Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 51
gekk í með Pálma og gömlu hjón-
unum, en það voru oftast kölluð í
daglegu tali. Elskuleg fyrirmannleg
hjón, þar sem alltaf svaf upphring-
aður malandi köttur á uppbúnu
rúmi.
Annað sumarið mitt þarna var
fyrsta barnið komið í heiminn og síð-
an komu þau hvert á eftir öðru þann-
ig að þegar ég var um 9 eða tíu ára
voru þau orðin 3 eða fjögur og þá
hætti ég að vera í sveit. Eftir á að
hyggja skilur maður varla hvernig
fólk réð við alla þá vinnu sem bú-
störfunum fylgdi og allt var unnið
heima og verið að stækka tún og bú-
stofn, byggja hús, hlöður og gripa-
hús og ala önn fyrir stórum barna-
hópi. Sjö börn á ellefu árum. Þá var
mór notaður til eldiviðar ásamt með
því sem stungið var út úr fjárhúsum
og í öllu þessu tók ég þátt lítil telpa.
Mjólkina þurfti svo að fara með út á
brúsapall yfir Laxá á Ásum fyrst
með hestakerru, en þvílík sæla þeg-
ar traktor kom á bæinn. En allt gekk
þetta og það mjög vel, því börnin
komust öll upp og eru myndarfólk og
skilja þau hjón Aðalbjörg og Pálmi
nú eftir sig stóran glæsilegan ætt-
boga.Ég votta þeim öllum samúð og
flyt kveðjur frá aldraðri móður
minni og mínu fólki.
Síðustu ár í ævi þessarar góðu
frænku minnar voru henni erfið sem
mildar sársaukann við að sjá á bak
henni. En minning hennar lifir og ég
veit að hún hefur fengið góða heim-
komu.
Hvíl í friði, kæra frænka.
Ásdís Hannesdóttir.
Á mínum fyrsta kvenfélagsfundi
fyrir um 40 árum vakti athygli há-
vaxin og myndarleg kona sem stóð
upp, setti fund og stjórnaði mynd-
uglega. Þetta var Aðalbjörg í Holti.
Mér þótti sérstakt að í þessu litla og
fámenna félagi voru viðhöfð fundar-
sköp. Hún var formaður kvenfélags-
ins Vonarinnar í Torfalækjarhreppi
um árabil og stjórnaði af skörungs-
skap og lagði að okkur ungu kon-
unum í sveitinni að ganga í kven-
félagið, sem við margar gerðum.
Þá eins og nú beittu kvenfélögin
sér fyrir mörgum framfaramálum,
ekki síst varðandi menningar- og
líknarmál, og voru frumkvöðlar að
ýmsu sem þykir sjálfsagt í nútíma-
samfélagi.
Heimilisiðnaðarsafnið naut lið-
sinnis Aðalbjargar meðan kraftar
leyfðu.
Ásamt öðrum konum tók hún virk-
an þátt í að sýna skólabörnum hand-
brögð við meðferð ullar eins og tíðk-
uðust á fyrri hluta síðustu aldar,
þegar tekið var ofan af, kembt og
spunnið. Það er ómetanlegt fyrir
safnið að eiga aðgang að konum sem
miðlað geta af sínum viskubrunni til
ungu kynslóðarinnar.
En það var í fleiru en kvenfélags-
störfum og safnamálum sem leiðir
okkar Aðalbjargar lágu saman. Við
vorum grannar.
Aðalbjörg og Pálmi bjuggu nær
allan sinn búskap í Holti og var tölu-
verður samgangur á milli bæjanna
Holts og Torfalækjar. Bændafólk
eftirstríðsáranna lifði tímana tvenna,
mestu byltingu sem orðið hefur í
landbúnaði frá upphafi byggðar á Ís-
landi – þau tóku skrefið úr torfbæ
inn í tækniöld.
Í Holti var mannmargt heimili og
eftirtektarvert hve þau hjón sinntu
vel búi sínu, fjölskyldu, aðkomubörn-
um og öðrum sem áttu leið hjá garði.
Aðalbjörg lærði saumaskap á
yngri árum og þrátt fyrir að sinna
búverkum og myndarlegu heimilis-
haldi urðu flíkurnar til á svipstundu.
