Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÍSRAELSSTJÓRN hefur samþykkt
að verja yfir 200 milljónum Banda-
ríkjadala, 12,7 milljörðum kr., í
þróun gagnflaugakerfis sem ætlað
er verða skjöldur gegn eldflauga-
árásum frá Gaza og Líbanon.
Þróunar- og framkvæmdartími
er alls áætlaður um fimm ár og
sagði Ehud Barak varnarmálaráð-
herra að kerfið, sem fengið hefur
heitið „járnhvelfingin“, yrði komið
í gagnið eftir þrjátíu mánuði.
Þá hyggur Ísraelsstjórn á fram-
kvæmdir í tveimur landnema-
byggðum á Vesturbakkanum og í
austurhluta Jerúsalem.
Um 250 íbúðir verða byggðar á
Vesturbakkanum, um 500 í Jerúsal-
em og sögðu talsmenn Palestínu-
manna að þetta skref gæti raskað
framgangi friðarviðræðnanna.
Kvaðst Mahmoud Abbas, forseti
Palestínu, ekki skilja ákvörðunina
um að byggja íbúðirnar.
Ísraelsstjórn gefur grænt
ljós á „járnhvelfinguna“
MINNST fimm hafa látið
lífið í blindhríðinni í mið-
ríkjum Bandaríkjanna um
helgina og víða hefur þurft
að loka hraðbrautum í af-
leitu skyggni og byl. Hinir
látnu fórust í bílslysum en
lögreglan í Minnesota hef-
ur skráð a.m.k. 347 óhöpp
vegna útafaksturs sem
rakin eru til fárviðrisins.
Mikið eignatjón hefur orð-
ið og fjölmargir þurft að
leita læknishjálpar. Meðal
ríkjanna sem hafa orðið
illa úti eru Illinois, Iowa,
Missouri, Wisconsin, Michigan og Minnesota. Einnig hefur verið tilkynnt
um snjókomu í Texas, þar sem um 80 bifreiðar lentu í fjöldaárekstri, með
þeim afleiðingum að umferð í ríkinu raskaðist mjög.
Fimm farast í vetrarbyljum
í miðríkjum Bandaríkjanna
AP
Bylur Maður gengur með storminn í fangið í
Topeka, Kansas, í fannferginu um helgina.
J. EDGAR Hoov-
er, fyrrverandi
yfirmaður
bandarísku
alríkislögregl-
unnar, FBI, sendi
demókratanum
Harry Truman
áætlun um hand-
töku 12.000
manns sem talin
voru ógn við ör-
yggi landsins, eftir upphaf Kóreu-
stríðsins 1950.
Dagblaðið New York Times
greindi frá þessu í gær og byggði
fréttina á skjölum sem leynd hefur
verið létt af. Þar segir að Hoover
hafa unnið að lista yfir fólkið árum
saman og var yfirgnæfandi meiri-
hluti, eða 97 af hundraði, banda-
rískir ríkisborgarar.
Framfylgd tilskipunarinnar hefði
brotið gegn habeas corpus, þ.e. lög-
um sem vernda borgarana gegn
fangelsun án dóms og laga, réttur
sem mikið hefur verið rætt um í
deilum um framkvæmd hryðju-
verkastríðsins.
Sá Hoover fyrir sér að fólkinu
yrði haldið föngnu á herstöðum ell-
egar í fangelsum.
Lagði til fjöldahandtökur
vestanhafs í kalda stríðinu
J. Edgar
Hoover
BRESKA lögreglan leitar nú log-
andi ljósi að tveimur tölvudiskum
sem geyma upplýsingar um heilsu-
far þúsunda Breta.
Skammt er síðan gögn með við-
kvæmum persónuupplýsingum
týndust einnig. Til að bæta gráu
ofan á svart hafa gögn um þrjár
milljónir ökunema í Bretlandi týnst
í Iowa í Bandaríkjunum.
Týndu gögnunum
ISLAM Karimov, forseti Úzbekist-
ans, var sigurviss á kjörstað í gær
þegar hann leitaði umboðs kjós-
enda eftir átján ár við völd.
Um rússneska kosningu var að
ræða, þrír „andstæðingar“ Kari-
movs studdu stefnumið hans og
þótti framganga þeirra bera merki
sýndar-kosningaframboðs.
Erlendum miðlum, þ.m.t. AP-
fréttastofunni, var ekki heimilað að
fjalla um kosningarnar og þóttu
innlendir miðlar ausa forsetann lofi
og þá lýðræðislegu og efnahags-
legu „þróun“ sem orðið hefði í
stjórnartíð hans.
Karimov sigurviss
Reuters
Forseti Karimov mætir á kjörstað.
TÚNISINN Nizar Trabelsi kveðst
ekki undirbúa hryðjuverkaárás en
14 menn voru handteknir í Belgíu
fyrir helgi grunaðir um að ætla að
frelsa hann úr fangelsi með vopn-
uðu áhlaupi. Mönnunum hefur nú
verið sleppt en lögreglan fann
hvorki vopn né sprengiefni í
þeirra fórum þrátt fyrir ítrekaða
leit.
Segist saklaus
STUTT
Bangkok. AFP. | Úrslitin eru mikill
sigur fyrir Thaksin Shinawatra fyrr-
verandi forsætisráðherra Taílands.
Fimmtán mánuðum eftir að þessi
umdeildi auðjöfur sem nýtur óskor-
aðrar lýðhylli var settur frá, vændur
um spillingu og undanskot frá skatti,
er flokkur honum hliðhollur óum-
deildur sigurvegari þingkosning-
anna í Taílandi í gær.
