Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN VINKONA mín sem er bæði vitur og skarpskyggn sagði nýlega að Litlu negrastrákarnir hans Muggs hefðu trúlega átt sinn þátt í því að hér á landi hefði aldrei skapast andúð í garð svarta kyn- stofnsins. Ástæðan væri sú að margar kyn- slóðir íslenskra barna hefðu haft svo ánægju- leg kynni af þessum litlu hrakfallabálkum sem hefðu þá skemmti- legu náttúru að koma allir aftur eftir að hafa lent í skondnum hremmingum. Við vinkonurnar eig- um uppkomin börn og slatta af barnabörnum auk þess sem við höfum lengi stundað kennslu. Ég hef aldrei heyrt þessa skjólstæðinga mína fara niðrandi orðum um fólk af öðrum lit- arhætti og í rauninni held ég kyn- þáttahatur sé börnum framandi. Sá háski býr í fullorðnu fólki sem telur sig vera afskaplega meðvitað en vílar þó ekki fyrir sér að kaupa ofbeldis- leikföng handa börnum sínum og halda að þeim vafasömu myndefni. Í umræðunni um Negrastrákana hefur ýmislegt skondið komið fram. Einn bókmenntafræðingurinn full- yrti t.d. að Muggur hefði áreiðanlega verið heimsvaldasinni og margverð- launaður rithöfundur fann bókinni sitthvað til foráttu en merkilegt nokk kom eftir hann hálfgerð stæling á bókinni þar sem þess var gætt að kenjakrakkarnir hans væru mislitir. Hann verður því ekki stimpl- aður heimsvaldasinni heldur meðvitaður um þann háska sem hvílir yfir börnum heimsins. Þar sem nafnið mitt hefur tengst þessari 6. útgáfu Negrastrákanna vil ég taka fram hvernig hana bar að, ekki síst þar sem enn er dylgjað um tilurð hennar. Þeg- ar ég starfaði fyrir nokkrum árum fyrir Eddu-útgáfu stakk ég því að einum útgáfustjóranum að tímabært væri að þessi bók kæmi enn og aftur fyrir sjónir íslenskra barna en hún hefði löngu verið ófáanleg. Útgáfan af- þakkaði boðið á þeim forsendum að hún vildi ekki kalla yfir sig leiðinlega umræðu. Nokkrum árum síðar kynntist ég ungum manni sem vann við bókaút- gáfuna Skruddu og kom hugmynd- inni á framfæri við hann. Þar á bæ höfðu menn kjark til að ögra ímynd- uðum brigslum um kynþáttahatur og gerðu bókina vel úr garði. Henni var innilega fagnað af gömlum vinum enda þótt móðursýkisleg umræða fylgdi í kjölfarið og vænar konur hefðu samband við mig og vottuðu mér samúð fyrir það herfilega glappaskot að særa nýfædd blökku- börn úti í Ameríku. Hins vegar er ég stolt af þessu framtaki mínu og Skruddu og ber brigður á heims- valdastefnu Gunnars afa míns, sem skrifaði textann, og Muggs ömmu- bróður míns sem gerði þessar ynd- islegu myndir sem leiftra af kímni og mannkærleik og birtast í öllu hans lífsverki. Sögusögnum um fjárhags- legan hagnað vísa ég á bug enda átti hvorki ég né nokkur annar umrædd- an höfundarrétt. Um dökka hrakfallabálka og mislita kenjakrakka Guðrún Egilson fjallar um endurútgáfu Negrastrákanna » Þar á bæ höfðu mennkjark til að ögra ímynduðum brigslum um kynþáttahatur og gerðu bókina vel úr garði. Guðrún Egilson Höfundur er kennari við Verzl- unarskóla Íslands og rithöfundur. SAMFYLKINGIN hafði það sem eitt helsta baráttumálið í suðurhluta Norðvesturkjördæmis fyrir alþingiskosningar sl. vor að veggjald í Hvalfjarðargöng yrði aflagt. Flokkurinn lagði ofuráherslu á þetta á því svæði og lofaði því að ef flokkurinn ætti aðild að ríkisstjórn eftir kosningar yrði gjaldið lagt af. Málflutning- urinn var skreyttur, frambjóðendur tóku sér stöðu við göngin og ráku áróður gagnvart