Fréttablaðið - 07.04.2009, Side 40
36 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Stórskytta Valsmanna, Elvar Friðriksson, fór til æfinga hjá franska
úrvalsdeildarfélaginu Creteil í síðustu viku. Svo vel gekk hjá kapp-
anum að Frakkarnir buðu honum umsvifalaust samning út þessa
leiktíð. Eftir nokkra umhugsun ákvað Elvar að hafna tilboðinu og
hann klárar því tímabilið með Valsmönnum.
„Þeir vildu bara fá mig strax. Mér gekk vel á æfingum og svo tala
ég líka smá frönsku og þeir voru líka hrifnir af því,“
segir Elvar léttur en faðir hans er þýðandi og mamma
hans kennir frönsku. Hann hefur því ágætan grunn í
tungumálinu.
„Þetta var bara þriggja mánaða samningur.
Ég hugsaði því bara og hvað svo? Ég vildi
ekki fara frá Val með úrslitakeppnina handan
við hornið fyrir aðeins þriggja mánaða samning.
Þetta var samt mjög erfið ákvörðun enda sterkt
lið þarna á ferðinni. Ég ákvað samt að klára með
Val og það verða vonandi einhverjir útsendarar að
fylgjast með. Ef vel gengur er aldrei að vita nema eitthvað annað
komi upp á borðið hjá manni,“ segir Elvar en hann er orðinn 22 ára
gamall og því á kjöraldri að eigin mati að taka næsta skref á
ferlinum.
„Ég er opinn fyrir öllu og auðvitað væri gaman að
reyna fyrir sér erlendis. Ég er tilbúinn að taka næsta
skref á ferlinum. Ef ekki þá tek ég bara annað tímabil
hér heima og ása það,“ segir Elvar ákveðinn.
Elvar og félagar voru teknir í bakaríið af HK á sunnudag
en liðið mætir einmitt HK í úrslitakeppninni. Kópavogs-
liðið hefur verið á mikilli siglingu og því ljóst að það bíður
Valsmanna verðugt verkefni.
„Það var ekki mikil stemning eftir þennan leik. Óskar
þjálfari bað menn vinsamlegast um að hysja upp um sig
buxurnar. Það er ekki gott að láta niðurlægja sig og hvað þá
fyrir framan alla þjóðina eins og í þessum leik,“ segir Elvar,
sem hefur ekki áhyggjur af því að slík frammistaða endurtaki
sig.
„Þetta mun ekki gerast aftur. Nú erum við komnir með réttu
hvatninguna, eigum harma að hefna og munum svara fyrir
okkur. Það er alveg klárt.“
VALSMAÐURINN ELVAR FRIÐRIKSSON: HAFNAÐI SAMNINGSTILBOÐI FRÁ FRANSKA FÉLAGINU CRETEIL
Voru líka hrifnir af því að ég talaði frönsku
FÓTBOLTI FH-ingar hafa fengið
liðsstyrk fyrir komandi átök
í efstu deild karla nú í sumar.
Norski framherjinn Alexander
Söderlund hefur samþykkt að
ganga í raðir félagsins og verður
með allt tímabilið í sumar.
Söderlund verður 22 ára
gamall á árinu og er á mála
hjá ítalska B-deildarliðinu
Treviso sem lánar hann
til FH. Hann á einnig að
baki nokkra leiki með U-21
landsliði Noregs.
„Það er búið að
skrifa undir alla
samninga og ekk-
ert sem vantar
nema leikheim-
ild. Við vonum
að hún verði
komin strax í
þessari viku,“
segir Heimir
Guðjónsson
í samtali við
Fréttablaðið.
„ H a n n e r
búinn að spila
með okkur á
nokkrum æfing-
um og við bind-
um miklar vonir
við hann enda
öflugur strákur. Hann er nokkuð
hávaxinn og er góður alhliða
leikmaður.“
Heimir segir þó ekki útilokað
að FH muni styrkja sig enn frek-
ar áður en deildin hefst í vor.
„Við munum skoða málin eftir
því sem líður á undirbúnings-
tímabilið og hvernig okkur
gengur í leikjunum sem
eru fram undan,“ sagði
Heimir og segir að þá yrði
um erlendan leikmann að
ræða.
