Morgunblaðið - 24.12.2007, Qupperneq 42
42 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HEILABLÓÐFALL er algengur
sjúkdómur sem veldur oft alvarlegri
fötlun og dauða. Tilfellum mun fjölga
á komandi áratugum
vegna hækkandi aldurs
þjóðarinnar. Margt er
hægt að gera til að fyr-
irbyggja áföll og mikið
hægt að gera fyrir þá
sem veikjast. Víða eru
batahorfur mun betri
nú en fyrir fáeinum
áratugum. Vísbend-
ingar eru um að heila-
blóðfallssjúklingum
farnist betur hér á
landi en víða annars
staðar.
Löngum fengu sjúk-
lingar með heilablóðfall
litla athygli í helbrigðiskerfinu og
voru lagðir inn á ýmsar spítaladeildir
innan um annars konar sjúklinga-
hópa. Batalíkur þeirra voru taldar
litlar. Heilablóðfallssjúklingar höfðu
áður fyrr enga sérstaka málsvara
meðal starfsstétta heilbrigðiskerf-
isins og voru þess vegna að nokkru
leyti út undan en á síðustu áratugum
hafa víða orðið viðhorfsbreytingar.
Á árunum milli 1970 og 1980 voru
gerðar tilraunir með eins konar gjör-
gæslueiningar fyrir heilablóðfalls-
sjúklinga. Fyrirmyndin voru gjör-
gæslueiningar á hjartadeildum, sem
þá voru nýlega komnar til sögunnar.
Ekki tókst að sýna fram á árangur í
dánarhlutfalli eða bata með þessu
fyrirkomulagi. Ljóst var að eðl-
ismunur er á hjartasjúklingum með
kransæðastíflu og sjúklingum með
heilablóðfall.
Afleiðingar heilablóðfalls geta ver-
ið margvíslegar og flóknar. Algeng-
ast er að þeir sem verða fyrir áfalli
lamist, t.d. önnur hlið líkamans. Önn-
ur algeng einkenni eru málstol,
gaumstol og verkstol. Persónu-
leikabreytingar og ým-
is sálræn einkenni geta
fylgt. Einkenni af þessu
tagi eru ekki eingöngu
alvarleg fyrir sjúkling-
inn, heldur einnig fjöl-
skyldu hans auk fé-
lagslegra afleiðinga.
Mönnum varð ljóst að
til þess að sinna á full-
nægjandi hátt þörfum
þeirra sem fengið höfðu
heilablóðfall þyrfti hóp
fagfólks með mismun-
andi sérþekkingu.
Upp úr 1980 var
byrjað að gera tilraunir
á Norðurlöndum með að koma þess-
um sjúklingum fyrir á sérstökum
deildum eða einingum inni á sjúkra-
húsunum og sérstök teymi starfs-
fólks mynduð í kringum þennan
sjúklingahóp. Í slíkum teymum geta
verið, auk lækna og hjúkrunarfræð-
inga, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, tal-
meinafræðingar, félagsráðgjafar,
sálfræðingar og sjúkraliðar. Sam-
starf þessara fagstétta, teym-
isvinnan, varð smám saman burðarás
heilablóðfallseininganna og ein aðal-
ástæða þess árangurs sem síðar náð-
ist í meðferð þessara sjúklinga. Með
teymisvinnu hafa starfskraftar orðið
betur samtaka og markmið skýrari
og þekking og kunnátta á viðfangs-
efninu hefur vaxið. Slík teymi hittast
gjarnan vikulega. Þá er farið yfir
stöðu hvers sjúklings, hugað að fjöl-
mörgum þáttum meðferðarinnar og
því sem betur mætti fara og fjöl-
skyldufundir ákveðnir þegar þurfa
þykir. Teymisvinnan gefur góðar
forsendur til að huga að og taka til
meðferðar hin fjölbreyttu líkamlegu,
sálrænu og félagslegu hagsmunamál
sjúklingsins. Skipuleg fræðsla
starfsfólks til að auka þekkingu þess
og skapa jákvæð viðhorf varð
snemma hluti af hugmyndafræðinni.
Þessar áherslur urðu til þess að trú
starfsfólksins á bata þessara ein-
staklinga jókst sem leiddi af sér auð-
ugra og jákvæðara umhverfi fyrir
sjúklingana og hafði jákvæð áhrif á
bataferlið. Samhliða þessari þróun
urðu miklar framfarir í lækn-
isfræðilegum rannsóknum og betri
leiðir fundust til að greina sjúklinga
og fyrirbyggja áföll. Á heilablóðfalls-
einingunum var lagt kapp á að upp-
lýsa sjúklinga og aðstandendur.
Einnig var lögð áhersla á ábyrgð
sjúklings og aðstandenda. Rík
áhersla var lögð á endurhæfingu,
helst frá fyrsta degi. Áður hafði löng
rúmlega tíðkast sem oft leiddi til al-
varlegra fylgikvilla sem áttu stóran
þátt í háu dánarhlutfalli heilablóð-
fallssjúklinga.
Um 1990 birtust niðurstöður rann-
sókna á gagnsemi heilablóðfallsein-
inga sem voru lofandi. Nokkrum ár-
um síðar þóttu yfirburðir þessa
fyrirkomulags sannaðir. Rannsóknir
sýndu fimmtungi lægra dánarhlut-
fall og marktækt fleiri gátu útskrif-
ast til síns heima eftir dvöl á slíkum
einingum. Þessi stórbætti árangur
náðist með minni tilkostnaði, m.a.
vegna þess að legutími á sjúkrahúsi
styttist. Að auki var sýnt fram á að
meðferð á heilablóðfallseiningum
hentar öllum með heilablóðfall, fólki
á öllum aldri, af báðum kynjum með
mikil jafnt sem lítil einkenni.
Ýmsar stofnanir hafa síðan álykt-
að um þessi mál. Evrópudeild Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
mæltist til þess á síðasta áratug að
allir sem veiktust af heilablóðfalli
fengju meðferð á slíkum einingum.
Sambærilegar ályktanir hafa komið
frá Evrópusamtökum taugalækna,
norska heilbrigðisráðuneytinu og
Félags- og heilbrigðismálastofn-
unum Danmerkur og Svíþjóðar. Nú
er talið að um tveir þriðjuhlutar
heilablóðfallssjúklinga í Svíþjóð og
um þriðjungur á Bretlandseyjum og
í Þýskalandi njóti meðferðar á heila-
blóðfallseiningum. Þegar fjær dreg-
ur norðvesturhorni Evrópu lækkar
þetta hlutfall.
Nú er í undirbúningi að efla enn
frekar heilablóðfallseininguna við
taugalækningadeild Landspítalans í
Fossvogi.
Heilablóðfallseiningar
gefa góða raun
Vísbendingar eru um að heila-
blóðfallssjúklingum farnist bet-
ur hér á landi en annars staðar
segir Einar Már Valdimarsson
»Rannsóknir sýndufimmtungi lægra
dánarhlutfall og að
marktækt fleiri gátu út-
skrifast til síns heima
eftir meðferð á slíkum
einingum.
Einar Már
Valdimarsson
Höfundur er læknir við taugalækn-
ingadeild Landspítalans.
Á RÚMRI öld hefur Ísland þróast
frá gamla bændasamfélaginu, í fisk-
veiðisamfélag, og frá fiskveiði-
samfélaginu í fjármála og þekking-
arsamfélag á suðvesturhorni
landsins þar sem 80% þjóðarinnar
býr og starfar. Um 65% þjóðarinnar
býr á höfuðborgarsvæðinu sjálfu.
Þar er suðupottur framfara, hug-
mynda og verðmætasköpunar. Þar
er drifkraftur atvinnulífsins í dag og
útrásin er skilgetið afkvæmi borg-
arsamfélagsins. Þessar breytingar
hafa ekki gengið
þrautalaust fyrir sig.
Hið stolta bænda-
samfélag hafði gríð-
arleg völd í stjórnkerfi
landsins og heilu
flokkana á þingi.
Margföldu misvægi
atkvæða var beitt
ótæpilega í baráttunni
gegn framþróuninni.
Komið var á lagg-
irnar kerfi sem átti að
tryggja bændum og
búaliði sambærileg
kjör og þekktust í
hinu nýja fiskveiði- og iðnaðarsam-
félagi á kostnað skatt-
greiðanda.
Landbúnaðarkerfi
reyndist skelfilega eins
og öll svona millifærslu-
kerfi, með sínum kjöt-
fjöllum, smjörfjöllum og
gríðarlegum kostnaði
fyrir samfélagið, og end-
aði með niðurlægingu
þeirra sem það átti að
vermda. Enn þann dag í
dag styrkjum við land-
búnaðinn meira en
nokkur önnur þjóð í
Evrópu.
Nú er engu líkara en
að sagan sé að end-
urtaka sig hvað varðar sjávarbyggð-
irnar. Hnignun sumra sjávarbyggð-
anna er viðvarandi vandamál sem
reynt er að hamla gegn með ýmsum
aðgerðum eins og byggðakvótum,
línuívilnun, og nú síðast mótvæg-
isaðgerðum vegna skerðingar á
þorskkvóta.
Þessar aðgerðir bera keim af
gamla landbúnaðarkerfinu, og munu
hafa svipuð áhrif.
Íslenskur sjávarútvegur hefur
alla burði til að vera, hér eftir sem
hingað til, öflugur og sjálfbær at-
vinnuvegur. En hann er að breytast
og þróast, og allar tilraunir til að
hamla gegn þeirri þróun munu reyn-
ast dýrkeyptar.
Einu sinni var Dritvík á Snæfells-
nesi ein umfangsmesta fiskihöfn
landsins. Með náttúrulega höfn,
staðsett yst á Snæfellsnesinu, lá hún
vel við seglbátum sem stunduðu
veiðar á Breiðafirði og Faxaflóa.
En tíminn stendur aldrei í stað, og
brátt tóku vélbátar við af seglbátum
og þá munaði lítið um að sigla með
aflann til síns heima.
Smátt og smátt hlykkjaðist vega-
kerfið um landið, hafnir voru byggð-
ar og sjávarbyggðirnar urðu sjálf-
bærar og sjálfstæðar. Tími
sjávarbyggðanna vað runninn upp.
Skáldið Jón Helgason orti um
ástandið.
Nú er í Dritvík daufleg vist,
drungalegt nesið kalda.
Sjást ekki lengur seglin hvít,
sjóndeildahringinn tjalda.
Söknuðurinn í þessum hendingum
er sláandi, og er til marks um það að
breytingar í atvinnuháttum eru allt-
af þungbærar. E.t.v líður Flateyr-
ingum eitthvað svipað núna.
Framþróunin, með vélvæðingu
bátaflotans, hafnargerð og lagningu
vega, gjörbreytti atvinnuháttum
þjóðarinnar til hins betra fyrir lang-
flesta, en ekki alla. Ekki t.d. fyrir
Dritvík.
Kvótakerfið hefur ef-
laust flýtt fyrir hagræð-
ingunni í sjávarútveg-
inum, en hagræðingin
er aðalvaldur hnign-
unar sjávarbyggðanna
en ekki kvótakerfið.
Skuldinni er skellt á
kvótakerfið af því að
stjórnvöld komu því á,
og þá er rökrétt að gera
kröfur til ríkisins um
aðstoð við sjávarbyggð-
irnar. Árinni kennir ill-
ur ræðari.
Tæknin, sem gert hefur kleift að
koma aflanum fersk-
um á markað, hefur
ýtt frystingunni til
hliðar. Aflinn er verð-
mætari ferskur en
frystur, eins og við
Íslendingar þekkjum
best.
Frystitogarar, þar
sem aflinn fer beint
úr trollinu á vinnslu-
línuna og þar með í
hæsta verðflokk, hef-
ur gert gömlu aðferð-
ina úrelta.
Með gamla laginu
var aflinn marggogg-
aður, kraminn í lest-
arstíum og margsturtaður áður en
hann komst á vinnslulínuna.
Eins og fiskveiðisamfélagið tók
við af bændasamfélaginu, og sjáv-
arbyggðirnar tóku við af skútuöld-
inni, er borgríkið á suðvesturhorn-
inu að taka við af sjávarbyggðunum
sem aðalverðmætamyndun landsins.
Því miður virðist stjórnkerfið vera
við sama heygarðshornið, og reynir
með gamaldags aðferðum að hanga
á fortíðinni.
Það er sjálfsagt að samfélagið
hlaupi undir bagga með sjáv-
arbyggðunum á meðan þessar
breytingar ganga yfir, en það verður
að vera á forsendum nýrra atvinnu-
hátta en ekki með gamla laginu að
halda dauðahaldi í fortíðina.
Sú viðleitni bitnar á mjólkurkú
nútímans, sem er fjármála- og þekk-
ingarsamfélagið á suðvesturhorni
landsins, og birtist m.a. í fjársvelti
stofnbrautakerfis höfuðborgarsvæð-
isins, sem má líkja við slagæðakerfi
hinnar nýju mjólkurkýr.
Allir búmenn vita hvaða áhrif það
hefur á nytina.
Í næstu greinum verður fjallað
um hvernig tregðulögmál kerfisins
bitar á þróun borgarsamfélagsins.
Frá bænda-
samfélagi til
borgríkis
Einar Eiríksson skrifar um þró-
un samfélagsins
Einar Eiríksson
» Sú viðleitnibitnar á
mjólkurkú nú-
tímans, sem er
borgarsam-
félagið á suð-
vesturhorninu,
og birtist m.a. í
fjársvelti stofn-
brauta höf-
uðborgarsvæð-
isins.
Höfundur er kaupmaður í Reykjavík
og í stjórn Samtaka um betri byggð.
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Fréttir í tölvupósti