Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 31 Krossgáta Lárétt | 1 óslyngur, 8 álögu, 9 vinnuflokkur, 10 beita, 11 endurtekið, 13 eta upp, 15 rándýra, 18 ávítur, 21 klettasnös, 22 heiðarleg, 23 hindra, 24 orðasennan. Lóðrétt | 2 slappt, 3 Dan- ir, 4 kyrrt, 5 kvennafn, 6 kvenfugl, 7 hlífa, 12 blóm, 14 snák, 15 negl- ur, 16 áleit, 17 greinar, 18 skellur, 19 reiðri, 20 svelgurinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1lævís, 4 stáls, 7 óskar, 8 ormur, 9 pár, 11 tært, 13 engi, 14 óróin, 15 kukl, 17 nota, 20 pat, 22 kuldi, 23 álk- an, 24 rautt, 25 nánar. Lóðrétt: 1 ljóst, 2 vakur, 3 sorp, 4 spor, 5 álman, 6 sorti, 12 tól, 13 enn, 15 kækur, 16 keldu, 18 orkan, 19 annar, 20 pilt, 21 tákn. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú getur skipulagt lífið á blaði en verður að lifa því með hjartanu. Þú verður að vera tilbúinn að víkja út frá áætluninni ef hjartað segir svo. Það mun gerast. (20. apríl - 20. maí)  Naut Heimurinn gengur ekki jafn hratt og þér þætti æskilegt. Ef þú tekur því með bros á vör ertu mjög þroskaður. Fyr- ir alla muni ekki reiðast út af því. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú gætir hrint frá þér yndislega venjulegu fólki með því að vera svona skrítinn. Það er enginn tími til að útskýra. Haltu áfram að vera eins og þú ert. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Verkefni virðast vera komin að lokum, en það er bara skynvilla. Haltu áfram. Bogmaður eða ljón mun geta hjálpað þér með takmarkanir. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nýtt samband er áhugavert og spennandi en mun fyrr en seinna kólna. Viðhaltu eldinum með því að láta sem minnst uppi. Njóttu dansins. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Hristu upp í lífinu. Gerðu hlutina í nýrri röð, farðu í fötin sem eru aftast í skápnum, sofðu hinum megin á rúminu. Litlar breytingar geta breytt yfirsýninni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hafðu nógu hljótt til að heyra hljóðið í jörðinni snúast. Ef þú ert opinn fyrir því að láta smámuni dagsins hafa áhrif á þig upplifirðu ótrúleg augnablik. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú laðar að þér það sem þig langar í hratt og vel. Þú sérð glitta í alls- nægtirnar sem koma munu, og það hvetur þig til dáða. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ríkjandi afl víkur til hliðar og loksins ræður þú för. Ljáðu viðskipta- samkomulagi félagslega fágun. Við það verður samningurinn betri og svo ertu bara svo laginn við það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Nú er ekki rétti tíminn til að trúa því sem þú heyrir. Sama persónan veitir þér réttar og rangar upplýsingar. Ekki gera neitt, þú færð betri upplýs- ingar á morgun. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Í vinahópnum þínum hafa margir sterkar skoðanir. Þetta getur leitt til baráttu og tilfinningar munu særast ef málin eru tekin of alvarlega. Ekki ræða neitt umdeilt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Stjörnurnar brosa til þín þegar þú einbeitir þér að skemmtilegum áhuga- málum utan vinnunnar. Þau tengja þig áhugaverðu fólki, leyndarmálum og mögulegum elskhugum. stjörnuspá Holiday Mathis 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. Rc3 0-0 7. 0-0 Re4 8. Bd2 f5 9. Dc2 Bf6 10. Had1 Rxc3 11. Bxc3 Be4 12. Dc1 d6 13. Re1 De8 14. f3 Bb7 15. e4 Rd7 16. Rd3 fxe4 17. fxe4 e5 18. d5 Bc8 19. Bh3 Rc5 20. Bxc8 Rxd3 21. Hxd3 Hxc8 22. Hdf3 Dg6 23. Hf5 h6 24. Dd1 Be7 25. Da4 Hxf5 26. exf5 De8 27. Dxa7 Bg5 28. Kg2 Dh5 29. Db7 De2+ 30. Hf2 De4+ 31. Kh3 Hf8 32. Dxc7 Be3 33. Hf1 Dd3 34. Hf3 De4 35. Hf1 Dd3 36. Hf3 De4 37. Hf1 Staðan kom upp í heimsmeistara- keppninni í hraðskák sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Michael Adams (2.729) hafði svart gegn Vassily Ivan- sjúk (2.787). 