Morgunblaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 9
FRÉTTIR
Mjódd, sími 557 5900
Við sendum
viðskiptavinum okkar
Okkar bestu óskir um
Gleðilega jólahátíð
m
bl
9
50
50
8
Óskum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
Gleðileg Jól
Opið í Bæjarlind 10-12
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Kringlunni • Simi 568 1822
www.polarnopyret.is
Bestu óskir um gleðileg jól og
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Ungum jafn-
aðarmönnum:
„Ungir jafnaðarmenn mótmæla
harðlega pólitískum skipunum Sjálf-
stæðisflokksins í embætti dómara á
Íslandi. Í þeim felst alvarleg vald-
níðsla og aðför að þeirri kröfu sem
gerð er í stjórnarskrá lýðveldisins,
um óháða og óhlutdræga dómstóla.
Nú síðast hefur settur dómsmála-
ráðherra úr röðum Sjálfstæðis-
flokksins sniðgengið álit sérfræð-
inganefndar sem metur hæfi
umsækjenda um embætti héraðs-
dómara. Fyrir þessu eru ekki for-
dæmi. Svo vill til að sá sem stöðuna
fékk var til langs tíma pólitískur að-
stoðarmaður dómsmálaráðherra og
er sonur (Davíðs Oddssonar) fyrrum
forsætisráðherra. Þrír umsækjend-
ur höfðu verið metnir hæfari en
hann. Eins og þingflokksformaður
Samfylkingarinnar hefur réttilega
bent á, skortir mjög á að rökstuðn-
ingur (Árna Mathiesen) setts dóms-
málaráðherra, sé trúverðugur varð-
andi þetta frávik.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skipa
vildarvini í embætti dómara.
Skemmst er þess að minnast þegar
Geir H. Haarde, þá settur dóms-
málaráðherra, skipaði Jón Steinar
Gunnlaugsson fornvin Davíðs Odds-
sonar sem hæstaréttardómara og
þegar Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra skipaði frænda Davíðs
Oddssonar, Ólaf Börk Þorvaldsson
sem hæstaréttardómara.
Fulltrúar Samfylkingarinnar
gagnrýndu harðlega tvær síðast-
nefndu skipanirnar.
Ungir jafnaðarmenn skora því á
sitt fólk að láta pólitíska spillingu við
embættisveitingar ekki líðast í nýju
ríkisstjórnarsamstarfi, frekar en áð-
ur.“
Mótmæla skipun
héraðsdómara
AUÐUNN Jónsson, kraftlyftinga-
maður, sendi Morgunblaðinu eftir-
farandi yfirlýsingu sem er dagsett
22. desember sl.
„Í kjölfar þess að Alþjóðaíþrótta-
dómstóllinn hefur staðfest keppnis-
bann Alþjóðakraftlyftingasam-
bandsins og þar með dæmt mig í
tveggja ára keppnisbann frá og með
nóvember 2006 vil ég skýra mál
mitt.
Fyrir þátttöku í heimsmeistara-
keppninni í kraftlyftingum sem fram
fór í Noregi í nóvember 2006 var ég
fyrirvaralaust kallaður í lyfjapróf.
Framkvæmd þess lyfjaprófs var öll
hin undarlegasta og á allan hátt frá-
brugðin þeim fjölda annarra lyfja-
prófa sem ég hef gengist undir áður
og samkvæmt mínum lagaskilningi
ólöglegt í allri framkvæmd.
Aldrei nokkru sinni hafa ólögleg
efni fundist í líkama mínum eða leik-
ið grunur á því að ég misnoti efni til
að auka árangur minn í íþróttum. En
eftir lyfjapróf það sem tekið var af
mér í nóvember 2006 komu einungis
í ljós niðurbrotsefni en engin ólögleg
efni.
Yfirlýsing þessi felur í sér loka-
yfirlýsingu mína í þessu máli en ég
horfi nú til framtíðar. Ég vil og biðja
íslenska fjölmiðla að hafa í huga hag
fjölskyldu minnar og minna nánustu
vina.
Virðingarfyllst, Auðunn Jónsson.
Yfirlýsing vegna
keppnisbanns
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
FÉLAG um foreldrajafnrétti sendi
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
„Jólaósk frá Femínistafélagi Ís-
lands hefur ítrekað verið birt síð-
ustu daga í netmiðlum og mikil um-
ræða farið fram um hana. Jólaóskin
tengir barnsröddina á mjög
ósmekklegan hátt við alhæfingu um
að karlmenn nauðgi. Félag um for-
eldrajafnrétti telur að foreldrum
finnist þessi nálgun fullkomlega óá-
byrg. Félag um foreldrajafnrétti
skorar á Femínistafélag Íslands að
gæta hófs í málflutningi sínum og
birta yfirlýsingu þess efnis að út-
gáfa þessarar jólaóskar hafi verið
mistök.“
Mótmæla jóla-
ósk Femín-
istafélagsins
Fréttir á SMS