Fréttablaðið - 07.04.2009, Blaðsíða 34
30 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Leikhúsið lifir þegar það hefur
eitthvað að segja. Í einleiknum um
Rachel Corrie túlkar Þóra Karitas
Árnadóttir stúlkuna hugdjörfu
Rachel, sem enn er verið að sýna
á fjölum Borgarleikhússins. Þetta
er merkileg sýning fyrir margra
hluta sakir og lætur engan ósnort-
inn sem hana sér. Þetta er ekki
flókið, íburðarmikið eða yfirlætis-
fullt leikhúsverk heldur hógvær
frásaga, einleikur þar sem ung
bandarísk stúlka segir lífssögu
sína og birtir myndir og hugsanir
sinnar stuttu ævi.
Við erum nánast stödd inni í her-
bergi hennar sem birtist okkur á
hringsviðinu sem alltaf er svo-
lítið erfitt fyrir einn leikara að
höndla. En með því að vera kvik
og fim tókst Þóru Katrínu að leika
vel á þeim snúningsási sem sviðið
krefst.
Rachel Corrie þráast við að fara
hina hefðbundnu leið í sambandi
við væntanlegan frama sinn. Hún á
sér draum um að verða rithöfundur
og til þess að svo megi verða þarf
hún að fara út í hinn stóra heim og
hjálpa þeim sem í vanda eru stadd-
ir. Leikritið er nokkuð sundurskor-
ið og vantar svolítið tenginguna
við það hvernig hún allt í einu var
farin að starfa sem sjálfboðaliði í
Palestínu. Þar tekst henni að tengja
líf sitt samtímasögunni og heims-
sögunni með því að verða vitni að
og segja frá hlutskipti Palestínu-
manna og ofsóknum og stöðugum
þjóðernishreinsunum sem palest-
ínska þjóðin má búa við, þar sem
verið er með kerfis bundnum hætti
að hrekja fólkið úr eigin landi.
Rachel Corrie gerist sjálfboða-
liði í grasrótarhreyfingu sem
reynir að koma í veg fyrir mann-
réttindabrot gegn palestínskum
flóttamönnum, en þau eru framin
af einu mesta herveldi heims og að
því er virðist með stuðningi hennar
eigin þjóðar Bandaríkjamanna og
raunar umheimsins alls.
Rachel Corrie lét lífið á Gasa
2003 þegar ísraelsk jarðýta ók
yfir hana þar sem hún var að
reyna að koma í veg fyrir að hús
palestínskrar fjölskyldu væri
jafnað við jörðu. Fyrir hennar til-
stilli bárust fréttir til umheimsins
af þeim atburðum.
Um jólin í vetur og fyrri part
janúar gerði Ísraelsher gríðar-
legar árásir á Gasa, sem er eins og
risastórar fangabúðir þar sem ein
og hálf milljón Palestínumanna er
lokuð inni og sveltir á litlu svæði
sem Ísraelsher lokar frá öllum
áttum. Óbreyttir borgarar, þar af
400 börn, voru drepnir og þúsund-
ir særðust.
Allir fjölmiðlar heimsins utan
ein sjónvarpsstöð létu ísraelska
herinn mata sig á fréttum. Það var
fyrir tilstilli tveggja hugrakkra
norskra skurðlækna sem störf-
uðu við aðalsjúkrahúsið á Gasa að
umheimurinn fékk að vita hvað
þarna var að gerast. Rachel Corrie
var sjónarvottur sem galt fyrir það
með lífi sínu.
Það er ekki á hverjum degi sem
sýnd eru leikverk í leikhúsun-
um okkar sem skipta jafn miklu
máli og þetta. Þetta er verk um
alvarlega pólitíska hluti, en verkið
er þó engin predikun. Þetta tekur
á einu alvarlegasta deilumáli á
alþjóðavettvangi. Deilu sem hefur
leitt til margra styrjalda og þær
verða fleiri verði ekkert að gert.
Verkið höfðar til samvisku okkar,
umheimsins og til samvisku hvers
og eins. Hvers vegna leyfum við
þessu að gerast? Hvers vegna
gerum við ekkert?
Þóra Karitas Árnadóttir nær hér
að skapa trúverðuga stúlku en það
hefði ekki spillt fyrir að fá dýpri
greiningu á henni fullorðinni, jafn-
vel með heimildainnskotum eins
og Þóra Karitas sýndi í fyrirlestri
sínum á samkomu Palestínuvina
hér í Iðnó. Hér hefði mátt stytta
bernskubútana og leggja meira upp
úr því efni sem Þóra Karitas sjálf
hafði aflað sér.
Leikhljóðin og tónlistin í þess-
ari sýningu skapar hughrif og
undir strikar óhugnað þess ofbeldis
sem myndar ramma um verkið, og
er vonandi að hljóð og tón myndir
Margrétar Kristínar Blöndal
hljómi oftar í íslensku leikhúsi. Nú
verðum við að taka afstöðu, en það
hefur Borgarleikhúsið gert bæði
með þessari sýningu og eins með
stuttu sýningunni um „gyðinga-
börnin sjö“, sem er leikrit fyrir
Gasa sem sýnt var í lok nokkurra
sýninga í síðustu viku. Það leik-
verk tók aðeins rúmar tíu mínútur
í flutningi en var engu að síður
eins og ferð í gegnum langa sögu
þeirra Gyðinga sem settust að í
Palestínu.
Jón Atli Jónasson þýddi leik-
texta Caryl Churchill og Graeme
Maley leikstýrði stórum hópi leik-
ara. Ágóði fjársöfnunar í kjölfar
þeirrar sýningar rennur óskiptur
til læknishjálpar í Palestínu.
Fólk sem kallar sig siðmenntað
verður að bregðast við sögu Rachel
Corrie og vakna upp af svefndofa
vanans. Elísabet Brekkan
Ein rödd skiptir miklu máli
LEIKLIST Einleikurinn um Rachel Corrie verður sýndur tvisvar í viðbót, 18. og 19. apríl.
LEIKLIST
Ég heiti Rachel Corrie
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson
Leikari: Þóra Karitas Árnadóttir
Leikstjóri: Maria Ellingsen
Leikmynd og búningar: Fillippía
Elísdóttir
Sviðsumgjörð: Snorri Freyr Hilmars-
son
Tónlist: Margrét Kristín Blöndal
Ljós: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Aðstoðarleikstjóri: Bjartmar Þórðar-
son
Hafnar eru æfingar á einleikn-
um Ódó á gjaldbuxum eftir Ásdísi
Thoroddsen í Hafnarfjarðarleik-
húsi. Þórey Sigþórsdóttir fer með
hlutverk ódæðunnar sem býður
heim í stofu.
Ódó á gjaldbuxum er þjóðleg
hrollvekja skrifuð á fyrra misseri
2005. Kveikja einleiksins var and-
rúmsloftið í þjóðfélaginu á þeim
tíma og ekki hvað síst viðtöl í dag-
blöðum við útrásarvíkinga svokall-
aða. Þau viðtöl, fréttir frá heims-
byggðinni, reykvískur hversdagur
og íslenskur þjóðsagnaarfur, þetta
eru uppspretturnar að sögu slæðu-
konunnar. Hún segir frá uppvexti
sínum í kofahreysi í útjaðri borgar-
innar, rennir augum yfir hið dular-
fulla skeið sem valdamesta manns
á byggðu bóli og veitir gestum hlut-
deild í glæpum sínum sem valdið
hafa skaða um heim allan. Ódóið
afhjúpar sig, en í vissum tilgangi
þó.
Einleikurinn hefur áður verið
fluttur, þá í Útvarpsleikhúsi í
nóvember 2007 undir heitinu
,,Kvöldstund með Ódó“. Jóhanna
Vigdís Arnardóttir fór með hlut-
verk Ódósins í leikstjórn höfund-
ar og við undirleik tónlistar Báru
Grímsdóttur sem notuð er að hluta
í þessari sviðsetningu. Sérstakar
aðstæður íslensku þjóðarinnar köll-
uðu á endurflutning en í þetta sinn í
samstarfi Hafnarfjarðarleikhúss og
Gjólu leikhúss. Frumsýning verður
19. apríl. - pbb
Þjóðleg hrollvekja
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 7. apríl 2009
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
kvikmyndina The Whales of August í
leikstjórn Lindsay Anderson, í Bæjarbíói
við Strandgötu 6, Hafnarfirði. Nánari
upplýsingar á www.kvikmyndasafn.is.
➜ Tónleikar
20.00 Tónleikahópurinn OkiDoki
stendur fyrir órafmögnuðum tónleikum
í Nýlenduverzlun Hemma og Valda við
Laugaveg 21. Fram koma Jóhann Krist-
insson, Enkúdú, Lo-ji og Artery Music.
Aðgangur ókeypis.
➜ Djass
21.00 Reynir
Sigurðsson, Jón
Páll Bjarnason
og Gunnar
Hrafnsson leika
djass í Djúpinu
(veitingastaður-
inn Hornið) við
Hafnarstræti 15.
Á efnisskránni
verða m.a. lög
eftir C. Parker,
Jón Múla, Sigfús
Halldórs ásamt frumsömdu efni.
➜ Sýningar
Opnuð hefur verið sýning á verkum
Guðrúnar Einarsdóttur hjá SÍM, kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar við
Hafnarstræti 16. Opið virka daga kl.
9-17.
Helga Sigríður Valdemarsdóttir hefur
opnað sýninguna „Fagurfræðilegt dund-
ur“ á Café Karólínu við Kaupvangsstræti
á Akureyri. Opið mán.-fim. kl 11.30-01,
fös-lau. 11.30-03 og sun. kl. 14-01.
Ásgerður Ólafs-
dóttir hefur opnað
sýningu í Listasal
Iðu við Lækjargötu
þar sem hún sýnir
olíuverk. Sýningin
er opin alla daga
kl. 9-22.
