Morgunblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bergþór Guð-jónsson fæddist
í Vestmannaeyjum
28. ágúst 1925.
Hann lést á Land-
spítalanum í
Reykjavík 18. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðjón Jóns-
son frá Gömlu
Steinum undir Eyja-
fjöllum, d. 1966, og
Sigurbjörg Guð-
mundssdóttir frá
Þóroddsstöðum í
Reykjavík, d. 1927. Guðjón
kvæntist aftur Rannveigu Eyjólfs-
dóttur frá Mið-Grund undir Eyja-
fjöllum, d. 1982, og ólst Bergþór
upp hjá þeim í Hlíðardal í Vest-
mannaeyjum. Syskini Bergþórs
voru Guðrún Þórðardóttir, f.
1918, Jóhanna M. Guðjónsdóttir,
f. 1923, Ásta S. Guðjónsdóttir, f.
1929, Dóra Steindórsdóttir, f.
1934, og Pálína Gunnlaugsdóttir,
d. 1984.
Hinn 26.9. 1959
kvæntist Bergþór
Gyndu Maríu Dav-
idsen frá Hald-
arsvik í Færeyjum,
f. 1923. Börn þeirra
eru: 1) Sólrún, gift
Róbert Hugo
Blanco, börn þeirra
eru Eva Natalja og
Alexandra Sharon.
2) Guðrún Sig-
urbjörg, gift Birgi
Rögnvaldssyni,
börn þeirra eru
Anna María og
Bergþór Ingi.
Bergþór stundaði sjóinn frá
unga aldri í Vestmannaeyjum og
rak útgerð á Skuld VE 263 í fjölda
ára.
Síðar vann hann við fiskvinnslu
í landi og við netagerð. Einnig
stundaði hann fjárbúskap frá
1983.
Útför Bergþórs fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Elskulegi pabbi okkar.
Mikið er sárt að missa þig. Lífið
verður ekki samt án þín.
En okkur langar til að þakka þér
fyrir hvað þú varst okkur yndislegur
faðir. Það eru forréttindi og okkur til
eftirbreytni að hafa fengið að fylgjast
með því hvernig þú umvafðir mömmu
með kærleika þínum og öryggi og
kallaðir hana drottningu þína, hvern-
ig þú erfiðaðir á sjó og landi svo okk-
ur skorti ekki neitt og hvernig örlæti
þitt gladdi og hressti margan mann-
inn.
Síðustu árin þín hafa verið okkur
sérlega dýrmæt því þá fengum við að
fylgjast með þér lifa í mikilli sátt við
bæði dýr og menn. Þótt þú værir
kominn á eftirlaun hagaðir þú þér
alltaf eins og þú værir í fullri vinnu
þar sem þú varst upptekinn við að
dekra við kindurnar þínar í Dallas-
búinu, flaka glænýja ýsu fyrir hvern
þann sem vildi þiggja og heimsækja
og aðstoða nágranna og vini. Og alltaf
tókstu þér tíma til að láta okkur vita
hvað þú værir stoltur og þakklátur
fyrir að eiga þína elskulegu eigin-
konu og dætur.
Við erum þakklátar fyrir að hafa
borið gæfu til að nýta þann tíma sem
okkur var gefinn saman til að segja
þér einnig hvað við elskum þig mikið.
Í dag kveðjum við þig í hinsta sinn.
Blessuð sé minning þín pabbi minn.
Þínar dætur,
Sólrún og Guðrún.
Elsku afi minn.
Mikið er þín sárt saknað. Ég trúði
því aldrei að þessi dagur myndi svona
fljótt upp renna að ég yrði að kveðja
þig. Það er ekki auðvelt. Þú varst
góður afi. Þú sagðir aldrei mikið við
mig en öll þau ár sem að ég þekkti þig
þá lést þú mig alltaf vita á þinn ein-
staka hátt að ég var mikils metin.
Þegar ég var barn og var í heimsókn
hjá þér og ömmu þá fannstu alltaf
tíma til að eyða með mér.
Ég gleymi aldrei fjölmörgum ferð-
unum upp í kindakofa þar sem við
fórum að gefa rollunum brauð. Rút-
ínan var alltaf sú sama: Fara upp í
kindakofa, en fyrst stoppað við á
bensínstöð og keyptur Tópas. Ég
sagði þér það nú aldrei, en mér þótti
nú Opal betri. En svona voru nú þess-
ar ferðir mér það mikilvægar að teg-
undin á namminu var nú bara auka-
atriði, jafnvel fyrir 6 ára sælgætisgrís
eins og mig.
