Morgunblaðið - 01.12.2007, Page 28
BIRGIR Snæbjörn Birgisson kom
fram með ofurbjört málverk sín
fyrir nokkrum árum og hefur síðan
þróað list sína áfram á þeirri braut,
nú sýnir hann 56 málverk undir
titlinum „Ljóshærð ungfrú heimur
1951 –“ en af titlinum má ráða að
myndröðinni er ekki lokið. Ljósar
og bjartar myndirnar fylla heilan
sal og koma áhorfandanum á óvart,
sumir fussa og sveia eins og konan
sem kom í dyrnar þegar ég var að
skoða, kvaðst ekki sjá neitt og
strunsaði þar við búið aftur út. Það
hefur lengi þótt kostur að list sé
umdeild og þessi sýning Birgis
verður það án efa, en hér er margt
að sjá.
Í fyrstu þarf áhorfandinn að
læra á myndirnar, að koma auga á
myndefnið sem birtist þá greinilega
og í ljós koma ólík andlit, sum ljúf,
önnur hörð, sum glöð, önnur dul-
arfull á svip. Þegar andlitin eru
komin í ljós veltir maður því næst
fyrir sér hvað vaki fyrir mál-
aranum því áhorfandi andspænis
verki sem sífellt er hverfandi fyrir
augum hans verður ósjálfrátt virk-
ur og leitandi.
Hið ljósa og bjarta í verkum
Birgis má skoða sem undirliggjandi
athugasemd við kynþáttafordóma
og myndir af fegurðardísum sem
allar eru ljósar gætu fallið undir
slíkan hatt. En slík túlkun er að-
eins einn möguleikinn af mörgum
og fagurfræði málverksins fær hér
yfirhöndina gagnvart ímynd-
arsköpun samfélagsins. Fjöldi
myndanna gæti kallað á hugmyndir
um fjöldaframleiðslu og list sjö-
unda áratugarins en á móti kemur
að engar tvær eru eins, framsetn-
ingin ýtir undir þetta og leggur
ýmist áherslu á eina mynd, par eða
hóp, þetta er ekki myndröð á færi-
bandi heldur má sjá hér 56 ólíkar
konur. Ofurljósar myndir sviss-
nesku listakonunnar Carol Bove
koma upp í hugann þegar mál-
verkin eru skoðuð, en hún hefur
t.d. málað fyrirsætur Playboy með
daufu bleki. List Bove fjallar meðal
annars um liðinn tíma og í mál-
verkum Birgis má sjá fortíðarþrá
og vangaveltur um hverfulleika
minnis og mynda. Í heildina er yfir
sýningunni tregafullur blær, þráin
eftir að höndla það sem alltaf er ut-
an seilingar, ef til vill má túlka það
sem leitina að hinu fullkomna í list-
inni sem alltaf skreppur úr greip-
um listamanna, trúin á hið full-
komna augnablik sem heldur þeim
gangandi og fær áhorfandann til að
halda áfram að horfa og leita.
Leyfum við huganum að slaka á
og reika í slíkri leit, eins og mynd-
irnar bjóða upp á, erum við komin
handan við myndflötinn – sem á
það hvort sem er til að leysast upp
í óskiljanlegar pensilstrokur falli
t.d. á hann óvænt hliðarbirta, hand-
an við vangaveltur um hvað sé á
myndinni því á endanum skiptir
það ekki öllu máli. Málverkið hætt-
ir að snúast um sjálft sig og býður
þess í stað sögu málverksins heim
á myndflötinn og áhorfandanum að
velta því fyrir sér hvers hann leiti,
hvað hann vilji sjá og hvers vegna.
Heildaráhrif sýningarinnar eru
mjög sérstök og sú áhætta sem
Birgir tekur óhjákvæmilega með
því að sýna 56 myndir þar sem
myndefnið er ekki bara nær ósýni-
legt, heldur eru myndirnar líka
næstum allar eins þegar fljótt er á
litið – styrkir hann sem listamann.
Þegar út er komið þarf að blikka
eins og þegar komið er út úr
myrkri og spurningin vaknar; hvað
sá ég?, en sýning Birgis er tví-
mælalaust með þeim eftirminni-
legri á árinu.
Hvað viltu sjá?
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir
Til 13. jan. Opið alla daga frá kl. 10-17.
Ljóshærð ungfrú heimur 1951 –
Málverk, Birgir Snæbjörn Birgisson
Morgunblaðið/Einar Falur
Athugasemd „Hið ljósa og bjarta í verkum Birgis má skoða sem und-
irliggjandi athugasemd við kynþáttafordóma […].“
Ragna Sigurðardóttir
Á leðurblökuvængjum söngsins
KAMMERSVEITIN Ísafold, sem
Daníel Bjarnason stjórnar, er með
langbestu tónlistarhópum landsins.
Það hefur hún margoft sannað.
Geisladiskur þar sem sveitin leikur
verk eftir Bent Sørensen, Hauk
Tómasson, Takemitsu og Schön-
berg er enn ein skrautfjöðurin í
hatt hennar. Ekki aðeins er leik-
urinn vandaður og fullur af vel út-
færðum blæbrigðum, heldur er
túlkunin ávallt sannfærandi og í
anda hvers tónskálds. Almennt tal-
að svífur dulúð yfir vötnunum, The
Weeping White Room eftir Søren-
sen er eins órætt og titill verksins
gefur til kynna, en samt fullt af
auðfundinni merkingu – sem þó er
ekki nokkur leið að koma í orð.
