Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 52
52 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er tvennt ólíkt að glíma við bridsþrautir á pappír eða í hita leiks- ins við spilaborðið. Þegar þraut er sett á blað er yfirleitt látið nægja að bera fram þurrar staðreyndir um sagnir og útspil. Ekkert er um það rætt hver átti í hlut, hvernig líkams- tjáningin var, hversu lengi viðkom- andi spilari var að segja eða spila út, eða hvort hann hafi sýnt merki um áhuga eða áhugaleysi. Með öðrum orðum, ekkert er skeytt um borð- hegðunina. Þó veitir látbragð manna við spilaborðið mikilvægar upplýs- ingar. Flest af því sem menn hugsa fær á einhvern hátt útrás í líkamanum. Látbragðið eitt og sér getur því verið afhjúpandi um þá hugsun sem að baki býr, kunni menn að túlka hegð- unina. Hlátur og grátur eru augljós dæmi um líkamlega tjáningu hugs- unar. En hið sama gildir um látlaus- ari fyrirbæri, svo sem vafa, vissu, áhuga, áhugaleysi, vanlíðan, vellíðan, lymsku og einlægni – slíkar hugsanir eiga sér líka líkamlegan farveg. „Suður spilar fjóra spaða og fær út lauffjarka.“ Hvaða ályktanir getur sagnhafi dregið af útspilinu? Við skulum sjá. Samkvæmt reglunum getur fjarkinn verið hærra spilið af tveimur, eða þriðja hæsta frá lengd. En bíðum við. Hér vantar mik- ilvægar upplýsingar. Var útspilið lengi á leiðinni eða kom fjarkinn strax út? Ef lauffjarkinn kom eld- snöggt á borðið er það til marks um að spilarinn hafi ekki verið í neinum vafa. Og menn eru sjaldan í vafa með einspil. Hafi fjarkinn hins vegar komið út eftir langa yfirlegu, þarf sagnhafi varla að hafa áhyggjur af því að lauffjarkinn sé einn á ferð. Þrjár þrautir Hér á eftir verða bornar fram þrjár úrspilsþrautir, en matreiddar á ólíkan hátt. Fyrst fær lesandinn ein- ungis hráar staðreyndir um sagnir og útspil, en síðan verður aukið við upplýsingum sem lúta að borð- hegðun. Verið er að falast eftir tvennu: Annars vegar bestu spila- mennsku án mennskra vísbendinga, og hins vegar bestu spilamennsku að teknu tilliti til þess að menn af holdi og blóði halda á spilunum. Bestu spilamennsku á blaði og á borði. (1) Suður spilar fjóra spaða Norður ♠K10874 ♥Á75 ♦G843 ♣K Suður ♠ÁDG95 ♥D3 ♦Á75 ♣764 Suður gefur, NS á hættu. Vestur Norður Austur Suður – – – 1 ♠ 2 ♥ 4 ♠ Pass Pass Pass Fyrri hluti – á blaði: Útspil vest- urs er lauftía, austur tekur á laufás og skiptir yfir í hjartatvist (þriðja hæsta). Þú setur drottninguna, vest- ur kónginn og þú dúkkar. Vestur spilar hjartagosa næst, sem þú tekur með ás og trompar strax hjarta í rannsóknarskyni. Aust- ur fylgir lit. Þú tekur tvisvar tromp og stingur laufin tvö í leiðinni. Báðir fylgja smátt í laufin, en vestur reyn- ist eiga tvíspil í trompi. Hvernig viltu vinna úr tíglinum? Síðari hluti – á borði: Þegar vest- ur átti að segja við fjórum spöðum þá hugsaði hann sig lengi um áður en hann passaði. Að öðru leyti hefur spilamennskan þróast alveg eins og rakið er að ofan. En stóra spurningin er þessi: Hefur hin langa umhugsun vesturs einhver áhrif á spilamennskuna? (2) Suður spilar sex hjörtu Norður ♠Á84 ♥K64 ♦KD62 ♣764 Suður ♠K1062 ♥ÁG852 ♦95 ♣ÁD Suður gefur, allir á hættu. Vestur Norður Austur Suður – – – 1 ♥ Pass 2 ♦ Pass 2 ♠ Pass 3 ♥ Pass 3 ♠ Pass 4 ♥ Pass 6 ♥ Pass Pass Pass Fyrri hluti – á blaði: Svar norðurs á tveimur tíglum er krafa í geim, þannig að þrjú hjörtu á eftir sýnir nokkurn áhuga á slemmu og það skýrir stökk suðurs í sex. Hvernig er best að spila slemmuna með lauftíu út? Síðari hluti – á borði: Nú er þess að geta að vestur spilar út, þegj- andalegur, án þess að spyrja út í sagnir. En austur er áhugasamari og spyr margs þegar blindur kemur upp. Hann vill vita hvort þrjú hjörtu sýni slemmuáhuga, hvort norður neiti nú fyrirstöðum í hálitum, og svo framvegis. Hefur þessi mismikli áhugi sem mótherjarnir sýna áhrif á spilamennskuna? (3) Suður spilar þrjú grönd Norður ♠852 ♥ÁK4 ♦ÁD4 ♣D1084 Suður ♠ÁK ♥G972 ♦753 ♣KG76 Suður gefur, allir á hættu. Vestur Norður Austur Suður – – – 1 ♣ Pass 2 ♣ Pass 2 G Pass 3 G Pass Pass Pass Fyrri hluti – á blaði: Kerfið er Standard og hækkun norðurs í tvö lauf er krafa. Suður sýnir svo 12-14 punkta og jafna skiptingu með 2G og norður hækkar í þrjú. Útspilið er spaðatía. Þú spilar laufi í öðrum slag, sem austur drepur með ás og spilar spaðagosa. Hvert verður framhaldið? Síðari hluti – á borði: Þú ákveður að taka tvo slagi á lauf og sjá hvað setur. Vestur reynist hafa byrjað með tvílit í laufi og hann hendir tíg- uláttu eftir nokkurt fálm. Þú velur að taka fjórða laufið og enn er vestur tregur til að henda af sér, en lætur svo hjartahund fara. Austur er hins vegar snöggur að henda tígultvisti, sem er kallspil. Hvað er í gangi? Lausnir koma í sérstakri grein eft- ir hátíðar. Gleðileg jól. Jólaþrautir á blaði og borði BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.