Ég gleymi heldur aldrei þeim
magnaða spenningi hvert ár þegar
ég, mamma og pabbi vorum að koma
til Eyja til að eyða jólunum með þér
og ömmu. Í mínum huga áttuð þið
heima á himnum því við fórum alltaf
með flugi. Ég held að foreldrum mín-
um hafi nú ekki tekist að sannfæra
mig um annað fyrr en það skiptið er
við neyddumst að taka Herjólf. En
það er engin furða að ég skyldi halda
að þú værir einhver himnavera því þú
varst ekki bara góður afi heldur líka
góð manneskja. Þér var annt um þína
fjölskyldu og þú vildir allt fyrir hana
gera.
Að sama skapi þá var þér líka annt
um alla þá sem að bágt áttu. Ef ein-
hver skortur var hjá Jóni út í bæ þá
varstu alltaf fyrstur til að gera eitt-
hvað í málunum. Hvort sem það var
að gefa mönnum nýflakaða ýsu,
keyra nágrannakonur í hárgreiðslu
eða bjóða ókunnugum unglingum
sem komu á þjóðhátíð að gista í
gestaherberginu því það var svo vont
veður, allt þetta er nú bara brotabrot
af hjálpseminni sem þú áttir til fyrir
marga. Þú kenndir mér ekki einungis
hvernig á að stunda náungakærleik-
ann heldur sannfærðir mig líka um
það að hægt sé að standa fyrir því
sem maður trúir á og stunda góð verk
að sama skapi.
Þú hafðir alltaf mjög sterkar skoð-
anir á hlutunum og lést aldrei fólk í
friði ef þér fannst það hafa gert þér
eða öðrum rangt. Réttlæti skipti þig
miklu máli og þú gafst aldrei upp á að
gera eitthvað í málunum fyrr en þú
varst alveg viss um að þú gætir engu
breytt.
Ég sakna þín svo mikið, elsku afi
minn og ég á svo margar minningar
um þig. Ég sakna þess að sitja með
þér í eldhúsinu og borða harðfisk
með smjöri. Ég sakna þess að sjá þig
sitja í lazy-boy stólnum á áramótun-
um þegar þú bölvar og ragnar yfir
ávarpi forsætisráðherrans. Ég sakna
þess að sjá þig koma heim drulluskít-
ugan frá kindakofanum og heyra
ömmu góla yfir því að þú sért að
ganga inn á skónum. Ég sakna þess
að þurfa ekki að passa mig að segja
bannorðin í kringum þig: kindur og
pólitík. En mest af öllu sakna ég þess
að geta ekki tekið utan um þig og
sagt við þig að sért besti afi sem að ég
hefði getað óskað mér. Megi Guð
geyma þig, og ég lofa þér að ég skal
alltaf vera voða góð við hana ömmu,
ég veit að það skipti þig alltaf mestu
máli.
Þín
Natalja.
Mig langar til að minnast Begga
frænda í nokkrum orðum. Beggi í
Hlíðardal eða Beggi á Skuldinni, var
ýmist kenndur við húsið þar sem
hann ólst upp eða bátinn sem hann
gerði út. Beggi fór ungur til sjós og
reri með föður sínum Guðjóni Jóns-
syni í Hlíðardal og tók síðar við út-
gerðinni og var sjómennskan að
mestu hans ævistarf.
Þó að ég hafi alla tíð þekkt Begga
kynntist ég honum best þegar hann
var hættur útgerð og kominn í land-
vinnu hjá Guðjóni Rögnvaldssyni,
systursyni sínum, og vann þar með
föður mínum. Þá höfðu þeir frændur
á Reykjum og frá Hlíðardal ásamt
nokkrum öðrum hafið saman fjárbú-
skap aftur eftir gosið. Þessi hópur
fjárbænda hefur verið nefndur Dall-
asbændur.
Beggi og faðir minn voru aðalfjár-
hirðar þessara sameignarfjárbænda.
Ég slóst oft í för með þeim í gegn-
ingar eða önnur viðvik þegar ég var
staddur í Eyjum. Kindurnar þekktu
bílana þeirra og komu jafnan á móti
þeim þegar þeir birtust við fjárhúsið.
Smalamennska er því oftast nær
óþörf þar sem kindurnar koma á móti
bændunum þegar þær heyra í þeim.
Þeir hafa einstakt lag á því að gera
skepnurnar að vinum sínum.