vegfarendum. Áber- andi áróður var settur upp á Akra- nesi þar sem m.a. var vegið ómaklega að fyrrverandi samgönguráðherra vegna málsins. Efndir kosningaloforða Nú er Samfylkingin í ríkisstjórn og lítið hefur bólað á efndunum, þrátt fyrir að samgönguráðherrann komi úr röðum Samfylkingarinnar. Nú er það svo að Spölur hf. á og rekur Hvalfjarðargöngin og hefur lög- bundna heimild til að innheimta veggjald af þeirri umferð sem fer um göngin. Samfylkingin hefur ekki ennþá útskýrt hvernig á að útfæra það að fella niður gjaldið hjá hluta- félagi sem á og rekur göngin og inn- heimtir veggjaldið. Skortur á samráði? Guðbjartur Hann- esson, oddviti Samfylk- ingarinnar í Norðvest- urkjördæmi, birtir grein í Mbl. mánudag- inn 3. desember sl., undir yfirskriftinni „Veggjald í Hvalfjarð- argöngum verði aflagt.“ Í greininni kvartar hann m.a. yfir því að ekkert samráð hafi ver- ið haft milli þingmanna Norðvesturkjördæmis um málið, eins og hann hafði vonast til. Það er rétt að fram komi að Guð- bjartur hefur ekki leitað eftir slíku samráði, a.m.k. ekki við þann sem þetta skrifar. Jafnframt kemur fram í greininni að tryggja þurfi meiri- hluta á Alþingi til að málið nái fram að ganga. Það er að vísu rétt hjá Guð- bjarti, en skyldi hann hafa leitað lið- sinnis um málið hjá ráðherrum sínum og ríkisstjórn til þess að tryggja sem best framgang málsins? Í lok greinar sinnar tekur Guðbjartur fram að hann vilji að samgönguráðherra og nýrri ríkisstjórn verði gefnir nokkrir mánuðir til þess að móta sér almenna stefnu varðandi gjaldtöku á vegum, en tekur fram að sú krafa séu uppi að sú stefna tryggi jafnrétti milli lands- hluta í þeim efnum. Jákvæð áhrif Rannsóknir hafa verið gerðar á því hvaða áhrif tilkoma Hvalfjarð- arganga hefur haft fyrir byggðirnar á Vesturlandi. Niðurstaða þeirra er að göngin hafa haft jákvæð áhrif á búsetuþróun og búsetuskilyrði á Vesturlandi. Það er ánægjuleg nið- urstaða, enda blasir hún við ef litast er um á því landsvæði. Einnig er nið- urstaðan sú að gjaldtakan dragi úr þeim ávinningi í samkeppni við önnur svæði. Meginniðurstaðan er að göng- in hafa haft jákvæð áhrif á mörgum sviðum. Það var mikil bylting fyrir Vesturland og reyndar einnig önnur svæði landsins að Hvalfjarðargöngin urðu að veruleika á sínum tíma. Þau leystu að mestu af hólmi gömlu leið- ina um Hvalfjörð, sem var oft erfið og hættuleg. Slegið í og úr Í grein Guðbjarts gætir mótsagna og sá grunur vaknar að hún sé fyrst og fremst birt í auglýsingaskyni. Mótsagnirnar felast m.a. í því að hann kvartar yfir því að ekki hafi ver- ið samráð meðal þingmanna kjör- dæmisins um málið, þrátt fyrir að ekki hafi verið leitað eftir slíku sam- ráði af hálfu þingmanna Samfylking- arinnar. Á sama tíma vill Guðbjartur gefa samgönguráðherra og nýrri rík- isstjórn tóm til að móta stefnu um gjaldtöku af umferð. Hvernig ætlar Samfylkingin að snúa sig út úr því þegar niðurstaðan verður að hin nýja ríkisstjórn beitir sér ekki fyrir því að gjaldið verði lagt af. Það er sú nið- urstaða sem greinarhöfundur spáir að verði og byggir þann spádóm á reynslu og umræðu um þetta mál á undanförnum árum. Þá er rétt að rifja upp að ekkert er um þetta „stór- mál“ Samfylkingar í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar og sjálfstæð- ismenn hafa ekki léð máls á því hingað til að gjaldtaka í Hvalfjarð- argöngum verði lögð af fyrr en áætl- að