Morgunblaðið - 24.12.2007, Side 10
10 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Æðsti klerkur og meðhjálparinn ísuðu fagmannlega yfir tækifæri Eyjamanna til að ná
eignarhlut Stillu-bræðra í VSV.
VEÐUR
Fréttastofa RÚV hafði í fyrra-kvöld eftir Pétri Kr. Hafstein,
formanni dómnefndar þeirrar,
sem fjallar um hæfni umsækjenda
um stöður héraðsdómara, að
nefndin mundi koma saman til
fundar nú eftir áramót til þess að
ræða stöðu sína.
Í ljósi þess,að einstakir
nefndarmenn
hafa gert at-
hugasemdir
við ákvörðun
setts dóms-
málaráðherra
um héraðs-
dómara á
Norðurlandi
eystra og
Austurlandi er auðvitað mikilvægt
að nefndin komi saman og ræði
stöðu sína.
Sérstaklega þarf hún þó að ræðaákvæði sjöundu greinar
reglna, sem Sólveig Pétursdóttir,
þáverandi dómsmálaráðherra,
setti í október árið 1999 um störf
þessarar nefndar. (Tekið skal
fram að reglurnar heimila röðun
umsækjenda.)
Þar segir í sjöundu grein:„Umsögn nefndarinnar er
ekki bindandi við skipun í embætti
héraðsdómara.“
Þegar haft er í huga, að dóm-stólalögin kveða ekki á um að
ráðherra skuli fara að tillögum
nefndarinnar og að í reglum, sem
settar eru á grundvelli laganna er
sérstaklega tekið fram, að umsögn
nefndarinnar sé ekki bindandi við
skipun héraðsdómara eru athuga-
semdir einstakra nefndarmanna
óskiljanlegar.
Eru þeir að reyna að taka til sínrétt, sem þeir hafa ekki,
hvorki samkvæmt lögum né
reglum?
STAKSTEINAR
Pétur Kr. Hafstein
Sjöunda greinin
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
!
" #
$$%$ %
" #$$%$ %
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
'
''$$%$ %
'
!$$'#
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
%
%
%
&
% % %
%
&%
% &
% % &
%
%
%
%
%
*$BC $$
!
*!
$$B *!
() *$ $)$ +
<2
<! <2
<! <2
(* '$, #-$.'/
CD -
<
"#$ %&
'
(
)
!
E
2!
&!
#
*
!
#
$(
+(("( %&
-
"( '(
62
E2!
" '
+((
!&-,
+
&
%"
( $(
)
,
-
01'' $$22
'$$3 $, #
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Hrannar Baldursson | 23. desember
E.T. og jólin
E.T. vakti mig til um-
hugsunar um mikilvægi
þess að taka mark á
vitsmunaverum, hvort
sem að þær eru börn,
fullorðnir, dýr eða geim-
verur. Aðal vandinn sem
söguhetjur E.T. þurfa að takast á við
er einhvers konar sambandsleysi í
víðtækum skilningi. Frábær mynd í
alla staði. Það er vel við hæfi að kíkja
á E.T. yfir jólin, þar sem boðskapur
hennar gæti varla átt betur við en hjá
okkur í dag.
Meira: Meira: don.blog.is
Haukur Nikulásson | 23. desember
Skatan óæt?
Ég hef lengi haft á tilfinn-
ingunni að flest fólk sem
borðar skötu geri það til
að sýna hetjuskap.
Hetjuskapurinn felst í
því að geta étið þennan
óþverra án þess að
halda fyrir nefið og kúgast. Einnig læð-
ist að manni sá ljóti grunur að ef matur
á Þorláksmessunni sé bara nógu vond-
ur að þá bragðist jólasteikin sérdeilis
vel. Þið hin, sem hafið vanist þessum
mat þannig að ykkur þykir hann í alvöru
góður, bið ég vel að njóta!
Meira: Meira: haukurn.blog.is
Eyþór Arnalds | 23. desember
Um skipan dómara
Umræða um að breyta
lögum og reglum um
skipan dómara hefur
blossað upp eftir að
Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra skipaði
Þorstein Davíðsson hér-
aðsdómara. Menn eru almennt sam-
mála um að Árni hafi farið að lögum
og reglum. Þá eru álitsgjafar úr lög-
mannastétt sammála því að sú
ákvörðun Björns Bjarnasonar […] hafi
einnig verið rétt. Af hverju er þá verið
að fetta fingur út í skipun Þorsteins?
Meira: Meira: ea.blog.is
Bjarni Harðarson | 22. des
Hættulegir ESB-sinnar
Evrópusambandið hef-
ur nú ákveðið að inn-
leiða með valdboði að
ofan stjórnarskrá þá
sem þegnar sambands-
ins hafa áður hafnað í
almennri atkvæða-
greiðslu og sýnir nú heiminum nýja
mynd af lýðræðisviðhorfum sínum.