„ Þ a ð h e f u r
gengið illa að
fá íslenska leik-
menn. Það gæti
verið að leik-
menn þori ekki
að koma í FH
eða þá að þeir
halda að þjálf-
arinn sé svona
lélegur,“ sagði hann
í léttum dúr. - esá
FH fær norskan framherja til liðs við sig:
Bindum miklar
vonir við Söderlund
HEIMIR GUÐJÓNSSON
Segir ekki útilokað að
FH fái fleiri leikmenn til
liðs við sig fyrir næsta
tímabil.
FRÉTTABALÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Átta liða úrslit Meistara-
deildar Evrópu hefjast í kvöld með
tveimur leikjum. Villarreal tekur
þá á móti Arsenal og Evrópumeist-
arar Man. Utd taka á móti Porto.
Stuðningsmenn Porto eiga góðar
minningar frá Old Trafford en árið
2004 sló Porto United út úr keppn-
inni með marki frá Costinha undir
lokin. Muna margir eftir sprettin-
um sem þáverandi þjálfari Porto,
José Mourinho, tók eftir endilöng-
um vellinum. Porto vann að lokum
Meistaradeildina á eftirminni-
legan hátt.
Þessum leik hafa leikmenn
Manchester United ekki gleymt og
hvað þá stjórinn, Sir Alex Fergu-
son. United hyggur á hefndir í
kvöld þó svo að liðið hafi litla hvíld
fengið en það spilaði í deildinni á
sunnudaginn.
United verður án Rio Ferdinand
í leiknum en hann meiddist með
enska landsliðinu gegn Úkraínu.
Miðjumaðurinn Anderson verður
líklega einnig fjarri góðu gamni
en hann meiddist einnig í lands-
leik. Gleðitíðindin fyrir United
eru þau að Nemanja Vidic, Wayne
Rooney og Paul Scholes eru komn-
ir úr banni og spila í kvöld. Johnny
Evans mun leika við hlið Vidic í
miðri vörninni.
„Það er gott að fá mennina úr
banni til baka. O´Shea fer svo í
hægri bakvörðinn. Það er gott að
hafa Rooney og Scholes klára, sem
og Park. Ég hef úr möguleikum að
velja sem betur fer,“ sagði Fergu-
son.
Robert Pires bíður manna
spenntastur eftir því að fá að
mæta Arsenal í kvöld – félaginu
sem hann lék með svo lengi.
„Ég er mjög sáttur við að mæta
Arsenal því mig langaði alltaf að
mæta því áður en ég legg skóna
á hilluna. Það verður gaman að
koma til London og kveðja stuðn-
ingsmennina, sem voru frábær-
ir við mig. Ef ég verð svo hepp-
inn að skora gegn Arsenal mun ég
ekki fagna, af virðingu við alla hjá
félaginu,“ sagði Pires. Hann held-
ur ágætu sambandi við Wenger
og ræddi við hann í síma skömmu
fyrir dráttinn í Meistaradeildinni
þar sem þeir ræddu þann mögu-
leika að mætast í keppninni. - hbg
Átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld með tveimur stórleikjum:
United á harma að hefna gegn Porto
MAÐUR STUNDARINNAR Allra augu
beinast að Ítalanum Federico Macheda
þessa dagana. Hann byrjar á bekknum í
kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Veigar Páll meiddur
Veigar Páll Gunnarsson á við smávægileg meiðsli
að stríða og gat af þeim sökum ekki leikið með
Nancy í frönsku úrvalsdeildinni um helgina. „Ég
hef verið stirður aftan í læri undanfarið og bað
um að fara í myndatöku eftir að ég
kom aftur frá landsliðinu. Í ljós kom
að ég er tognaður og mér er sagt
að ég verði frá í tvær vikur,“ sagði
Veigar við Fréttablaðið. Nancy á
í harðri fallbaráttu í frönsku
úrvalsdeildinni en Veigar Páll
hefur fá tækifæri fengið með
liðinu síðan hann kom til þess
í janúar síðastliðnum.