Svipaða sögu er að segja um hið
ljóðræna Tree Line eftir Take-
mitsu, þar er skáldskapurinn í leik
Ísafoldar í senn hástemmdur og
dulúðugur. Sex lítil píanóstykki eft-
ir Schönberg í útsetningu Bern-
hards Wulffs eru líka ágætlega
leikin, þótt óneitanlega sé hin upp-
runalega píanóútgáfa markvissari
og nái betur fram óttanum við hið
óþekkta, sem lesa má út úr mergj-
uðu tónmáli Schönbergs. Engu að
síður er hljómsveitarútgáfan prýði-
lega gerð með góðu jafnvægi á
milli ólíkra radda hljómsveit-
arinnar.
Par eftir Hauk Tómasson er
sömuleiðis glæsilega flutt og af
ástríðu sem fer tónskáldinu mun
betur en sú kalda vandvirkni sem
stundum einkennir túlkun tónlistar
hans.
Óhætt er að mæla með þessum
geisladiski fyrir þá sem hafa áhuga
á dulúð og forneskju í nýrri tónlist.
Jónas Sen
TÓNLIST
Geisladiskur
Verk eftir Sørensen, Takemitsu, Schön-
berg og Hauk Tómasson. Kammersveitin
Ísafold leikur undir stjórn Daníels Bjarna-
sonar.
Kammersveitin Ísafold Morgunblaðið/Eyþór
Framarlega Kammersveitin Ísafold hefur skipað sér í fremstu röð klassískra
sveita hér á landi og óhætt er að mæla með nýjasta geisladiski hennar.
28 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
HUGLEIÐINGAR um lífsgildi eru viðfangsefni þeirra
Pjeturs Stefánssonar og Þórs Sigmundssonar í Graf-
íksafninu. „Í leit að saumnál í hlöðu ríka mannsins“ nefn-
ir Pjetur verk sitt en Þór nefnir skúlptúr sinn Mold.
Inntak tilverunnar er Pétri hugleikið, en verkið er op-
ið til túlkunar, ögrandi og íhugult í senn. Áhorfandinn
horfist í augu við myndina og samspil hennar og titilsins
verður til þess að vekja með honum spurningar. Hvað
gerist ef logandi eldspýta er notuð til að leita í heyi? Er
jafn erfitt að finna sannleika lífsins og saumnál í stórri
hlöðu? Er lífið jafn stutt og logi eldspýtu og vissara að
einbeita sér að kjarna þess og láta efnishyggju lönd og
leið?
Skúlptúrinn eftir Þór Sigmundsson sem heggur í blá-
grýtisstuðlaberg minnir á dauðann, í heilan steininn,
sem frá náttúrunnar hendi er formaður ekki ósvipað og
líkkista að hætti stuðlabergs, er mótaður hjúpur sem líkt
og hylur beinagrind eða líkamsleifar. Hér á Þór bæði
ágæta og síðri spretti í verkinu sem krefst töluverðrar
hæfni en inn á milli tekst þó furðu vel að kalla fram mýkt
í steininum. Kertaljós gefur stemninguna á þessari litlu
sýningu og andrúmsloftið er kyrrlátt þegar stigið er inn
úr amstri dagsins. Ætlunarverkið er að vekja áhorfand-
ann til umhugsunar, listin er hér í hlutverki sem henni
hefur löngum verið ætlað, að veita andrými frá verald-
legu vafstri.
Hold verður mold
MYNDLIST
Grafíksafnið
Til 2. des. Opið lau. og sun. frá kl. 14-18.
Pjetur Stefánsson og Þór Sigmundsson
Ragna Sigurðardóttir
Grafíksafn Íslands
Dúó „Kertaljós gefur stemninguna á þessari litlu sýn-
ingu og andrúmsloftið er kyrrlátt…“
SAGA UM FORBOÐNA ÁST
MEÐ TÓNLIST EFTIR
LAY LOW
„Þetta er falleg sýning... ákaflega
sterk... með því að taka Ökutíma
til sýningar hefur íslenskt leikhús stigið feti framar... LA – þar sem
allt blómstrar og grær... rigna yfir sýninguna stjörnum.” MK, Mbl
„Þetta er stórgóð sýning í einkar vel heppnaðri umgjörð”
EB, Fréttablaðið
„LA nýtur nú vinsælda og virðingar í samfélaginu sem
önnur leikhús mega öfunda það af... mjög vel unnin” JVJ, DV
„Ég er djúpt snortin... Stórkostlegur leiksigur...
mjög áhrifamikil sýning” SLG, RÚV
„stórkostlegan samleik...beint í hjartastað...” IS, Kistan
„djúpt og áhrifamikið... rússíbanaferð... enn einn sigurinn!”
VAJ, landpostur.is
„magnaða sýningu... opnar augu og snertir, leikhús sem
skiptir máli” JJ, Dagur.net
„hittu mann beint í hjartastað... afar snjöll... Akureyringar eru
öfundsverðir af þessari sýningu” SA, TMM
„Þessi sýning nær manni svo sannarlega... lifir virkilega með manni
og vekur mann til umhugsunar ...
LA sýnir mikinn metnað í verkefnavali” ÞES, Víðsjá, RÚV
Afbragðs dómar!
Miðasala: 4 600 200 I netsala: leikfelag.is
ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI!
Í samstarfi við
Næstu sýningar:
30. nóv, 5., 6., 7., 9., 15., 29. og 30. des.
Allt að seljast upp!