Morgunblaðið - 24.12.2007, Qupperneq 31
NÝ SÝN
NÝTT FORYSTUAFL
Háskólinn í Reykjavík kynnir, í samvinnu við McGill háskólann
í Montreal og Henry Mintzberg, Columbia háskólann í New
York og Mayo Clinic í Rochester, nýtt alþjóðlegt meistaranám
fyrir brautryðjendur í heilbrigðisþjónustu. Námið hentar öllum
sem starfa við nýsköpun, rekstur, þjónustu, stjórnun og
forystu á sviði heilbrigðismála og lýðheilsu og er boðið upp á
nám bæði heima og erlendis.
Heilbrigðisþjónusta framtíðarinnar þarf
brautryðjendur sem:
• Sýna frumkvæði og búa yfir bestu og nýjustu
þekkingu sem völ er á.
• Hafa getu til að leiða saman ólík sjónarmið
og komast að sameiginlegri niðurstöðu,
öllum til hagsbóta.
• Búa yfir þeirri áræðni og þekkingu sem
þarf til að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma.
Náminu er ætlað að veita þátttakendum nýja sýn á forystu og
nýsköpun í heilbrigðisþjónustu 21. aldar og stuðla að því að
skipa Íslendingum í fremstu röð framsækinna þjóða á sviði
heilbrigðismála og lýðheilsu.
NÁM VIÐ MCGILL HÁSKÓLANN:
ÞÁTTTAKENDUR FRÁ YFIR 20 ÞJÓÐLÖNDUM
Vorönn 2008: Þátttakendum gefst kostur á að hefja nám við
McGill háskólann í mars 2008. Hægt er að sinna fullu starfi með
námi, en gert er ráð fyrir að nemendur komi saman 5 sinnum í 12
daga í senn á 16 mánaða tímabili.
Henry Mintzberg, prófessor í stjórnun og forstöðumaður
meistaranáms í heilbrigðisstjórnun við McGill háskólann í
Montreal. Mintzberg er á nýjum lista yfir 20 helstu hugsuði
heims. Á þessum lista eru m.a. Bill Gates, Alan Greenspan,
Jack Welch og Michael Porter.
NÁM VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK:
PRÓFESSORAR FRÁ MCGILL, MAYO
CLINIC OG COLUMBIA KENNA VIÐ HR
Haustönn 2008: Þátttakendum gefst kostur á að hefja nám í
Háskólanum í Reykjavík á haustmisseri 2008 og innritast í MPH
Executive nám sem er meistaranám í forystufræðum og nýsköpun
á heilbrigðissviði. Kennslufyrirkomulag tekur mið af því að þátt-
takendur sinni starfi samhliða náminu sem fer fram að mestu leyti
hér á landi. Auk innlendra sérfræðinga kenna prófessorar frá
McGill, Columbia University og Mayo Clinic.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskólans í Reykjavík,
www.hr.is/mphe og hjá Guðjóni Magnússyni, MD, Ph.D., prófessor
við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR (gma@ru.is).
„Meistaranámið okkar í heilbrigðisstjórnun er einstakt og afar
metnaðarfullt. Við ætlum okkur að bylta, ekki einungis menntun
í heilbrigðisstjórnun, heldur sjálfu heilbrigðiskerfinu. Það gerum
við með því að kveikja stöðuga, lifandi umræðu á milli fremstu
stjórnenda allra geira heilbrigðiskerfisins, alls staðar að úr
heiminum.“