Beggi var aðalreddarinn í fjárbú-
skapnum. Ef eitthvað vantaði var
enginn betri en Beggi í að útvega
hlutina.
Það var oft líflegt í kaffispjallinu á
Illugagötunni þar sem Beggi kom við
nánast daglega. Beggi var gæddur
góðri frásagnargáfu og mjög gaman
að heyra lífsreynslusögurnar hans.
Þá var skemmtilegt hvernig hann
kryddaði sögurnar sérstökum
áherslum í frásögninni. Hann var
hreinn og beinn; sagði sínar skoðanir
afdráttarlaust. Ekki hafði hann mikið
álit á ráðamönnum þessa lands og
taldi þá ekki á vetur setjandi ýmist
vegna rangra ákvarðana eða úrræða-
leysis.
Ég minnist með þakklæti allra
þeirra bíltúra sem ég hef farið með
Begga. Hann var mjög fróður um ör-
nefni á Heimaey og úteyjum og oft
fylgdu með sögur um eitthvað sem
tengist þessum stöðum. Þá var hann
veðurglöggur og fylgdist grannt með
skýjafari og hafstraumum. Veður-
spár Begga voru ekki vitlausari en
veðurfræðinganna í sjónvarpinu.
Beggi sýndi mér og mínu bardúsi
alltaf sérstakan áhuga. Alltaf lagði
hann síg í líma við að hitta mig þegar
ég var á ferðinni í Eyjum og oftast
nær færði hann mér nokkur ýsuflök
að skilnaði þegar ég fór til baka.
Ég þakka þér fyrir samveruna,
Beggi, og bið Guð að styrkja Gundu
og dæturnar Sólrúnu og Guðrúnu og
fjölskyldur þeirra.
Jón Grétar.
Er ég sest niður til að skrifa minn-
ingarorð um þig kæri frændi kemur
fyrst upp í hugann að þú hafir alltaf
verið á „vísum stað“.
Beggi frændi hefur alltaf einhvern
veginn verið hluti af tilverunni. Ég
held svei mér þá að honum hafi fund-
ist að hann ætti líka strákana hennar
Ástu systur sinnar. Það segi ég vegna
þess að hann fylgdist alltaf með öllu
sem við vorum að fást við og jafnvel
skammaði okkur ef honum fannst til-
efni til.
Það var í afmæli hjá Begga fyrir
rúmum 25 árum að afráðið var milli
okkar frænda og Reykjabræðra að
stofna félagsskap um fjárbúskap í
Eyjum. Nokkrir í viðbót bættust í
hópinn. Er skemmst frá því að segja
að félaginu var gefið nafnið Dallas
eftir „stórbændum í Ameríku“. Víst
er að Dallas hefur verið rekið af mikl-
um myndarskap og hafa þeir borið
hitann og þungann þeir frændur
Beggi og Maggi. Við hinir vorum
ágætir ef brýna nauðsyn bar til.
Beggi var um margt sérstakur.
Hann gerði engan mannamun. Ef
honum fannst óréttlæti við haft lá
hann ekki á skoðunum sínum og
skipti þá ekki máli hver maðurinn
var. En að sama skapi mátti hann
ekki aumt sjá og fljótur til aðstoðar.
Voru ófáir sem nutu gjafmildi hans.
Gott var að sjá er við komum til
Eyja sl. sumar hve ánægð og sátt þau
hjón voru með nýja heimilið sitt á
Hraunbúðum.
Um leið og við kveðjum kæran
frænda með þakklæti fyrir svo margt
biðum við góðan guð að styrkja og
blessa Gundu sem misst hefur svo
mikið og dætur þeirra og fjölskyldur.
Hörður og Sigrún.
Frá því ég man eftir mér var ég
alltaf í kringum Begga frænda og afa
Guðjón í Hlíðardal. Ég fór með þeim
niður að bryggju í Skuld VE sem þeir
feðgar áttu og gerðu út og í veiðar-
færahúsið auk þess að sinna sauðfénu
sem Beggi hafði mikinn áhuga fyrir
alveg fram til síðasta dags.
Frændi minn hafði mjög gaman af
því að segja frá æsku sinni og þar
spilaði amma Veiga, stjúpa Begga,
stórt hlutverk en hann dáði hana
mikið. Veiðisögur hans úr úteyjum og
af sjónum fengum við ósjaldan að
heyra og ljómaði Beggi allur við
hverja frásögn. Hann var með ein-
dæmum minnugur og þekkti flest ör-
nefni Eyjanna sinna sem voru honum
svo kærar. Í þau skipti sem hann
skrapp upp á land stoppaði hann sem
styst við en Eyjarnar toguðu í hann
eins og segull í stál.
