Fréttablaðið - 07.04.2009, Síða 2
2 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Díana Lind, er þetta ekki hálf-
gerður páfagaukalærdómur?
„Nei, þetta byggist allt á innsæi.“
Díana Lind Monzon páfagaukaráðgjafi
veitir fólki ráðgjöf vegna sambands þess
og annarra fjölskyldumeðlima við stærri
og smærri páfagauka.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært 27 ára gamlan Tékka, Jan
Jirícek, fyrir að sletta rauðri
málningu á tröppur kínverska
sendiráðsins fyrir rúmu ári.
Hann er ákærður fyrir að hafa
smánað erlenda þjóð og erlent
ríki opinberlega, en til vara fyrir
að hafa valdið skemmdum á
sendiráðssvæði.
Jirícek játaði sök en taldi
brotið ekki varða við umrædd
lagaákvæði. Refsing fyrir brot
af þessu tagi er sekt eða allt að
tveggja ára fangelsi. Jirícek
sagðist á sínum tíma með athæf-
inu vilja mótmæla mannréttinda-
brotum Kínverja í Tíbet. - sh
Sletti málningu á sendiráð:
Ákærður fyrir
að smána Kína
AF VETTVANGI Jirícek sendi fjölmiðlum
þessa mynd strax eftir aðgerðina.
ISTANBÚL, AP Anders Fogh Rasmus-
sen, verðandi framkvæmdastjóri
NATO, hvatti í ræðu í Istanbúl í
Tyrklandi í gær til þess að fundið
yrði jafnvægi milli tjáningar-
frelsis og virðingar fyrir tilfinn-
ingum trúaðra.
Tyrkneskir ráðamenn og fjöl-
miðlar höfðu ætlast til þess að
Fogh notaði tækifærið og bæðist
afsökunar á stuðningi sínum við
birtingu Múhameðsteikninganna
umdeildu í Jótlandspóstinum á
sínum tíma, en þá afsökunarbeiðni
fengu þeir ekki.
Tyrkir voru mjög tregir til að
fallast á að Fogh yrði næsti fram-
kvæmdastjóri NATO vegna gremju
þeirra yfir hans hlut í Múhameðs-
teikningafárinu. Á átakafundi á
bak við luktar dyr á leiðtogafundi
bandalagsins í Strassborg á laugar-
dag tókst þó að útkljá málið – með
því að Tyrkir voru „keyptir“ til
að falla frá mótbárum sínum með
því að fá vissar háar stöður í höfuð-
stöðvum NATO.
Í ávarpi sínu, sem hann flutti á
ráðstefnu um „samræður menn-
ingarheima“ í Istanbúl, lagði Fogh
áherslu á að hann hygðist sem
framkvæmdastjóri NATO leggja
sig fram um að taka tillit til við-
kvæmni af völdum trúarbragða. Þá
sagðist hann „virða íslam sem ein
af höfuðtrúarbrögðum heims“. - aa
Anders Fogh Rasmussen í Tyrklandi í hlutverki verðandi framkvæmdastjóra NATO:
Tekur tillit til trúarviðkvæmni
AUÐMJÚKUR MEÐ ÖXL ÚR LIÐI Anders
Fogh heilsar hér Mohammed Khatami,
fyrrverandi forseta Írans, á ráðstefnunni
í Istanbúl með hönd í fatla eftir óhapp á
hótelherbergi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
íslenskur ríkisborgari
www.okkarsjodir.is
Við þökkum fyrir hreinsanirnar í Fjármálaeftirlitinu og
Seðlabankanum en verkinu er ekki lokið. Það þarf að taka til í
lífeyrissjóðunum.
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 20.000
manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir
eru okkar eign!
Jóhanna! Nú er
valdið í þínum
höndum!
EFNAHAGSMÁL Gróft áætlað gæti
þriðjungur til fjórðungur fyrir-
tækja á landinu verið á leið í gjald-
þrot, að mati Samtaka atvinnu-
lífsins (SA). Samtökin óttast að
dómínóáhrif af gjaldþrotum geti
reynst banvænt högg, jafnvel fyrir
fyrirtæki sem standa vel.
