“ bætir hann
við og leiðir talið annað. Tónleikarnir
hefjast sem fyrr segir kl. 17 í dag.
Dægurlög
um doktor
Morgunblaðið/Ómar
Sönglög Jóns Ásgeirssonar í Salnum
Kæti Bergþór Pálsson, Auður Gunnarsdóttir, Jón Ásgeirsson og Jónas Ingimundarson í Salnum í gær.
ÝMISLEGT tengt jólum fer á fjal-
irnar núna um helgina og verða t.d.
frumsýnd þrjú jólaleikrit sem ættu
að vera við hæfi yngstu leikhúsgest-
anna.
Leikritið Lápur, Skrápur og jóla-
skapið, sem er glænýtt, verður
frumsýnt í dag kl. 16 í Skemmtihús-
inu við Laufásveg 22 í Reykjavík.
Þeir Lápur og Skrápur eru Grýlu-
synir og hafa enn ekki komist í jóla-
skap og hefja því leitina að jólaand-
anum. Ber leitin þá inn í
svefnherbergi Sunnu litlu sem
ákveður að hjálpa þeim bræðrum.
Saman lenda þau í alls konar æv-
intýrum.
Lápur, Skrápur og jólaskapið er
samið af Snæbirni Ragnarssyni, en
hann hefur meðal annars skrifað
Ævintýri Stígs og Snæfríðar í
Stundinni okkar.
Samhliða uppsetningu á jóla-
leikritinu verður gefin út geisla-
plata, en Snæbjörn semur einnig
tónlistina í verkinu ásamt Arngrími
Arnarsyni. Leikstjórn verksins er í
höndum Önnu Bergljótar Thor-
arensen.
Skemmtihúsið er lítið leikhús sem
hefur verið sett í jólabúning og
skreytt hátt og lágt að innan sem
utan. Gestir geta því búist við góðri
jólastemningu þegar þeir koma í
heimsókn til að taka þátt í ævintýr-
inu sem þar hefur verið sett upp.
Þú ert nú meiri jólasveinninn
Sýningin Þú ert nú meiri jóla-
sveinninn verður frumsýnd á morg-
un, 2. desember, kl. 14.30 á Ak-
ureyri í Rýminu hjá Leikfélagi
Akureyrar. Þar sýnir og sannar
jólasveinninn Stúfur að honum er
margt til lista lagt. Stúfur, sem er
einn af 13 bræðrum frá Mývatns-
sveit, ákvað að koma snemma til
byggða í ár og mun halda uppi fjör-
inu með söngvum og sögum. Um
leikstjórn verksins sér Ágústa
Skúladóttir. Sýningin tekur um
klukkustund og ætti að vera
skemmtileg afþreying fyrir alla fjöl-
skylduna á meðan þess er beðið að
hátíðin gangi í garð.
Leitin að jólunum
En það verða fleiri skrautlegar
persónur til að skemmta yngri kyn-
slóðinni í desember því leikritið
Leitin að jólunum verður frumsýnt í
dag kl. 13 í Þjóðleikhúsinu. Þar
munu Reyndar og Raunar taka á
móti litlum leikhúsgestum í föru-
neyti hljóðfæraleikara, sem leiða
hópinn um króka og kima Þjóðleik-
hússins í leit að jólunum.
Á ferð þeirra frá leikhúslofti nið-
ur í kjallara lendir hópurinn í ýms-
um ævintýrum og kynnist nýrri hlið
á leikhúsinu. Höfundur leikritsins er
Þorvaldur Þorsteinsson og er þetta í
þriðja sinn sem verkið er sett upp
við Hverfisgötuna. Sýningin hefur
notið mikilla vinsælda og hlaut með-
al annars Grímuverðlaunin sem
barnasýning ársins 2006.
Leikstjóri Leitarinnar að jólunum
er Þórhallur Sigurðsson. Tónlistin
úr sýningunni er fáanleg á hljóm-
diski en höfundur hennar, Árni Eg-
ilsson, hefur samið ný lög við Jóla-
sveinavísur Jóhannesar úr Kötlum
sem fléttast inn í sýninguna.
Jólaævintýrin
gerast víða
Synir Grýlu og ýmsir kynlegir kvistir
Grýlusynir Þeir Lápur og Skrápur skyggnast um á aðventunni.
Það verður forvitnilegt að heyra dægurlög Jóns Ás-
geirssonar á tónleikunum í Salnum í dag, en Jón er
þekktari fyrir smíði alvarlegri verka af öllu tagi; en
aría úr glænýrri óperu hans, Möttulssögu verður
frumflutt á tónleikunum.
Hefð er fyrir því í Salnum að kynna eitt sönglaga-
skáld 1. desember ár hvert. Á fyrsta starfsári Sal-
arins varð Emil Thoroddsen fyrir valinu, þá Karl
Ottó Runólfsson, Sigvaldi Kaldalóns, Jórunn Viðar,
Jón Þórarinsson, Atli Heimir Sveinsson, Árni Björns-
son og nú þetta árið, tónskáldið ástsæla, Jón Ásgeirs-
son.
Þau láta alveg eins og kjánar
Sjálfvirk hnakkapúða-
stilling, aðeins í Stressless
– Þú getur lesið eða horft á
sjónvarp í hallandi stöðu.
Ótrúleg þægindi.
Sérstakur mjóbaksstuðningur
samtengdur hnakkapúða-
stillingu. Þú nýtur fullkomins
stuðnings hvort sem þú situr í
hallandi eða uppréttri stöðu.
Svefnstillingin er gerð virk með
einni einfaldri hreyfingu.
Ármúla 44 - 108 Rvík.
S. 553 2035
www.lifoglist.is
Sami stóllinn - Mismunandi stærðir - Þú velur þína stærð
með tölvuborði
– auðveldar heimavinnuna
THE INNOVATORS OF COMFORT ™