Þegar 93 af hundraði atkvæða
höfðu verið talin hafði flokkur fólks-
ins, PPP, unnið 228 sæti af 480. Það
er nokkuð frá hreinum þingmeiri-
hluta en skapar engu að síður gott
svigrúm til stjórnarmyndunar.
„Ég verð næsti forsætisráðherra,“
sagði Samak Sundaravej, leiðtogi
PPP, sigurreifur eftir að hafa tekið
við heillaóskum frá Thaksin sem beið
úrslitanna í Hong Kong. Hefur
flokkur fólksins boðað endurkomu
Thaksins í stjórnmálin.
Thaksin og flokkur hans Thai-
Rak-Thai-flokkurinn heitinn sótti
fylgi sitt einkum til landsbyggðar-
innar en var síður vinsæll í Bangkok
og kom því ekki á óvart að flokkur
fólksins skyldi lúta í lægra haldi fyrir
lýðræðisflokknum, flokki á bandi
hersins, sem hafði fengið 166 sæti.
Hernum mistekst ætlun sín
Ýmislegt þykir skýra hvers vegna
herinn bakaði sér óvinsældir. Bráða-
birgðastjórnin sem herinn skipaði
þykir ekki hafa haldið vel á stjórnar-
taumunum. Ásakanir um spillingu
áttu þátt í falli Thaksins og boðaði
herinn endurreisn lýðræðisins.
Hið gagnstæða hefur gerst, breyt-
ingar á stjórnarskránni þykja hafa
eflt herinn á kostnað lýðræðisins.
Talsmenn ESB fögnuðu kosning-
unum en óvíst er hvort herinn myndi
una nýrri stjórn PPP.
Fylgismenn Thaksins
í kjörstöðu á Taílandi
Flokkur hliðhollur hinum útlæga auðjöfri ber sigur af banda-
mönnum hershöfðingjanna sem steyptu honum af stóli
Í HNOTSKURN
»Thaksin sagði af sér embættií aprílmánuði 2006 en sneri
aftur í maí sama ár.
»Hann er milljarðamæringurog aðaleigandi knattspyrnu-
liðsins Manchester City sem
hann keypti eftir að hafa borið
víurnar í lið Liverpool.
Samak
Sundaravej
Thaksin
Shinawatra
Sao Paulo. AP. | Þeir
læddust á brott að
nóttu með þýfi sem
metið er á fjórða
milljarð króna og
enginn sá neitt þrátt
fyrir öryggismynda-
vélar á listaverka-
safninu í Sao Paulo.
Þýfið, portrett eftir
Pablo Picasso og stíl-
færð uppstilling á
verkamanni eftir
Candido Portinari,
er dýrgripir að mati
listvina og er fyrra
verkið metið á 50
milljónir dollara, um
3,2 milljarða króna,
það síðara á tíunda hluta þeirrar upp-
hæðar.
„Einhver átti að vera fylgjast með
öryggismyndavélunum þegar ránið
var framið. Við vitum ekki hvað gerð-
ist, en ef einhver var þar, hefðu upp-
tökurnar átt að leiða til þess að hringt
var á lögregluna,“ sagði Eduardo
Cosomano, tals-
maður safnsins í
gær.
Gæslan hefur
verið endurskoð-
uð en stjórnendur
reiddu sig á
óvopnaða verði
og myndavélar
fremur en viðvör-
unarbjöllur og
skynjara.
Brasilísku lög-
reglunni grunar
að ræningjunum
hafi verið borgað
vel fyrir ránið af
listunnanda með
dýran smekk. Á
síðasta ári var verkum eftir Dali,
Picasso, Monet og Cezanne, fyrir 3,5
milljarða kr., stolið í Rio de Janiero
og hafa þau enn ekki komið í leitirnar.
Hegðun varða ráðgáta
Rannsókn hafin á því hvers vegna öryggisgæslan brást í
dularfullu listaverkaráni í brasilísku borginni Sao Paulo
Picasso Portrett af Suzanne Bloch. Brasilískt „O Lavrador de Cafe“.
KANNSKI eru þau að horfa inn um búðarglugga ell-
egar á snotran sleða í garðinum, eða bara að forvitn-
ast um nágrannann.
Eitt er víst, þessi skólabörn í Kýrgizstan eru kom-
in í jólaskap eftir að hafa tekið þátt í keppni um hver
gæti líkt best eftir jólasveininum. Sveinki verður æ vinsælli í
hinu fjarlæga ríki og hafa Svíar fært rök fyrir því að þar
eigi hann heima, í fjalllendi Mið-Asíu.
Landið sé nefnilega heppilegasti staðurinn fyrir jóla-
sveinninn með tilliti til dreifingar jólagjafanna.
Reuters
Skyldi þetta verða í pakkanum?
HEIMSBYGGÐIN gæti verið að
sigla inn í nýtt krepputímabil ef
marka má sérfræðinga sem vitnað
er til í grein breska blaðsins Tele-
graph. Segir þar að vandi fjár-
málakerfisins sé ekki eingöngu
tengdur aðgengi banka að lausafé
heldur skorti verulega á traust fjár-
festa á bankakerfinu og hvers á
öðrum. Fjárfestar sitji á fé sínu og
forðist að veita jafningjum sínum
lán líkt og þeir væru holdsveikir,
eins og það er orðað í greininni.
Segir þar að seðlabankar séu að
missa stjórn á ástandinu og hafi að-
eins nokkrar vikur til að grípa í
taumana áður en markaðir falli um
sjálfa sig.
Kreppa í uppsiglingu?
MINNST sjö týndu lífi og hátt í
þrjátíu særðust þegar sjálfsmorðs-
árásarmaður ók bifreið inn í bíla-
lest hersins í norðvesturhluta
landsins, skammt frá bænum Min-
gora á þekktu svæði talibana.
Árás í Pakistan