Það sem áður hét stjórnarskrá heitir
nú Lissabonsamningar.
Við fyrri samrunasamninga sína
hefur sá háttur verið hafður á í sam-
bandi þessu að láta kjósendur greiða
atkvæði aftur og aftur þar til sam-
þykki fengist líkt og við þekkjum hér á
landi við sameiningu sveitarfélaga og
er mikil [...] nauðgun á lýðræði.
Nú bregður svo við í Evrópu að hið
miðstýrða Brusselbákn á sér ekki
lengur möguleika á að sigra í at-
kvæðagreiðslum og kommisarar
þess sjá að hversu oft sem síðasta
stjórnarskrá yrði keyrð í gegnum þjóð-
aratkvæði yrðu svör þjóðanna alltaf
nei. Þjóðirnar í Evrópu eru orðnar
ríkjasamrunanum andvígar. Því er
brugðið á það ráð að búta pólitískar
ákvarðanir stjórnarskrárinnar niður í
nokkra smærri samninga og þröngva
þeim svo til samþykkis meðal þjóð-
ríkjanna án atkvæðagreiðslu.
Eiríkur Bergmann talsmaður
Evrópusamtakanna sem ötulast hef-
ur barist fyrir málstað ES á Íslandi,
staðfesti þessa túlkun atburða í við-
tali í Silfri Egils um helgina. Efnis-
legar breytingar sem voru í stjórn-
arskránni eru margar ef ekki flestar í
Lissabonsamningunum, sagði Eiríkur
orðrétt í samtali við Egil en taldi það
ómark því hinir „symbólsku“ væru
það ekki.
Það fór um mig ónotahrollur undir
þessum útskýringum evrópusinnans.
Kannski því að kenna að ég hefi verið
að lesa bókina Skáldalíf um ritsnill-
ingana Þórberg og Gunnar sem báðir
voru þó miklir hugsjónaglópar í póli-
tík. Annar trúði staðfastlega á Stalín
og hinn var um tíma svag fyrir Hitler.
Báðir bjuggu við þá vöntun að þurfa
að trúa á eitthvað það í pólitíkinni
sem er manninum stærra og meira,
eitthvað symbólískt, guðlegt og yfir-
mannlegt. Hjá heilbrigðu fólki tilheyrir
symbólismi trúarbrögðum og mið-
aldafræði.
Svoldið svipað þessari vöntun er í
gangi hjá æstustu talsmönnum
Evrópuvitleysunnar.
Meira: bjarnihardar.blog.is
BLOG.IS
EKKI fagna allir lands-
menn gleðilegum jólum
með nánustu fjölskyldu
og vinum en ýmis úr-
ræði standa þeim til
boða sem á þurfa að
halda.
Hátíðarundirbúning-
ur er í algleymi bæði í
Konukoti og í sal Hjálp-
ræðishersins en þar
hlaupa margir sjálfboða-
liðar undir bagga og
leggja sitt af mörkum.
„Sjálfboðaliðarnir gera okkur
kleift að hafa opið allan sólarhringinn
yfir jólin,“ segir Kristín H. Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóri Konu-
kots. Opið verður í Konukoti allan
sólarhringinn yfir jólin og til og með
nýársdags. Kristín segir 30-40 sjálf-
boðaliða hjálpa við rekstur Konukots
og standi til að fá fleiri til aðstoðar.
Dýrindis jólamáltíð verður á borðum
á aðfangadagskvöld en nafntogaður
úrvalskokkur eldar fyrir heimiliskon-
ur í sjálfboðavinnu, annað árið í röð.
Undir jólatrénu verða gjafir handa
öllum frá velunnurum Konukots og
messan mun óma í glænýjum hljóm-
flutningstækjum, sem eru gjöf frá
börnum í Árbæjarskóla. Samhjálp
rekur gistiskýlið á Þingholtsstræti
samkvæmt samningi við Reykjavík-
urborg en þar verður fullt út úr dyr-
um á jólanótt. Aðstaða er fyrir 16
manns í gistingu og segir starfsmað-
ur gistiskýlisins að því miður sé að-
sókn aðeins meiri en pláss leyfi, og
hafi orðið að vísa nokkrum frá. Á að-
fangadag fari síðan flestir í jólamat
hjá Hjálpræðishernum. Rúmlega 80
hafa skráð sig í jólamat í kvöld hjá
Hjálpræðishernum. Björn Tómas
Kjaran starfsmaður hjá Hjálpræðis-
hernum segir þó alltaf bætast við á
síðustu stundu. Í fyrra hafi verið 120
manns í mat og reiknað sé með sama
fjölda í ár. Allir séu velkomnir og öll-
um vel tekið.
Sjálfboðaliðar bjóða
gleðileg jól í verki
Öflug hjálparstarfsemi eflir jólaandann
Morgunblaðið/Golli
Hjálp! Þessi lét kuldann ekkert á sig fá við söluna.
FRÉTTIR