Eftir að hún flutti í íbúðir fyrir aldr-
aða á Blönduósi átti hún margar
ánægjustundir í föndurstarfi og hafa
börnin og barnabörnin notið góðs af
verkum hennar.
Tíminn líður og við sem vorum
einu sinni ungar konur í kvenfélagi
erum orðnar fullorðnar. Það er dýr-
mætt þegar gangur lífsins er vegferð
frá æsku til elli. Við kvenfélagskonur
færum aðstandendum Aðalbjargar
samúðar- og saknaðarkveðjur.
Við leiðarlok fylgja hlýjar kveðjur
til fjölskyldunnar allrar frá fjöl-
skyldunni á Torfalæk með þökk fyrir
langa samfylgd.
Elín S. Sigurðardóttir.
✝ Alda Björk Kon-ráðsdóttir fædd-
ist á Tjörnum í
Sléttuhlíð í Skaga-
firði 8. september
árið 1942. Hún lést
á Heilbrigðisstofn-
uninni á Sauð-
árkróki miðviku-
daginn 21.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar eru Konráð
Ásgrímsson, f.
1917, d. 2000, og
Guðrún Þorsteins-
dóttir, f. 1918, sem dvelur nú á
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Systkini Öldu eru Eyjólfur Eð-
vald, f. 1944, Þorsteinn Ingi, f.
1948, Ólöf Sigrún, f. 1950, Ómar
Bragi, f. 1950, d. 1952, Guðlaug
Verónika, f. 1955, og Ásgrímur
Bragi, f. 1962.
Alda giftist 1. desember árið
1964 Jóni Trausta Pálssyni frá
Laufskálum, f. 5. janúar 1931.
Foreldrar Trausta voru Páll Jóns-
son, f. 1896, d. 1981, og Guðrún
Gunnlaugsdóttir, f. 1905, d. 1992.
Börn Öldu og Trausta eru: 1)
Linda, kennari, f. 1965, gift
Hjalta Vésteinssyni, bónda og tré-
smið. Þau eru búsett á Fellsenda í
Dalabyggð og börn þeirra eru
Erna, f. 2001, og Atli f. 2004. 2)
Edda, hjúkr-
unarfræðingur, f.
1968, gift Birni Jó-
hanni Björnssyni
blaðamanni. Þau er
búsett í Reykjavík og
börn þeirra eru Ar-
on Trausti, f. 1995,
og Tinna Birna, f.
2000. 3) Páll Rúnar,
f. 1976, vélstjóri, sem
býr á Akureyri.
Alda ólst upp í
Sléttuhlíð og á Höfð-
aströnd í Skagafirði.
Hún fór ung að
heiman og vann ýmis verslunar-
og þjónustustörf, m.a. á Sauð-
árkróki og í Reykjavík, en er hún
hafði kynnst Trausta hófu þau bú-
skap á Laufskálum árið 1964. Eft-
ir að þau brugðu búi árið 1982
starfaði Alda við Bændaskólann á
Hólum í ein 15 ár, en á Hólum
bjuggu þau til ársins 1999 er þau
fluttu á Sauðárkrók. Þar vann
Alda í fiskvinnslu og síðar á Heil-
brigðisstofnuninni, eða þar til hún
varð að láta af störfum sökum
veikinda í febrúar sl. Á árum sín-
um í Hjaltadal var Alda lengi virk
í kvenfélaginu og söng um árabil í
kirkjukór Hóladómkirkju.
Útför Öldu fer fram frá Sauð-
árkrókskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Hinn illvígi sjúkdómur hefur lagt
tengdamóður mína að velli á besta
aldri, aðeins níu mánuðum eftir að
sjúkdómurinn greindist. Tíðindin þá
voru mikið reiðarslag fyrir fjöl-
skylduna, skömmu eftir að tengda-
faðir minn hafði lokið krabbameins-
meðferð sem bar góðan árangur.
Fráfall Öldu nú er enn þyngra högg
fyrir okkar litlu fjölskyldu, þó að
vissulega hafi verið ljóst um tíma í
hvað stefndi. Allt of fljótt er farin
frá okkur ástkær amma, tengda-
móðir, móðir og eiginkona sem við
kveðjum í dag með sárum söknuði.