37. … h5! svartur hótar nú De4-g4+ og við þeirri hótun er ekk- ert viðunandi svar. Framhaldið varð: 38. He1 Dxf5+ 39. Kg2 Df3+ 40. Kh3 Dg4+ og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Hvert-spil-leikur. Norður ♠D103 ♥G3 ♦Á ♣KG97642 Vestur Austur ♠G872 ♠ÁK65 ♥KD10854 ♥Á976 ♦D4 ♦962 ♣D ♣103 Suður ♠94 ♥2 ♦KG108753 ♣Á85 Suður spilar 3♦. Suður vekur í fyrstu hendi á 3♦ og enginn gerir athugasemd. Hverjar eru horfur sagnhafa með ♣D út? Spilið kom upp í „board-a-match“ sveitakeppni á haustleikunum í San Francisco, sem nú er nýlokið. Þegar keppnisformið er „hvert-spil-leikur“ er reiknað eins og í tvímenningi, þannig að keppikeflið er að vera með hærri tölu en óvinirnir. Hér ætti suður að vinna 3♦ slétt, en það væri mikill sigur að fá yfirslag. Brian Senior var í suður og hann tók fyrsta slaginn í borði með ♣K og spil- aði spaða í öðrum slag. Í svona stöðum er eðlilegt að reyna að opna samgang með því að spila stysta litnum, en til- gangur sagnhafa var að rugla vörnina í ríminu. Og það tókst. Austur stakk upp ♠K og gaf makker sínum laufstungu, en vestur reyndi svo að taka tvo slagi á hjarta. En þá trompaði sagnhafi óvænt og átti restina: 130 í staðinn fyrir 110. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Fyrrum söngvari Nýdanskrar er snúinn aftur til hljóm-sveitarinnar. Hver er hann? 2 Hvaða tvær íslenskar myndir hafa verið valdar í stutt-myndaflokkinn á Sundance-kvikmyndahátíðinni? 3 Númer hvað er Ragna Ingólfsdóttir bandmintonkonaá Evrópulistanum? 4 Ellý K. Guðmundsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar,hefur sótt um sitt fyrra starf aftur. Hvað var það? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Hvaða trygginga- félag hreppti allar fasteignatryggingar ríkisins? Svar: Vörð- ur tryggingar. 2. Hver hlaut verðlaun fyrir best myndskreyttu barnabókina á þessu ári? Svar: Sig- rún Eldjárn. 3. Það eru ekki aðeins ís- lenskar landnáms- kýr sem framleiða mjólk hér á landi, heldur innfluttar kýr af tveim- ur kynjum. Hvaða? Svar: Angus og Limousine. 4. Hvaðan var pilt- urinn sem náði að hringja í Hvíta húsið í Washington til að koma á samtali Ólafs Ragnars við Bush? Svar: Frá Akranesi. Spurter… ritstjorn@mbl.is Reuters dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR HAPPDRÆTTI Krabbameins- félagsins hefur allt frá árinu 1955 verið ein helsta fjáröflunarleið krabbameinssamtakanna og stuðl- að að uppbyggingu þeirra og þró- un. Einn mikilvægasti þáttur starfseminnar, fræðsla um krabba- mein og krabbameinsvarnir, bygg- ist að langmestu leyti á happ- drættisfé, segir í fréttatilkynn- ingu. Í jólahappdrættinu fá konur heimsenda happdrættismiða. Vinn- ingar í jólahappdrættinu eru alls tvö hundruð talsins að verðmæti um 23,5 milljónir króna. Aðalvinn- ingurinn, að verðmæti 2.699.000 króna, er Toyota Prius. Annar að- alvinningurinn er bifreið eða greiðsla upp í íbúð að verðmæti 1.000.000 krónur. Einnig eru 198 vinningar úttektir hjá ferðaskrif- stofu eða verslun, hver að verð- mæti 100.000 krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember. Á bakhlið miðans eru upplýs- ingar um ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Þjónustan er ætluð þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandend- um þeirra í þeim tilgangi að ná jafnvægi aftur í lífinu við þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur. Happdrættismiðarnir eru nú sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins í Skógarhlíð 8. Þeir sem vilja borga miðana með greiðslukorti geta hringt í síma 540-1900, en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um happdrættið, segir í fréttatilkynn- ingu. Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins STJÓRN Íbúasamtaka Bústaða- hverfis hefur samþykkt ályktun vegna umræðu um mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Bú- staðavegar. Þar kemur fram að stjórn íbúasamtakanna leggst alfarið gegn framkomnum hugmyndum um byggingu mislægra gatnamóta við Bústaðaveg. „Slík framkvæmd mun hafa í för með sér mikla aukningu umferðar um Bústaðaveg sem mun kljúfa hverfið endanlega í sundur að óbreyttu ástandi. Óviðunandi er að auka umferðar- þunga í íbúðahverfi með slíkum hætti. Það eykur m.a. slysahættu við Bústaða- og Réttarholtsveg í tengslum við skólasókn unglinga í Réttarholtsskóla og rýrir enn frekar möguleika barna ofan Bústaðavegar að sækja íþróttaæfingar hjá Víkingi, sem er íþróttafélag hverfisins. Auk þess sem það skerðir önnur lífsgæði íbúa hverfisins. Þessi framkvæmd mun þannig rýra búsetuskilyrði í hverfinu, sem er óásættanlegt að mati stjórnar íbúasamtakanna,“ segir í ályktun- inni. Óviðunandi að auka um- ferðarþunga í íbúðahverfi Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.