Fyrir þá sem ekki þekktu Begga
gat hann virkað hrjúfur en undir yf-
irborðinu var mikið ljúfmenni sem
ekkert aumt mátti sjá, hvorki hjá
dýrum né mannfólki. Hann var einn
af þessum karakterum sem settu svip
á mannlífið í Eyjum og gerði aldrei
neinn mannamun, nema þegar kom
að stjórnmálamönnum og öðrum
„afætum“ úr Reykjavík, þeim vand-
aði hann ekki kveðjurnar. Beggi
hafði sterkar skoðanir á því sem var
að gerast í Eyjum og var mjög erfitt
að fá hann til að skipta um skoðun og
fór hann ávallt sínu fram.
Beggi umgekkst fjölskyldu mína
mikið alla tíð og ósjaldan leit hann inn
til okkar í kaffi. Eitt kvöldið sem oft-
ar kom Beggi í heimsókn til okkar á
Brimhólabrautina á rauðu Lödunni
sinni. Umræðuefnið þetta kvöld varð-
aði Vinnslustöðina sem honum var
mjög kær enda var faðir hans einn af
stofnendum hennar. Við vorum nú
ekki alltaf sammála um málefni
Vinnslustöðvarinnar og var Begga
talsvert niðri fyrir þegar hann kvaddi
mig þetta kvöld og rauk til síns heima
án þess að fara á bílnum. Daginn eftir
vaknar Beggi við vondan draum þeg-
ar hann sér að Ladan er horfin og
kallar umsvifalaust á lögregluna til
leitar. Eftir mikla leit keyrir lögregl-
an fram hjá Brimhólabrautinni og sér
þá Löduna í innkeyrslunni hjá mér.
Var Begga ósjaldan strítt á þessu
enda flestum óskiljanlegt hvernig svo
minnugur maður gat látið þetta fara
framhjá sér.
Þegar Beggi seldi Skuldina hóf
hann störf við útgerð Hafliða VE en
vann hjá Vinnslustöðinni milli út-
halda en kom svo fljótlega til vinnu
við útgerð okkar Guðna Ólafssonar
heitins. Beggi var vakinn og sofinn
yfir öllum veiðarfærum og öðru sem
sneri að útgerðinni í þau mörgu ár
sem við nutum krafta hans og fyrir
það verð ég ævinlega þakklátur.
Við starfslok var samt sem áður í
nógu að snúast hjá Begga. Hann
sinnti eftir sem áður kindunum sín-
um, ræktaði kartöflur og flakaði fisk
sem hann færði fjölskyldunni og fjöl-
mörgum vinum og kunningjum.
Beggi sótti konuefnið sitt, hana
Gundu, til Færeyja og bjuggu þau
heiðurshjón ásamt dætrunum tveim-
ur á Hásteinsvegi 51 sem Beggi hafði
byggt. Alltaf var ljúft að koma til
þeirra í kaffispjall og nokkrar sögur
við eldhúsborðið.
Guðjón Rögnvaldsson.
Ljóst er að nú er á Heimaey haust.
Þú horfinn ert vinurinn minn.
Á himnum þú vísast átt notalegt naust,
Í nálægð við frelsara þinn.
(Lýður Ægisson.)
Okkur finnst eðlilegt að menn
komi og menn fari en þegar kallið
kemur er maður alltaf óviðbúinn.
Hann Beggi á Skuldinni er dáinn.
Mig setti hljóðan við tíðindin og varð
jafn klökkur og sá sem hringdi. Í
gegnum hugann flaug tonn af minn-
ingum, minningar um allar stundirn-
ar sem ég hafði eytt í návist Begga.
Hver var hann þessi Beggi á
Skuldinni? Fyrir mér var hann fyrst
og fremst stórvinur og félagi.
En Beggi var fyrst og síðast sjó-
maður og skapgerð hans var líkust
sjónum, oftast tjarnslétt, en þó gat
gert stólpabrim, þá var eins gott fyrir
þá sem fyrir voru að „skálka lúg-
ur“og „lensa undan“ en svona pus
stóð aldrei lengi.
Það var fyrir hartnær fjörutíu ár-
um að leiðir okkar Begga lágu sam-
an. Ég var sendur um borð til hans til
að gera við. Þá gerðist eitthvað sem
ég fæ aldrei útskýrt, hversvegna
hann, skipstjórinn og útgerðarmað-
urinn, gerði mig unglinginn að vini
sínum og hefur sú vinátta varað allar
götur síðan.