Við getum huggað okkur við hlýjar
og góðar minningar sem streyma
fram í hugann.
Leiðir okkar Öldu hafa legið sam-
an alveg frá jólunum 1990 þegar
hinn tilvonandi tengdasonur var
kynntur í jólaboði fjölskyldunnar á
Hólum. Kvíðinn fyrir þann fyrsta
fund með foreldrum Eddu er enn
ótrúlega lífseigur í minningunni og
ekki dró svo sem úr honum er ég sá
rjúpur á borðum, eitthvað sem mað-
ur hafði ekki smakkað áður. Auðvit-
að reyndist þessi kvíði algjörlega
óþarfur, frá fyrstu stundu tóku þau
Alda og Trausti mér vel og rjúp-
urnar runnu ljúft niður! Alda var
sönn húsmóðir, framúrskarandi
kokkur og góður gestgjafi heim að
sækja. Matarveislum snaraði hún
fram án mikillar fyrirhafnar.
Alda var ekki mikið fyrir að trana
sér fram og fann sig betur í góðra
vina hópi en fjölmenni. Engu að síð-
ur var hún ákaflega léttlynd og
hláturmild og sá oft spaugilegu hlið-
ar tilverunnar. Hún lá ekkert á
skoðunum sínum um menn og mál-
efni og gat verið ákveðin ef því var
að skipta. Hún var samviskusöm og
vildi hafa allt í röð og reglu í kring-
um sig, óstundvísi og óskipulag var
henni ekki að skapi og því var hún
eftirsóttur og eljusamur starfskraft-
ur.
Bústaðurinn Laufás í Hjaltadaln-
um var hennar sælureitur, sem þau
Trausti hafa byggt upp af sönnum
myndarskap í túnjaðri Laufskála.
Helst vildi hún verja öllum sínum
frítíma í Laufási, ekki síst á sumrin,
og þar skilur hún m.a. eftir sig fal-
leg blómabeð og trjárækt sem
nostrað hefur verið við. Fátt þótti
barnabörnunum skemmtilegra en
að vera með ömmu sinni í Laufási
og fá að hjálpa til við garðyrkjuna. Í
dalnum vildi hún einnig alltaf vera
þegar Laufskálaréttir fóru fram á
haustin og hrossin voru rekin niður
Ásinn.
Nú er komið að leiðarlokum. Alda
tók sínum veikindum af æðruleysi
en auðvitað var hún ósátt við að fá
þennan dóm þetta ung í raun.
Læknavísindin hafa því miður ekki
ráð við öllu og á lokaspretti barátt-
unnar, sem var snöggur, varð hún
að lúta í lægra haldi. Eftir allt sem
á undan hafði gengið fékk hún kær-
komna hvíld og við okkur hinum í
fjölskyldunni blasir fábrotnari til-
vera án hennar.
Minningarnar lifa um góða mann-
eskju og fyrir samveruna og stuðn-
inginn við okkur Eddu og krakkana
í gegnum tíðina þökkum við af heil-
um hug. Megi Guð einnig gefa
Trausta styrk á erfiðum tíma núna
þegar aðventan gengur í garð og
mesta skammdegið er fram undan.
Ljósin verða kveikt í hjörtum okkar
og hýbýlum í minningu ömmu Öldu
og tengdamóður.
Björn Jóhann.
Meira: mbl.is/minningar
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku amma Alda. Við viljum
þakka þér fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman.
Skemmtilegast var að vera með þér
í sumarbústaðnum í Laufási og
hjálpa til við kartöflugarðinn, trén
og blómin, sem við ætlum nú að
vökva og hugsa um fyrir þig, og
vera dugleg að hjálpa afa Trausta.
Þér leið best í Laufási og þín verður
sárt saknað þar og einnig í Hásæti
þegar við komum að heimsækja afa
á Krókinn.
Nú ertu hjá Guði og við vitum að
þér líður vel og ert ekki lengur veik.
Takk fyrir allt, elsku amma. Guð
geymi þig og gefi líka afa Trausta
styrk í sorginni.
Aron Trausti, Tinna
Birna, Erna og Atli.