ESL LMV
1900
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
HANDBOLTI Það vakti athygli áhorf-
enda á leik Akureyrar og Fram
nyrðra á sunnudag að félagi Ant-
ons Gylfa Pálssonar í dómgæsl-
unni var ekki Hlynur Leifsson eins
og vant er. Dómarinn var þó þekkt-
ur í handboltaheiminum enda einn
öflugasti hornamaður deildarinnar
síðustu ár.
Hér er verið að tala um Hauka-
manninn Jón Karl Björnsson, sem
lagði skóna á hilluna eftir síð-
ustu leiktíð. Hann tók í staðinn
upp flautuna og var á Akureyri að
dæma sinn annan leik í efstu deild
karla en hann hefur dæmt nokkuð
í efstu deild kvenna í vetur.
„Ég þurfti að hafa eitthvað að
gera. Það vantar alltaf dómara og
ég tala nú ekki dómara með leik-
reynslu. Þetta fór því vel saman,
það vantar dómara og mig vantaði
eitthvað að gera,“ sagði Jón Karl
léttur.
Jón hefur verið að dæma síðan
hann var fimmtán ára með Júlí-
usi Sigurjónssyni og hafði löngu
ákveðið að hella sér út í dómgæsl-
una af fullum krafti eftir að ferl-
inum myndi ljúka. Hann dæmdi
leik Vals og Akureyrar um síð-
ustu helgi í N1-deildinni og svo
leik Akureyrar og Fram í gær.
Þar var fyrrum þjálfari Jóns
Karls, Viggó Sigurðsson, að stýra
liði Fram og fékk hann að líta
rauða spjaldið í lok leiks. Það var
reyndar Anton Gylfi sem lyfti
spjaldinu að Viggó en ekki Jón
Karl.
„Það var ekkert mál að dæma
hjá Viggó. Hann var ekkert æstur
fyrr en í restina,“ sagði Jón Karl
en hefði hann þorað að gefa Viggó
rautt spjald? „Já, ef hann hefði
komið svona fram við mig. Hann
var með orðaforða sem á að ekki
að heyrast. Þetta var óþarfi hjá
honum,“ sagði Jón Karl en þessi
framkoma þjálfara Fram mun lík-
ast til skila því einu að hann byrji
úrslitakeppnina í leikbanni.
Jón Karl segir menn almennt
hafa verið ánægða með dómgæslu
þeirra félaga í gær og blaða maður
Fréttablaðsins hrósaði Jóni í
hástert fyrir sína frammistöðu.
„Það var ekki okkur að kenna
að Fram missti leikinn niður. Þeir
klúðruðu fjölda dauðafæra og geta
því sjálfum sér um kennt að svo
fór sem fór,“ sagði Jón sem segir
það vera svolítið sérstakt að vera
orðinn dómari í deildinni.
„Þetta var svolítið skrítið fyrst.
Ég þekki nú flesta strákana í deild-
inni en ég hef fengið jákvætt við-
mót hjá mönnum sem er bara
ánægjulegt. Þjálfarar og leik-
menn eru almennt ánægðir með að
fá fyrrum leikmann á flautuna og
ég skora á fleiri fyrrum leikmenn
til þess að prófa þetta,“ sagði Jón
Karl sem hefur farið vel af stað
eins og áður segir.
Hann mun ef að líkum lætur fá
fleiri tækifæri í efstu deild á næsta
vetri enda með efnilegri dómurum
landsins og á hraðri leið upp met-
orðastigann í dómaraheiminum.
henry@frettabladid.is
Hefði gefið Viggó rautt
Gamla kempan Jón Karl Björnsson er komin hinum megin við borðið og farin
að dæma handboltaleiki í stað þess að spila þá. Hann var í eldlínunni á Akur-
eyri á sunnudag þar sem hans gamli þjálfari, Viggó Sigurðsson, sá rautt.
MEÐ SPJALDIÐ Á LOFTI Jón Karl Björnsson gefur ekkert eftir í dómgæslunni. Hann
segist alls óhræddur við að spjalda fyrrverandi þjálfara og félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN