Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.04.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 07.04.2009, Qupperneq 4
4 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR Fyrir mistök birtist gömul frétt um mótmæli á síðu 8 í Fréttablaðinu á föstudaginn. Í fréttinni birtust sjónar- mið Gísla Jökuls Gíslasonar, ritstjóra Lögreglublaðsins, sem áttu við um ástandið í byrjun febrúar. LEIÐRÉTTING UMHVERFISMÁL Lítið hefur reynst af smáfiski í Varmá það sem af er stangveiðitímanum sem hófst 1. apríl. Að því er kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur er þetta í samræmi við kenningar um klórslysið mikla sem varð í Varmá í vetrarbyrjun 2007. Sam- kvæmt þeim var talið að yngri árgangar fiskstofna í ánni hefðu orðið sérstaklega illa úti. Góðu fréttirnar eru hins vegar að líflegt hefur verið hjá veiði- mönnum þrátt fyrir þetta því mikið hefur veiðst af stórum fisk- um, sjóbirtingar upp í fjórtán pund og tólf punda bleikja, að því er segir á svfr.is. - gar Eftirköst klórslyssins í Varmá: Fáir smáfiskar en margir stórir Í LAUGASKARÐI Klór lak úr kari við sundlaugina og stráfelldi fiska í Varmá. ÍTALÍA, AP Um 150 manns fórust er harður jarðskjálfti reið yfir Mið-Ítalíu í fyrrinótt, sá mann- skæðasti í landinu í þrjá áratugi. Á annað þúsund manns eru slas- aðir eftir skjálftann og tugþús- undir íbúa á hamfarasvæðinu heimilislausar. Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, lýsti yfir neyðarástandi og björgunarsveitir hvaðanæva að á Ítalíu voru kallað- ar til hjálpar. Jarðskjálftinn var 6,3 á Richter og átti upptök sín í fjallahéraðinu Abruzzo í miðhluta Ítalíu, um 100 kílómetra norðaust- ur af Róm. Björgunarfólk vann hörðum höndum að því í gær að reyna að ná út fólki úr rústum hruninna og hálfhruninna bygginga. Þar á meðal úr stúdentagarði í héraðs- höfuðstaðnum L‘Aquila þar sem talið var að helmingur íbúa væri fastur í rústunum. Íbúar hans sem komust út á hlaupum fylgd- ust með. „Ég var í rúminu, það var eins og skjálftinn ætlaði aldrei að hætta og ég heyrði byggingarn- ar hrynja í kringum mig,“ sagði Luigi Alfonsi, íbúi stúdentagarðs- ins. L‘Aquila er illa farin eftir skjálftann en hún er í um sjötíu kílómetra fjarlægð frá upptökun- um. Auk þess urðu þorp í nágrenni hennar mjög illa úti, meðal annars jafnaðist bærinn Onno nánast við jörðu. Tjaldbúðum var slegið upp í nágrenni borgarinnar fyrir þá sem misst hafa heimili sín. Borgarstjóri L‘Aquila, Mass- imo Cialente, sagði um hundrað þúsund manns vera heimilislausa eftir skjálftann og haft var eftir embættismönnum að tíu til fimm- tán þúsund byggingar væru ónýt- ar eða mikið skemmdar. L‘Aquila er miðaldaborg og ljóst var í gær að margar fornar byggingar væru ónýtar eftir skjálftann. Jarðskjálftafræðingurinn Gioacchino Giuliani varaði við hættunni á hörðum skjálfta á þess- um slóðum, síðast í síðustu viku. Hann gagnrýndi yfirvöld harð- lega í gær fyrir að hafa hunsað viðvörunina. Embættismenn gerðu lítið úr þessu í gær og sögðu vís- indalega ómögulegt að spá fyrir um jarðskjálfta. Vægir skjálftar hafa riðið yfir svæðið undanfarið. Samúðarkveðjum rigndi yfir ítölsku þjóðina í gær vegna hörm- unganna. Forseti Íslands sendi hinum ítalska starfsbróður sínum, Giorgio Napolitano, samúðar- kveðjur sínar og íslensku þjóðar- innar. sigridur@frettabladid.is 150 látnir í hörðum skjálfta Neyðarástandi var lýst yfir á Ítalíu í gær í kjölfar mannskæðasta jarðskjálfta þar í áratugi. Fjölmenni leitaði að lífsmarki í húsarústum. Tjaldbúðum var slegið upp fyrir tugþúsundir heimilislausra. Nýttu þér framúrskarandi þekkingu og þjónustu ásamt úrvalinu á stærsta varahlutalager landsins fyrir allar tegundir bíla. Gerðu vel við bílinn þinn! Ef varahluturinn er til – þá er hann til hjá okkur. N1.ISN1 440 1000 Á B Y R G Ð V A R A H L U T I R 3 ÁRA VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 20° 16° 22° 23° 18° 19° 23° 22° 13° 15° 21° 14° 10° 18° 9° 14° 20° 14° 7 4 2 5 6 5 6 6 8 8 5 4 8 5 5 Á MORGUN 15-23 m/s á Vestfjörðum, annars hægari. SKÍRDAGUR 13-15 á Vestfjörðum, annars mun hægari. 6 8 5 5 4 6 6 3 -1 4 6 6 4 4 5 1-3 HORFIR Á SKÍRDAG OG FÖSTUDAGINN LANGA Á skírdag eru horfur á allhvassri norðaustan átt á Vestfjörðum með snjókomu. Annars staðar verður vindur hægari með éljum nyrðra en skúr- um vestan til. Bjart verður suðaustan og austan til. Á föstu- daginn langa verður svipað veður nema að þá verður úrkoma eystra en nokkuð bjart sunnanlands. Kólnandi. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur „Ég heyri í þyrlunum, björgunarsveitir héðan eru að leggja af stað til að hjálpa til á jarðskjálftasvæðinu,“ segir Fífa Larsen í samtali við Fréttablaðið. Fífa, sem búsett er í héraðinu Friuli í norðausturhluta Ítalíu, segir fólk ekki tala um annað en jarðskjálftann og fylgjast grannt með tíðindum. „Hér í Friuli vilja allir hjálpa til því fólki er enn í fersku minni hjálpsemi fólks eftir mjög harðan og mann- skæðan jarðskjálfta sem hér varð á áttunda áratugnum.“ Fífa ætlar sjálf að gefa blóð í dag og segir fólk mjög tilbúið að gefa peninga til uppbyggingarstarfs. Marga langaði helst til að rjúka af stað og hjálpa til við að grafa fólk úr rústum, en yfirvöld hafi bent á að betra væri að aðstoða fórnarlömb með öðrum hætti, nóg væri af björgunarfólki á staðnum. „Það er mikið fjallað um það í fréttum núna hversu mörg ný hús hrundu í skjálftanum, þrátt fyrir að eiga að vera byggð samkvæmt kröfum um byggingar á jarðskjálftasvæðum.“ ALLIR VILJA HJÁLPA FÍFA LARSEN © GRAPHIC NEWS Að minnsta kosti 150 manns létust í jarðskjálftanum sem reið yfir Ítalíu klukkan hálf fjögur í fyrrinótt. Jarðskjálft- inn var 6,3 á Richter og átti upptök sín í fjalllendinu í Abruzzo-héraði rétt norður af borginni L‘Aquila. MIÐJARÐARHAF Sardinía Korsíka Napolí Róm Flórens Mílanó 320 km L´Aquila Harður jarðskjálfti á Ítalíu Á LÍFI Björgunarfólk hlúir að manni sem fannst á lífi í húsarústum í L‘Aquila. NORDICPHOTOS/AFP Í RÚST L‘Aquila er illa farin eftir jarðskjálftann og unnu fjölmargir að því að leita í húsarústum í gær. NORDICPHOTOS/AFP BANKAR Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir mikil verðmæti í uppnámi, gangi salan á SPRON til MP Banka ekki eftir. Salan á útibúum SPRON og neta- banka SPRON til MP Banka fékk grænt ljós frá Samkeppniseftirlit- inu en hefur ekki fengist staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Hlynur segir að meta megi söluna á um 800 milljónir króna. Þar af er stór upphæð vegna launa 45 starfs- manna sem MP ætlar að yfirtaka en skilanefndin þarf ella að greiða þriggja til tólf mánaða uppsagnar- frest eftir atvikum. Þrátt fyrir tafir á afgreiðslu málsins frá Fjármálaeftirlitinu segir Hlynur það ekki hafa tekið óeðlilega langan tíma miðað við afgreiðslu annarra mála þar. Nú haldi Fjármálaeftirlitið um alla þræði. „Ef sölunni til MP verði hafnað hafi verðmæti SPRON þegar rýrn- að verulega. Þá er vafamál hvort nokkuð fengist fyrir þetta lengur,“ segir Hlynur, sem kveður ástæðu þess liggja í augum uppi. „Eftir því sem útibúin er lokuð lengur hljóta þau að tapa sínum viðskiptavinum. Ef þú ætlar að opna aftur eftir tvo mánuði hlýtur þú að þurfa að finna nýja kúnna.“ Eins og áður segir felst hluti kaupverðsins á SPRON í yfirtöku 45 starfsmanna. Hlynur segir mjög marga þeirra hafa sex mán- aða uppsagnarfrest. Illt sé í efni ef viðskiptin fari út um þúfur. „Þá þurfum við að borga þessu fólki laun án þess að hafa nokkur not fyrir það,“ bendir hann á. - gar Formaður skilanefndar SPRON segir töf á sölu útibúanets dýrkeypta: Mikil verðmæti geta glatast á töfum SPRON Formaður skilanefndar SPRON óttast flótta viðskiptavina takist ekki að opna fljótlega útibú sem seld voru MP. LÖGREGLUMÁL Fjöldi lögreglubíla veitti í gærkvöld hálfþrítugum ökumanni á fólksbíl eftirför frá Bústaðavegi upp á Vesturlands- veg ofan við Grafarvog. Lögreglan segir einkennilegan akstursstíl mannsins hafa leitt til þess honum var gefið merki um að stöðva. Hann sinnti því hins vegar ekki heldur ók tryllings- lega með farþega sinn þar til för hans var stöðvuð á Vesturlands- vegi. Enginn meiddist en lögreglan segir manninn hafa skapað stór- hættu með ofsaakstrinum. Talið er víst að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. - gar Ofsaakstur í Austurborginni: Eftirför á fjölda lögreglubíla GENGIÐ 06.04.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 197,2682 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 119,71 120,29 178,23 179,09 161,69 162,59 21,705 21,831 18,352 18,460 15,048 15,136 1,1808 1,1878 179,70 180,78 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.