Þegar vinir hverfa brott úr þess-
um heimi vakna minningar um liðn-
ar samverustundir. Þannig varð
mér við er ég frétti andlát Öldu
Bjarkar Konráðsdóttur. Kynni okk-
ar hófust haustið 1984 á Hólum í
Hjaltadal, en þar störfuðum við
saman um árabil. Alda og Trausti
höfðu þá nýlega hætt búskap að
Laufskálum í Hjaltadal og hafið
störf við Hólaskóla, Alda við ræst-
ingar og Trausti sem fjósamaður.
Búskapur þeirra að Laufskálum var
annálaður fyrir snyrtimennsku og
afurðasemi.
Hólaskóli var á þessum tíma að
eflast og starfsfólkið mjög samheld-
ið. Það var líkast stórri fjölskyldu.
Þau Alda og Trausti voru mikilvæg
í þeim félagsskap.
Störf sín vann Alda af alúð og
dugnaði og var góður vinnufélagi,
en hún vann bæði við ræstingar og í
þvottahúsi skólans. Hún var létt í
máli og sagði skoðanir sínar hreint
út, svo ekki var efast um hvað hún
meinti. Það var notalegt að líta við í
kaffi til hennar og spjalla um marg-
vísleg málefni, því alltaf var heitt á
könnunni og meðlætið vantaði ekki.
Alltaf var skapið létt þegar heim-
sókninni lauk. Hún kenndi mér hið
sérstaka orðfæri Skagfirðinga, þeg-
ar hún sagðist „ætla að skreppa
yfrum í dag og líta á kunningja fyrir
handan“. Ég leit snöggt á hana og
spurði hvað hún ætti við. Þá hló
Alda að heimsku minni, því hún ætl-
aði bara að skreppa á Sauðárkrók
og líta á kunningja sína þar.
Alda var söngelsk og söng sópran
með kirkjukór Hóladómkirkju með-
an hún bjó í Hjaltadalnum. Þar var
hún traustur félagi.
Hún var útsjónarsöm húsmóðir,
sem kom sér sérstaklega vel þegar
haldið var upp á 60 ára afmæli
Trausta, 5. janúar 1991. Þá geisaði
stórhríð eins og þær geta verstar
orðið í Skagafirði og fór rafmagnið
af sveitinni. Þrátt fyrir það var sleg-
ið upp stórveislu við kertaljós í litlu
íbúðinni á Hólum. Það var sann-
arlega hátíðleg kvöldstund, sem við-
staddir muna lengi.
Þau Trausti fluttu frá Hólum í
fallegt nýtt einbýlishús við Hásæti á
Sauðárkróki, sem byggt var af
byggingafélagi eldri borgara. En
tryggð héldu þau við Hjaltadalinn,
því þau byggðu sumarhús á falleg-
um stað í Ásnum fyrir ofan Lauf-
skála, þar sem gott er að njóta sól-
bjartra sumardaga.
Að leiðarlokum vil ég þakka Öldu
fyrir ánægjuleg kynni og samstarf á
Hólum. Trausta, Lindu, Eddu, Páli,
tengdasonum og barnabörnum
votta ég mína innilegustu samúð.
Valgeir Bjarnason.
Lífsgöngu Öldu Bjarkar er lokið
allt of fljótt.
Húmorinn Öldu og hláturinn skæri,
hugsvölun veitti þeim sem var
staddur í námunda, næmleikann mæri,
nú ríkir sorg yfir ranninum þar.
Það þarf ekki mörg orð til að lýsa
þeirri öðlings- og gæðakonu sem
Alda var, eiginkona, móðir og
amma. Matarboð Öldu og Trausta í
Laufskálum voru meiriháttar. Alda
var ánægðust þegar hún sá að gest-
um hennar leið vel. Ég fullyrði að
matseld hennar ásamt innileika í
allri framkomu gerði þeim sem voru
svo heppnir að njóta veitinga í húsi
þeirra dvölina bæði ógleymanlega
og ánægjuríka. Sama gestrisnin og
gleðin fylgdi henni hvar sem hún
fór. Í Hásæti 11 leið henni vel þar
til örlögin kvöddu óþægilega dyra.
Alda háði vonlausa baráttu með ein-
stöku jafnaðargeði og kvaddi sátt.
Öldu héðan sárt við söknum,
samfélags er mikið skarð.