„Það versta sem gerist við
gjaldþrot er að fyrirtæki sem
áttu góða möguleika verða fyrir
banvænu höggi
vegna gjald-
þrots annarra
fyrirtækja,“
segir Hannes
G. Sigurðsson,
aðstoðar fram-
kvæmda stjóri
Samtaka
atvinnulífsins.
Þannig geti
fyrirtæki sem
standi sæmilega
lent í því að skuldir fyrirtækja sem
verði gjaldþrota fáist ekki greidd-
ar, með þeim afleiðingum að stönd-
uga fyrirtækið lendi í vanda, og
fari jafnvel sjálft í þrot.
Ófullnægjandi tölur eru til um
skuldastöðu íslenskra fyrirtækja,
en Seðlabanki Íslands vinnur nú
að úttekt á skuldastöðunni, segir
Þórarinn Gunnar Pétursson, aðal-
hagfræðingur Seðlabankans.
Aðspurður segir hann ómögulegt
að geta til um hversu mörg fyrir-
tæki séu í bráðri hættu á að fara
í þrot fyrr en úttektinni sé lokið.
Hann segir möguleg dómínóáhrif
gjaldþrota vissulega áhyggjuefni,
en ómögulegt sé að segja til um í
hvaða mæli þau geti orðið.
Hannes segir að stjórnvöld
virðist ekki nægilega meðvituð
um umfang vanda íslenskra fyrir-
tækja. Hundruð fyrirtækja rói
nú lífróður og gjaldþrotum fjölgi
mánuð eftir mánuð.
Könnun Samtaka atvinnulífsins
sýnir að háir vextir eru stærsta
vandamál fyrirtækja í dag, segir
Hannes. Nú heyrist að nægt lausa-
fé sé til í viðskiptabönkunum, en
sökum hárra vaxta geti enginn
tekið lán nema til að reyna að
fleyta fyrirtækjum sínum yfir erf-
iðasta hjallann. Það geri þó í raun
ekkert annað en að auka vandann
meðan vextir séu svo háir.
Nú þegar Alþingi hefur stoppað
í götin á gjaldeyrishöftunum ætti
ekkert að vera því til fyrirstöðu
að peningastefnunefnd Seðlabank-
ans lækki stýrivexti hratt til að
forðast fjöldagjaldþrot íslenskra
fyrirtækja, segir Hannes. Vextirn-
ir þurfi helst að fara niður fyrir tíu
prósent mjög fljótlega.
Hann segist þó ekki bjartsýnn á
að vextir lækki jafn hratt og æski-
legt væri miðað við skýringar pen-
ingastefnunefndarinnar á síðasta
vaxtaákvörðunardegi. Þá ákvað
nefndin að lækka stýrivexti um
eitt prósentustig, úr átján prósent-
um í sautján.
brjann@frettabladid.is
Óttast dómínóáhrif
vegna gjaldþrota
Allt að þriðjungur fyrirtækja í landinu gæti verið á leið í þrot, að mati aðstoðar-
framkvæmdastjóra SA. Segir stýrivexti þurfa að lækka mikið til að forðast
fjöldagjaldþrot. Seðlabankinn vinnur nú úttekt á skuldastöðu fyrirtækja.
ÞROT Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað mánuð frá mánuði. Gjaldþrot eins fyrir-
tækis getur haft áhrif á mörg önnur þegar útistandandi skuldir eru ekki greiddar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANNES G.
SIGURÐSSON
Það versta sem gerist við
gjaldþrot er að fyrirtæki
sem áttu góða möguleika verða
fyrir banvænu höggi vegna gjald-
þrots annarra fyrirtækja.
HANNES G. SIGURÐSSON
AÐSTOÐARFRAMKVÆMDASTJÓRI
SKEMMDARVERK Rauðri málningu
var skvett á höggmyndina Tuttugu
logar eftir lista konuna Huldu
Hákon, sem stendur á grasinu
fyrir utan Hótel Sögu við Haga-
torg, á föstudagskvöld. Utanríkis-
ráðuneytið keypti verkið af Huldu
og afhjúpaði í tilefni fundar NATO
sem haldinn var á Hótel Sögu í maí
árið 2002.
