Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 TÓLF ÞÚSUND manns, eða sex þúsund pör, hafa frá árinu 1996 tekið þátt í hjónanámskeiðum séra Þórhalls Heimissonar. Námskeiðin hafa verið fastur liður í starfi Hafnarfjarðarkirkju í öll þessi ár. Hjónanámskeiðin eru ókeypis, sem og viðtölin sem þeim fylgja. Námskeiðin hefjast á ný í Hafnarfjarðarkirkju í september á komandi hausti. Magnús Samúelsson, eða Maggi Sam eins og hann er þekktur í bransanum, hefur keppt í vaxtar- rækt og fitness um árabil og er meðal annars sjöfaldur Íslands- meistari í vaxtarrækt. Meistarinn hefur undanfarna mánuði miðlað af reynslu sinni á námskeiðum í framkomu, þar sem þátttakend- ur eru meðal annars búnir undir Íslandsmeistaramótið í vaxtarrækt og fitness sem fer fram á Akureyri um páskana. „Ég fer yfir stöður, vinn með sjálfsöryggi keppenda, hjálpa þeim með mataræði, við val á fatnaði og að ná rétta litarhaft- inu, en lélegur litur getur kostað keppendur nokkur sæti,“ útskýrir Maggi, sem veigrar sér ekki við að kenna kvenkyns keppendum að koma fram á hælaháum skóm. „Þeir gegna lykil hlutverki í fitness-keppnum og þjóna þeim tilgangi að sýna betur læri og kálfa og draga fram kvenleikann. Ég kenni stelpunum að ganga á skónum þar til þær gera það átakalaust.“ Maggi hafði um nokkurt skeið gengið með þá hugmynd í magan- um að halda námskeið í framkomu fyrir byrjendur áður en hann sló til í vetur, þar sem hann segist allt of oft hafa orðið vitni að því að flott- ir keppendur falli á framkomu. „Betri framkoma eykur ekki bara sigurlíkurnar heldur skilar hún sér í flottari keppni og vonandi eykur það svo umsvif sportsins,“ segir Maggi, sem sjálfur þakkar vandaðri framkomu góðan árang- ur. „Ég hef meira að segja unnið til sérstakra verðlauna fyrir hana.“ Helstu meðmæli Magga hljóta þó að teljast sá árangur sem hann hefur náð með námskeiðunum. „Sem dæmi um það höfðu sigur- vegararnir á síðasta móti, í flokki kvenna og karla, lokið pósunám- skeiði hjá mér. Segja má að þátt- takendur á námskeiðum hjá mér hafi raðað sér í öll efstu sætin á mótinu. Einn varð Norðurlanda- meistari, annar bikarmeistari og svo framvegis.“ Af máli Magga má ráða að heil- mikil vinna liggi að baki þátttöku í keppnum í vaxtarrækt og fitness enda segist hann verja miklum tíma í ræktinni. „Ég lyfti fimm til sex sinnum í viku í klukkutíma eða einn og hálfan í senn. Brenni svo fjórum sinnum í viku á morgn- ana á fastandi maga til að brenna líkams fitunni en ekki matnum. Þá er hollt mataræði mikilvægt. Fjöl- margir skera niður á tíu til sextán vikna tímabili í mataræði fyrir keppni. Þannig að þetta er alls enginn hægðarleikur,“ segir hann og hlær. Spennandi verður síðan að fylgj- ast með keppninni um páskana en þar mun Maggi meðal annars etja kappi við lærisveina sína. „Þetta verður skemmtileg keppni. Kepp- endur verða færri en oft áður en þeir eru allir góðir,“ segir Maggi og telur sig eiga ágætar líkur á sigri. roald@frettabladid.is Kraftajötnar læra að pósa Magnús Samúelsson tekur þátt í Íslandsmeistaramóti í vaxtarrækt og fitness á Akureyri um páskana. Þar etur hann kappi við marga af helstu kraftajötnum Íslands og telur sig eiga góða möguleika á sigri. Maggi hefur undanfarna mánuði verið önnum kafinn við kennslu og undirbúning fyrir ýmis vaxtarræktarrmót. Fram undan er þátttaka í Íslandsmótinu í vaxtarrækt og fitness á Akureyri, mót í Danmörku 18. apríl og alþjóðlegt Grand Prix mót í Reykjavík 25. apríl. Svo heldur hann námskeið fyrir byrjendur í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 466 1016 www.ektafiskur.is frumkvöðlafyrirtæki ársins  - fiskvinnsla frá árinu  - Lifið heil www.lyfja.is Prófaðu 100% lífræna mýkt úr íslenskri náttúru Olían frá Móður Jörð er án allra aukaefna og framleidd í Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Dreifing: Heilsa ehf. LÍFOLÍA er ilmandi og djúpvirk fyrir vöðva og liði. BIRKIOLÍA mýkir og græðir þurra húð og exem. BLÁGRESISOLÍA nærir viðkvæma slímhúð og eyðir bólgu. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafknúnir hæginda- stólar • standa upp • Einfaldar stillingar og fjölbreytt úrval

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.