Fréttablaðið - 07.04.2009, Page 42
38 7. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
ka
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
FÓTBOLTI Hollendingurinn Robin
van Persie verður ekki með
Arsenal, sem mætir Villarreal
í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Hann meiddist á nára í leik með
hollenska landsliðinu nú um síð-
ustu helgi.
Hins vegar eru góðu fréttirnar
þær fyrir Arsene Wenger, stjóra
Arsenal, að Emmanuel Adebayor
getur spilað með liðinu á ný eftir
tveggja mánaða fjarveru vegna
meiðsla. Þá eru þeir Theo Walcott
og Samir Nasri báðir heilir heilsu
og eru leikfærir í kvöld. - esá
Blóðtaka fyrir Arsenal:
Van Persie ekki
með í kvöld
VAN PERSIE Hefur verið mikilvægur
hlekkur í liði Arsenal. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Birmingham vann í gær-
kvöldi afar mikilvægan 2-0 sigur
á Wolves í toppbaráttu ensku B-
deildarinnar þó svo að liðið hafi
verið manni færra í 53 mínútur.
Staðan í leiknum var marka-
laus er Lee Carsley var vikið af
velli eftir grófa tæklingu á Chris
Iwelumo, sem þurfti að fara af
velli skömmu síðar.
Cameron Jerome kom svo
Birmingham yfir á lokamínútu
fyrri hálfleiks og Garry O‘Conn-
or tryggði liðinu sigurinn með
marki á 69. mínútu.
Þar með minnkaði forysta
Wolves á toppi deildarinnar í tvö
stig. Birmingham er í öðru sæti
og Reading því þriðja, átta stig-
um á eftir Wolves. - esá
Toppslagur í B-deild Englands:
Mikilvægt hjá
Birmingham
FÓTBOLTI Edda Garðarsdóttir skor-
aði sigurmark Örebro gegn Sunn-
anå í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gærkvöldi. Leikn-
um lauk með 1-0 sigri Örebro en
mark Eddu kom strax á sjöttu
mínútu leiksins.
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
var einnig í byrjunarliði Örebro
og léku þær báðar allan leikinn.
Einnig var leikið í karlaboltan-
um í Svíþjóð en
fyrstu umferðinni
lauk í gær. Hels-
ingborg vann 1-
0 sigur á IFK
Gautaborg þar
sem Ragn-
ar Sigurðsson
var í byrjunar-
liði síðarnefnda
liðsins. Hjálmar
Jónsson var á
bekknum.
- esá
Íslendingar í Svíþjóðarbolta:
Edda skoraði
sigurmarkið
KÖRFUBOLTI Úrslitaeinvígið í Ice-
land Express-deild karla virðist
ætla að verða gríðarlega spenn-
andi. Það varð ljóst í gærkvöld
þegar Grindvíkingar stóðust press-
una og unnu verðskuldaðan 100-88
sigur á KR í öðrum leik liðanna í
Grindavík.
Það var frábær stemning í
Grindavík í gær og greinilegt að
bæjarbúar ætluðu að styðja vel við
bakið á sínum mönnum. Íþrótta-
húsið í Grindavík var troðfullt og
stemningin frábær þegar leikmenn
voru kynntir til sögunnar með reyk
og ljósasýningu. Lið heimamanna
svaraði þessari stemningu vel á
vellinum og náði fljótlega forystu
í leiknum. Grindavík hafði yfir 23-
21 eftir fyrsta leikhluta og leiddi í
hálfleik 48-43.
Það var greinilegt að heimavöllur-
inn náði fram því besta í liði
heimamanna og allt annað var að
sjá til þeirra en í fyrsta leiknum.
Þriðji leikhlutinn var hnífjafn en
á upphafsmínútum fjórða leikhlut-
ans urðu þáttaskil í leiknum. Þá
fóru þriggja stiga skotin að detta
hjá Grindvíkingum og tvö slík
frá Þorleifi Ólafssyni og Brenton
Birmingham komu Grindavík tíu
stigum yfir. KR reyndi án afláts
að minnka muninn á síðustu mín-
útunum, en heimamenn héldu haus
og unnu verðskuldaðan sigur. „Það
hefði verið eitthvað að ef menn
hefðu ekki rifið sig upp í svona
stemningu,“ sagði ánægður þjálf-
ari Grindavíkur, Friðrik Ragnars-
son.
Brenton Birmingham var besti
maður Grindavíkurliðsins og skor-
aði 28 stig og hirti átta fráköst,
en hann hefur fengið enn stærra
hlutverk í sóknarleiknum eftir að
Páll Axel Vilbergsson meiddist.
Þorleifur Ólafsson var drjúgur
með fjórtán stig og ellefu frá köst.