Hjá Hótel Sögu fengust þær upp-
lýsingar að gestir hótelsins hefðu
séð grímuklædda menn skvetta
málningunni. Haft var samband
við Reykjavíkurborg, sem réð
hreinsunarfyrirtækið Allt-af til
að hreinsa verkið í gærmorgun.
Hvorki er vitað hverjir voru að
verki né hvað þeim gekk til, en
sextíu ára afmælisleiðtogafundur
NATO fór fram í Frakklandi á
laugardag. Verknaðurinn hefur
ekki verið tilkynntur til lögreglu.
- kg
Grímuklæddir menn skvettu rauðri málningu á listaverkið Tuttugu logar:
NATO-listaverk skemmt
HREINSUN Starfsmenn Allt-af unnu að hreinsun verksins í gærmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNMÁL Boðaður hefur verið
fundur með tveimur fyrrver-
andi formönnum Framsóknar-
flokksins á Kanaríeyjum næst-
komandi laugardag, þeim Guðna
Ágústssyni og Valgerði Sverris-
dóttur.
Ekki náðist í Valgerði í gær og
Guðni kvaðst sjálfur ekki enn
hafa heyrt af fundinum. Hann
sagði þó að sér þætti líklegt að
á laugardag yrði hann á fundar-
stað sem, eins og jafnan áður, er
Íslendingabarinn Klörubar.
„Hvað er það sem menn ræða
um?“ svaraði Guðni spurður um
líklegt umræðuefni á fundinum.
- gar
Guðni og Valgerður á Kanarí:
Saman á fundi
á Klörubar
EFNAHAGSMÁL Ólafur Jóhann
Ólafsson, rithöfundur og stjórnar-
formaður
Íslensk-Amer-
íska verslunar-
ráðsins, og dr.
Gylfi Magnús-
son viðskipta-
ráðherra verða
meðal ræðu-
manna á ráð-
stefnu um
íslenskt efna-
hagslíf sem
hefst í New
York í dag. Sjö aðrir framsögu-
menn verða á ráðstefnunni. Meðal
þeirra eru Birkir Hólm Guðna-
son, stjórnar formaður Icelandair,
Guðni A. Jóhannesson, forstjóri
Orkustofnunar, og David O. Beim
sem er prófessor í hagfræði við
Columbia-háskólann. Rætt verður
um innviði íslenska efnahags-
kerfisins og framtíðarhorfur. - gar
Íslandsráðstefna í New York:
Ræða íslenska
efnahagskerfið
ÓLAFUR JÓHANN
ÓLAFSSON
BANKAR „Hún kom alveg niðurbrot-
in eftir fréttaflutning helgarinnar
og var búið að líða eins og saka-
manni alla helgina,“ segir Hlynur
Jónsson, formaður skilanefndar
SPRON, um lyktir rannsóknar á
umdeildri tölvupóstsendingu frá
SPRON með kynningarefni frá MP
Banka. Kaupþing taldi tölvupóst-
inn til marks um að skilanefnd
SPRON gengi erinda MP. Hlynur
segir tæknimenn hafa verið setta í
að rannsaka málið. „Það kom í ljós
að tiltekinn starfsmaður þjónustu-
versins var að stytta sér leið þegar
hún svaraði fyrirspurn – afritaði
hluta af texta á heimasíðu MP og
setti inn í svarið sitt. Þetta var eitt
einangrað tilvik hjá einum starfs-
manni sem gerði þetta í ógáti og
hugsunarleysi.“ - gar
MP-tölvupóstur frá SPRON:
Starfsmaður
gaf sig fram
Margir í greiðsluerfiðleikum
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa
942 umsóknir vegna greiðsluerfið-
leika borist til Íbúðalánasjóðs. Allt
árið í fyrra voru umsóknir vegna
greiðsluerfiðleika 1.405, en 377 í
hitteðfyrra.
EFNAHAGSMÁL
SPURNING DAGSINS