Örskjótt þegar upp við vöknum
engill brautu fara varð …
Stjarna í hópi vina var,
víðsýn, fróð um bögur.
Margt svo göfugt með sér bar
mærin yndisfögur …
Það fer vel á því að kveðja Öldu á
degi fullveldisins. Við Edda þökkum
frábær kynni og sendum Trausta,
börnum og venslafólki innilegar
samúðarkveðjur. Minningin lifir.
Pálmi Jónsson, Sauðárkróki.
Alda Konráðsdóttir starfaði um
margra ára skeið við Hólaskóla
ásamt eiginmanni sínum Trausta
Pálssyni. Á þessum tíma tóku þau
hjónin virkan þátt í starfi skólans
og samfélagi nemenda og starfs-
manna á staðnum. Meðal starfa
Öldu var umsjón með þvottahúsi
skólans og einnig störf við mat-
reiðslu og ræstingar. Naut sín þar
vel vandvirkni og samviskusemi
hennar í öllum störfum.
Að jafnaði var glatt á hjalla í
kringum Öldu þótt hún kysi að hafa
aga og reglu á hlutunum. Hún var
lagin í höndunum og undi sér vel við
saumaskap og aðrar hannyrðir.
Nýttist það vel í starfi hennar, þeg-
ar gera þurfti við flíkur, sauma
gardínur eða jafnvel sauma slátur-
keppi. Á haustin tók Alda ávallt þátt
í árlegri sláturgerð fyrir mötuneyti
skólans en þá var þvottahúsinu
breytt í sláturgerðarmiðstöð í
nokkra daga. Sá hún um að sauma
vambirnar í sérstakri saumavél. Var
þá margt skrafað, skemmtisögur
sagðar og fyrir kom að hópurinn
gerði sér glaðan dag að sláturgerð
lokinni.
Samstarfsfólk Öldu á Hólum
minnist hennar með þakklæti fyrir
farsælt samstarf og ánægjulega
samveru um árabil. Trausta og öðr-
um aðstandendum vottum við inni-
lega samúð.
Guð styrki ykkur í sorg ykkar.
Fyrir hönd samstarfsfólks á Hól-
um í Hjaltadal.
Skúli Skúlason.
Nú er aðventan gengur í garð,
verður mér hugsað til kirkjukórs
Hóla- og Viðvíkursóknar og allra
kóræfinganna í Hóladómkirkju, en
þar stóðum við Alda saman og
sungum báðar sópran. Sungið var á
aðventukvöldum í nokkrum kirkjum
fyrir utan messur og samkomur á
Hólum og í Viðvík. Rögnvaldur spil-
aði og stjórnaði lengst af. Þarna var
Alda einn af föstu punktunum enda
var hún söngvin og samviskusöm
eins og í öllu öðru sem hún gerði.
Þetta voru ljúfar og skemmtilegar
stundir.
Alda var myndarleg í öllu sem
hún tók sér fyrir hendur, hvort sem
var á heimili eða í vinnu. Það lék allt
í höndunum á henni, saumar, elda-
mennska, garðvinna og síðar, er þau
hjónin komu sér upp bústað í ásnum
fyrir ofan Laufskála, var nostrað
þar við allt og sérstaklega mynd-
arlega að öllu staðið eins og alltaf á
þeirra heimili.
Í vinnu var hún nákvæm, sam-
viskusöm og sérstaklega dugleg.
Alda hafði gaman af því að slá á
létta strengi og gera að gamni sínu
og hlæja dátt og innilega. Oft var
glatt á hjalla í eldhúsinu á Hólum í
smá kaffisopa og spjalli og hlátra-
sköllin glumdu. Margs er að minn-
ast frá þessum tíma í þessu góða
samfélagi á Hólum. Ýmislegt var
brallað í frítímanum og saman fór-
um við á ýmis námskeið t.d. bók-
band, vefnað og keramik.
Mér finnst þessi kveðjustund
ótímabær, en ljúfar minningar
munu lifa. Við fjölskyldan þökkum
Öldu innilega fyrir samfylgdina og
sendum Trausta og fjölskyldunni
innilegar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Öldu.
Ingibjörg Sólveig
Kolka og fjölskylda.
Alda Björk
Konráðsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar