Morgunblaðið - 24.12.2007, Side 59

Morgunblaðið - 24.12.2007, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 59 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Lokað í dag, að- fangadag. Starfsmenn fé- lagsmiðstöðvarinnar óska öllum gleðilegra jóla. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skrifstofa FEB verður lokuð á milli jóla og nýjárs. Opnum aftur 2. janúar kl. 10. Félagið óskar öll- um félagsmönnum og öllum eldri borgurum gleðilegra jóla og far- sældar á nýju ári. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Jónshús er lokað í dag, aðfangadag. Starfsmenn fé- lags- og þjónustumiðstöðv- arinnar óska öllum Garðbæingum gleðilegra jóla og þakka fyrir ánægjuleg samskipti á haustönn. Hægt er að panta mat úr Skút- unni fyrir 27. og 28. des. hjá forstöðufreyju Jónshúss fyrir kl. 9 að morgni í síma 617-1501. Félagsstarf Gerðubergs | Starfs- fólk sendir öllum þátttakendum félagsstarfsins, samstarfsaðilum og velunnurum um land allt bestu óskir um gleðiríka jólahátíð. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Í dag verður helgistund kl. 15.30-16.30. Helga R. Ármannsdóttir verður með hugleiðingu og tónlistarhópur kirkjunnar leiðir hátíðarsöng og flytur tónlist. Gleðilega hátíð. Óháði söfnuðurinn | Aftansöngur á aðfangadag kl. 18. Strengja- kvartett ásamt óbó og einsöngur. 95ára afmæli. Annan í jólum,26. desember, verður Sig- urður Kristjánsson, tæknifræð- ingur og fyrrverandi yfirkennari við Iðnskólann í Reykjavík, níutíu og fimm ára. Hann verður með fjölskyldu sinn á afmælisdaginn. 50ára afmæli. Á morgun, jóla-dag 25. desember, verður Magnús Einarsson sölufulltrúi fimmtugur. Gullbrúðkaup | Á jóladag, 25. desember, eiga hjónin Guðný Erna Sig- urjónsdóttir og Hjörtur Guðmundsson fimmtíu ára brúðkaupsafmæli. Þau halda upp á daginn m.a. með afkomendum sínum þrjátíu og þremur. dagbók Í dag er mánudagur 24. desember, 358. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heilagir í allri hegðun, eins og sá er heilagur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15) Jól og áramót eru gleðitími fyriralla fjölskylduna. Ferfættirfjölskyldumeðlimir vilja ofttaka þátt í gleðinni, en gælu- dýraeigendur þurfa að huga að hætt- um á heimilinu yfir hátíðirnar. Sif Traustadóttir er dýralæknir hjá Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti: „Margir vilja leyfa hundinum eða kett- inum á heimilinu að smakka á hátíðar- kræsingunum. Hins vegar þarf að hafa í huga að dýr eru oft viðkvæm fyrir miklum breytingum í mataræði, og getur mikið saltaður matur og reyktur valdið niðurgangi,“ segir Sif. „Óhætt er að gefa einn bita, og kannski kartöflufleyg og sósu með, en þá er ráðlegt að blanda því saman við það fóður sem dýrið er vant, og minnka fóðurskammtinn sem nemur því sem við er bætt. Ef dýrið kemst í of mikið af óhollum mat má reyna að gefa því elduð hrísgrjón, sem verka stemmandi á magann.“ Sif minnir á að stórvarasamt sé að hundar borði súkkulaði, og sömuleiðis eru rúsínur og laukur í miklu magni skaðleg: „Kettir hafa heldur ekki gott af þessum fæðutegundum, en láta þær yfirleitt í friði, á meðan flestir hundar eru t.d. óðir í súkkulaði.“ Jólaplöntur og -skraut geta einnig verið varasöm: „Jólastjarnan hefur eitruð blöð, og þarf að leita til læknis ef dýr innbyrðir mikið af plöntunni. Fara þarf varlega með glerkúlur og annað brothætt jólaskraut sem freist- andi er að leika með en getur skorið ef brotnar, og skrautböndin á jólapökk- unum geta verið mjög hættuleg ef þau komast í meltingarveginn.“ Mörg dýr óttast lætin í flugeldum: „Á gamlársdag er best að halda kött- um inni allan daginn, og hunda þarf að hafa í bandi þegar farið er út, því stöku flugeldar geta sprungið hér og þar, og fælt dýrin. Yfirleitt er óráðlegt að gefa róandi lyf, en getur gefist vel að hafa eitt rólegt herbergi í húsinu, með dregið fyrir glugga og milda lýs- ingu til að daga úr ljósblossunum frá flugeldunum. Þá verða eigendur hesta í nágrenni við þéttbýli að gæta þess að hestarnir séu á tryggilega girtu svæði, og helst inni í húsum, en skelkaðir hestar hafa valdið slysum og skemmd- um um áramót.“ Heimasíða Dýralæknamiðstöðvar- innar Grafarholti er www.dyrin.is Dýrahald | Flugeldar, jólamatur og skraut geta verið hættuleg gæludýrum Örugg hátíð fyrir dýrin  Sif Traustadótt- ir fæddist í Reykja- vík 1973. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1993, BS- gráðu í líffræði frá HÍ 1997 og Cand- .vet.med. frá Kon- unglega landbún- aðar- og dýralækn- ingaháskólanum í Danmörku 2003. Sigríður starfaði hjá Dýralæknastofu Dagfinns, síðar hjá Dýralæknaþjón- ustu Hafnarfjarðar, og er meðeigandi í Dýralæknamiðstöðinni Grafarholti sem opnuð var 2007. Eiginmaður Sifjar er Gísli Þór Þorsteinsson bif- vélavirki og eiga þau soninn Baldur. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA- samtakanna er 895-1050. FRÉTTIR Hetjutenórar í Bústaðakirkju TENÓRARNIR Kristján Jó- hannsson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson munu syngja í jólamessu í Bústaðakirkju á jóladag. Helgihald í kirkjunni verður með eftirfarandi hætti fram til 30. desember: Aðfangadagur 24. desember Aftansöngur kl. 18:00. Fyrir at- höfnina flytja einsöngvarar úr Kirkjukórnum jólalög og Jó- hann Friðgeir Valdimarsson og kórinn flytja lagið Ó helga nótt. Trompetleikari er Guðmundur Hafsteinsson. Organisti og kór- stjóri er Renata Ivan Sigurðs- son, prestur sr. Pálmi Matthías- son. Jóladagur 25. desember Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14:00. Ein- söngvarar Kristján Jóhannsson og Jóhann Friðgeir Valdimars- son. Organisti og kórstjóri er Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Annar dagur jóla 26. desember Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Tónlist í umsjá Stúlkna- og yngri Kammerkórs Bústaða- kirkju. Stjórnandi er Jóhanna Þórhallsdóttir. Hljóðfæraleik annast Díana Sjöfn Jóhanns- dóttir, Aron Bjarnason, Hall- grímur Hrafn Einarsson og Jak- ob Gunnarsson. Tvíburaranir Hulda Lilja og Hilmar Páll Hannesarbörn leika á trompet og Guðný Helga Guðmunds- dóttir á flautu. Organisti Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matt- híasson. Fimmtudagur 27. desember. Jólaball kl. 14:00. Hefst með helgistund í kirkjunni og síðan gengið í kringum jólatré í safn- aðarheimilinu. Jólasveinn kemur í heimsókn. Sunnudagur 30. desember Guðs- þjónusta kl. 14:00. Einsöng syngja Anna Jónsdóttir og Sig- ríður Freyja Ingimarsdóttir. Vígður verður bænaljósastjaki eftir Gunnstein Gíslason sem gefinn er í minningu Almut Alf- onsson. Organisti og kórstjóri er Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Guðþjónustur í Breiðholtskirkju GUÐSÞJÓNUSTUR í Breið- holtskirkju um jólin eru eftirfar- andi: Aðfangadagur jóla: Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Félagar úr söngsveit- inni Fílharmóníu syngja. Hlín Pétursdóttir syngur einsöng. Organisti Julian Isaacs. Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Gísli Jónasson. Félagar úr söngsveitinni Fíl- harmóníu syngja. Hlín Péturs- dóttir syngur einsöng. Organisti Julian Isaacs. Annar jóladagur: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Prestar sr. Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur. Barna- kórinn syngur og tekur þátt í helgihaldinu ásamt börnum úr barnastarfi kirkjunnar. Bústaðakirkja KÆST skata þykir mörgum herra- mannsmatur og ómissandi partur af jólunum að gæða sér á vænum skammti af kæstri skötu eða tinda- bykkju. Undanfarin ár hafa vinsældir skötunnar farið hraðvaxandi og þykir það orðið sjálfsagt að hitta vini og vandamenn á þorláksmessu, hvort heldur er í heimahúsi eða á veitinga- stað, og njóta lostætisins með þeim. Þessir herramenn létu sitt ekki eftir liggja í gær, en þeir fengu sinn skötu- skammt hjá Sægreifanum við Reykja- víkurhöfn. Fjöldi manns lagði leið sína á veitingastaðinn í gær, enda er þar af- ar góðan mat að fá. Skatan ómissandi Morgunblaðið/Golli Skötuveisla Sægreifinn bauð upp á kæsta skötu með öllu tilheyrandi í gær. ÞAÐ er áratugagamall siður á Svalbarðsströnd við Eyja- fjörð að elstu börn grunnskólans bregða sér í hlutverk jóla- sveina, Grýlu og annars hyskis sem henni fylgir, fara þann- ig um sveitarfélagið og safna saman innansveitar-jólapósti, flokka hann og dreifa svo til réttra eigenda. Póstinum var lengst af safnað á Þorláksmessu; krakkarnir fóru þá gang- andi um sveitina en síðan var farið um á vélsleðum að morgun aðfangadags og póstinum komið til skila. Nú fóru börnin um sveitina á föstudagskvöldið. Kona um fertugt, sem Morgunblaðið ræddi við, minnist þess að hafa farið fótgangandi frá Ystu-Vík í Grýtubakkahreppi að skólanum á Svalbarðssströnd, nokkurra kílómetra leið, en nú hefur ferðamátinn líka breyst – nú er börnunum ekið um sveit- ina. Svalbarðsströnd Grýla og jólaveinarnar, og annað hyski sem grýlu fylgir, fóru um sveitina og söfnuðu saman jólapósti. Grýla og jólasveinarnar sjá um jólapóstinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.