Hjá KR var Jason Dourisseau
atkvæðamestur með 22 stig og
fimmtán fráköst, Helgi Magnús-
son 21 stig og Jón Arnór Stefáns-
son með sextán stig og tólf stoð-
sendingar.
Staðan í einvígi liðanna er því
orðin jöfn, 1-1, og ljóst að allt getur
gerst í næsta leik, sem fram fer í
vesturbænum á fimmtudagskvöld.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR, tók undir það. „Grindvíking-
arnir voru bara betri í kvöld líkt
og við vorum betri í fyrri leikn-
um. Það voru þeir sem stjórnuðu
ferðinni í þessum leik en ekki við,
þannig að við verðum að snúa því
við aftur. Svona er úrslitakeppnin.
Maður á góða sigra og svo tapar
maður líka. Það er bara áfram
gakk í þessu og þetta er ekkert til
að skæla yfir,“ sagði þjálfarinn í
samtali við Fréttablaðið.
baldur@365.is
Aftur stranda KR-ingar í Röstinni
Grindavík vann í gær sigur á KR í úrslitarimmu Iceland Express-deildar karla um Íslandsmeistaratitilinn,
100-88. Staðan í rimmu liðanna er því jöfn, 1-1. Þetta var fyrsta tap KR í úrslitakeppninni á tímabilinu.
BRENTON BIRMINGHAM Átti stjörnuleik
í liði Grindavíkur í gær og skoraði 28
stig. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HALDIÐ Í SKEFJUM Jón Arnór Stefánsson sýndi marga glæsitakta í leiknum í gær en
stundum höfðu varnarmenn Grindavíkur betur í baráttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GRINDAVÍK - KR 100-88
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 28
(8 fráköst, 6 stoðsendingar), Nick Bradford 14,
Þorleifur Ólafsson 14 (11 fráköst), Helgi Jónas
Guðfinnsson 12, Guðlaugur Eyjólfsson 11, Páll
Kristinsson 10, Páll Axel Vilbergsson 7, Arnar Freyr
Jónsson 4.
Stig KR: Jason Dourisseau 22 (15 fráköst),
Helgi Már Magnússon 21 (10 fráköst), Jón Arnór
Stefánsson 16 (12 stoðsendingar, 7 fráköst),
Jakob Sigurðarson 11, Fannar Ólafsson 8, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 3, Brynjar Þór Björnsson 3,
Skarphéðinn Ingason 2, Darri Hilmarsson 2.
KÖRFUBOLTI Friðrik Ragnarsson,
þjálfari Grindavíkur, og besti
maður liðsins í gær, Brenton
Birmingham, voru kampa kátir
með sigur sinna manna á KR-
ingum í gær, 100-88. Þar með er
staðan jöfn, 1-1, í rimmu liðanna
um Íslandsmeistaratitilinn. Liðin
mætast næst á fimmtudaginn í
KR-heimilinu.
„Ég er ánægður með hugar-
farið hjá mínum mönnum og
áhorfendur sáu um að rífa upp
stemninguna með okkur. Við
sýndum það að við ætlum að vera
með í þessari keppni. Menn voru
farnir að tala um að við mynd-
um detta út 3-0 strax í fyrri hálf-
leik á fyrsta leiknum, en KR fékk
bara einn sigur fyrir þann leik
þó að sigurinn hefði verið góður.
Við erum komnir þetta langt og
höfum hungur til að ná lengra,“
sagði Friðrik Ragnarsson, þjálf-
ari Grindavíkur, eftir sigurinn á
KR í gær. Grindavíkurliðið varð
fyrir því óláni að missa Helga
Jónas Guðfinnsson í meiðsli í
leiknum og hann er spurningar-
merki fyrir næsta leik. „Ég veit
ekki með Helga, en það er ljóst að
maður verður að koma í manns
stað. Páll Axel fann sig betur í
kvöld en í síðasta leik og það er
jákvætt,“ sagði Friðrik.
Brenton Birmingham sýndi í
gær að hann er með betri körfu-
boltamönnum landsins þó svo
að hann hafi verið meðal elstu
manna vallarins í gær.
„Ég hef verið að spila eins og
36 ára gamall maður og þjálf-
arinn sagði mér að hætta því og
vera grimmari í sóknarleiknum,“
sagði Brenton Birmingham, sem
átti fínan leik með Grindavík í
gær og skilaði 28 stigum. „Það var
að duga eða drepast fyrir okkur
því það er ekki auðvelt að lenda
undir á móti svona liði eins og KR.
Okkur tókst að verja heimavöll-
inn og nú er bara að stela einum í
Reykjavík,“ sagði Birmingham.
- bb
Friðrik Ragnarsson og Brenton Birmingham eftir sigur Grindavíkur á KR í Röstinni í gærkvöldi:
Við höfum hungur til að ná enn lengra
FRIÐRIK RAGNARSSON Ánægður með hugarfarið hjá leikmönnum Grindavíkur.