Að hafa fengið að eyða þessum ár-
um í samfloti með Begga eru forrétt-
indi sem aldrei verða fullþökkuð. Þær
voru margar stundirnar sem við
Beggi áttum saman og ræddum lífs-
gátuna, en þær sögur verða ekki
sagðar hér, þær eru bara fyrir mig og
hann.
Eina verður þó að segja, sem sýnir
hvað Begga gekk vel að fá fólk til liðs
við sig. Það var eitt laugardagskvöld
að síminn hringdi heima hjá mér, ég
var búinn að klæða mig upp í kjólföt
og var að fara á kvöldskemmtun.
Beggi var í símanum og sagði sínar
farir ekki sléttar. Olíufýringin væri
biluð og allt orðið kalt, hvort ég gæti
ekki kíkt á hana, þetta væri örugg-
lega smotterí. Ég dreif mig til hans í
múnderingunni og kom fýrnum í lag
en þetta var í eina skiptið sem ég sá
Begga orðlausan. Hann sagði seinna
að hann hefði aldrei fengið jafn vel
klæddan viðgerðarmann, í kjólfötum
með þverslaufu, og sagðist ekki hafa
vitað að ég ætti svona flottan vinnu-
galla, hvort ég notaði hann bara á
laugardögum?
Eftir að Beggi hætti að vinna þá
tók hann upp þann sið að fara á
bryggjurnar og fá fisk hjá þeim sem
voru að landa. Beggi flakaði fiskinn
síðan og dreifði meðal vina og kunn-
ingja og var ég einn af þeim mörgu
sem nutu góðs af að fá spyrðu af fiski
á hurðarhúninn.
En nú er hurðarhúnninn auður og
hann Beggi er farinn í sinn síðasta
róður og siglir á ókunnum miðum ei-
lífðarinnar. En minningin um góðan
dreng lifir, góðar stundir í þúsundav-
ís þar sem aldrei var hallað á neinn.
Í hjartanu er enginn efi
hið efra bíður höfnin vís.
Ljúfa hvíld nú guð þér gefi,
á góðum stað í paradís.
(Lýður Ægisson.)
Við Guðrún vottum fjölskyldu
Begga okkar dýpstu samúð.
Þórarinn Sigurðsson.
Frá því ég man eftir mér höfðu
Beggi og Gunda alltaf búið í þar-
næsta húsi. Það voru ófá skiptin sem
við systurnar kíktum á þau, Gunda
bauð upp á girnilegar kræsingar á
meðan Beggi talaði við okkur um
daginn og veginn. Beggi var alltaf
mikill dýravinur og áttu þau hjónin
einn kött og margar kindur, þótt
Beggi sæi nú alfarið um kindurnar.
Það voru nú ófá skiptin sem farið var
upp í Dallas að gefa kindunum og
þegar þær sáu bílinn hans Begga
hlupu þær til hans. Kindurnar voru
ótrúlega hændar að honum og þekkti
hann hverja og eina með nafni.
Beggi var mjög duglegur og hugs-
aði vel um sína. Hann kom oft heim
með flakaðan fisk handa mömmu og
sendi einnig ömmu í Garðabænum
fisk.
Fyrir nokkru síðan fluttu Beggi og
Gunda á Hraunbúðir. Það kom samt
aldrei til greina að selja húsið og ætl-
aði Beggi að flytja þangað einhvern
tíma aftur. En það gerist víst ekki.
Seinustu áramót var heldur þröngt á
þingi heima hjá mömmu og pabba og
var mikið um gesti. Beggi var þá svo
góður að bjóða mér og kærasta mín-
um afnot af húsinu þeirra Gundu. Það
var mjög gott að dvelja smá tíma í
húsinu þar sem ég hafði eytt svo
miklum tíma þegar ég var lítil stelpa
og kallaði það fram margar góðar og
skemmtilegar minningar.
Ég vil votta Gundu, Sollu, Guðrúnu
og fjölskyldum þeirra samúð mína og
ég bið Guð um að styrkja ykkur í
sorginni.
Ásta Sigríður Guðjónsdóttir.
Bergþór Guðjónsson
Kæri Beggi. Guð á himnum
mun ábyggilega taka vel á
móti þér. Þökk fyrir allt.
Þín vinkona,
Edith.
HINSTA KVEÐJA
Fleiri minningargreinar um Berg-
þór Guðjónsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800