Morgunblaðið - 24.12.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 24.12.2007, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FYRIRHUGUÐ 8.000 fermetra samgöngumiðstöð í Reykjavík er fyrst og fremst staðsett með hliðsjón af veru flugvallarins í Vatnsmýrinni. Ekki var skoðað sérstaklega að hafa slíka miðstöð á öðrum svæðum, enda hún hugsuð sem miðstöð samgangna í lofti og á landi. Að sögn manna úr undirbúningshópi sem Sturla Böðv- arsson, þáverandi samgönguráð- herra, skipaði árið 2004 voru önnur svæði en Vatnsmýri lítt skoðuð. Með tilliti til samgangna innan borgar- innar virðist staðsetning miðstöðvar- innar að auki byggjast á því að Öskjuhlíðargöng verði gerð sem fyrst. Eitthvað var þó litið til Mjódd- arinnar, að sögn Gunnars Gunnars- sonar aðstoðarvegamálastjóra. Mun fleiri rútufarþegar en flugfarþegar fara um húsið Kristján Möller samgönguráð- herra segir miðstöðina hannaða þannig að hún geti nýst undir annað, fari flugvöllurinn, og staðsetningin sé unnin út frá ákveðinni þarfagrein- ingu. „Í þeim tölum sem ég hef séð eru miklu fleiri farþegar úr rútubíl- um og áætlunarbílum en flugi sem þarna fara í gegn. Þessi vinna fer á fulla ferð strax eftir áramót í sam- vinnu við borgina,“ segir Kristján. Aðspurður hafnar Kristján því alfar- ið að einfaldlega sé verið að treysta núverandi staðsetningu flugvallarins í sessi með því að byggja miðstöðina, sem er flugstöð í aðra röndina, í Vatnsmýri. Eingöngu horft til flug- vallarins um staðsetningu Í HNOTSKURN »Miðstöðin verður um 8.000fermetrar á tveimur hæðum, á um 25.000 fermetra lóð og með 49.000 fermetra umráðasvæði. Húsið á að geta nýst í aðra starf- semi, fari flugvöllurinn. »Ekki var skoðað hvaða stað-setning væri best fyrir sam- göngur á landi innan borgar- innar, til hennar og frá, án tillits til flugs. BARNAMESSA Grafarholtskirkju var vel sótt í gær en þar hlýddu hátt í 100 manns á yngri fiðlusveit Tónlistarskóla Grafarvogs spila, undir stjórn Wilmu Young. Þær Diljá Baldursdóttir, Birna Heiðars- dóttir, Sara Margrét Brynjars- dóttir, Guðrún Gígja Aradóttir og Sigríður Þórdís Pétursdóttir léku Vetrarsyrpu eftir Lesu Longay og Jólasyrpu og Signý Guðbjartsdóttir tók undir tóna þeirra með söng. Helgihald þjóðkirkjunnar verður um allt land yfir hátíðarnar og verður víða messað í öllum sóknar- kirkjum prestakalla þó sumir söfn- uðir séu ívið smærri en aðrir. Mess- ur og helgistundir verða á bilinu sex til sjö hundruð 24. til 26. desem- ber, ásamt áramótamessum. Messurnar eru þó ekki bundnar við kirkjur landsins, því komið er til móts við fólk sem ekki getur sótt kirkju og verður því einnig helgi- hald á sjúkrahúsum, í fangelsum, á dvalarheimilum og víðar. Einnig verður sérstök messa í kirkju heyrnarlausra. Í mörgum kirkjum er einnig boðið upp á samverustund fyrir börnin í dag en biðin eftir jól- unum er oft erfið fyrir ung og óþreyjufull hjörtu. Ljúfir tónar í messu Morgunblaðið/Golli Helgihald verður með ýmsu móti yfir hátíðarnar og öllum gert kleift að sækja messu MAÐUR varð fyrir alvarlegri lík- amsárás á Akranesi aðfaranótt laugardags og hefur árásin verið kærð. Að sögn lögreglu er lítið vit- að um málavöxtu enn sem komið er þar sem rannsókn er á frumstigi, en árásin varð utandyra, að öllum lík- indum þar sem maðurinn fannst blóðugur og meðvitundarlaus. Hann er með talsverða áverka í andliti, þ.á m. djúpa skurði, en óvíst er hvort og þá hvers konar vopn hefur verið notað. Maðurinn kann- aðist ekki við árásarmennina. Fannst með- vitundarlaus og blóðugur Alvarleg árás á Akranesi HJÁLPARSVEIT skáta í Garðabæ seldi sín síðustu jólatré í fyrradag en nágrannar hennar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar stóðu vaktina og áttu þeir enn eftir nokkur tré þegar söl- unnu var hætt í gærkvöldi. Skógræktarfélag Reykjavíkur hætti í gær sölu seinnipart dags en þó ekki vegna skorts á trjám, „enda alltaf nóg af trjám til í skóginum“ segir Helgi Gíslason framkvæmda- stjóri félagsins. Opin sala hefur verið í Heiðmörk undanfarna daga og fólki gefinn kostur á að velja sitt full- komna jólatré, draga fram sögina og bjarga sér! Jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveit- ar Reykjavíkur lauk einnig í gærdag, en síðasta furan úr Heiðmörk klár- aðist í gærmorgun þannig að þeir sem seinna komu urðu að sætta sig við danskan normannsþin í stað ís- lensku trjánna. Jólatrjáasölu lauk því víðast hvar í gærkvöldi en þó verður opið í Blóma- vali í dag, fyrir þá sem eru á síðustu stundu með jólaundirbúninginn. Lít- ið er þó eftir af trjám og úrvalið mis- jafn, en betra er lítið tré og kræklótt en ekkert tré – svo mikið er víst! Jólatré seldust sums staðar upp „Nóg af trjám til í skóginum“ Furuilmur Flestir kjósa að hafa lif- andi tré í stofunni yfir hátíðarnar. ILLMÖGULEGT hefur verið að komast að strætóskýlinu á Reykja- nesbraut, á móts við Nýbýlaveg, síðustu mánuði en þar hafa fram- kvæmdir staðið yfir og hefur því verið lokað fyrir gönguleið að strætisvagnaskýlinu. Eina leiðin að skýlinu hefur lengi verið að klöngr- ast upp grasbrekku, sín hvorum megin við brúna, en þar hefur myndast moldarflag sem gerir upp- göngu enn óþægilegri og hættu- meiri. Steingrímur Hauksson, tækni- maður á skipulags- og fram- kvæmdasviði Kópavogsbæjar, segir að aldrei hafi átt að nota skýlið meðan framkvæmdir stóðu yfir og hefði átt að finna aðra bráðabirgða- stoppistöð. Hann segir að almennt sé ekki mælt með því að hafa stoppistöðvar fyrir strætisvagna á hraðbrautum. Ekki eigi þó að bæta úr aðgeng- inu úr þessu, enda sé þetta aðeins bráðabirgðaástand. Færa eigi skýlið og breyta leið vagnsins, um leið og framkvæmd- um lýkur við Nýbýlaveg. Áætlað er að ljúka verkinu í júní 2008 en svæðið verður tekið í notkun í nokkrum áföngum fram að því. Slæm færð að skýli Morgunblaðið/Golli Moldarflag Aðkoman er ekki snyrtileg að skýlinu en til stendur að færa stoppistöðina. Þrenn ný undirgöng munu líta dagsins ljós er framkvæmdum lýkur og munu þau auðvelda aðgengi fyrir gangandi vegfarendur til muna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.