Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 60
60 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VÁ... ÉG GET HEYRT HLJÓÐIÐ
Í MAGANUM Á MÉR
PRÓFUM
ÞETTA
AFTUR...
HÉR
KOMA JARÐ-
ÝTURNAR! VOFF!
HÆTTU AÐ VERA SVONA
MIKILL AUMINGI OG
HJÁLPAÐU MÉR AÐ ÝTA
BÍLNUM ÚT ÚR
BÍLSKÚRNUM!
HVAÐ GÆTI
GERST?!?
SKOTTIÐ
MITT HELDUR
AÐ ÞETTA SÉ
SLÆM
HUGMYND
LÁTTU EKKI
SVONA!
MAMMA
VERÐUR
GLÖÐ EF
VIÐ GERUM
ÞETTA BARA
SJÁLFIR!
HÚN VILL
EKKI LÁTA
TRUFLA SIG
ÝTTU!
ÝTTU MEÐ
MÉR!
BÍLLINN
STOPPAR
EKKI!
STOPPAÐU!
STOPPAÐU!
ÉG HELD AÐ
VIÐ HEFÐUM
ÁTT AÐ
TRUFLA HANA
AF HVERJU HELDUR
EIGANDI VEITINGASTAÐARINS
Á ÞÉR?
ÞETTA ERU
VERÐLAUN
FYRIR
HVAÐ
??
ÉG VAR KOSINN
„ÞJÓNN MÁNAÐARINS“
ÞAÐ GÓÐA VIÐ AÐ
BORÐA UPP ÚR
RUSLINU ER ÞAÐ
AÐ MAÐUR ÞARF EKKI
AÐ SKILJA EFTIR
ÞJÓRFÉ
ÁÐUR EN ÉG EIGNAÐIST TÍNU VISSI ÉG EKKI
HVAÐ ÞAÐ ERU MARGIR SEM EIGA SMÁHUNDA
ÞAÐ ER HÆGT AÐ KAUPA
ALLS KONAR SMÁHUNDAVÖRUR
OG GANGA Í SMÁHUNDAFÉLÖG.
ÞAÐ ERU LÍKA SMÁHUNDA-
SÝNINGAR OG SAMKOMUR
ÉG SKIL...
ÞETTA ER EINS
OG ÞEGAR ÉG
VAR MIKIÐ
FYRIR STAR
WARS
STAR WARS?
PFF! ÞAÐ ER
BARA FYRIR
FÓLK SEM Á SÉR
EKKI LÍF!
ÞETTA ER FULLKOMIÐ! SJÁÐU HVERNIG
HÚN RÆÐST Á MARVELLU!
ÞETTA ER ÓTRÚLEGUR LEIKUR!
ÞAÐ ER ALVEG EINS OG HÚN ÆTLI
SÉR AÐ DREPA HANA
HVERNIG
VEIT ÉG AÐ
SVO ER EKKI?
dagbók|velvakandi
Hrakhólabarn og
hugsjónakona
NOKKUR hundruð Vestur-
Íslendingar sóttu ættland sitt heim
þegar minnst var eitt þúsund ára af-
mælis Alþingis árið 1930. Þó að ekki
væru liðnir nema nokkrir áratugir
síðan vesturferðirnar stóðu sem
hæst var svo komið hag margra
landnemanna að þeir höfðu efni á
slíkri langferð. Sumum var þó boðið
sérstaklega af íslenskum stjórnvöld-
um. Einn af gestunum á Alþingishá-
tíðinni kom þangað í boði vestur-
íslenskra kvenna og hefði vísast ekki
haft fé til slíkrar langferðar ef það
boð hefði ekki komið til. Þessi lang-
ferðakona hét Margrét J. Benedicts-
son. Boðið var þakklætisvottur „fyr-
ir skelegga og markvissa forystu
hennar í baráttu fyrir jafnrétt-
ismálum kvenna“, eins og segir í bók
sem séra Björn Jónsson hefur tekið
saman um konu þessa.
Fyrir hálfri öld skrásetti ég bóka-
safn sem vestur-íslenskur Breiðfirð-
ingur hafði sent Miðskólanum í
Stykkishólmi vestan af Kyrrahafs-
strönd. Þar bar nafn Margrétar J.
Benedictsson mér fyrir augu og man
ég ekki betur en blaðið Freyja kæmi
þar og við sögu. Nú kynnir séra
Björn Margréti þessa fyrir okkur og
gerir það af smekkvísi og með glæsi-
brag.
Ekki var mulið undir Margréti í
bernsku. Hún „skaust inn í ættir
landsins utanveltu hjónabandsins“,
eins og vinur hennar Stephan G.
kvað um annan Íslending. Hún elst
upp á hrakningi og stundum hjá mis-
jöfnum húsbændum. Ekkert virðist
líklegra en hennar bíði það eitt að
verða vinnukona í norðlenskri sveit
um aldur og ævi. En henni tekst að
komast vestur um haf þegar straum-
urinn þangað frá Íslandi er hvað
þyngstur. Þar gerist hún fljótlega
skeleggur málsvari aukinna réttinda
kvenna og bindindis og hefur útgáfu
Freyju. Þar varð hún brautryðjandi
því að Freyja var fyrsta (og eina?)
kvenréttindablaðið sem út kom með-
al Íslandinga í Vesturheimi.
Saga Margrétar er baráttusaga
en þó í rauninni skemmtilestur. Séra
Birni tekst að lýsa allslausu hrak-
hólabarni af næmi og skilningi, hon-
um tekst að draga upp skýra mynd
af óþreytandi hugsjónakonu og síð-
ast en ekki síst tekst Margréti sjálfri
að segja frá bernsku sinni og æsku
og Íslandsförinni 1930, atburðum og
fólki.
Sagan er í raun römmuð inn af
tveim þekktum mönnum. Í upphafi
er það Káinn sem hvetur Margréti
til að segja ferðasöguna og má ef til
vill segja að brotakennd ævisagan sé
nokkurs konar forleikur að henni. Í
lokakafla bókarinnar segir frá því að
Erlendur í Unuhúsi kveður Margéti
á hafnargarðinum áður en hún stíg-
ur á skipsfjöl og heldur vestur. „Yl-
urinn frá hlýju og þéttu handtaki
Erlendar var síðasta kveðjan sem
Margrét tók með sér að heiman þeg-
ar hún kvaddi Ísland í annað sinn.“
Séra Björn Jónsson stendur nú á
áttræðu. Hann hefur unnið þarft
verk að kynna okkur merka konu.
Heiður ber honum og þakkir fyrir
prýðilega bók.
Ólafur Haukur Árnason,
Skúlagötu 20, Reykjavík.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Nú gengur í garð hátíð ljóss og friðar. Að baki er dimmasti tími ársins og
daginn fer að lengja. Velvakandi óskar öllum lesendum sínum gleðilegra
jóla og friðar á nýju ári.
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíð ljóssins
Skipholt 15 • www.thingholt.is
Traust fasteignasala í 30 ár
Gleðilega hátíð!
Starfsfólk Þingholts óskar ykkur gleðilegrar
jólahátíðar og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þórarinn Kópsson
lögg.fast.sali
Kjartan Kópsson
sölufulltrúi
Ingvi Rúnar
sölufulltrúi
ingvi@thingholt.is
GSM 896 0421
Svanur Jónsson
sölufulltrúi
svanur@thingholt.is
GSM 692 2507