Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 351. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Leikhúsin í landinu
Gleðileg jól >> 66VINNA UM JÓLIN
ÞAU SJÁ UM RAFMAGNIÐ, SJÚKLINGANA,
ORGELLEIKINN OG LÖGGÆSLUNA >> 6
Morgunblaðið/Golli
Gleðileg jól
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
VITUNDARVAKNING þarf að verða meðal
þjóðarinnar vegna ofbeldis gegn lögreglu-
mönnum, að mati Sveins Ingibergs Magnús-
sonar formanns Landssambands lögreglu-
manna (LL), ef sporna á við slæmri þróun
síðustu tveggja ára þar sem árásum á lögreglu-
menn hefur fjölgað um 19% að meðaltali. Nú
síðast var ráðist á lögreglumann á Akureyri að-
faranótt sunnudags og er það þriðja tilfellið
sem þar kemur upp á stuttum tíma.
Breytt tök og valdbeitingartæki
Að sögn Sveins hefur þetta aukna ofbeldi
verið til umræðu hjá LL og eins hjá kollegum
þeirra á Norðurlöndum, þar sem sömu þróunar
hefur gætt. Í vor voru breytingar gerðar á
senda þurfi fleiri á vettvang þar sem vitað er að
róa þurfi æsingar. Loks hefur sú spurning
vaknað hvort lögreglan sé vanbúin og þá m.a.
hvort æskilegt væri að nota hinar umdeildu
rafbyssur. „Miðað við rannsóknir sem við höf-
um séð erlendis frá virðist þetta tæki hafa
dregið verulega úr meiðslum lögreglumanna í
starfi og líka þeirra sem verið er að yfirbuga.
Hinsvegar þurfum við að athuga vel hvort
þetta sé skaðlaust.“
Sveinn segir nauðsynlegt að horfast í augu
við þá áhættu sem lögreglumenn á Íslandi búa
við, þegar um 10–14% þeirra verði árlega fyrir
skaða vegna ofbeldis. „Það er ekki hægt að
stæra sig af því að við séum með vopnlausa lög-
reglu á meðan við fáum allt að hundrað kærur á
ári um ofbeldi gegn lögreglumönnum. Þá þurf-
um við að spyrja okkur hversu friðsöm við er-
um í raun sem þjóð.“
hegningarlögum þar sem refsiramminn fyrir
brot gegn valdstjórninni var stækkaður, en
Sveinn telur að frekari aðgerða sé þörf.
„Við höfum skoðað til dæmis hvort breyta
þurfi þessum lögreglutökum, við erum enn að
nota sömu tök og fyrir 20 árum, en þau hafa
ekki reynst heppileg þegar þú ert að fást við
trylltan mann.“ Þá hefur verið rætt hvort
Bullur teknar nýjum tökum?
Telur þörf á vitundarvakningu vegna ofbeldis gegn lögreglumönnum
Landssamband lögreglumanna skoðar hvort breyta þurfi lögreglutökunum
Í HNOTSKURN
» Sparkað var í bak og fætur lögreglu-manns á Akureyri og hrækt í augun á
öðrum aðfaranótt sunnudags.
» Fyrstu 8 mánuði ársins voru tilkynnt73 ofbeldisbrot gegn lögreglu. Sjaldn-
ast er þó um alvarlega áverka að ræða.
Washington. AFP. | Þegar tíminn er peningar
og hver stund dagsins skipulögð í þaula, er
þá ekki best að ráða þjónustulipran aðstoðar-
mann til að vinna tímafrek verkefni eins og
að strauja skyrtur og skreyta jólatréð?
Þannig mætti ímynda sér inngang fjöl-
þjóna að auglýsingum á þjónustu sinni en sú
nýtilkomna stétt manna ku nú sækja mjög í
sig veðrið í Bandaríkjunum. Kjörin eru góð,
rukkaðar eru sem svarar frá 2.900 og upp í
rúmlega 7.000 ísl. krónur fyrir ýmis viðvik og
verða sum að teljast harla óvenjuleg.
„Ég þurfti að leigja Ford Explorer vegna
þess að hundinum átti að líka það betur,“ seg-
ir fjölþjónninn Ezra Glass, 28 ára, um þá
kröfu viðskiptavinar, að ferfætta heimilisvin-
inum yrði ekið til Colorado í jeppabifreið.
„Fólk er einstaklega upptekið í Wash-
ington og hefur ekki tíma til neins, svo að
augljós þörf var fyrir þjónustu af þessu tagi,“
segir Glass, sem aðeins 25 ára gamall stofn-
aði fjölþjónustuna Serenity Now. Hyggur
hann á opnun útibúa í þremur borgum.
Skreyta tréð og
sjá um hundinn