Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Eftir Gunnar Kristjánsson S íldarævintýrið á Grund- arfirði virðist engan enda ætla taka. Frá því í októbermánuði hafa komið upp úr firðinum hátt í hundrað þúsund tonn af síld. Á firðinum sem ekki er mjög stór að flatarmáli hafa verið allt upp í 15 síldveiðiskip samtímis og þar hafa fengist stærstu síldarköst samtímans, töluvert yfir 1000 tonn í einu kasti. Fréttaritari Morg- unblaðsins sem horft hefur úr landi á ævintýrið gerast, fékk tækifæri til þess sl. fimmtudag að komast í návígi við síldarflotann. Þegar siglt var út á fjörðinn á smábátnum Þorleifi SH 120 laust eftir hádegi þennan fimmtudag voru 8 skip á firðinum og þegar komið var á slóðina sem var austar og norðar en undanfarið reyndust tvö þeirra búin að kasta og fljót- lega, eða um kl. 15, voru voru öll búin að kasta nema Vilhelm stóri Þorsteinsson sem gárungarir eru farnir að kalla Betlehem af því að hann fær aðeins síld úr nót frá öðr- um, dólar á miðjum firði og bíður eftir kalli. Frystiskipið Guðmundur VE er með álitlegt kast á síðunni þegar við rennum upp að honum og strákarnir um borð kampakátir. Þeir biðja okkur fyrir stígvél í land sem þeir tóku í misgripum sl. þriðjudag þegar Guðmundur VE losaði sig við frysta síld á nýja frystihótelið í Grundarfirði, og sumir strákarnir notuðu tækifærið og litu aðeins á stelpurnar í fisk- vinnslu Guðmundar Runólfssonar en fóru burt með rangan fótabún- að. Fréttaritari heyrði í Sturlu Ein- arssyni skipstjóra um borð í gegn- um farsíma þegar ljóst var orðið að ekki kæmumst við þar um borð, og lét hann vel yfir veiðunum á firð- inum sem hann sagði vera algjört ævintýri en því færi senn að ljúka hjá þeim að sinni, því skipið væri á leið í vélarupptekt eftir helgina. Kastað með hvelli Þegar við héldum frá Guðmundi VE nær landi í átt að Súlunni EA, sem var að draga nótina nokkru sunnar, lóðaði mikinn á dýptarmæl- inum um borð í Þorleifi og Sig- hvatur Bjarnason VE sem fengið hafði búmm-kast áðan (tóm nót) og var kominn á siglingu fyrir aftan okkur, lét nú nótina vaða með hvelli og flauti og sigldi hana síðan út í hring og svæðið sem hann hafði til þess virtist ekki stórt. Hvellurinn sem heyrðist var þegar skotið var út einskonar fallhlíf sem fer í sjóinn og veitir mótstöðu til þess að draga nótina af stað frá borði. Þegar hann er kominn hring- inn er tekið til við að draga inn nótina og fljótlega er ljóst að þetta er ekkert búmm. Það tekur ekki langan tíma að draga inn nótina og fljótlega er sjórinn innan hennar orðinn iðandi af silfri hafsins, dælunni sökkt nið- ur við skipshlið og byrjað að dæla. Þetta er svona 400–500 tonna kast, segir Helgi Valdimarsson skipstjóri þegar við komum þar um borð. „Þetta hefur yfirleitt verið mjög góð síld sem við höfum verið að fá, ætli við séum ekki búnir að taka svona sex til sjö þúsund tonn hérna úr firðinum og um 8000 tonn alls, kvótinn er líka langt kominn hjá okkur.“ Alger sæla „Þetta er léttasta síldarvertíð sem við höfum verið á,“ segja nokkrir hásetar sem stinga sér inn og fá sér kaffisopa meðan verið er að dæla síldinni. Þeir ræða sín á milli um upplifunina af því að vera á innfjarðaveiðum eins og þeir hafi svo oft heyrt um. „Blessaður þetta er algjör sæla,“ segja þeir, „engin úthafsbræla og leiðindi.“ Í ljós kemur þegar málin eru rædd að þeir á Sighvati hafa verið heppnir þótt veitt sé á grunnu vatni, aðeins fest nótina einu sinni í gjá sem myndaðist á sjávarbotni innarlega á firðinum þar sem sand- dæluskipið Perlan sótti efni í land- fyllinguna við hafnarsvæðið í Grundarfirði en á þeirri landfyll- ingu stendur einmitt frystihótelið í dag. En það slapp allt saman vel, segja þeir félagar. Helgi skipstóri sem kemur að í þessu til að slokra úr einum kaffibolla bætir því við að þeir séu nú ekki lengur að nota hefðbundna síldarnót heldur loðnu- nót sem sé miklu styttri í föðmum talið. Við fengum líka okkar stærsta síldarkast hér á firðinum, 1100 tonn, bæta hásetarnir við kampakátir. Það kemur í ljós að á sumum síldveiðiskipunum á firðinum dunda hásetarnir sér við að halda úti bloggsíðu þar sem þeir segja frá upplifun sinni af síldarævintýrinu. Einn þeirra, Þorbjörn Víglundsson háseti á Guðmundi VE skrifar á síðu sinni 123.is/tobbivilla: „Þetta haust hefur tekið á sig allt aðra mynd en maður var með í hug- anum. Aldrei átti maður von á því að liggja í mokveiði inn á Grund- arfirði allt haustið.“ Loksins á að fara að rannsaka undrið Það er kominn tími til að kveðja og halda til lands og horfa á leið- inni á lóðningarnar á dýptarmæl- inum. Runólfur Guðmundsson, fyrrverandi skipstjóri sem er sér- legur leiðsögumaður fréttaritara og Kristján Torfason eigandi Þorleifs SH, eru á því lóðningarnar hafi verið miklu þéttari á síðasta ári. Það er svo spurning hvort sagan endurtaki sig að ári liðnu en eitt er víst að það hefur ekki mikið farið fyrir fiskifræðingum til þessa til þess að rannska hvað hér sé að gerast. En viti menn um það leyti sem fréttaritari stígur á land í Grund- arfirði er stálbáturinn Sproti að tygja sig til farar út á fjörðinn til rannsóknarstarfa á vegum Haf- rannsóknastofnunar. Freyr Jónsson skipstjóri segist hafa fengið það verkefni að kanna með bergmáls- mælingum stærð síldarstofnsins í Grundarfirðinum og síðan inn undir Kolgrafarfjörð, einnig á svæðinu innan við Stykkishólm á Breiða- sund, þar sem síld veiddist um dag- inn og alla leið inn í Hvammsfjörð þar sem sést hefur til síldar inni í höfninni í Búðardal. Freyr sagði að fregnir hefðu borist af stórri síld- artorfu í Kolluálnum norðarlega á Breiðafirði og væru áform uppi um að Bjarni Sæmundsson færi á þær slóðir eftir að þeir á Sprota hefðu lokið sínum mælingum. Sem sagt síld og aftur síld og nú á loks að fara að rannsaka málið. Þægilegasta vertíðin sem við höfum upplifað Í návígi við síld- arflotann inni á Grundarfirði Kastað Karlinn í brúnni á Sighvati Bjarnasyni, Helgi Valdimarsson, stjórnar aðgerðum föðurlegur á svip. Uppi í kálgörðunum Skipin kasta nótunum alveg uppi í landsteinunum í Grundarfirði. Myndin var tekin í froststillum um helgina þegar mörg síldveiðiskip voru á veiðum í firðinum. Silfur hafsins Síldinni dælt um borð og hásetarnir á Sighvati Bjarnasyni VE sjá til þess að hún fari á réttan stað í lest. Návígi Það er ekki orðið langt í fjöruborðið þegar síldveiðiskipin kasta á síldina. Hér er Klakk- ur í baksýn. Það er samt mesta furða hvað þeim tekst að komast hjá vandræðum. Ánægður Engin bræla hér inni á firðinum, eintóm sæla. Skipverjar eru ánægðir á innfjarðarveiðum á síld. Í HNOTSKURN »Í fyrra haust fylltist Grund-arfjörðurinn af síld og í haust var hún komin aftur. Að þessu sinni fylgdi síldveiðiflotinn á eft- ir henni og hefur nú mokað upp hátt í hundrað þúsund tonnum. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.