er. Veggjaldið í Hvalfjarðargöngum Magnús Stefánsson er ósáttur með grein Guðbjarts Hann- essonar í Mbl. 3. desember » Í grein Guðbjartsgætir mótsagna og sá grunur vaknar að hún sé fyrst og fremst birt í auglýsingaskyni. Magnús Stefánsson Höfundur er þingmaður Framsókn- arflokks í Norðvesturkjördæmi. Í DAG, á alþjóðlegum mannrétt- indadegi, lýkur 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Þennan dag, fyrir tæpum sextíu árum, var Mannrétt- indayfirlýsingin sam- þykkt en hún lagði grunninn að hinu al- þjóðlega mannréttinda- kerfi nútímans sem byggist á að öll séum við borin ,,frjáls og jöfn öðr- um að virðingu og rétt- indum“. Mannréttinda- yfirlýsingin var þó ekki fyrsta mannréttinda- gerðin því fyrsti fjöl- þjóðlegi mannréttinda- samningurinn, alþjóðasamningur um þrælahald, var sam- þykktur árið 1926 en með honum var lagt bann við þrælkun og þrælahaldi í hvaða mynd sem það birtist. Þó bann við þrælkun sé þannig meðal elstu við- urkenndu mannrétt- inda þýðir það þó ekki að þrælahaldi hafi ver- ið útrýmt. Árið 2005 áætlaði Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) að 12,3 milljónir manna væru ánauðugar og þar af væru 2,4 millj- ónir fórnarlömb mansals. Þess eru dæmi að Ísland hafi bæði verið notað sem viðkomustaður og áfangastaður þolenda mansals og því er 16 daga átak gegn kynbundu of- beldi 2007 tileinkað baráttunni gegn mansali eða nútíma þrælahaldi eins og það hefur stundum verið nefnt, með áherslu á baráttu gegn kynlífs- þrælkun. Ástæður mansals eru margar og misjafnar eftir löndum. Leitin að betra lífi getur oft leitt þá sem minna mega sín í hendur illmenna sem not- færa sér bága stöðu fólks. Í flestum samfélögum er staða stúlkna lakari en drengja og því á kynbundið mis- rétti sinn þátt í því að konur og stúlk- ur eru berskjaldaðri fyrir mansali. Mansal er einnig sérlega ábatasöm glæpastarfsemi en Alþjóðavinnu- málastofnunin áætlar að arður af mansali sé meira en 32 milljarðar bandaríkja á ári hverju. Arðurinn sem tengist mansali í kynlífsiðnaði felst ekki síst í því að konur má selja aftur og aftur og starfsemin hefur enn tiltölulega litla áhættu í för með sér þar sem aðeins brotabrot þeirra sem standa að þessari misnotkun hafa verið dregið til ábyrgðar. Ísland er eitt Norð- urlanda um að hafa ekki gripið til heild- stæðra aðgerða gegn mansali. Á síðustu dög- um hefur farið fram mikil umræða um man- sal og kynlífsþrælkun og ljóst er að almenn- ingur á Íslandi vill að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að berjast gegn þessari hræðilegu starfsemi. Í dag munu aðstandendur 16 daga átaks afhenda stjórn- völdum áskorun um að- gerðir gegn mansali frá tæplega eitt þúsund og sjö hundruð Íslend- ingum, þar sem krafist er heildstæðrar að- gerðaáætlunar er hafi mannréttindi og vernd til handa fórnarlömbum að leiðarljósi. Með áskoruninni fylgja tillögur frá aðstandendum 16 daga átaks um efni aðgerðaáætlunar sem byggist á mannréttindanálgun og taki sér- staklega til þarfa þolenda mansals í kynlífsiðnaði. Tillögurnar kveða með- al annars á um fræðslu fagaðila og forvarnir, aðstoð og vernd fyrir þol- endur; saksókn mansala, og vitna- vernd, vitundarvakningu um tengsl vændis, kynlífsiðnar og mansals og hvatt er til aukinna rannsókna á um- fangi kynlífsiðnaðar á Íslandi. Er það von okkar að stjórnvöld taki þessar tillögur til athugunar og samþykki hið fyrsta aðgerðaáætlun til að koma í veg fyrir að þeir sem standa að mansali nái fótfestu hér á landi og tryggja að engar konur á Ís- landi búi við kynlífsþrælkun, kúgun og ofbeldi. Áskorun til stjórn- valda um aðgerðir gegn mansali Guðrún D. Guðmundsdóttir skrifar í tilefni af alþjóðlegum mannréttindadegi sem er í dag Guðrún D. Guðmundsdóttir » Tæplegasautján hundruð Íslend- ingar skora á stjórnvöld að grípa til aðgerða gegn mansali Höfundur er framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands. Á SÍÐUSTU kjör- tímabilum hefur líf- eyrir almannatrygg- inga verið hækkaður verulega og mark- visst verið dregið úr tekjutengingum líf- eyris almannatrygg- inga við atvinnu- tekjur og lífeyristekjur. Jafn- framt hefur þétt og örugglega ver- ið dregið úr tengingum lífeyris al- mannatrygginga við tekjur maka. Um síðustu áramót var alfarið skorið milli lífeyristekna hjóna, þannig að tekjur úr lífeyrissjóði hafa ekki lengur áhrif á lífeyri hins makans. Á sama tíma var skerð- ingarhlutfall vegna atvinnutekna maka lækkað úr 50% í 25%. Í að- gerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í vikunni er gengið alla leið og frá 1. apríl næstkom- andi munu atvinnutekjur ekki hafa áhrif á bætur almannatrygginga hjá hinum makanum. Með þessu er eitt stærsta baráttumál lífeyr- isþega í höfn, en það er að horft sé á sjálfstæðan rétt hvers og eins til lífeyris, án tillits til tekna maka. Hér eftir hafa hvorki lífeyristekjur né atvinnutekjur maka áhrif á rétt lífeyrisþega. Þetta mun sér- staklega bæta hag kvenna, sem hafa að öðru jöfnu lægri tekjur en maki þeirra. Breytingar sem gerðar voru á almannatryggingalögunum rétt fyrir síðustu jól í kjölfar sam- komulags við Landssamband eldri borgara sumarið 2006 fólu í sér til- færslu sem nam um 11 milljarða króna á ársgrundvelli til öryrkja og aldraðra. Á sumarþingi var sérstaklega komið til móts við kröfur eldri borgara að atvinnutekjur þeirra sem eru orðnir 70 ára hefðu ekki áhrif á rétt til lífeyris frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Í kjölfarið hefur atvinnuþátttaka eldra fólks aukist til hagsbóta fyrir viðkom- andi og atvinnulífið allt. Nú er gengið skrefinu lengra og ákveðið 100 þúsund króna frítekjumark á mánuði hjá þeim sem eru á aldr- inum 67-70 ára. Í tillögum ríkisstjórnarinnar er tekið á miklu réttlæt- ismáli, þar sem inn- lausn séreignasparn- aðar mun frá 1. janúar 2009 ekki hafa áhrif til skerðingar lífeyr- istekna. Árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna nýrra og boðaðra breytinga á högum lífeyrisþega eru um 5 milljarðar króna á ársgrundvelli. Þannig hefur á einu ári verið sett inn aukið fjármagn sem nemur um 16 millj- örðum króna á ári til að bæta hag lífeyrisþega. Norrænar samanburðartölur frá árinu 2004 segja okkur að ellilíf- eyrisgreiðslur á mann séu hæstar hér á landi. Með þessum breyt- ingum sem ríkisstjórnin hefur nú boðað munu kjör lífeyrisþega hér á landi skjótast enn lengra fram úr nágrönnum okkar á hinum Norð- urlöndunum. Við skulum halda því til haga. Bætt um betur Ásta Möller fjallar um kjarabætur til eldri borgara Ásta Möller »Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar heldur áfram á þeirri braut sem mörkuð var í tíð fyrri ríkisstjórna að bæta kjör lífeyrisþega. Höfundur er alþingismaður og for- maður heilbrigðisnefndar Alþingis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.