Sex listamenn hafa opnað sýningar í
START ART listamannahúsi við Laugarveg
12b; Lena Boel, Dagrún Matthíasdóttir,
Sigurlín M. Grétarsdóttir, Joseph Henry
Ritter, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Mar-
grét Jónsdóttir. Opið þri.-lau. kl. 13-17.
Nemendur í almennri hönnun og hand-
verksskóla Tækniskólans hafa opnað
sýningu í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu við
Pósthússtræti 3-5. Sýningin er opin virka
daga kl. 9-17. Allir velkomnir.
Guðmunda Hulda Jóhannesdóttir
(Munda) hefur opnað sýningu á vatns-
lita- og akrýlmyndum á Café Mílanó í
Faxafeni. Opið mán.-fim. kl. 9-23.30, fös.
kl. 9-22, lau. kl. 9-18 og sun. kl. 12-18.
➜ Leiðsögn
12.05 Mjöll Snæsdóttir fornleifa-
fræðingur fjallar um fornleifarannsókn
á húsakosti í Skálholti og sýninguna
Endurfundir í Þjóðminjasafni Íslands við
Suðurgötu. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
➜ Blús
Blúshátíð í Reykjavík, 4.-9.
apríl. Nánari upplýsingar og
dagskrá á www.blues.is.
20.00 Pinetop Perkins
kemur fram ásamt
Vinum Dóra á Reykja-
vík Hilton Nordica við
Suðurlandsbraut 2.
Einnig koma fram KK,
Deitra Farr og Nordic
All Stars Blues Band.
➜ Ljósmyndasýningar
Opnuð hefur verið sýning á ljósmyndum
Keiko Kurita í Skotinu á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu 15, 6. hæð.
Opið virka daga kl. 12-19 og um helgar
13-17. Aðgangur er ókeypis.
Í Gerðarsafni við Hamraborg í Kópavogi
stendur yfir sýning Blaðaljósmyndara-
félags Íslands auk þess sem opnuð hefur
verið sýning ljósmyndarans Jim Smart.
Opið alla daga nema mán. kl. 11-17.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
LEIKLIST Þórey Sigþórsdóttir í einleik
eftir Ásdísi Thoroddsen.
Sögusteinn, barnabókaverðlaun
IBBY á Íslandi, voru afhent í þriðja
sinn 2. apríl, á alþjóðlegum degi
barnabókarinnar. Upphæð verð-
launanna er 500 þúsund krónur
en þau eru veitt rithöfundi, mynd-
listarmanni eða þýðanda sem með
höfundarverki sínu hefur auðgað
íslenskar barnabókmenntir.
Það var einróma álit valnefnd-
ar, sem skipuð er Önnu Heiðu
Páls dóttur bókmenntafræðingi,
Ármanni Jakobssyni bókmennta-
fræðingi og Rögnu Sigurðar dóttur,
myndlistarkonu og rithöfundi, að
Kristín Helga Gunnarsdóttir skyldi
hljóta verðlaunin að þessu sinni.
Í greinargerð valnefndar segir
meðal annars: „Á þessum tólf árum
sem rithöfundarferill Kristínar
Helgu spannar hefur hún skrifað
hátt á annan tug bóka, að minnsta
kosti eina á ári og stundum tvær.
Binna, Hekla, Mói hrekkjusvín,
Silfurberg-þríburarnir, og síðast en
ekki síst Fíasól, eru persónur sem
barnið í okkar húsi og barna barnið
í næsta húsi hafa alist upp með,
svipað og eldri kynslóðin á Íslandi
í dag ólst upp með Línu Langsokk
og Önnu í Grænuhlíð. Mjög senni-
lega munu þau tala um Fíusól með
sérstakan glampa í augunum eftir
tíu, tuttugu eða þrjátíu ár. Undir-
liggjandi boðskapur bóka Kristínar
Helgu er krafa um að hugsa sjálf-
stætt og að vera góð og heilsteypt
manneskja, en þessi boðskapur
kemur hvergi fram á of opinská-
an hátt. Kristín Helga hefur ein-
göngu skrifað barnabækur og hún
hefur sannað að góður barnabóka-
höfundur getur skipað sér í fremstu
röð íslenskra rithöfunda.“
Frú Vigdís Finnbogadóttir
afhenti Kristínu Helgu verðlaunin
við athöfn sem haldin var á vegum
IBBY og Borgarbókasafnsins. Auk
fjárins hlaut Kristín Helga til eign-
ar verðlaunagrip sem hannaður
var af Önnu Þóru Árnadóttur, graf-
ískum hönnuði. Aðrir hand hafar
Sögusteins eru Sigrún Eldjárn og
Kristín Steinsdóttir.
Kristín Helga heiðruð
BÓKMENNTIR Kristín Helga Gunnars-
dóttir rithöfundur safnar verðlaunum
fyrir sögur sínar fyrir börn.
10. HVERVINNUR!
AÐAVINN
INGUR!
PANASO
NIC
TÖKUVÉL
!
NV - GS8
0
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Leik lýkur 13. apríl kl 23:59 2009. 99 kr/skeytið. Vinningar eru afhentir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.