Morgunblaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 32
Vitanlega er viðeig-
andi að bregða sér í
spariföt fyrir afmæli og önn-
ur merk tímamót… 39
»
reykjavíkreykjavík
Bókaútgáfan Salka var að gefa útdagatalsbókina Konur eiga orðið ogaf því tilefni slógu Sölkurnar uppveislu í höfuðstöðvum sínum og
buðu miklum kvennafjölda. Til að taka þátt í
fjörinu voru mættar í stelpupartíið Kolbrún
Halldórsdóttir alþingismaður, rithöfundurinn
og blaðamaðurinn Jónína Leósdóttir, kjarna-
konan Elín Ebba Ásmundsdóttir og rithöf-
undurinn Hlín Agnarsdóttir. Sölkuskörung-
arnir Kristín Birgisdóttir, oftast kölluð Kría,
og Hildur Hermóðsdóttir tóku glaðar í bragði
á móti öllum stelpunum sem gæddu sér á létt-
víni og öðrum góðum veitingum. Ellý Ár-
manns hjá Sviðsljósi mbl.is sveimaði um með
myndavélina sína, íklædd svörtum frakka, ei-
lítið í fasi eins og Inspector Clouseau.
Eftir glæsilegt jólahlaðborð úti í Viðey á
föstudagskvöldið var svo flogið við í Apótek-
inu í Austurstræti þar sem einhverjar leifar
af FL Group voru greinilega að styrkja sig
fyrir næstu raun. Apótekið virðist vera búið
að gleypa meirihluta dansfíflanna sem til
þessa hafa haldið tryggð við Thorvaldsen en
þar á bæ var komið að nær tómum kofanum
síðar um kvöldið. Aðdráttarafl hins 35 metra
langa bars í Apótekinu er greinilega seg-
ulmagnað.
Á bæjarvappi í jólaskapi voru ýmsir góð-
borgarar eins og Jakob Frímann Magnússon
tónlistarmaður sem kom stormandi út úr
versluninni Vísi neðst á Laugavegi í svörtum
frakka og … fjólubláum skóm. Aldeilis jóla-
ógleði. Í Tiger við sama stræti var svo leik-
arinn Viðar Eggertsson að kaupa sér jóla-
sveinahúfu.
Þegar Fluga var að ná í pelsinn sinn í fata-
henginu eftir jólahlaðborðið í Viðey heyrði
hún á tal tveggja telpna, líklega öðru hvoru
megin við tíu ára aldurinn. Önnur þeirra
sagði með daðurslegum en skipandi tón:
„Ókei. Ég er Tyra Banks, þú ert að reyna að
verða módel. Labbaðu fallega eftir öllum
ganginum, pósaðu svo fyrir framan mig og
segðu hvað þú heitir fullu nafni.“ Sennilega
dætur femínistanna sem eru hvað háværastar
um þessar mundir. Fluga vatt sér að þeirri
stuttu og spurði: „Hvað segirðu, ert þú virki-
lega Tyra Banks?“ Svarið var eftirfarandi:
„Nei, reyndar ekki. En ég hef mjög mikið
ímyndunarafl, sem er eins gott, því maður
kemst ekki langt í lífinu án þess.“ Skottið er
örugglega búið að setja prinsessuleiðbein-
ingabók efst á óskalistann fyrir jólin. „What’s
the world coming to?“ muldraði fluga í pels-
klæddan barminn þegar hún gjóaði augunum
á frygðarsúluna hennar Yoko og sigldi sem
leið lá til Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Frikki
Stefán Hilmarsson og
Sigríður Beinteinsdóttir.
María Magnúsdóttir, Eva Dögg Sveinsdóttir
og Rannveig Káradóttir.
Gunnar Þorsteinsson og
Jóhanna Gunnarsdóttir.
Þórður Gunnarsson og
Erla Björgvinsdóttir.
Salvör Guðmundsdóttir og
Lovísa Halldórsdóttir.
Morgunblaðið/Frikki
Kolbrún Anna Björnsdóttir, Sigríður Ásta
Árnadóttir, Unnur Ýr Kristjánsdóttir og
Hugrún R. Hólmgeirsdóttir.
Guðrún Hólmgeirsdóttir og
Hildur Baldursdóttir.
Sigríður Geirsdóttir, Steinunn Þorvaldsdóttir
og Þórkatla Aðalsteinsdóttir.
Þórdís Elva Magnúsdóttir Bachman
og Ósk Gunnlaugsdóttir.
Hildur Hermóðsdóttir, Kristín Birgisdóttir
og Myrra Leifsdóttir.
Flugan
… FL Group-leifar
í Apótekinu …
… Tyra Banks og frygðarsúlan
í Viðey …
Hanna Birna, María Ólafsdóttir og
Erna Gísladóttir.
Félagskonur FKA fjölmenntu á samkomuna.
Boðið var upp á glæsilegar veitingar.
Morgunblaðið/Frikki Þorgrímur Þráinsson las upp úr bók sinni,
Hvernig á að gera konuna sína hamingju-
sama, og gaf eiginhandaáritanir.
» Gleði- og kvennapartí bóka-útgáfunnar Sölku fór fram á
föstudagskvöldið.
» Jólatónleikar BjörgvinsHalldórssonar voru haldnir
í Laugardalshöllinni um
helgina.
» Jólafundur FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, fór fram áfimmtudagskvöldið á Grandagarði.